Morgunblaðið - 06.11.1980, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1980
31
Lovísa Lúðvíksdótt-
ir - Minningarorð
I dag er kvödd Lovísa Lúövíks-
dóttir, sem seinast bjó að Laugar-
ásvegi 1, hér í borg.
Lovísa var fædd í Norðfirði 14.
júlí 1897. Foreldrar hennar voru
hjónin Lúðvík Sigurðsson, útgerð-
armaður og kaupmaður þar, og
Ingibjörg Þorláksdóttir, ættuð af
Alftanesi.
Lovísa var elst i hópi 9 systkina,
sem komust til aldurs, en tvö dóu
ung. Af þessum 11 systkinum eru
6 enn á lífi, þeir bræðurnir
Sigurður, Karl og Bjarni og syst-
urnar Sigríður, Dagmar og Mar-
grét. Nokkuð er síðan Þorlákur,
kaupmaður í Húsgagnaverslun
Reykjavíkur, féll frá og fyrir
stuttu er látinn Georg, forstjóri
Ríkisspítalanna. Nú er Lovísa
kvödd.
Uppvaxtarár Lovísu á Norðfirði
á heimili foreldra hennar voru lík
því, sem var í sjávarþorpi á
þessum árum. Unnið var að útgerð
og búskap ásamt nokkurri verzl-
un, og hjálpuðu börnin til við öll
störf. Heimilið hófst úr fátækt til
verulegra efna á þeirra tíma
mælikvarða, og oft var margt um
manninn.
Lovísa var send á Kvennaskól-
ann í Reykjavík og lauk þaðan
prófi. Þessi menntun var henni
kærkomin, þar sem hún hafði frá
æsku yndi af skáldskap og frábær-
ir hæfileikar hennar til hannyrða
komu í ljós á þessum árum. Lovísa
fluttist nú til Reykjavíkur og tók
við því starfi að sjá um heimili
fyrir móðurbróður sinn, Bjarna
Þorláksson trésmið, sem lengst af
bjó á Grettisgötu 35. Var Lovísa
bústýra Bjarna þar til hann lést á
háum aldri.
A heimili þeirra Lovísu og
Bjarna var allt með sérstökum
hætti. Bjarni smiður var mjög
ráðdeildarsamur og hafði fasta
reglu á öllum hlutum. Hann áleit
vinnusemi mesta dyggð. Honum
féll ekki verk úr hendi. Lovísa sá
um heimilið, en í frítímum tók
hún sér bók í hönd eða saumaði.
Það var gaman að líta til Lovísu
og Bjarna á þessum árum. Mót-
tökurnar voru alltaf hlýjar og
góðar. Lagt var á veizluborð, og
Lovísa spurði oft, hvort ekki
mætti koma með meiri veitingar.
Gestir voru beðnir að koma fljótt
aftur. Svona liðu árin á Grettis-
götunni, hvert öðru lík. Fáir hlutir
breyttu um svip.
Við fráfall Bjarna smiðs flutti
Lovísa í eigin íbúð að Laugarás-
vegi 1 og bjó þar til dauðadags.
Lovísa kunni vel við sig í Laugar-
ásnum. Sérstaklega lofaði hún oft
útsýnið yfir dalinn og taldi alltaf
eins fallegt að sjá sólina ganga til
viðar yfir Faxaflóa og Snæfells-
jökul. Lovísa var oftast heima
fyrri hluta dags við lestur eða
hannyrðir, en upp úr miðjum degi
fór hún og verzlaði og heimsótti
svo vini og ættingja, en sá hópur
varð stærri og stærri með árun-
um.
Lovísa hafði mikla listræna
hæfileika og styttu þeir henni
stundir, þar sem hún valdi alla
ævi að vera oft ein. Lovísa hafði
skerta heyrn og versnaði það með
aldrinum. Þetta gátu læknar eða
heyrnartæki ekki lagfært.
Lovísa var rausnarleg og færði
oft vinum og ættingjum gjafir á
afmælum eða öðrum hátíðum.
Hún var frændrækin og mundi
eftir flestum eða öllum og ekki
síst ungu kynslóðinni í fjölskyld-
unni. Þannig var hún öðrum
fremur sameiningartákn og var
hún aldrei kölluð annað en Lúlla
frænka.
