Morgunblaðið - 06.11.1980, Síða 13

Morgunblaðið - 06.11.1980, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1980 13 Leiguíbúðir aldraðra við Ldnguhlíð 3 mjög skjótra úrræða. Einnig hefur með tilkomu þjónustuíbúða stækkað mjög umsækjendahópur þeirra sem eiga íbúðir, en kjósa að breyta til með tilliti til heppilegri íbúðastærðar og þjónustu. Borgar- stjórn hefur rætt um nauðsyn þess að hlutast verði til um byggingu söluíbúða fyrir aldraða og fylgi þeim svipuð aðstaða og er við Dalbraut. Slíkar íbúðir yrðu þá bundnar þeim forkaupsrétti að þær yrðu áfram í eigu ellilífeyris- þega. Lélegt leiguhúsnæði í mörgum tilfellum orðið heimili aldraðra Félagsmálaráð fer með úthlut- un ibúða fyrir aldraða að fengnum tillögum frá húsnæðisfulltrúa og eliimálafulltrúa, ásamt umsögn þjónustumiðstöðvar aldraðra sem í eiga sæti fulltrúar heilbrigðis- málaráðs og félagsmálaráðs. Um þessar mundir fer fram endurmat fyrirliggjandi umsókna. Endur- matið miðast við það að gera sér grein fyrir sundurgreiningu á þörfum umsækjenda með tilliti til íbúða, þjónustuíbúða eða annarrar vistunar. Jafnframt er unnið að forgangsröðun eftir aðstæðum umsækjenda með tilliti til úr- ræðamöguleika. Það er vissulega ljós þörfin fyrir enn frekara átak í þessum efnum til lausnar vandanum. Það sýnir sig að þessi hópur hefur í mörgum tilfellum allt of lengi sætÞsig við aðstæður, sem ekki uppfylla kröf- ur nútímans og hið lélega leigu- húsnæði, með lélegri aðstöðu til eldunar og hreinlætis, því í allt of mörgum tilfellum orðið heimili aldraðra. Það sýnir sig einnig að fólk yngist upp og nýtur betur lífsins við góðar aðstæður og tryggt húsnæði, og með tilkomu þessara húsa hefur þetta hvort tveggja orðið augljóst. Við veitum sem sagt þá þjón- ustu sem fram er komið, en auk þess auglýsum við eftir íbúðum á frjálsum markaði til leigu og framleigu fyrir aldraða. Einnig veitum við tímabundin lán til fyrirframgreiðslu húsaleigu." Hrafnista Reykjavík sem lengst heima, hér verður því bæði dagvistun fyrir aldraða auk skammtímavistunar, sem felst í því að fólk geti komið hér til heilsubót- ar, endurhæfingar og til þess að gefa aðstandendum þess frí um stundar sakir. Þetta er mikil til- breyting fyrir gamla fólkið og því er mikil nauðsyn á því að eiga kost á endurhæfingu. Við styðjum þann megin þátt að fólk geti verið sem lengst heima hjá sér, en þar verða sveitarfélögin og hið opinbera að koma til með nauðsynlega heimaþjónustu og heimahjúkrun. En það eru auðvitað allir nema helztu þverhausar sem skilja það að það eru takmörk fyrir því hve lengi er hægt að aðstoða fólk í heimahúsum. Það byggist meðal annars á heilsufari viðkomandi og þyngd hjálparinnar og hjúkrunar- innar, sem þarf að veita. Hún getur orðið óbærileg bæði frá sjónarmiði þess sem aðstoðina og hjúkrunina á að veita og eins frá sjónarhóli þess sem greiðir kostnaðinn, sem eru einstaklingar, ríki og sveitarfélög. Því að svo erfitt getur þetta orðið að á tiltölulega fáum dögum verði hinn krónulegi kostnaður orðinn mun meiri heldur en mánaðardvöl á hjúkrunarheimilum fyrir aldr- aða. Takmarkanir þessarar þjónustu mótast líka af möguleikum þess húsnæðis sem viðkomandi býr