Morgunblaðið - 06.11.1980, Síða 17

Morgunblaðið - 06.11.1980, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1980 17 ingum. Enginn efast um að hljómsveitin hafi ekki næg verk- efni þessa fimm morgna sem hún æfir ekki fyrir áskrifendatónleik- ana, upptökur fyrir útvarpið, barnatónleikar og fl. En spurning- in er hvernig þessir a.m.k. fimm morgnar í hverjum hálfum mán- uði eru best nýttir tónlistarupp- eldi og tónlistarþróun hér á landi. Hverjum hljómsveitarmanni er það ljóst að hljómsveitin er ekki einkafyrirtæki hljóðfæraleikar- anna heldur hlutafélag allrar þjóðarinnar. Palli, Nonni og Diddi eiga ekki meira í fyrirtækinu heldur en ég og Tóta og það skyldi þó ekki vera að útlendingar hafi hitt á æskilegasta fyrirkomulagið þ.e. að hafa vinnustað hljómsveit- anna einnig í leikhúsinu í formi óperuflutnings? A.m.k. hef ég aldrei heyrt þá skoðun erlendis að sinfóníuhljómsveitir séu of dýr og óþörf fyrirtæki. Einskonar eftirmáli Eftir gerð þessara tveggja greina barst fréttin um erfðaskrá þeirra hjóna Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar. Hér er um fjárupphæð að ræða sem gæti orðið óperuflutningi á Islandi lyftistöng ef rétt er á haldið. Fjárupphæðin, sem svarar til þess opinbera styrks sem Þjóðleikhús- inu er ætlað á fjárlögum á einu ári, er ætluð til nýbyggingar eða væntanlega kaupa á húsnæði ef fyrir finnst. Leikhús er dýr rekst- ur en þó barnaleikur hjá því sem sérstakt óperuhús er. En öll hljót- um við að þakka þann stórhug sem lýsir sér í erfðaskrá þeirra hjóna Helgu og Sigurliða. Ég vona að þeim sem hafa umræddan sjóð undir höndum auðnist að nýta hann framtíðinni í hag en ekki augnablikinu. í raun er verið að afhenda þjóðinni gjöf sem getur orðið til happs fyrir málefnið sem við berjumst öll fyrir. Óperuhús byggjum við ekki fyrir 850 millj- ónir annað er svo rekstur slíks húss, en þessi sjóður gæti orðið sterkt vopn til þess að knýja fjárveitinganefnd til þess að fram- fylgja samþykkt Alþingis og lög- um um Þjóðleikhúsið og að reistar verði undirstöður að framtíðar- möguleikum fyrir óperu- og óperettuflutning á íslandi á þeim stað, þar sem möguleikar eru fyrir hendi. Að lokum leyfi ég mér að birta skrá yfir óperuflutning í Þjóðleik- húsinu frá árinu 1973 til 1980, og sýnir skráin hvernig ákvæðið um eina óperu á ári (sem er gamalt í lögum) hefur verið haldið. Þrymskviða, frums. Júní 1974 Carmen, frums. okt. 1975 Orfeus frums. des. 1979. Leðurblakan, sýnd ’73, Helena fagra sýnd ’75 og Káta ekkjan, sýnd ’78 eru óperettur — söngleik- ir. Ragnar Björnsson. Nokkur jólakortanna sem Kvenstúdentafélagið selur til styrktar barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Ljósm. Haiii. Jólakortasala Kvenstúdenta- félagsins hafin HIN árlega jólakortasala Kvenstúdentafélags íslands til styrktar barnahjálp Sameinuðu þjóðanna er hafin. Fást kortin í öllum bókaverzl- unum og einnig er hægt að fá þau á skrifstofu Kvennastúdenta fé- lagsins af Hallveigarstöðum, Túngötu 14 Reykjavík. Einnig selur Kvenstúdentafélagið vand- aða dagbók, bréfsefni o.fl. til styrktar UNICEF og fást þessir hlutir á skrifstofu félagsins. Fjórar bæk- ur eftir Bodil Forsberg HÖRPUÚTGÁFAN á Akranesi hef- ur sent frá sér i annarri útgáfu fjórar bækur eftir danska höfund- inn Bodil Forsberg. Hafa þær verið ófáanlegar um langt árabil. Alls eru komnar út ellefu bækur eftir þennan höfund og sú tólfta, „Sönn ást“, er væntanleg fyrir jólin. Bækurnar, sem nú koma í annarri útgáfu, eru: Ást og ótti, Hróp hjartans, Vald ástarinnar og Ég elska aðeins þig. Skúli Jensson þýddi bækurnar og eru þær allar offsetprentaðar og bundnar hjá Prentverki Akraness hf. Afhending starfelauna Reykjavíkurborgar EINS og komið hefur fram í fréttum hlaut Magnús Tómasson myndlistarmaður starfslaun Reykjavíkurborgar fyrstur manna. Starfslaun þessi nema mánaðarlaunum menntaskóla- kennara í eitt ár. Myndin var tekin á fundi stjórnar Kjarvals- staðaá dögunum er Sjöfn Sigur- björnsdóttir, formaður stjórnar- innar, afhenti Magnúsi tilkynn- ingu um starfslaunin. Á mynd- inrli eru f.v.: Jón Reykdal, Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, Þórgerður Ingólfsdóttir, Magnús Tómas- son, Þóra Kristjánsdóttir, Guð- rún Helgadóttir og Alfreð Guð- mundsson. SKIPHOLTI7 ’ SÍMI 28720 NÝJAR VÖRUR Fyrir herra: Ullarfrakkar og rykfrakkar, úlpur og buxur í úrvali. Fyrir dömur: Ullarkápur, dragtir og pils, jakkar, margar síddir. Buxur í úrvali. Fyrir börn: Drengjaföt og úlpur. Flannels-, flauels- og denimbuxur í úrvali. Spariö og geriö góö kaup á 1. flokks vöru á verksmiöjuveröi. Opiö virka daga kl. 9—18 laugardaga kl. 9—12. Elgurhf Völundar huröir Timburverzlunin Völundur framleiðir spónlagðar $ hurðir með bezta fáanlega spæni. Spjaldahurðir eða sléttar hurðir, eftir vali kaupandans. Stuttur afgreiðslufrestur. Hagstætt verð. Gjörið svo vel og lítið inn í sýningarsali okkar á Klapparstíg 1 og Skeifunni 19. Yfir 75 ára reynsla tryggir gæðin. Timburverzlunin Volundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19. SÍMI 85244

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.