Morgunblaðið - 25.03.1981, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ 1981
25
Ingibjörg Johnson
í Selkirk
Frú Ingibjörg Johnson í Selkirk
varð níræð þann 7. febrúar síð-
astliðinn. Við það tækifæri var
efnt til samsætis henni til heiðurs
í húsakynnum Rotary-klúbbs bæj-
arins. Sjötíu og fimm manns sátu
samkvæmið. Meðal þeirra voru
börn Ingibjargar, barnabörn og
barnabarnabörn.
Frú Ingibjörg skartaði sínu feg-
ursta þennan dag, þar á meðal
forláta sjali sem ættingjar á
íslandi höfðu gefið henni.
Arnaðaróskir bárust frá ætt-
ingjum og vinum nær og fjær og
ekki létu fyrirmenn afmælið
framhjá sér fara, en frú Ingi-
björgu bárust skeyti frá fylkis-
stjóra Manitóba og forsætisráð-
herra fylkisins. Kveðjur bárust og
frá ættingjum á íslandi.
Frú Ingibjörg Guðmundsdóttir
var fædd í Flankastaðakoti, Mið-
neshreppi í Guilbringusýslu. Mað-
ur hennar var Þorvaldur Jónsson
- Níræð
(Johnson). Árið 1924 fluttust þau
hjónin til Kanada og settust að í
Selkirk, þar sem þau bjuggu æ
síðan. Þorvaldur andaðist árið
1964. Börn þeirra eru Björg, Nína,
Jóna og Leó. Þau eru öll gift.
Barnabörnin eru 26 að tölu og
barnabarnabörnin 18.
Frú Ingibjörgu bárust fjölmarg-
ar gjafir á afmælisdaginn. Þar á
meðal voru garðyrkjuáhöld, en
hún er enn við bestu heilsu og
hyggst nota áhöldin mikið við
garðyrkju og blómarækt þegar
sumarsól fer að skína og frost er
horfið úr jörðu.
Ingibjörg hyggur sjálf að lang-
lífi sitt og heilsu eigi hún fyrst og
fremst því að þakka að hún hefur
ávallt verið og er enn sístarfandi.
Enn annast hún sjálf öll innan-
hússtörf í íbúð sinni, þar sem
umgengni er til fyrirmyndar. Hún
gerir sjálf öll innkaup, prjónar og
heklar og fylgist vel með atburð-
um liðandi stundar. Afkomend-
urnir eru hennar hamingja og
gleði, og böndin við ættmenn, vini
og nágranna eru hin traustustu.
Skopskyggni hennar og eldsnögg
skemmtileg tilsvör hafa brugðið
viðfelldum blæ yfir vegferð henn-
ar sjálfrar, og hefur samferðafólk
hennar notið þessara eiginda í
ríkum mæli.
Níræð á hún skilið óskipta
virðingu allra sem henni hafa
kynnst.
Gerald Magnússon
Vitni vantar að nokkrum ákcyrslum
Slysarannsóknadeild lögreglunnar
í Reykjavik hefur beðiö Morgunblað-
ið að lýsa eftir vitnum að eftirtöldum
tjónum á bilum:
Föstudaginn 13.03. sl. frá kl.
09.00—10.00 var ekið á bifreiðina
R-62723, sem er grænn Fiat 128, við
Bolholt 6.
Föstudaginn 13.03. sl. frá kl.
17.00—22.00 var ekið á bifreiðina
R-63570, sem er brúnn Citroén, við
Brautarholt 2—4.
Mánudaginn 16.03. sl. um kl. 01.00
var ekið á bifreiðina R-2645, sem er
grár Subaru, við Kríuhóla 2.
Mánudaginn 16.03. sl. frá kl.
15.00—15.45 var ekið á bifreiðina
R-68800, sem er rauður Galant, við
Grensásveg 7.
