Morgunblaðið - 06.11.1980, Síða 3

Morgunblaðið - 06.11.1980, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1980 3 Sljtnar upp úr viðræðum FIP og bókagerðarmanna „TILBOÐ prentsmiðjueigenda var gjörsamlega út i loftið ok ekki svara vert. Okkur fannst því ekki ástæða til þess að halda viðræðunum áfram,“ sagði ólaf- ur Emilsson, formaður Ilins ís- lenzka prentarafélags í gær, er upp úr viðræðum bókauerðar- manna og Félags islenzka prent- iðnaðarins hafði slitnað. Harald- ur Sveinsson formaður FÍP sagði: „Við hofum boðið það, sem Vinnuveitendasambandið telur. að aðrir sambærilegir hópar hafi fengið og töldum okkur ekki fært að ganga lengra.“ Bókagerðarfélögin þrjú, HIP, Bókbindarafélag Islands og Graf- iska sveinafélagið hafa að undan- förnu setið á tíðum sáttafundum með FÍP. Eins og áður hefur komið fram, hefur samkomulag náðst um 4. kafla kjarasamnings HÍP, sem fjallar um tæknimálin og þegar umræður hófust um launaliðinn í gær, voru sérkröfur bókagerðarmanna langt komnar, þótt þær væru ekki að fullu útræddar, að sögn Ólafs Emils- sonar, og með fyrirvörum um samkomulag um launaliðinn. Ólafur sagði, að samninganefnd bókagerðarfélaganna hefði talið tilboð vinnuveitenda, sem hann vildi ekki fjalla nánar um, út í loftið og því hefðu prentarar ákveðið að fresta viðræðum í bili og halda félagsfund allra félag- anna þriggja. Verður sá fundur haldinn í Iðnó í dag klukkan 16.15 og verður þar lögð fram tillaga um „einhverjar aðgerðir, en síðan munu fulltrúaráð félaganna taka endanlega ákvörðun". 17 skip fengu full- fermi á einni nóttu MJÖG góð loðnuveiði var á þriðjudagskvöld og aðfaranótt miðvikudags. Mörg skipanna fengu fullfermi i einu kasti og voru þvi ekki nema fáar klukk- ustundir á miðunum. Frá dimm- ingu á þriðjudag þar til i birt- ingu í gærmorgun fengu 17 skip fullfermi og það jafnvel allt að þúsund tonnum. Tvö skip eiga nú aðeins eftir einn túr til að fylla þann kvóta, sem skipunum er nú heimilt að taka. þ.e. Grindvfking- ur og Örn. Eftirtalin skip tilkynntu Loðnu- nefnd um afla á þriðjudagskvöld og í gær: Þriðjudagur: Huginn 580, Skarðsvík 620. Miðvikudagur: Örn 580, Húna- röst 630, Hilmir II 560, Ljósfari 570, Grindvíkingur 1000, Gígja 750, Jón Finnsson 600, Guðmund- ur 930, Fífill 630, Sæberg 600, Seley 430, Keflvíkingur 520, Sæ- björg 560, Svanur 500, Þórður Jónasson 490. Aflinn á vertíðinni er nú orðinn um 260 þúsund tonn og hefur loðnan fengizt siðustu daga 60-80 mílur norður af Horni. Talsvert er um, að skipin sigli austur fyrir land með aflann vegna veðurs fyrir sunnan land og suðvestan, en einnig er lítið þróarrými á mörg- um stöðum við Faxaflóa. Ólafeyikurtogarar eru báðir bilaðir ólafsvik. 5. nóvember. ÓLAFSVÍKURBÁTAR, sem voru á síldveiðum, eru nú komn- ir heim og munu flestir vera að búast á aðrar veiðar með línu eða troll. Engin síld var söltuð hér, en nokkuð var fryst í beitu. Báðir togararnir, Lárus Sveins- son og Már eru frá veiðum eins og er vegna vélaviðgerða, en vonast er til að ekki líði á löngu þar til þeir komast af stað aftur. Hér hefur verið næg atvinna að undanförnu og verður vonandi þegar bátar og togarar róa á ný. — Helgi Fjöldi síldveiðiskipa við bryggju á Neskaupstað eina helgina fyrir nokkru og eins og sjá má eru flest skipin af Snæfellsnesinu. (Ljósm. ÁsKeir.) Þjónaverkfall í einn dag 8. nóvember: Veitingahúsin lok- uð á laugardaginn FÉLAG framreiðslumanna hefur boðað verkfall næstkomandi laugardag og hefst það klukkan 04 aðfaranótt laugardags og stendur til 04 aðfaranótt sunnu- dagsins, en þjónar vilja gefa fólki tækifæri til þess að vera til loka opnunartíma veitingahúsanna á föstudagskvöldið. Um er að ræða eins dags verkfall og kemur það til framkvæmda, ef ekki hefur samizt i deilu þjóna og veitinga- húsaeigenda