Morgunblaðið - 31.12.1980, Síða 8

Morgunblaðið - 31.12.1980, Síða 8
40 ERLENP MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1980 Forsetakosningar fóru fram í Bandaríkjunum í nóvember. Þá var fyrrum kvikmyndaleikari kosinn forseti Bandaríkjanna. Hann heitir ... St. Helenseldfjallið í Bandaríkjunum lét mjög að sér kveða. Fjöldi manns fórst þegar eiturgufur lögðust yfir landsvæði í nágrenni fjallsins. í hvaða fylki Bandaríkjanna er St. Helens? 1. Kosningar fóru fram í Rhó- desíu í febrúarlok. Sigurvegari i þeim var: a) Ian Smith b) Negus Negusi c) Robert Mugabe d) Joshua Nkomo 2. í Kaliforníu var seint i febrúar komió á fót nokkuð sérstæðum banka og voru ekki allir á einu máli um ágæti hans. Hér var um að ræða: a) blóðbanka fyrir þá, sem hafa blátt blóð í æðum. b) spilabanka c) sæðisbanka Nóbelsverðlauna- hafa d) banka, sem tók við íslenskum peningum. 3. í mars tilkynnti Albert Ein- stein-stofnunin, að kona hefði fengið friðarverðlaun stofnunar- innar. Hún var: a) Jane Fonda b) Alva Reimer Myrdal c) María Þorsteinsdóttir d) Hallgerður langbrók 4. 27. mars sl. varð mikið slys þegar norskum ibúðarpalli hvolfdi í Norðursjó. Pallurinn var kenndur við: a) Frithjof Nansen b) Henrik Ibsen c) Ivar Aasen d) Alexander Kielland 5. Sjónvarpskvikmynd olli miklu fjaðrafoki og hneykslan i sumum stóðum fyrr á þessu ári og voru sýningar á henni bannaðar i ýmsum löndum. Myndin hét: a) Blóðrautt sólarlag b) Lénharður fógeti c) íslenskir búskaparhættir d) Dauði prinsessu 6. Siðla i april gerðu Bandarikja- menn misheppnaðan leiðangur til írans og var tilgangurinn með ferðinni sá að: a) að koma keisaranum aftur til valda b) að frelsa gíslana c) að komast yfir Khomeini d) að leggja samræmt krossapróf fyrir námsmennina 1 sendiráð- inu. 7. Sérþjálfaðar, breskar áhlaupssveitir unnu frækilegt af- rek þegar þær björguðu 19 manns, sem teknir höfðu verið í gíslingu. Hér var um að ræða: a) starfsmenn íranska sendiráðs- ins í London b) breska ferðamenn á Keflavík- urflugvelli, sem neituðu að borga flugvallarskatt c) starfsmenn breska sendiráð- sins í Saudi-Arabíu d) starfsfólk íslenska sendiráð- sins í París 8. Carter Bandarikjaforseti lýsti á öndverðu þessu ári yfir neyðar- ástandi í Florida. Ástæðan var: a) stórtjón af völdum fellihyls b) gífurlegur fjöldi kúbanskra flóttamanna c) repúblikanar reyndust hafa meira fylgi skv. skoðanakönn- unum d) horfur á að islenskum ferða- löngum fjölgaði mjög á Miami 9. Á þessu ári vaknaði gamalt eldfjall af dvala og spúði eldi og eimyrju yfir nálægar byggðir. Askan frá gosinu barst með háloftavindum um alla jörð en fjallið heitir: a) Hekla b) Stromboli c) Leirhnúkur d) St. Helens 10. íbúar Quebec-fylkis i Kanada sögðu „Nei“ í sögulegri atkvæða- greiðslu og var um það kosið, að þeir: a) tækju upp ensku í stað frönsk- unnar b) segðu sig úr lögum við önnur fylki Kanada c) tækju De Gaulle í dýrlingatölu d) sameinuðust Frakklandi 11. Danski orkumálaráðherrann sætti mjög ámæli landa sinna fyrir oliusamning, sem hann hafði gert við Saudi-Araba. Hann: a) hafði heitið því að gerast mú- hameðstrúarmaður b) hafði ekki lesið samninginn c) hafði lofað S-Aröbum Græn- landsjökli fyrir olíuna d) hafði sæmt alla viðsemjendur sína Dannebrogs-orðunni 12. í sumar fór fram í Kaliforniu atkvæðagreiðsla um skattatil- lögu og fóru leikar þannig. að