Morgunblaðið - 02.04.1981, Page 1

Morgunblaðið - 02.04.1981, Page 1
64 SÍÐUR MEÐ 16 SÍÐNA ÚTSÝNARBLAÐI 77. tbl. 69. árg. FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Byltingarmenn ^ neita að semia Bangkok, 1. apríl. AP. HERFORINGJAR sem gerðu byltingu gegn Prem Tinsulan- onda, forsætisráðherra í Thai- landi. hundsuðu frest, sem hann veitti þeim til að gefast upp, í dag og kváðust ráða yfir „20 sinnum“ fleiri hermönnum en Prem. í kvöld sótti herlið undir stjórn Prems til Bangkok til að reyna að bæla byltinguna niður. Síðustu fréttir hermdu að herlið- ið væri komið til Saraburi, 90 km NA af Bangkok. Sant Chitpatima hershöfðingi, yfirmaður byltingarnefndarinn- ar sem segist hafa tekið völdin í landinu í sínar hendur, sagði að nefndin stæði ekki í samningum við Prem, sem flúði til herstöðv- arinnar í Korat í Norðaustur- Thailandi eftir byltinguna. Út- göngubann hefur verið fyrirskip- að í Korat, en ekki í Bangkok. Byltingarnefndin hefur rekið næstæðsta mann annars hers- ins, Ahtit Kamlang-Ek, náinn stuðningsmann Prem úr stöðu sinni í hernum fyrir afskipti af störfum nefndarinnar. Ahtit mun hafa stjórnað herliði í nágrenni Bangkok. í útvarpstilkynningu frá bylt- ingarnefndinni segir að Prem hershöfðingi hafi ekki getað leyst vaxandi vandamál lands- ins, hann hafi lengt embættis- tíma sinn og breytt lögunum til að halda völdunum. Auk þess var hann sakaður um að draga konungsættina inn í stjórnmál Thailands. Konungurinn og fjölskylda hans flúðu til Korat með Prem, sem segir konungsfjölskylduna „undir sinni vernd". Drottningin fordæmdi byltingarleiðtogana í stuttu ávarpi í Korat-útvarpinu. Yfirmenn þriggja herstjórn- arsvæða Thailands af fjórum munu hafa verið hjá Prem í Korat í kvöld. Thailenzkir vegfarendur virðast lítið kippa sér upp við hermennina á myndinni sem tóku sér stöðu á götu i Bangkok eftir byltinguna gegn ríkisstjórn landsins. Tilræðið virðist tengt myndinni Taxi Driver Washington, 1. apríl. AP. RONALD REAGAN forseti hefur verið fluttur úr gjörgæzludeild og gegnir venjulegum störfum í ibúð í George Washington-há- skólasjúkrahúsinu, er á góðum batavegi, getur gengið um og er hress, að sögn læknis hans og aðstoðarmanna i dag. Vöruskortur færist í aukana í Rúmeníu Búkarest, 1. aprtl. AP. ÞRÁLÁTUR skortur er á kjöti, mjólk, sykri og öðrum varningi í Rúmeniu þótt Nicolae Ceusescu forseti hafi boðað „landbúnaðar- byltingu“ og í fyrsta skipti viður- kennt efasemdir um þá áherzlu, sem hefur verið lögð á verk- smiðjur fremur en landbúnað. Þó hefur hann ekki boðað nýjar fjárfestingar í landbúnaði og menn velta því fyrir sér, hvort landbúnaðarbyltingin sé fyrst og fremst áróður. Erfiðleikarnir stafa m.a. af slæmu veðri í fyrra, lélegri skipu- lagingu í landbúnaði, sem er ríkisrekinn, flutningavandkvæð- um og miklum útflutningi til að afla gjaldeyris. Þrátt fyrir skort- inn hefur kjöt verið selt til Bandaríkjahers í Þýzkalandi og kjöt mun einnig hafa verið selt til Miðausturlanda og olía keypt í staðinn. Skorturinn mun hafa valdið nokkrum stuttum vinnustöðvun- um í Rúmeníu. Forsetinn fór seint að sofa í gærkvöldi þar sem hann vildi fylgjast með veitingu Oscarsverð- launanna, svaf í fjóra til fimm tíma og hefur verið önnum kafinn í dag. Tilræðismaður forsetans, John W. Hinckley, gekkst undir sál- fræðipróf í dag þrátt fyrir mót- mæli lögfræðings hans og jafn- framt virðist morðtilraunin hafa stafað af hrifningu hans af leik- konunni Jody Foster. Hún sagði í dag að hún hefði fengið nokkur ástarbréf frá honum í síðasta mánuði og fyrrahaust, en í þeim hefði hvergi verið minnzt á Reag- an forseta eða „ofbeldisverk gegn einhverjum". í