Þriðjudaginn 17.03. sl. um kl. 09.30
var ekið á bifreiðina Y-8788, sem er
gul Lada, við Suðurlandsbraut 20.
Þriðjudaginn 17.03. sl. frá kl. 17.50
var ekið á bifreiðina R-65566, sem er
rauður Volvi, við Hátún 8.
Miðvikudaginn 18.03. sl. frá kl.
14.45— 15.10 var ekið á bifreiðina
Y-1803, sem er brún Mazda, í Hall-
armúla við Pennann.
Þriðjudaginn 18.03. sl. frá kl.
18.45— 19.15 var ekið á bifreiðina
R-1934, sem er grænn Mercury Comet,
við Borgarspítalann.
Sálfræðingar mót-
mæla breytingum
á Hvítabandinu
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
stjórn Sálfræðingafélags íslands:
Stjórn SI lýsir áhyggjum sínum
vegna ótryggrar framtíðar dag- og
göngudeildarstarfsemi þeirrar sem
nú er rekin á Hvítabandinu við
SKólavörðustíg. Áætlanir eru um
að nota húsnæði deildarinnar und-
ir hjúkrun aldraðra, án þess að
tryggt geti talist að Dag- og
göngudeildin eigi í annað jafn
hentugt hús að venda.
Stjórnin vill benda á að Hvíta-
bandið hentar afar vel til þjónustu
af því tagi sem þar er nú. Dag- og
göngudeildarstarfsemi er tiltölu-
lega nýr þáttur í geðheilbrigðis-
þjónustunni hér á landi, en með-
ferðarsnið þetta ryður sér nú mjög
til rúms víða um lönd og reynist
vel. Dagdeildarstarfið byggist m.a.
á því að hægt sé að skipa þátttak-
endum niður í stóra og smáa
vinnuhópa, að unnt sé að bjóða upp
á einstaklings-, hjóna- og fjöl-
skylduviðtöl, ýmis konar starfs- og
líkamsþjálfun, mötuneytisaðstöðu,
pláss til hvíldar og tómstunda og
samveru þann tíma dagsins sem
fólk dvelur á deildinni. Húsrými og
herbergjaskipan á Hvítabandinu
leyfir vel slíka fjölbreytni í starfi.
Þá er það og kostur að húsnæðið er
miðsvæðis í borginni og ekki um of
tengt spítalakerfinu.
Mjög umfangsmiklar og dýrar
breytingar verður hins .vegar að
gera á húsinu ef þar á að verða
sómasamleg hjúkrunardeild, þótt
til bráðabirgða sé. Þrátt fyrir það
yrði deildin þó ávallt óhentug og
að sögn kunnugra afar óhagkvæm
rekstrareining.
Þótt stjórn SI fagni áformum
stjórnvalda um að bæta nokkuð úr
bráðum vanda aldraðra, þá harm-
ar hún ef úrbæturnar bitna á
þjónustu við fólk með geðræn
vandkvæði eins og nú virðist á
horfa.
Telur stjórnin ýmsa aðra kosti
vænlegri og eðlilegri til skamm-
tíma úrbóta, og vel unnt að nýta
fjármunina betur öldruðum í hag.
Nægir þar að benda á 3. hæð
Heilsuverndarstöðvarinnar, þar
sem borgarlæknir og heilbrigðis-
fulltrúar sitja nú í húsnæði sem
byggt er og hannað sem hjúkrun-
arrými.
Að lokum vill stjórn SÍ minna á
að bráðabirgðaúrbætur af þessu
tagi, þar sem tjaldað er til einnar
nætur, bera mjög keim af þeim
úrræðum sem hingað til hefur
verið gripið til í hjúkrunarmálum
aldraðra borgara og reynslan sýn-
ir, að ekki leysa nema lítinn hluta
hins gífurlega vanda sem við er að
etja.
