Morgunblaðið - 06.11.1980, Síða 35

Morgunblaðið - 06.11.1980, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1980 35 ingu á því fyrirkomulagi. Sölu- stofnun lagmetis var líka sett á laggirnar samkvæmt lögum um einkarétt til útflutnings á saltsild og eru ekki neinar háværar kröfur um breytingu á því fyrirkomulagi. Sölustofnun lagmetis var líka sett á laggirnar samkvæmt lögum með aðild ríkisins, en stefnt er að því, að hún hverfi og framleiðendurnir taki einir við. Sölustofnunin hefur ekki einkaleyfi til að flytja út lagmeti nema til ríkisviðskipta- landanna. Stuðningur stjórnvalda við sölu- samtökin byggist á því, að yfir- gnæfandi meirihluti framleiðenda telur þennan viðskiptahátt vera hagkvæmastan og öruggastan. Ef stór hluti framleiðenda snýst gegn samtökunum og vill koma á frjáls- ara fyrirkomuiagi með mörgum útflytjendum, hljóta stjórnvöld að þurfa að taka tilllit til slíkra óska, en hæpið er að láta áróður umboðs- manna erlendra aðilja verða til að sundra samtökum, sem hafa sann- að ágæti sitt með starfi sínu í áratugi. Áður en ég lýk máli mínu, vil ég minnast á það hlutverk stjórnvalda við útflutninginn, sem skiptir einna mestu máli, það er skyldan við að stjórna þannig efnahagsmál- um, að útflutningsatvinnuvegirnir geti þróast eðlilega og framleiðsla þeirra sé samkeppnisfær á erlend- um mörkuðum. Er hér um að ræða kjarna þeirra vandamála, sem nú er við að stríða, en þótt stjórnvöld ráði miklu um þróun þessara mála eru þau langt frá því að vera einráð. Þrátt fyrir þunga byrði olíuverðhækkana, er vandinn að mestu leyti heimatilbúinn. Á er- lendum mörkuðum hefur útflutn- ingnum með fríversluninni verið tryggð mjög hagstæð aðstaða, þar sem markaðirnir eru opnir í helstu viðskiptalöndum okkar og tollar litlir eða engir. Þessa hagstæðu stöðu verða útflytjendur að standa vörð um, því að hún er ekki trygg nema útflytjendur styðji stjórn- völd í viðleitni þeirra að standa við þær skuldbindingar, sem fríversl- unarsamningarnir kveða á um. Mín lokaorð eru þau, að ég vona, að það megi takast að viðhalda frjálsum viðskiptum og koma á stöðugra efnahagsástandi, sem hvort tveggja er nauðsynleg for- senda fyrir eflingu útflutningsins og þar með velmegun allra lands- manna. óttar Yngvason, framkvæmda- stjóri Íslenzku útflutningsmið- stöðvarinnar. og ýmsar tegundir frystra og salt- aðra sjávarafurða. Ekki veit ég til þess, að hið frjálsa viðskiptaform hafi skapað nokkra sérstaka erfið- leika í neinni þessara framleiðslu- greina. Hér byggist velgengni hvers seljanda og útflytjanda fyrst og fremst á því að bjóða framleiðend- um hæstu verð og bestu kjör. í þessum efnum eru stærstu samtök- in oft ekki heppilegustu einingarn- ar. Þó að stóru samtökin geti verið nokkur kjölfesta, vantar þau oft sveigjanleika og lipurð í ákvarðana- töku og þau eru oft ekki heppileg til að skipta við lítil fyrirtæki erlendis. En smærri kaupendur og smærri afgreiðslur jafngilda því oft að Erik Winfeld-Lund, fram- kvæmdastjóri markaðsdeildar Félags danskra iðnrekenda. Ljósm. Mbl. Kristján. Sala á erlend- um mörkuðum Stjórnunarfélag íslands gekkst i sl. viku íyrir náms- stefnu, þar sem efnið Sala á erlendum mörkuðum var tek- ið fyrir. Gefið var heildaryfirlit yfir útflutningsverzlun lands- manna, greint frá því hvernig fjármögnun og ráðgjöf við útflutning er háttað og gerð grein fyrir hvaða söluaðferð- um er beitt við sölu okkar helztu útflutningsafurða