hún var felld með 67% gegn 33%. Tillagan snerist um að: a) lækka tekjuskattinn b) taka upp flugvallarskatt c) hækka söluskattinn d) taka upp barnaskatta 13. Visin, gul rós i eigu Sir Cecils Beatons var seld á uppboði i Englandi en það, sem þótti i frásögur færandi með rósina, var að: a) Vatentino hafði borið hana í barminum b) Greta Garbo hafði kysst hana c) hún olli Rósastríðunum d) hún var fyrsta gula rósin, sem sögur fara af 14. Rússneskur maður komst i fréttirnar fyrir það, að hann hafði ekki mælt orð frá vörum i þrjú og hálft ár. Af honum mátti skilja, að ástæðan væri sú, að: a) hann hafði ekkert að segja b) hann var búinn með kvótann sinn c) hann hafði verið kvæntur jafn lengi d) hann óttaðist að tala ilia um stjórnvöld 15. Sænski sjóherinn hafði i nógu að snúast i haust vegna þess, að: a) Varsjárbandalagsríkin voru með heræfingar næstum uppi í landsteinum b) vart hafði orðið við ókunnan kafbát í skerjagarðinum c) risaolíuskip var á reki í Eystra- salti d) Danir hótuðu að loka Eyrar- sundi 16. Tvær þjóðir, sem báðar játa trú spámannsins frá Mekka. hófu styrjaldarátök sín í milli. Þær eru: a) Egyptar og Lýbíumenn b) Kuwait og Qatár c) Sýrlendingar og Jórdaníumenn d) íranir og Irakar 17. Ráðamaður í Austur-Evrópu- riki var settur af og annar maður skipaður i hans stað. Hinn afsetti var: a) Edward Gierek b) Wladyslaw Gomulka c) Stanislaw Kania d) Jacek Kuron 18. í sept. sl. var gerð bylting í NATO-ríki og tók herinn öll völd f sinar hendur. Rikið sem um ræðir er: a) Grikkland b) Portúgal c) Tyrkland d) Danmörk 19. Ýmsir framámenn í brezka Verkamannaflokknum hótuðu að segja af sér vegna ályktunar sem samþykkt var á ársþingi flokks- ins i Blackpool. í ályktuninni fólst: a) Einhliða kjarnorkuafvopnun Breta b) Lýst yrði yfir stuðningi við Margaret Thatcher c) Úrsögn Bretlands úr EFTA d) Bjórkrár yrðu lokaðar á sunnu- dögum. 20. Þingkosningar fóru fram í V-Þýzkalandi i október síðast- liðnum og það sem kom einkum á óvart var: a) stórsigur kristilegra demó- krata undir forystu Strauss. b) veruleg fylgisaukning frjáls- lyndra demókrata. c) Grænungar komu 4 mönnum á þing d) Jafnaðarmenn misstu 3% at- kvæðamagn 21. ísraelski trúmálaráðherrann var yfirheyrður af lögreglu vegna ásakana um að hafa: a) tekið upp kristna trú b) tekið upp íslamska trú c) þegið mútur d) verið drukkinn á almannafæri 22. Á þessu ári hafa orðið mann- skæðir jarðsjálftar i tveimur löndum. Þau eru: a) Ítalía og Júgóslavía b) Hong Kong og San Fransiskó c) Ítalía og Alsír d) Danmörk og Marokkó 23. Friðarverðlaunum Nóbels var úthlutað í september siðastliðn- um. Þau hlaut: a) Frakkinn Paspatou b) Argentínumaðurinn Esquivel c) Vigdís Finnbogadóttir d) Leonid Brezhnev 24. Skakki turninn i Piza hallar meir og meir. Síðustu spár herma, að hann muni hrynja: a) 1993 b) næsta sumar c) 2003 d) 1983 25. Damara Tribe er í sviðsljósinu í júli síðastliðnum. Það þótti í frásögur færandi að hún var: a) sex ára þegar hún ól barn b) níu ára þegar hún ól barn c) Tólf ára þegar hún var kosinn höfðingi ættbálks síns. d) á undan Jimmy Carter í mara- þonhlaupi 26. Gifurleg sprenging kvað við á íslandsbryggju i Kaupmanna- höfn i sumar og brotnuðu marg- ar rúður í miöborginni. Sprcng- ingin varð i: a) Den danske Sojakagefabrik b) Kristjaníu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.