Morgunblaðið - 31.12.1980, Side 12
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1980
Árið 1980 var ólympíuár. 1
febrúar fóru vetrarleikarnir
fram í Lake Placid i Bandarikj-
unum. en i júlí fóru sumarleik-
arnir síóan fram i Moskvu.
Næstu spurninKar höfóa til þess-
ara leika.
1) Bandarikjamaóurinn Eric
Heiden kom sannarleKa, sá ok
sÍKraði í Lake Placid. Þessi frá-
bæri skautahlaupari...
a) vann gull í fjórum greinum
skautahlaups
b) vann gull í fimm greinum
skautahlaups
c) hreppti bronsverðlaun í einni
grein
d) vann gull í tvenndarhlaupi
ásamt systur sinni Beth Heid-
en
e) vann þrjú gull og tvö silfur-
verðlaun
2) 1 15 km skíðagöngu kom á
óvart munurinn á fyrsta og
öðrum keppanda. Sviinn Vass-
berg fór með sigur af hólmi,
Finninn Mieto varð annar. Mun-
urinn var ...
a) 2 klukkustundir
b) fimm mínútur
c) einn hundraðasti úr sekúndu
d) tveir sólarhringar
e) 4 mínútur og 23 sekúndur
3) Skipulagið var stundum
ekki upp á það besta hjá Kanan-
um i Lake Placid. Til da mis kom
eitt sinn upp hjákátleg staða...
a) skíðastökkpallurinn var á
miðri stórsvigsbrautinni
b) sovéskir gullsigurvegarar vissu
ekkert hvar afhending verð-
launa átti að fara fram og
misstu af henni
c) 3000 manns voru bókaðir inn á
100 manna gistihús
d) verðlaunaafhending fyrir stór-
svig kvenna var skráð á. sama
tíma og keppnin var í fullum
gangi
e) engir læknar voru ráðnir í
sjúkraskýlin í Lake Placid.
4) Leonard Stock frá Austur-
ríki varð mjög óvæntur sigurveg-
ari i bruni karla i Lake Placid.
Hvers vegna var sigur hans
óvæntur?
a) hann var varamaður í austur-
ríska liðinu
b) hann keppti með 39 stiga hita
og slæma flensu
c) hann keppti með vinstri fótinn
í gifsi
d) hann er 88 ára gamall
e) hann átti að keppa í svigi, en
fór í brunið vegna forfalla í liði
sínu
5) Áður hefur verið vikið að
Eric Heiden. Hann var óumdeil-
anlega maður leikanna. Ein
íþróttakona hjó þó býsna nærri
honum. Sú vann gullverðlaun í
svigi og stórsvigi kvenna. auk
þess sem hún var önnur i hruni.
Stúlka þessi heitir ...
a) Maria Teresa Nadig frá Sviss
b) Hanni Wenzel frá Liechtenst-
ein
c) Anne Marie Moser Pröll frá
Austurríki
d) Krista Kinshofer frá Vestur-
Þýskalandi
e) Radnina Beljajeva frá Sovét-
ríkjunum
6) Það er jafnan skammt milli
gleði (>k sorgar í keppnisiþrótt-
um. Bandarísku skautadanspari
nokkru var spáð miklum frama i
FRDGA
I » 1 f 9 } 1 i j. lí W í 1 k. £ ( l „æÉP lÁ
Þessi glæsilega knattspyrnumynd er tekin úti í hinum stóra heimi. Hvaða íslendingur leikur
með því liði sem leikmaðurinn lengst til hægri tilheyrir?
Lake Placid, en á siðustu stundu
slasaðist karlinn og þau hjúin
drÓKU sig til baka með táraflóði.
Þetta ágæta fólk hét annars ...
a) Bruce Lee og Kate Bush
b) Tai Babilonia og Randy Gardn-
er
c) Karin Enke og Tim Currie
d) Alan Wells og Gina Maiden-
head
e) Garry Schwarts og Elly Dee
ERLENT
7) Loks frá Lake Placid, hvaða
þjóð hreppti flest gullverðlaun
og hver næst flest?
a) Rússland flest, síðan Bandarík-
in
b) Bandaríkin flest, síðan Rússar
c) Rússar flest, síðan Austur-
Þjóðverjar
d) Bandaríkin flest, síðan Aust-
ur-Þjóðverjar
e) Liechtenstein flest, síðan Fíla-
beinsströndin'
8) Sumarleikarnir fóru síðan
fram i Moskvu, eins og allir vita.
Pólitík reið þar súðum eins og
komið hefur áður fyrir. en að
þessu sinni hættu marKar þjóðir
við þátttöku vegna umsvifa
Rússa í Afganistan. Af þeim
sökum og öðrum voru marKÍr
verðlaunamenn frá Ólympiuleik-
unum í Montreal fjarverandi.
Hve margir?
a) 176
b) 3862
c) 187
d) 223
e) 2
9) Þrátt fyrir fjarveru Banda-
rikjamanna i Moskvu, var engu
að síður einn bandariskur
iþróttamaður meðal keppenda.
