Morgunblaðið - 25.03.1981, Side 1

Morgunblaðið - 25.03.1981, Side 1
40 SÍÐUR 70. tbl. 69. árg. MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Leiðtogafundur EBE: Óeining um fisk en samstaða að styrkja Pólverja Maastricht. 24. marz. AP. LEIÐTOGAR EBE-ríkjanna komu sér saman um það á fundi sínum í Hollandi, sem lauk í dag, að vinda bráðan bug að því að veita Pólverjum efnahagsaðstoð, en um fiskveiðistefnu bandalagsins er óeining sem fyrr. Á fundinum var ekki tekin ákvörðun um það hversu mikil efnahagsaðstoðin við Pólverja verði né heldur með hvaða hætti hún skuli látin í té, en að fundin- um loknum sagði Carrington utanríkisráðherra Breta við fréttamenn, að Pólverja vantaði „meira en milljarð Bandaríkja- dala til að fleyta sér fram í júlí“. Herhvöt gegn hryðju- verkaöflum á Spáni Madrid, 24. marz. — AP. JUAN Carlos Spánarkon- ungur kallaði hershöfð- ingja landhers, flota og flughers á sinn fund í dag til að kunngjöra nýja áætl- un sem miðar að því að setja hryðjuverkamönnum skorður. Konungur sagði að nú væri tími til kominn að „ráðast af krafti“ gegn hryðjuverkaöfiunum í landinu. Fundurinn var haldinn fyrir luktum dyr- um en heimildarmenn inn- an hersins segja að fyrsta skrefið sé að stórefla eftir- lit á landamærum Baska- lands og Frakklands. í kjölfar fundarins voru handteknir 26 Baskar, sem bendlaðir eru við ETA, hryðjuverkasamtök Baska. Suður-Frakkland hefur löngum verið paradís hryðjuverkamanna frá Baskalandi og er talið víst að vopnabúnaður þeirra komi að mestu yfir þessi landamæri. Þetta er í fyrsta sinn, sem her Spánar fær fyrirmæli um að ráðast gegn hryðjuverkamönnum en hingað til hefur baráttan gegn þeim verið á könnu þjóðvarðliða og lögreglu. Málflutningur konungs hlaut góðar undirtektir hershöfðingj- anna en konungur sagði m.a. að „ekki dygði lengur að hlýða með athygli á kröftug mótmæli og fordæmingar vegna ofbeldisverka heldur væri tímabært að taka af skarið og snúa vörn í sókn“. ... # -V . asJ>- Juan Carlos AP-símamynd. BIGGS í BÖND Ronald Biggs, brezki lestarræninginn sem komst undan með þýfi sitt og hefur leikið lausum hala í fimmtán ár, var handtekinn á Barbados í fyrrakvöld. Biggs náðist um borð í leigðri lúxussnekkju sem varðskip tók í tog og flutti til hafnar. Sjá nánar á bls. 19. Gos á gjaf- verði fyrir íslenzka mynt Osló. 24. marz, frá Jan Erik Lauré. fréttaritara Morgunhlaðsins. Billeg- asta „bland" í Noregi fæst með því að stinga úreltum íslenzkum tíkalli í sjálf- sala. Að sögn Noregs- banka er töluvert um að menn færi sér í nyt þessi hagstæðu viðskiptakjör. I réttu lagi á gosdrykkjar- dós í sjálfsala að kosta fjórar norskar krónur, en með því að stinga fjórum íslenzkum tíukrónumynt- um í sjálfsalann er hægt að fá dósina fyrir sem svarar 8,2 aurum norsk- um. Reiðir sjálfsalaeig- endur koma með hina óvinsælú íslenzku mynt og krefjast þess að fá henni skipt í bankanum. Látið undan Walesa — beðið með allsherj- arverkfall í Póllandi Bydgoszcz. 