á mörkuðum erlendis. Þá var fjallað um hverjir væru fram- tíðarútflutningsmöguleikar landsmanna. Til að gefa inn- sýn í hvernig háttað er út- flutningi frá nágrannaþjóðum okkar fékk Stjórnunarfélagið til landsins Erik Winfeld- Lund, framkvæmdastjóra markaðsdeildar Félags danskra iðnrekenda, og gerði hann grein fyrir skipulagi og söluaðferðum danskra útflytj- enda. Á síðunni birtast kaflar úr erindum Óttars Yngvason- ar, framkvæmdastjóra ís- lenzku útflutningsmiðstöðvar- innar, sem fjallaði um sölu sjávarafurða, og Þórhalls Ás- geirssonar, ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðuneytinu, sem fjallaði um hlutverk stjórn- valda við útflutningsverzlun. Síðar er ætlúnin að birta kafla úr erindum annarra fram- sögumanna. færa erlenda dreifingarstarfsemi inn í landið, þ.e. að fækka erlendum milliliðum. Oft hefur verið hamrað á óhöpp- um í fyrri tilraunum til frjálsrar útflutningsstarfsemi. Ég hygg, að það megi telja líklegt, að engu minni né færri óhöpp hafi gerst hjá hinum „stóru" undanfarin ár og áratugi, þar er bara ekki sagt frá þeim og tjóninu eða óhappinu þegjandi jafnað niður á heildina, jafnt saklausa sem seka. I blaðaskrifum að undanförnu hefur því verið haldið fram, að í ýmsu sé pottur brotinn hjá stóru útflutningssamtökunum. Ég tel, að þó ekki væri nema lítið brot af því satt, sem þar hefur verið haldið fram, þá væri það nægileg ástæða til að gefa þegar í stað frjálsan að meira eða minna leyti samkeppnis- útflutning. Hinn frjálsi útflutningur byggir á því, að söluandvirði allra fram- leiðendanna sé ekki sett í einn pott og síðan skipt upp eftir einhverjum óskiljanlegum lögmálum, heldur fái hver framleiðandi nákvæmlega að vita, hvað fæst fyrir hverja vöru- tegund og pakkningartegund á markaðnum og fái með þvi að bera ábyrgð á að samþykkja eða hafna verðtilboðum í framleiðslu sína. Fyrir þá framleiðendur, sem litla vitneskju hafa fengið um þessi mál, jafnvel um árabil, tekur auðvitað einhvern tíma að öðlast nauðsyn- lega reynslu til að meta rétt söluárangur hverju sinni. En að þeirri reynslu fenginni, er framleið- andinn ólíkt hæfari en áður til að taka réttar stjórnunarlegar ákvarð- anir í fyrirtæki sínu. Reynisson: Enn um Hellnamál Greinarstúfur minn um Hellna- mál hefur óvænt fætt af sér meira en meterslangan dálk Jónasar Haraldssonar, skrifstofustjóra, um náttúruverndarþátt sumarbú- staðamála og vandræði LÍÚ. At- hugun textans gefur tilefni til að taka fram eftirfarandi: Spurt er um afskipti Náttúru- verndarráðs af sumarbústaðamál- um utan friðlýstra svæða. Um það getur í 21. grein náttúruverndar- laga og nánar í 19.—23. grein reglugerðar nr. 205/1973. Sam- kvæmt þessum ákvæðum fjallar Náttúruverndarráð aðeins um sumarbústaðahverfi, en að öðru leyti eru málin í höndum náttúru- verndarnefndar viðkomandi sýslu eða kaupstaðar. Náttúruverndar- ráð tekur til athugunar staðarval, fyrirkomulag húsa á hverjum stað, útlit og gerð húsa, önnur mannvirki svo sem vegi og girð- ingar, almennan umferðarrétt og frágang á jarðraski. Heilbrigðis- aðilar sjá um það sem lýtur að mengunarvörnum. Jónas kannast við sitthvað af þessu. Hann lýsir skilningi á því, hversvegna lagst var gegn því að LÍÚ byggði á áberandi stað í hraunbrekkunni á Stapa og virðist fylgjandi þeim sjónarmiðum. Hann gekk frá samþykki á friðlýs- ingu á þeim hlutum Skjaldartrað- ar, sem mest náttúruverndargildi hafa, án þess að gera um það ágreining af