Morgunblaðið - 06.11.1980, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 06.11.1980, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1980 23 John Anderson fékk um 7% atkvæða. Á símamynd AP veifar hann til stuðningsmanna sinna. Með honum á myndinni er kona hans, Keke og varaforsetaefnið, Patrick Lucey ásamt konu sinni, Jean. Anderson fram ’84? JOHN ANDERSON, óháði frambjóðandinn í forsetakosningunum í Bandaríkjunum, hefur gefið í skyn, að hann kunni að keppa aftur að forsetakjöri 1984. Hann sagði um 800 stuðningsmönnum þegar hann viðurkenndi kosningaósigur sinn, að úrslitin sýndu ljóslega, að örlögin höguðu því greinilega svo til, að hann ætti ekki að flytjast í Hvíta húsið. En hann bætti því við, að það væri ákvörðun, sem væri slegið á frest. bá hrópuðu stuðningsmenn hans hvað eftir annað: „84, 84, 84.“ ungadeildarinnar, fyrir íhaldssömum repúblikana, Steven Symms, með 3% atkvæða. Bayh, annar þingmaður sem NCPAC beindi spjótum sínum að, tapaði með 45% atkvæða gegn 55% fyrir repúblikanum Dan Quayle. Bayh var formaður leyni- þjónustunefndar og hefur setið í öldungadeildinni fyrir Indiana þrjú kjörtímabil. Magnuson, sá demókratinn sem lengst hefur setið í deildinni eða 44 ár, tapaði fyrir Slade Gorton, ríkissaksóknara í Washingtonríki. Magnuson er formaður fjárveit- inganefndar, en er orðinn 75 ára og kosningabaráttan í heimaríki hans snerist fyrst og fremst um aldur hans. í Wisconsin tapaði frjálslyndi demókratinn Gaylord Nelson, formaður smáfyrirtækjanefndar- innar og fyrrverandi ríkisstjóri, með 4% atkvæða fyrir Robert Kastan, fyrrverandi repúblikana. Nelson hefur setið í deildinni í 22 ár. John Culver, demókrati frá Iowa sem hefur setið í öldunga- deildinni eitt kjörtímabil og hald- ið uppi hörðum árásum á íhalds- sama hópa sem hafa unnið að falli hans, tapaði fyrir repúblikanan- um Charles Grassley, 46 ára gömlum bónda. I New York sigraði harður íhaldsmaður, Alfonse D’Amato, demókratann Holtz. Jacob Javits, sem beið ósigur í forkosningum repúblikana og bauð sig fram sem óháður, hlaut 11% atkvæða. Repúblikanar sigruðu einnig demókratann John Durkin í New Hampshire, þar sem Warren Rud- man, fyrrverandi ríkissaksóknari, sigraði, og hrepptu fyrrverandi sæti demókrata í Alabama, þar sem fyrrverandi stríðsfangi í Víet- nam, Jeremiah Denton, sigraði Jim Folson, og í Florida, þar sem Flora Hawkins sigraði Bill Gunt- er, fyrrverandi fulltrúadeildar- þingmann. Kosningatölur sýna, að Ander- son hlaut um 6% atkvæða. Hann þurfti að fá 5% til þess að fá 3 milljóna dollara lágmarks kosn- ingastyrk frá alríkisyfirvöldum, en það nægir ekki fyrir skuldum. Skuldir hans nema 5 milljónum dollara. „Þetta hefur verið merkasti atburður ævi minnar," sagði And- erson. „Ég vona auðvitað, að við höldum þessum sex prósentum, svo að þetta verði ekki dýrast.i atburðurinn líka.