Morgunblaðið - 31.12.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1980
47
Vogin
23. september — 22. október
Hinn ónæðissami Plútó heldur áfram ferð sinni i gegn
um merki þitt. Til aiirar hamingju hefur hann aðeins
áhrif á Iitið brot af Vogarmerkinu en á þessu ári verða
fyrir barðinu á honum þeir sem fæddir eru á milli 17. og
20. október. Ilann veldur miklum sviftinKum sem þú
verður að taka með þolinmæði ef þú ert fædd(ur) á
þessum dögum. Fyrir áhrif frá Satúrnusi og Júpiter,
ásamt fleiri sterkum stjörnum, verður mikil óreiða i lífi
þinu árið 1981. Það er undir skipulagshæfni þinni og
skapstyrk komið hvort nokkuð verður úr þessari óreiðu.
Satúrnus mun veita þér tækifæri til að taka ábyrgari
afstöðu til lífsins en verið hefur. Berðu þá byrði sem hann
leggur þér á herðar og vertu þess fullviss að þú hljótir
umbun fyrir það síðar.
Hvað rómantisk ástarsambönd varðar, þá er timi
þeirra seinni hluti ágústmánaðar og fyrri hluti septem-
ber. Hin langþráða ást gæti hitt þig fyrir á þessu
timabili. Þetta mun þó ekki ganga auðveldlega fyrir þér
á árinu fremur en annað — þvi þú verður vissulega að
fórna til þess að öðlast hana. Næstu átján mánuði munu
stjörnurnar Ijúka við að móta þig og á þessum tima gætir
þú tekið út mikinn þroska. Þetta er eitt þýðingarmesta ár
ævi þinnar og þú skalt óhrædd(ur) gera þér far um að
sigrast á öllum vandamálum þínum. Kjörorð þitt árið
1981 skal vera: „Ég skal vera ákveðin(n) og jákvæð(ur).“
Drekinn
23. október — 21. nóvember
Á árinu 1981 mun verða nokkurt hlé á áhrifum
Úranusar á Sporðdreka. Það mun verða á timabilinu frá
19. febrúar ti! 21. marz er Úranus fer inn í Bogmanninn.
Njóttu hvíldarinnar þvi hún verður stutt. Sporðdrekar
fæddir milli 17. og 20. nóvember munu verða fyrir
miklum áhrifum af plánetunni á þessu ári. Ef þú ert einn
af þeim geturðu búist við nær hverju sem er, ekki
endilega andstreymi en Úranus getur skapað mikil
umbrot i lifi þinu. Hvað við kemur starfi gæti árið orðið
þér mjög hagstætt. Júpiter er þér hliðhollur, gjöfull á
hugmyndir og innblástur. Þessi afstaða Júpiters er þeim
séríega hagstæð sem starfa að tjaldabaki, sem kallað er,
þvi þeir munu ná góðum árangri. Besti hluti ársins er að
sjálfsögðu þegar þessi pláneta kemur inn i merkið i
desembermánuði. Skipulegðu þvi allt sem þér þykir
þýðingarmikið á þeim tima og þú munt uppskera
hamingju. En stjörnurnar veita ekkert án endurgjalds,
þess vegna verður þú að ieggja þig allan fram ef þú vilt
hljóta þessa hamingju.
Ef litið er á fjármálin, þá veldur Neptúnus þar
nokkrum ruglingi. Þess vegna ættir þú að leita ráða hjá
þér vitrari mönnum um fjármál. Árið 1981 gæti orðið hið
ágætasta fyrir Sporðdreka en það væri vissulega
hörmulegt ef þú misstir af tækifærum sem það býður
uppá vegna reynsluleysis eða þrjósku við að leita hjálpar.
Eini hættulegi mánuðurinn er júni. Farðu þá varlega i
umferðinni og hafðu góða gát á öllu þinu — þá mun árið
1981 verða þér tiltölulega mjög hagstætt.