Lovísa var hress framá síðasta
dag og fór ein allra sinna ferða.
Hún hugsaði alltaf sjálf um heim-
ili sitt. Þótt hún væri róleg og
sjaldan að flýta sér, var hún
skapföst og skaphörð, enda alltaf
sjálfstæð og sjálfráð.
Eg var barnungur er ég fyrst
lagði leið mína upp Laugaveginn
og beygði á Grettisgötu og barði
einn dyra hjá frænda mínum og
frænku. Síðan eru liðin meira en
40 ár. Öll þessi ár vil ég þakka.
Megi Lúlla frænka hvíla í friði.
Blessuð sé minning hennar.
Lúðvík Gizurarson
(omic) 3
410 PD
NVJA OMIC REIKNIVÉUN E» HELMINCI
FYRIRFÖÍÐARMINNIOC TÖLUVEBT ÓBÝMRI
Nú hefur ný reiknivél bæst í Omic fjöl-
skylduna, - Omic 410 PD. Þessi nýja
Omic vél er lítil og lipur. Hún gengur
fyrir rafhlöðum jafnt sem rafmagni.
Omic 410 PD skilar útkomu bæði á
strimli og með Ijósatölum. Hún vinnur
að öllu leiti verk stærri véla bæði fljótt
og vel.
HVERFISGATA
Við byggjum upp
framtíð fyrirtækis þins.
Þegar Omic reiknivélarnar komu fyrst
á markaðinn voru þær sérhannaðar
samkvæmt óskum viðskiptavina Skrif-
stofuvéla h.f. Á örfáum vikum urðu
Omic 312 PD, Omic 210 PD og Omic 210
P, sannkallaðar metsöluvélar.
Komiö og kynnist kostum Omic.
Verðið og gæðin tala sínu máli.
ó-
y*,c^
SKRIFSTOFUVÉLAR H.Rl
Hverfisgötu 33
Simi 20560
Unglingameistaramót
íslands í skák 1980
hefst laugardaginn 8. nóvember kl. 14.00. Tefldar
verða 7 umferðir Monrad og stendur mótiö til 14.
nóvember. Teflt verður aö Laugavegi 71, Reykjavík.
Þátttöku skal tilkynna í síma 27570 milli kl. 16 og 18,
eigi síðar en 7. nóvember.
1. verðlaun: ferð á skákmótiö í Hallsberg í Svíþjóö
um næstu áramót.
Stjórn Skáksambands íslands.
Nykomið
Efni:
Ðarnarimlarúm
Dýnusett:
Brenni, lakkaö.
Bæsað, brúnt.
Hvítlakkaö.
Dýna - Klæöning - Púði
Norskar þvottekta ungbarnasængur og
koddar.
Sængurverasett í úrvali.
Vörumarkaðurinn hí.
Armúla 1 A. Sími: 86117.
Opið föstudaga til kl. 8
Opið laugardaga kl. 9—12
HI Kawasaki
ÁRGERÐ 1981
Það sem KAWASAKI býður í dag bjóöa hinir ef til
vill áriö 1982.
Enduro/Cross hjól
Götuhjól
KC80 — 125 — 250 — 420
KDX175 — 250 — 420
keppnis og/eða „play-time" hjól
fyrir alla
Z90— Z1300
öll eftir vali í götu ghooper/
touring eöa Grand-prix út-
færslu.
Meöal nýjunga:
Aftur og fram demparar stillan-
legir bæöi gas og pre-load
11,8” travel aftan og framan.
Grind úr 4130 chrome-moly
blöndu nfull floating" aftur-
bremsa — breiðasta og
stærsta powerbandiö í dag.
+ Uni-Trak afturfjöðrun með
„aluminum alloy box section
swingarm" sem er níösterkur en
laufléttur.
„Floating power" gúmmí mót-
orpúðar — bein innspýting
(fleiri hestöfl, minni eyösla ekk-
ert choke) — slöngulaus
dekkblack-out treatment — öll
hjólin léttari (frá 10—18 kg.)
Stillanlegir demparar aftan og
framan bæöi gas og preload.
ÞEIR SEM ÆTLA Að NÁ í NÝTT HJÓL FYRIR
SUMARIÐ ÞURFA AÐ PANTA STRAX.
SVERRIR ÞÓRODDSSON,
Fellsmúli 26 — Sími 82377.