“ isstefna Reagans eigi ekki eftir að valda straumhvörfum í heimsmál- um. Þeir óttast að afstaða Reag- ans til Salt II samkomulagsins eigi þó eftir að verða þrándur í götu og valda erfiðleikum í sam- skiptum Washington og Moskvu, en meðal Kremlverja gætir reiði með að Carter skyldi ekki takast að fá samkomulagið staðfest. Einnig ríkir kurr í Moskvu vegna yfirlýsinga Reagans um að hann vilji að samið verði upp á nýtt. Hins vegar eru sovézkir ráða- menn ánægðir með andstöðu Reagans við kornsölubann Carters á Sovétríkin. Og vonast er til að meira samræmis gæti í utanrík- isstefnu Reagans en hjá Carter. Það hefur þó valdið ugg í Kreml að Reagan hefur hvatt til þess að hernaðarmáttur Bandaríkjanna verði aukinn. Að öðru leyti lögðu sovézkir fjölmiðlar á það ríka áherzlu í dag, að ósigur Carters í forseta- kosningunum endurspeglaði megna óánægju bandarískra kjós- enda með stefnu hans í garð Sovétríkjanna, svo sem kornsölu- bannið, og þá ákvörðun hans að banna bandarískum íþróttamönn- um þátttöku í Ólympíuleikunum í Moskvu, eins og það var orðað. Einnig sögðu sovézkir fjölmiðlar, að megn óánægja hefði verið með „pólitíska og efnahagslega óreiðu“ í Bandaríkjunum. Þær fregnir bárust í kvöld, að Sovétmenn hefðu brugðizt mjög reiðir við þeim yfirlýsingum í dag, að afstaða Bandaríkjanna til mála á Öryggismálaráðstefnu Evrópu, er væntanlega hefst í Madrid í næstu viku, myndu í engu breyt- ast, þrátt fyrir kjör Reagans sem forseta. Búizt er t.d. við þvi að bandarískir fulltrúar fordæmi harðlega meint brot Sovétríkj- anna á Helsinki-sáttmálanum. Vara við sambandi við Formósu Yfirvöld í Peking lýstu því yfir og minntu nýkjörinn forseta, Ron- ald Reagan, á loforð Bandaríkja- manna um að ekki yrði um að ræða að tekið yrði upp opinbert samband við Formósu, en kín- verskir fjölmiðlar hafa að undan- förnu látið í ljós mikinn ótta við, að ef Reagan næði kjöri yrði aftur komið á opinberu sambandi For- mósu og Bandaríkjanna. „í tilefni af kosningu Reagans vonum við og gerum ráð fyrir, að stjórn hans standi við ákvæði Shanghai-yfirlýsingarinnar og loforð er gefin voru við stofnun stjórnmálasambands milli Kína og Bandaríkjanna, svo að tengsl landanna megi þróast og eflast," sagði í yfirlýsingu utanríkisráðu- neytisins í Peking. Xinhua- fréttastofan kínverska sagði frá kosningu Reagans, án þess að fjalla um afstöðu hans til For- mósu. Áður en til kosninganna kom höfðu yfirvöld í Peking varað harðlega við breytingum á sam- skiptum Bandáríkjanna og Kína. Stjórnmálamenn á Formósu fögnuðu úrslitum forsetakosn- inganna innilega og flugeldum var skotið á loft á eynni eins og um gamlárskvöld væri að ræða. I tilkynningu utanríkisráðuneytis- ins og Formósu myndu friðarlíkur og öryggi í Norðaustur-Asíu efl- ast. Af hálfu ríkisstjórna Thailands, Suður-Kóreu og Filipseyja var úrslitum bandarísku forsetakosn- inganna fagnað og látin í ljós von um að Bandaríkjamenn létu meira að sér kveða í þessum heimshluta til að vega upp á móti auknum tilþrifum Sovétmanna þar. „Við þurfum ekki lengur að óttast að bandarískir hermenn hverfi frá Suður-Kóreu eða að eiga von á gagnrýni á mannréttindastefnu yfirvalda," sagði kaupsýslumaður í Seoul í dag. Miðausturlönd