Bogmaðurinn
22. nóvember — 21. desember
Neptúnus verður rikjandi i merki bogmannsins á nýja
árinu, einkum hjá þeim sem fæddir eru 15, — 21.
desember. Það hefur i för með sér að bogmenn verða
nokkuð annars hugar og værukærir lungann úr árinu. en
slikt hugarástand er liklegast til að koma listamönnum i
merkinu til góða. Heilsufarið virðist ekki verða upp á
marga fiska. Um alvarleg veikindi verður þó vart að
ræða. en krankleiki af ýmsu tagi gæti valdið angri. Vinir
og kunningjar munu skipta bogmanninn miklu máli á
árinu, og líkur eru á að hann bindist nýjum vináttubönd-
um, sem eigi eftir að hafa mikil áhrif á lif hans.
Menntunarmál verða mjög á döfinni á nýju ári, og þeir
sem fæddir eru i merkinu ættu ekki að láta tækifæri til að
auka þekkingu sina ganga sér úr greipum. Að öðru leyti
er ekki útlit fyrir að árið 1981 færi bogmanninum mikla
velgengni i starfi og útlit er fyrir að á hann hlaðist mikil
störf sem lítt verða metin að verðleikum. Einkum er
óliklegt að auknar annir verðir ábatasamar, og yfirleitt
er útlitið heldur dökkt á fjármálasviðinu. Það er óliklegt
að bogmaðurinn verði þannig sinnaður á árinu, að
tilbreyting i starfi komi honum að miklu gagni. og ætti
hann þvi að hugsa sig um áður en hann hugsar sér til
hreyfings og litast um eftir nýju starfi. Bogmaðurinn
þarf að varast það sérstaklega að láta leti og sérhlifni
ráða ferðinni, með þvi að falla i slikan dróma eykur hann
aðeins á erfiðleika sina. Þótt yfirleitt sé útlitið heldur
dökkt er hollt að minnast þess. að fátt er svo með öllu illt
að ekki boði nokkuö gott. Bogmaðurinn getur byrjað að
hlakka til óvenju mikillar velgengni i ástum á nýja árinu.
Október verður sennilega bezti mánuðurinn hvað róman-
tikina varðar, og þá er útlit fyrir að margt verði stokkað
upp, sem flest horfir til heilla. Fyrstu tveir mánuðir
ársins virðast líka ætla að færa bogmanninum hamingju
i einkalifi, en marz. júni, september og desember eru þeir
mánuðir, sem sizt eru liklegir til að verða afdrifaríkir i
þeim efnum.
Steingeitin
22. desember — 19. janúar
Framagirni er rikjandi þáttur i lifi steingeitarinnar,
og þær sem ætla sér mikinn hlut á nýju ári ættu að
hefjast handa áður en áhrifa Satúrnusar fer að gæta i
aprilmánuði. Eftir það er óliklegt að byrlega blási, þvi að
hver hindrunin birtist þá eftir aðra. Eina leiðin til að
yfirstiga þær er að sýna þolinmæði, en það er nokkuð sem
steigeitin reiðir ekki i þverpokum. Liklegt er að margar
steingeitur hafi hug á þvi að skipta um starf á þessu ári
og i þvi sambandi er óhætt að segja að horfur séu óvenju
bjartar. Þær steingeitur, sem stefna að því að verða sér
úti um mjúkan stól í vinnunni, verða fyrir vonhrigðum.
þvi að framundan er allt annað en rólegt ár. Yfirleitt
verður árið ónæðissamt hjá steingeitinni. Hún getur
búizt við þvi að verða mikið á ferðinni, ekki sízt í
sambandi við starfið, og útlit er fyrir að fcrðalög verði
nokkuð hár kostnaðarliður. í ástamálum vænkast hagur
steingeitarinnar eftir því sem á árið líður, og er útlitið
bezt í nóvember. Þá er trúlegt að margir, sem fæddir eru
i þessu merki, stofni til nýrra kynna er siðan muni leiða
til farsældar. Heilsan vcrður með bezta móti á árinu, en i
ágústmánuði er hclzt hætt við lasleika og slysum. 1981
verður steingeitinni varla ár hóglifis og áhyggjuleysis, en
þeir sem fæddir eru i þessu merki eru raunsæir og búast
sjaldan við þvi að lífið sé laust við vandamál. þannig að
þeir eru sjaldan berskjaldaðir gagnvart erfiðleikum.
