Morgunblaðið - 31.12.1980, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1980
55
Suður í Mónakó
Minntu á 40 ára
sovéthernám
+ Þessi fréttamynd er tekin í Washington er flóttamenn frá
Eystrasaltsríkjunum fjölmenntu í göngu, til þess að minna á að
liðin eru 40 ár frá því hersveitir Sovétrikjanna voru sendar inn í
þessi litlu frjálsu lönd og lögðu þau undir járnhæl kommúnismans.
Það mun jafnvel vera svo að menn hér á íslandi séu farnir að ryðga
í þvi hvað þessi litlu lönd hétu. Eystrasaltslönd var aðeins samheiti
þeirra en þessi þjóðlönd eru Eistland, Litháen og Lettland.
„Nóttin á
f jallstindinum ...“
+ HÉR veifar tónsprotanum hljómsveitarstjórinn Claudio Abbado.
er hann stjórnar kór- og hljómsveit Sinfóníuhljómsveitarinnar í
London nú fyrir nokkru. En hljómplötufyrirtækið RCA lét taka
upp flutning á verkum rússneska tónskáldsins Mussorgsky. —
Myndin er tekin er Claudio Abbado er að stjórna hljómsveitinni og
kórnum er flutt var verkið Nóttin á fjallstindinum.
Hnattflug
+ Loftbelgskapparnir amer-
isku. þeir Maxie Anderson
belgsstjóri og aðstoðarbelgs-
stjórinn Don Ida hafa sagt frá
þvi, að þeir hafi ákveðið að fara
í hnattflug i loftbelg — hið
fyrsta sem farið yrði. Ráðgera
þeir að leggja upp í hnattflugið
í Egyptalandi í febrúarmánuði
eða í mars. Þeir hafa skírt
loftbclginn „Jules Verne“ eftir
rithöfundinum fræga. Þeir ætla
sér að komast upp i hálofta-
strauma, í 25.000—30.000 feta
í loftbelg
ha>ð og láta straumana bera
loftbelginn. Vonast þeir til að
ná allt að 150 mílna hraða.
Karfan verður vel útbúin —
hönnuð t.d. með hliðsjón af því
að nauðlendingu á hafi getið
borið að höndum. í körfunni
verða þeir með matvælabirgðir,
sem nægja munu þeim í 20
daga. Þeir félagar gera ráð
fyrir að kostnaðurinn við
hnattflugið verði ekki undir
200.000 dollurum.
Jlmmy Cart.r komat I .viðaltó.iö
þagar hann ðrmagnaðiat i viöavanga-
Hlaupi. Hykir mðrgum, aam óheppnin
hafi alt foraetann á rttndum þau fjögur
ér aem hann hefur aelitt á foraetaatóii.
Carter
bein-
brotnaði
á skíðum
+ Jimmy Carter, forseti
Bandaríkjanna viðbeins-
brotnaði á laugardag þegar
hann féll á skíðum skammt
frá Camp David. Líðan hans
var „enn nokkuð slærn" að
sögn talsmanns Hvíta húss-
ins. Þrátt fyrir slysið á laug-
ardag hitti Carter að máli
alsírska sendimenn í Was-
hington. Alsír hefur sem
kunnugt er milligöngu í
samningaumleitunum
Bandaríkjanna og írans
vegna gísladeilunnar.
Jimmy Carter var sem áð-
ur sagöi á skíðum skammt
frá sveitasetri forsetaemb-
ættisins í Camp David. í
brautinni fór hann utan í
stein með þeim afleiðingum
að hann féll og viðbeins-
brotnaði. Hann var fluttur til
Bethesda-sj úkrahússins
skammt frá Washington. Þar
var gert að sárum forsetans.
Talsmaður Hvíta hússins
sagði, að þrátt fyrir slysið
hygðist forsetinn ekki gera
hlé á störfum sínum.
+ Þessi AP-fréttamynd var tekin fyrir skömmu suður i Mónakó á
Miðjarðarhafsströnd Frakklands. — Þar var haldin alþjóðleg
hátið sirkusskemmtikrafta. — Frægir gamlir kvikmyndaleikarar
heiðruðu hátíðina með nærveru sinni, klæddir sirkushátiðar-
skrúða. þau Grace prinsessa og þjóðhöfðingjafrú af Mónakó og
gamla Hollywoodstjarnan Cary Grant.
Hjónaerjur
+ V-Evrópublöð skýra frá því að
hollenska prinsessan írene, sem
bjó búi sínu suður í Madrid á
Spáni, ásamt eiginmanninum,
spænska prinsinum Carlos
Hugo, og börnum þeirra fjórum
— hafi tekið föggur sínar og
pakkað og haldið heim til Hol-
lands með börnin. — Hjóna-
bandserfiðleikar hjónanna séu
orðnir svona alvarlegir. Býr
prinsessan nú í Soestdijk-höll. —
Og í Bretlandi eru sambúðar-
vandamál frægra hjóna þar í
landi orðin slík að hjónaskilnað-
ur er yfirvofandi. — Þessi hjón
eru einkum fræg fyrir það í
Bretlandi að um er að ræða
ríkustu hjón þar í landi, hjónin
Kötu og Lord Vestey. Eignir
þeirra eru taldar nema hátt í 850
milljarða ísl. kr. Þau eiga skipa-
félög, tryggingafélög og kjöt-
vinnslustöðvar, svo nokkuð sé
nefnt. Lordinn er 39 ára, en
frúin 36. — Þau eiga tvö börn,
tveggja og níu ára. Hann hlaut
Lordinn í arf eftir afa sinn
sáluga, fyrir 26 árum.
Móðir Teresa og Pat
+ Amerískt heimilisrit, mjög víðlesið þar í landi: Good Ilousekeep-
ing, birti fyrir nokkru niðurstöður skoðanakönnunar meðal
lesenda sinna á því hvaða konur njóti nú mestrar hylli og
viðurkenningar. Undanfarin tvö ár hefur skipað efsta sætið
söngkonan Anita Bryant. En nú félltiún niður í 3. sætið. í það
efsta var kjörin Móðir Teresa í Kalkútta. í öðru sæti er I’at Nixon
fyrrum forsetafrú í Bandaríkjunum, sem reyndar hefur ætíð verið
á meðal þeirra kvenna sem skipað hafa 10 efstu sætin, allar götur
frá því á árinu 1969, er þetta kunna heimilisrit byrjaði á slíkri
skoðanakönnun meðal lesenda sinna.