24. marz. — AP. LANDSRÁÐ Samstöðu, hins óháða verkalýðssambands i Pól- landi. ákvað á fundi sínum i dag að fara að ráðum leiðtoga síns, Lech Walesa, og biða með alls- Kemur njósnamálið flatt upp á Thatcher? Lundúnum, 24. marz. — AP. MÁL HINS látna yfirmanns Ml.Vgagnnjósnaþjónustunnar brezku, Sir Roger Hollis, er í þann veginn að verða meirihátt- ar öryggismálahneyksli. Thatcher forsætisráðherra hef- ur enn ekkert viljað um málið segja, og þykir það styðja þá skoðun að hún hafi alls ekkert um það vitað fyrr en á mánu- daginn var þegar það komst fyrst í hámæli. Búizt er við því að Thatcher gefi yfirlýsingu um málið í Neðri málstofu þingsins á fimmtudag- inn og ennfremur að hún verði krafin um skýrslu áður en málið verður tekið til meðferðar á þeim vettvangi. Sir Roger Hollis, fyrrum yfir- maður MI5, en hann lét af starfi árið 1965 og andaðist árið 1973. AP-simamynd. Ýmsir telja að mál Sir Rogers sé ekki nýtilkomið heldur tengist það öðrum meiriháttar njósna- málum og hafi á sínum tíma verið þaggað niður, líkt og Blunt-málið alþekkta. Chapman Pincer, sem árum saman hefur skrifað um varnarmál og er höfundur fréttarinnar í Daily Mail, heldur því fram að njósna- mál þetta hafi tengzt máli Blunts og auk þess hneyksli því sem kennt var við Profumo, fyrrum hermálaráðherra Breta, sem hrökklaðist úr rikisstjórn vegna tengsla sinna við Christ- ine nokkra Keeler árið 1963, en sú kona var einnig í nánu vinfengi við einn helzta útsend- ara KGB í Bretlandi um þær mundir. herjarverkfall fram i næstu viku hafi viðræður við stjórnvöld vegna atburðanna í Bydgoszcz sl. fimmtudag þá reynzt tilgangs- lausar. Landsráðið tók þessa af- stöðu eftir að Walesa hafði hótað að segja af sér ef ákvörðun yrði tekin um að boða til allsherjar- verkfalls þegar í stað. Sú tillaga Walesa að efna til fjögurra stunda aðvörunarverk- falls á föstudag og allsherjarverk- falls á þriðjudag varð þvi ofan á, en í svipinn virðist ekki mikið útlit fyrir að árangur geti orðið af viðræðum Samstöðu og stjórn- valda vegna aðfarar lögreglunnar að bændum í stjórnarsetrinu í Bydgoszcz fyrir helgina. Ljóst er að ástandið í Póllandi er nú þrungið spennu og veltur á miklu að hinum varkárari verka- lýðsleiðtogum takist að halda aft- ur af þeim félögum sínum, sem vilja hleypa fullri hörku í aðgerðir gegn ríkisvaldinu. I dag virðist svo sem þeirri skoðun hafi vaxið fylgi að ekki sé nauðsynlegt að svara aðför lögreglunnar að bændum í stjórnarsetrinu á dögunum með allsherjarverkfalli heldur með því að fordæma hana og leggja um leið aukna áherzlu á að fá stjórn- völd til viðræðna um kröfur verkalýðsins og knýja á um að samtök sjálfseignarbænda í land- inu verði viðurkennd. Landsráðsfund Samstöðu í dag sótti 41 fulltrúi og féllu atkvæði þannig, að 35 voru samþykkir tillögu Walesa, 2 voru á móti en 4 sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. NATO-æfingar í Vestur-Berlín V Bcrlín. 24. marz — AP. HERIR NATO-ríkjanna hófu her- æfingar i Vestur-Berlin i dag þrátt fyrir gagnrýni af hálfu Sovétríkj- anna, sem telur æfingarnar bera vott um „árásarhneigð" aðildar- rikja bandalagsins. Æfingarnar standa i fjóra daga og taka þátt i þeim 2.500 hermenn frá Frakk- landi, Bandarikjunum og Bret- landi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.