Ilvernig st(W) eiginlega á því?
a) Hann keppti á eigin vegum
b) Rússar buðu honum ókeypis
gistingu og uppihald
c) Hann var spænskur ríkisborg-
ari í körfuknattleiksliði Spánar
d) Hann keppti í pólitískum
kappræðum
c) Var enginn Kani. Allt í plati
10) Sovéski fimleikagarpurinn
Alexander Didiatyn (sem er fast-
ur gestur í iþróttaþáttunum hjá
Bjarna Fel.) setti nýtt met á
Moskvuleikunum. Ilann vann
mesta fjölda verðlauna sem einn
keppandi hefur nokkru sinni
unnið á sömu ólympiuleikunum.
Hversu mörg verðlaun nældi
hann sér í?
a) 8
b) 6
c) 7
d) 101
e) 12
11) Frammistaða íslendinga á
sumarleikunum var að mörgu
leyti mjög frækileg. Hæst bar þó
er...
a) Hreinn og Óskar komustí loka-
keppnina í kúluvarpi
b) Hreinn sigraði í kúluvarpi
c) Oddur hreppti silfur í 100
metra hlaupi
d) Allir íslensku keppendurnir
bættu sig
e) Guðmundur Helgason lyftinga-
maður varð tólfti í sínum
flokki.
12) Augu áhugafólks um heim
allan beindust að einvigi þeirra
Stcve Ovetts og Sebastian Coes i
800 ok 1500 metra hlaupunum, en
þcir félagar höfðu aldrei fyrr
keppt hvor við annan. Leikar
fóru þannig, að ...
a) Coe vann bæði hlaupin
b) Ovett vann bæði hlaupin
c) Coe vann annað, en Ovett
aðeins tvö silfur
d) Þeir hrepptu eitt gull hvor
e) Ovett vann gull, silfur og brons
í báðum hlaupunum
13) Það gengur oft á ýmsu á
Olympiuleikum og óvænt atvik
koma oft upp. Það varð uppi
fótur og fit í skylmingakeppn-
inni milli þeirra Lapitski frá
Rússlandi og Robak frá Póllandi,
er...
a) Sá pólski missti sverð sitt út í
sal með þeim afleiðingum, að
tveir áhorfendur slösuðust al-
varlega.
b) Sá sovéski rak sverð sitt óvart í
augað á dómaranum
c) Sá pólski rak keppinaut sinn á
hol þrátt fyrir sterkan hlífðar-
fatnað
d) Sá pólski varpaði sverðinu frá
sér og felldi Rússann með
hælkrók
e) Sá sovéski dró byssu úr pússi
sínu og skaut Pólverjann
14) Að venju rigndi niður
heimsmetum á Ólympiuleikun-
um. Var með ólíkindum hversu
vel keppendur voru undir keppn-
ina búnir. Hversu mörg heims-
met voru sett i Moskvu?
a) 1203
b) 36
c) 25
d) 55
e) 110
15) Pietro Mennea frá Italiu
sigraði glæsilega í 200 metra
hlaupi i Moskvu. Það vakti at-
hygli eftir hlaupið, er Mennea ...
a) hljóp af sér öryggisverði og
hljóp heiðurshring
b) hljóp beint í flasið á vopnuðum
vörðum sem færðu hanní yfir-
heyrslu
c) hélt áfram að hlaupa og linnti
ekki fyrr en heima á Ítalíu
d) hljóp á sjónvarpsmann og fót-
brotnaði
e) reif tætlu úr tartan-brautinni á
Lenin-leikvanginum til minja
um afrek sitt
16) Nóg um ólympiuleikana.
Evrópukeppni landsliða i
knattspyrnu fór fram á Ítalíu á
síðasta sumri. Vestur-Þjóðverjar
sigruðu mjög verðskuldað í
keppninni. en þeir sigruðu ...
a) Englendinga 3—2 í úrslitaleik
b) Tékka 3—0 í úrslitaleik
c) Islendinga 6—0 í úrslitaleik
d) ítali 1—0 í úrslitaleik
e) Belga 2—1 í úrslitaleik
17) Sigurmark Þjóðverja í
leiknum skoraði mikill og sterk-
ur markaskorari. Hann heitir ...
a) Karl Heinz Rummenigge
b) Klaus Allofs
c) Siggi Held
d) Horst Hrubesch
e) Dorian Grey
18) Hvaða skiðafólk var stiga-
hæst í heimsbikarkeppninni á
skiðum, er árinu lauk?
a) Ingmar Stenmark og Krista
Kinshofer
b) Bojan Krizaj og Marie Teresa
Nadig
c) Steve Podborski og Marie Ter-
esa Nadig
d) Andreas Wenzel og systir hans
Hanni Wenzel
e) Gunther Mausfrisser og Dani-
ela Forelle
19) Muhammed Ali mistókst
illa að verða fyrstur manna til
þess að tryggja sér heimsmeist-
aratitil i hnefaleikum fjórum
sinnum, er hann var grátt leik-
inn aí ...
a) Gýlfa Ægissyni
b) George Foreman
c) Sugar Ray Leonard
d) Larry Holmes
e) íslensku sjónvarpsdagskránni
20) Mcsti golf-leikari allra
tima (sennilega), Jack Nicklaus
komst i fréttirnar á árinu, er
hann ...
a) skrifaði ævisögu sína: „I am
the smoothest"
b) átti frábært „come back“, sigr-
aði á US Open golfkeppninni
c) fór að vinna á bensínstöð í
Alaska
d) sló þrisvar holu í höggi á sama
deginum
e) opnaði golfskóla á Húsavík