í. Mikla þjónustu fyrir aldraða er ekki hægt að veita í heimahúsi þar sem erfiðir stigar eru til staðar og hreinlætisaðstöðu ábótavant, eða einhverjar hindranir eru í vegi fyrir hreyfihömluðum. Taka verður tillit til vilja og óska fólksins Að síðustu en ekki sízt verður að taka eina megin staðreynd þessa máls til greina, sem alltof margir kerfisþrælar ganga framhjá og það er vilji og óskir hinna öldruðu sjálfra. Það er langt frá því að það sé einhver meirihlutavilji hjá hin- um öldruðu, sérstaklega ef um einstaklinga er að ræða, að þeir vilji endilega búa í sínum gömlu og oft óhentugu íbúðum. Allra sízt ef viðkomandi býr við það, sem er hvað sárast og bitrast í lífi aldr- aðra, sem er einmanaleikinn. Nauðsyn á vernduðum þjónustuibúðum aldraðra Við í okkar samtökum höfum lengi talið, og erum að sjálfsögðu ekki einir þar um, að nauðsynlegt millistig þurfi á íbúðum fyrir aldraða, frá því að þeir búa í þeim íbúðum, sem fjölskyldan óskipt lifði í og lífsbaráttan var háð frá, og þar til að vistun fer fram á vernduðum vistheimilum, sem eru dvalarheimili okkar og næsta stigi við, sem eru hjúkrunardeildir fyrir aldraða og eru að sjálfsögðu sam- tengd. En sjúkrastofnanir aldraðra eru á öðru plani og eru fyrir mjög þunga, aldraða sjúklinga, eða þá sem búa við sérstök vandamál. Því er það framhaldið hér við Hrafn- istu í Hafnarfirði af okkar fyrri framkvæmdum við Jökulgrunn í Reykjavík að koma upp einbýlis- húsum í næsta nágrenni við Hrafn- istu, þar sem íbúarnir, einstakl- ingar og hjón, njóta öryggis og þjónustu í sérhönnuðum íbúðum, sem gerir þeim kleift að búa í þessum íbúðum sínum eins lengi og heilsa, þörf og vilji einstaklinganna sjálfra er fyrir hendi. Þessar íbúðir verða tengdar þjónustumiðstöðinni með öryggis- bjöllukerfi og veitt verður dagleg þjónusta og eftirlit, sérstök um- önnun í veikindum og aðstaða inni á hjúkrunardeild heimilisins, ef um minni háttar veikindi er að ræða. Ennfremur munu íbúarnir eiga aðgang að heilsugæzlu og endur- hæfingu heimilisins, þar sem með fyrirbyggjandi aðgerðum er reynt að hindra framgang ýmissa öldr- unarsjúkdóma. Þessar íbúðir verða í eigu okkar og annarra samtaka, sem þess hafa óskað eða munu óska svo og einstaklinga. En megin skilyrði er að íbúðirnar verði til þessara nota, sem íbúðir fyrir aldraða og ör- yrkja. Þá er rétt að geta þess að mikil áherzla verður lögð á að þarna verði komið upp rannsóknarmið- stöð öldrunarsjkdóma og félags- legra vandamála aldraðra. Nú þeg- ar hefur augnlæknir fengið aðstöðu á heimilinu til lækningastarfsemi og rannsókna á ákveðnum augn- sjúkdómum." HELO SAUNA Takið eftir verðinu Ódýr furusófasett 3ja sæta sófi - 2ja sæta sófi og stóll. Aöeins kr. 293.500.-. Staðgreitt. 3ja sæta sófi og 2 stólar. Aðeins kr. 261.400.-. Staðgreitt. Eigum einnig furusófaborð og hornborð. Sendum um land allt. Vörumarkaöurinn hf. Ármúla 1 A. Sími: 86117. Opið föstudaga til kl. 8. Opið laugardaga kl. 9-12 Kínversfe Antic teppi Kínversk handhnýtt antic ullarteppi og mottur. Gott verð vegna beinna innkaupa frá Peking. Ath. greiðslukjör. SJÓNVAL Vesturgötu 11 Reykjavík sími 22600

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.