áfram mikilvæg Embættismenn í íran sögðu í dag, að kjör Ronald Reagans myndu ekki í neinu breyta sam- skiptum írana og Bandaríkja- manna, og líklega hefðu úrslit kosninganna heldur engin áhrif á gíslamálið, en þó spáði ráðgjafi námsmannanna er hertóku banda- ríska sendiráðið í Teheran fyrir rösku ári, að kjör Reagans yrði frekar til að lengja lausn málsins. Anwar Sadat forseti Egypta- lands sagði að friðarumleitanir í Miðausturlöndum myndu halda áfram þrátt fyrir fall Carters í forsetakosningunum, sem hann lýsti sem „sönnum stjórnvitringi í öllum merkingum þess orðs og hreinskilnum og heiðarlegum manni". Hrósaði Sadat þætti Carters í því að koma friðarvið- ræðum í kring, en sagðist búast við því að ekki yrði slakað á því einarða heiti Bandaríkjamanna að algjörum friði í Miðausturlöndum verði náð. Menachem Begin forsætisráð- herra ísraels sagðist „treysta á vináttu og velvilja hins nýkjörna forseta í garð ísraela", og vonaðist eftir nánu samstarfi við hann og ráðgjafa hans við lausn deilunnar fyrir botni Miðjarðarhafs. Einnig þakkaði Begin Carter sérstaklega þátt hans í friðarumleitunum. Begin hefur ekki verið of ánægður með framgöngu Bandaríkjamanna varðandi ýmis atriði deilu Israela og Egypta, einkum þau atriði er snerta landnám Israela á hertekn- um svæðum og sjálfsforræði Pale- stínumanna. Lauslegar athuganir benda til þess, að Reagan hafi hlotið þorra atkvæða bandarískra gyðinga, en í síðustu forsetakosningum fylktu bandarískir gyðingar sér um Cart- er. Talsmaður egypzkra yfirvalda spáði því í dag, að sigur Reagans yrði til þess að styrkja stöðu Bandaríkjamanna í Miðaustur- löndum og að ágangur Sovét- manna mundi minnka að sama skapi. Hins vegar er búizt við því að frestur verði á fyrirhuguðum fundi leiðtoga Bandaríkjanna, Eg- yptalands og Israels er halda átti í Washington í janúar. Egypzk yfir- völd gera ráð fyrir því að eitt helzta takmark þandarískra yfir- valda verði eftir sem áður að koma á fullnaðarsættum í Miðaustur- löndum. Kiólí ir - Kiólar Dagkjólar — Kvöldkjólar — Samkvæmiskjólar — Tækifæriskjólar Hagstætt verö. í glæsilegu urvali. Allar stæröir — Opið föstud. til M.7. Kjólasalan, Brautarholti 22, Laugard. kl. 10—12. inngangur frá Nóatúni. KERRUR OG V&GNAR Eigum mikið úrval af kerrum og vögnum. Komið og skoðið vandaða vöru í rúmgóðum sýningarsal að Háteigsvegi 3. Sendum í póstkröfu. HJÓL & VAGNAR Háteigsvegi 3 -105 Reykjavík 21511 r jazzBaLLeccskóLi bópu " líkom/roekl j.s.b. Dömur athugið ★ Nýtt 5 vikna námskeiö aö hefjast, síöasta námskeiöiö fyrir jól hefst 10. nóv. ★ Líkamsrækt og megrun fyrir dömur á öllum aldri. ★ Morgun- dag- og kvöldtímar. ★ Tímar tvisvar eöa fjórum sinnum í viku. ★ Sérstakur matarkúr fyrir þær, sem eru í megrun. ★ Sturtur — sauna — tæki — Ijós. ★ Hjá okkur skín sólin allan daginn alla daga. Ath ★ Allar dömur í Líkamsrækt JSB, fá afslátt- arkort í nýju Sontegra sólina í Bolholti 6. ★ Upplýsingar og innritun í síma 83730. L njpg !~!Q>|S3qQnogzzDr

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.