fyrir þann tima. Sáttafundur er boðaður i deil- unni i dag. en ekki voru i gær taldar miklar horfur á samkomu- lagi. Samkvæmt uppiýsingum Svein- björns Þorkelssonar, formanns Félags framreiðslumanna, eru þetta aðeins fyrstu aðgerðir fé- lagsins í yfirstandandi kjaradeilu og má búast við því, ef ekki gengur saman með deiluaðilum, að þjónar boði til frekari verkfallsaðgerða. Haldnir hafa verið 17 viðræðu- fundir frá því er þjónar lögðu fram kröfugerð sína í aprílmán- uði. Þá þegar var málinu vísað til sáttasemjara. Þjónar taka laun sín um svo- kallað þjónustugjald, en hafa kauptryggingu, sem í dag er 313 þúsund krónur á mánuði á fyrsta ári. Aðalkrafa þeirra nú er að þeir fái tekið tillit til 40 stunda vinnu- viku, þar sem þeir hafa ekki haft hana trygga hingað til og engan ákveðinn frídag í viku. Því hafa verið fræðilegir möguleikar á því að þjónar ynnu 365 daga á ári. Krafan er að fá greidda eftirvinnu auk þjónustugjaldsins, eftir að viðkomandi hafi fyllt 40 stunda viku í dagvinnu, eða 35 klukku- stundir sé um að ræða slitna vakt eða vinnu í hádegi og á kvöldin. Þá krefjast þjónar 32'A klukkustunda vinnuviku fyrir þá, sem aðeins vinna á kvöldin. Samkomulag hefur náðst um lágmarkslaunin og er þar um rúmlega 21% hækkun að ræða. Fer kauptryggingin í 14. flokk kjarnasamnings, sem er nú 380 þúsund krónur. Engar kröfur eru um hækkun þjónustugjalds, sem í dag er 15%, sem gerir 10,56% af útseldri vöru veitingahúsanna, þar sem það er ekki reiknað af söluskatti. Þá hafa þjónar viljað breyta viðmiðun kauptryggingar, sem í dag er miðuð við brúttólaun, en af þeim launum greiða þjónar aðstoðarfólki eða nemum laun. Því telja þjónar kauptrygginguna ekki raunhæfa. Sveinbjörn Þorkelsson kvað þjóna ótvírætt finna fyrir tekju- rýrnun síðastliðin 2 ár, en það kvað hann afleiðingu kaupmáttar- rýrnunar, sem orðið hefði í þjóð- félaginu. Hefur þetta haft það í för með sér að sífellt hefur dregið saman með launum þjóna og launum þess fólks, sem þeir hafa siðan greitt laun, aðstoðarfólks og nema. Hann kvað þó þetta talsvert mismunandi, þar sem mikil sam- keppni er í veitingahúsabransan- um og hafa því öll veitingahúsin ekki hækkað þjónustu sína jafnt. Sveinbjörn kvað þjóna vera í þeirri sérkennilegu stöðu að vera launþegar, en greiða jafnframt aðstoðarfólki sínu laun. Því fengi ríkið tvöfaldan launaskatt af þess- um launum, fyrst greiddi veitinga- húsið launaskattinn, en síðan þjónninn, er hann endurgreiddi launin aðstoðarfólkinu. Því fengi ríkið tvöfaldan skatt af sömu krónunni. Því hefur það verið krafa þjóna að aðstoðarfólkið sé á launaskrá húsanna. Þá kvað Sveinbjörn veitingamenn hafa boðið það að kauptryggingin hækkaði, þegar unnið væri um- fram 40 stundir í viku, sem næmi unnum næturvinnutímum. Þetta hafa þjónar ekki geta fallizt á, þar sem til undantekninga heyrir að þeir vinni aðeins fyrir kauptrygg- ingunni. Sveinbjörn kvað vinnu- daginn vera langan og þar með væri þessi viðurkenning veit- ingamannsins á 40 stunda vinnu- viku þjóna í raun aðeins í orði en ekki á borði. SEJJUJM UPP HATIÐAR- SVIPINN ítækatíð Nýr litur á stofuvegg, eöa skálann, setur nýjan svip á heimiliö EFNl-Hin viöurkenda vitretex plastmálning. Clært lakk á tréverkiö frískar það upp og viðariitað lakk gef ur því nýjan svip. EFNI: cuprinol COODWOOD polýurethanelakk. GOODWOOD: Glæsileg nýjung frá Cuprinol ætluð á húsgögn, gluggapósta, hvers konar annaö tréverk og þilplötur. 3 áferðir í glæru: glansandi, hálfmatt og matt. 6 viöarlitir, sem viðarmynstrið sést í gegnum. Dósastærð: allt frá Vi litra. GOODWOOD SPECIAL: Grjóthörð nýjung frá Cuprinol Sérstaklega ætlað á parkett og korkgólf. 1 S/ippfé/agió Má/ningarverksmiöja Sími 33433

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.