Þær geta hins vegar hæglega
tafið fyrir þeim stórframkvæmd-
um sem þörf er á.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
□ HELGAFELL 598125037 — VI
I.O.O.F. 9 = 16203258'/! = XX
Heimatrúboöið
Óöinsgötu 6 A
Vakningasamkoma ( kvöld kl.
20.30 og næstu kvöld.
Allir velkomnlr.
□ Glitnlr 59812537 — Frl.
I.O.O.F. 7 = 16203258% =
Hörgshlíð 12
Samkoma í kvöld kl. 8.
ÞóramerkurferA um næstu
helgi Fararstj. Jón I. Bjarnason.
Upplýsingar og farseölar á
skrifst. Lækjarg. 6a, sími 14606.
Á
Farfuglar
þTKl
ÉÉ.
Skemmtikvöld
veröur föstudaginn 27. marz kl.
20.30 á Farfuglaheimilinu, Lauf-
Gullfoss í klakaböndum sunnu-
dagsmorgun kl. 10.
Útlvist
Kvennadeild Rauöa
kross íslands
Konur athugiö
Okkur vantar sjálfboöaliöa til
starfa fyrir deildina. Uppl. í
símum 34703, 37951 og 14909.
sanngjörnu veröi Uppl. í síma
73108 eftir kl. 19.00.
2ja—3ja
herbergja ibúö óskast til leigu á
Veröbréf
fyrirgreiösluskrifstofan. Vestur-
götu 17, sími 16223.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Hvöt, félag sjálfstæðis-
kvenna í Reykjavík
Stórbingó
veröur haldiö í Sigtúni fimmtudaginn 26. marz nk. kl. 20.30. Húsiö
opnaö kl. 19.30. Spilaöar veröa 15 umferöir.
Vinningar: 3. glæsilegar sólarlandaferöir frá Útsýn.
Hljómtækjaskápur.
Rafmagnstæki.
Vðruúttekt.
Matarkörfur
og fleira og fleira.
Allir vinningar stórglæsilegir.
Fjölmenniö. Allir velkomnir. Enginn aögangseyrlr.
Fiáröflunarnefndln.
Kjördæmissamtök ungra
Sjálfstæöismanna í
Reykjaneskjördæmi
Gunnar Kristján
Dóra Aigeir
Hverjar eru horfur
um sættir í
Sjálfstæðisflokknum?
Hvert stefnir
boóa tll fundar f Sjálfstæólshúsinu, Hamra-
borg 1, Kópavogí, mióvikudaginn 25. marz,
kl. 21. Gestur fundarins veróur Gunnar
Thoroddsen forsætisráöherra. Allt s|álfst*ö-
isfólk velkomiö.
Stlórnln.
í efnahagsmálum?
Gunnar Thoroddsen forsætisráöherra, ftytur ræóu á almennum fundl
aó Seljabraut 54, flmmtudaginn 26. mars 1981 kl. 20.30. Fundarstjóri
Krlstján Guðbjartsson Fundarritarar Dóra Gissurardóttir og Ásgeir
Hannes Eirfksson. Fundurlnn er ðllum opinn. Ökeypis Pepsl
Coia-veitlngar á fundlnum.
Félag Sjálfstæóismanna í
Feila- og Hólahverfl f Breióhoftl.
Aðalfundur kjördæma-
samtaka ungra
sjálfstæðismanna
í Reykjaneskjördæmi
veröur haldinn í Sjálfstæóishúsinu, Hamraborg 1, Kópavogi,
miövikudaginn 21. marz kl. 20.30. Venjuleg aöalfundarstörf.
Stjórnin:
Félag sjálfstæðismanna
í Langholti
Fundur miövikudaginn 25. marz kl. 20.30 aö
Langholtsvegi 125.
Fundarefni:
Atvinnumálin
og framtíðin
Gestir fundarins Friörik Sófusson, alþingis-
maöur og Davíö Scheving Thorsteinsson,
form. félags ísl. iönrekenda. Stjórnin
Davíö Friörik