nokkru tagi. Hann lýsir því yfir, að hann hafi mætt óformlega ábendingum mínum um augljósa vankanta á tillögu um fyrirkomulag húsa með því að láta sníða þá af. Allt þetta er honum til sóma. Hins vegar á honum að vera ljóst, m.a. af bréfi Náttúruvernd- arráðs til Skipulagsstjóra ríkisins, dágs. 19. okt. 1979, að það hafði ekki lokið verki sínu, og tók sér frest til þess, þar til fyrir lægi afstaða jarðanefndar og annarra málsaðila, sem voru andsnúnir staðarvali LÍÚ og hafa vald til að stöðva framkvæmdir. Nú liggur fyrir að jarðanefnd vill ekki veita leyfi til þess að sumarbústaðir séu reistir á umræddum stað og hefur Landbúnaðarráðuneytið staðfest þá niðurstöðu. Á þessu stigi er spurningin sú ein hvort leyfa skuli sumarbústaði á þessum stað eða ekki. Þegar jákvætt svar liggur fyrir en fyrr ekki, er tímabært að ræða um nánari tilhögun. Nátt- úruverndarráð er mannfá stofnun, og verður að leggja áherslu á þau verkefni, sem brýnast er að leysa hverju sinni. í þessu tilviki yrði vinnan ekki aðeins ótímabær, heldur gæti hún orðið tilgangslaus með öllu. Jónas heldur því fram að enginn hafi neitt haft við útlit húsanna að athuga. Staðreyndin er hins- vegar sú, að Náttúruverndarráð hefur ekki séð nein gögn þar að lútandi. Af öðrum atriðum, sem væntan- lega hefði verið fjallað um má nefna Gvendarbrunn, hina fornu heilsulind þeirra Hellnamanna, sem nú hefur verið raskað að óþörfu, en Náttúruverndarráði var ókunnugt um hana fyrr en eftir að til tíðinda dró. Náttúruverndarráð leitast við að taka málin fyrir í réttri röð, bæði af lögformlegum ástæðum og praktiskum, eins og að framan greinir. Það getur þó breytt út af því, ef sérstaklega stendur á. Slíkt hefur ósjaldan komið fyrir, jafn- vel að nokkru í þessu máli. I stað þess að leita eftir slíku greip LÍÚ til þess óyndisúrræðis að ráðast í framkvæmdir, án þess að fyrir lægji heimild réttra aðila. Slíkt varðar við lög, eins og Stefán Pálsson hrl. lýsir í grein sinni í Mbl. 18. okt. Náttúruverndarráð er aðeins ráðgefandi aðili að sumarbústaða- málum, en engu að síður er skylt að kynna sér álit þess og hafa til hliðsjónar við skipulag og bygg- ingu sumarbústaðahverfis. Miðað við þau samskipti, sem lýst er í upphafi, kemur á óvart að LÍÚ skyldi á endanum kjósa að brjóta í bága við þá lagaskyldu. Ekki verður séð að Náttúru- verndarráð hafi sýnt ósanngirni í skiptum við LÍÚ. Því er þeirri spurningu ósvarað, hvað Jónasi gengur til með niðrandi athuga- semdum í garð þess í greinum sínum og að bæta um betur nú siðast með óviðeigandi og stað- lausum hugleiðingum um hugsan- ir undirritaðs. Slíkt kalla ég klunnaskap. Og þegar óþolinmæðin grípur menn þeim tökum, þó í erfiðu máli sé, að gripið er til óyndisúrræða til að koma sínu frarn, þá má velja því ýmis nöfn. Ég tel engin fjölmæli að kalla það klunnalega að farið. Ég vona þó, að Jónas og LÍÚ beri gæfu til að finna lausn á vandamálum sínum og ná sáttum við granna sína vestra. Ég þarf ekki að taka fram, að Náttúru- verndarráð stefnir að góðri sam- búð við alla landeigendur í Breiða- víkurhreppi og íbúa þar. Megi þetta verða lokaorð mín um Hellnamál á þessum vettvangi. TIL HEIMILISINS t y > Nú getum við boðið AEG smátæki á sérstaklega hagkvæmu verði vegna lækkunar erlendis. Notið tækifærið og kaupið jólagjöfina strax. Einnig bjóðum við bökunarofna og hellur sem lítið sér á. BRÆÐURNIR ORMSSON % LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.