Vatnsberinn
20. janúar — 18. febrúar
Árið 1981 verður með endemum sviptingasamt hjá
þeim, sem fæddir eru i merki vatnsberans. Tilviljanir,
einkum i sambandi við ferðalög, verða margar og
undarlegar. og fjarlægir staðir koma mjög við sögu.
Vatnsberinn verður að öllum líkindum á ferð og flugi
jafnt og þétt, en oft má litlu muna að ráðagerðir fari ekki
út um þúfur vegna óvæntra atvika. Þeir vatnsberar, sem
hyggja á búferlaflutninga. ættu að láta til skarar skriða
á nýja árinu. þvi að sjaldan hafa aðstæður til sliks verið
jafn lánlegar, og útlit er fyrir að á árinu muni vatnsberar
unnvörpum flytja um langan veg. Ekki er ólíklegt að á
árinu muni létta veruloga til i einkalifi og að gömul
vandamál muni leysast. Ástamálin eru likleg til að valda
verulegum heilabrotum á árinu, og eins og annað munu
þau ráðast af tilviljunum. Þeir vatnsberar sem hafa hug á
því að bindast til frambúðar ættu að gefa rómantikinni
sérstakan gaum i febrúar, en þá er Venus í vatnsbera-
merki. Þegar liður á árið er óliklegt að til tiðinda dragi á
þeim vettvangi. Heilsufarið verður yfirleitt skikkanlegt.
en þó má búast við krankleika við og við. Taugaspenning-
ur kann að valda vatnsberanum verulegum erfiðleikum á
stundum og miklu varðar að hann ætli sér ekki um of.
Sérstakrar aögæzlu i umferðinni verður þörf i byrjun
ársins. þcgar mest hætta er á óhöppum. Þegar á heildina
er litið er þess vart að vænta að árið 1981 verði að öllu
leyti bezta árið í ævi vatnsberans, en óhætt er að spá þvi
að það verði eftirminnilegt og óvenju viðhurðaríkt.
Tilviljanirnar. sem áður er getiö. munu að likindum
reyna nokkuð á þolrifin, vatnsberinn gæti búið i haginn
fyrir sig með þvi að láta þa<r ekki koma sér i opna
skjöldu.
Fiskarnir
19. febrúar — 20. marz
Fiskarnir hafa átt við nokkra erfiðleika að striða
undanfarin tvö ár og er þeim ekki að fullu lokið. Þessum
erfiðleikum veldur staða Satúrnusar i gagnstæða
merkinu, Meyjunni. Á árinu 1981 mun þessi pláneta
valda þér nokkrum óþægindum hvað snertir afskipti
yfirvalda aí þér i smáu og stóru. Þú ættir þvi ekki að
leggja neitt i hættu hvað varðar viðskipti þín við þau.
Hvað viðvikur starfi verður þetta ár hið ágætasta fyrir
þá sem starfa sem skemmtikraftar eða fást við einhverja
listgrein. Ef starf þitt er annars eðlis gæti það valdið þér
nokkrum leiða og jafnvel vonbrigðum. Þessi leiði á fyrst
og fremst rætur að rekja til persónuleika þíns en ekki
starfsins sem þú innir af hendi — það ættir þú að
hugleiða áður en þú tekur afgerandi ákvörðun um að
skipta um starf. Reyndu að finna út hvað þú virkilega
vilt fá út úr lífi þínu. þvi meðan það er þér hulið er eins
gott fyrir þig að gegna því starfi sem þú hefur. Sú von að
erfiðleikarnir hverfi af sjálfu sér leiðir ekki til neins —
þú verður að berjast fyrir hamingjunni.
Marz er mánuður þeirra Fiska sem ástarmálin eru
hugleikin. í þeim mánuði er Venus þér hliðholl og ef það
á fyrir þér að liggja að hitta draumadísina (-prinsinn), þá
mun það verða á þessum tima. Þetta er einnig heppilegur
mánuður fyrir meiriháttar ákvarðanir.
Lengst af árinu muntu verða stálslegin(n) til heilsunn-
ar. Marz hefur þó nokkur óheillavænleg áhrif á heilsu
þina milli 21. október og 16. desember. Vertu því á
varðbergi þetta timabil.
Árið 1981 mun reyna á þolrifin að ýmsu leyti en þú
munt þó verða jafngóöur að því liðnu og e.t.v. töluvert
vitrari.