kvikmyndinni „Taxi Driver", þar sem ungfrú Foster fór með hlutverk ungrar vændiskonu, er fjallað um tilraun til pólitísks morðs. Nefndir í báðum deildum Bandaríkjaþings hafa hafið rann- sóknir á tilræðinu og orsökum þess. Meðal annars verður reynt að ganga úr skugga um hvort leyniþjónustan hafi gert nógu miklar varúðarráðstafanir fyrir utan Hilton-hótelið í Washington, þar sem skotárásin var gerð. Ljósmyndir sem voru teknar í St. Louis 1978 sýna mann er líkist John W. Hinckley sem „nýliða" í bandaríska nazistaflokknum að sögn ljósmyndarans John Wells í dag. Wells segir að myndin sýni Hinckley og tvo aðra flokksmenn hlýða á einn leiðtoga flokksins flytja ræðu á fundi í marz 1978 í St. Louis. Fidel Castro og Leonid Brez- hnev voru meðal 80 heimsleiðtoga sem sendu Reagan forseta samúð- arkveðjur og auk þess hafa borizt 7.500 simskeyti til Hvítá hússins. Brezhnev sagði: „Okkur til mik- illar reiði fréttum við af tilræðinu við yður. Við fordæmum harðlega þennan glæpsamlega verknað. í nafni sovézku forystunnar og fyrir mína hönd óskum við þess, hr. forseti, að þér náið fullum og skjótum bata.“ Sjá nánar bls. 22 og einnig bls. 23. 2000 hermenn gegn Böskum Madrid, 1. aprll. AP. TVÖ ÞÚSUND hermönnum í við- bót verður bcitt í baráttunni gegn aðskilnaðarsinnum Baska i norð- urhéruðum Spánar samkvæmt Lech Walesa gagnrýndur: Óánægja innan Samstöðu Lech Walesa Varsjá, 1. april. AP. ÁSTÁNDIÐ í Póllandi varð rólegra í dag þegar fram- kvæmdastjórn verkalýðshreyf- ingarinnar Samstöðu aflétti verkfallsviðbúnaði, sem lýst var yfir fyrir hálfum mánuði. Þó ríkir mikil reiði i hreyfingunni og vantrú á samkomulagi þvi er Lech Walesa gerði við ríkis- stjórnina og afstýrði allsherjar- verkfalli. Eining samtakanna hefur beð- ið hnekki. Blaðafulltrúi Sam- stöðu, Karol Modzelewski, sagði af sér, en komið var í veg fyrir afsögn annars æðsta manns Samstöðu, Andrzej Gwiazda. Anna Walentinowicz, sem verkföllin í fyrra hófust út af þegar henni var sagt upp, varð að víkja úr stöðu leiðtoga fram- kvæmdastjórnar hreyfingarinn- ar í Gdansk. „Sumir leiðtogar Samstöðu vilja ekki keppinauta innan hreyfingarinnar," sagði hún. Gwiazda hafði áður sagt að frú Walentinowicz yrði rekin „af því hún væri of vinsæl og það væri ekki sumum leiðtogum að skapi“. Walesa virðist þó traustur í sessi í kjölfar mikillar gagnrýni í dag og í gær, m.a. um meint valdarán í forystu hreyfingar- innar. Margir fulltrúar í stjórn samtakanna og Jan Rulewski, einn þeirra sem var barinn í Bydgoszcz, telja samkomulagið of lint og andsnúið óskum sínum. Walesa svaraði gagnrýninni rólega og útskýrði þörfina á málamiðlunarlausn fremur en árekstrum samkvæmt heimild- um á fundinum. Hann hefur ekki endurtekið hótanir um að segja af sér. Til að afstýra gagnrýni lagði hann til að vinnuhópar yrðu myndaðir til að undirbúa gagntillögur fyrir viðræður þær sem á að taka upp við ríkis- stjórnina 7. apríl. heimildum i rikisstjórn Spánar i dag og herinn hefur aldrei áður sýnt styrkleika sinn eins ljóslega siðan í borgarastriðinu. í Baskahéruðunum eru fyrir um 500 hermenn, 600 sjóliðar og lítil flugsveit. Hernum hefur aldrei ver- ið beitt á Spáni síðan í borgara- stríðinu 1936—39. Sósíalistaleiðtoginn Felipe Gonz- ales dró í efa á þingi að nauðsynlegt væri að beita svo fjölmennu herliði. Alberto Oliert varnarmálaráðherra sagði að íhlutun hersins væri tak- mörkuð enn sem komið væri. Oliert virtist víkja frá þeirri afstöðu, sem áður hefur verið lýst yfir, að hlutverk heraflans muni einskorðast við gæzlustörf á landa- mærum Spánar og Frakklands. Hann sagði að heraflinn yrði „auð- vitað“ reiðubúinn ef til árekstra kæmi við aðskilnaðarsamtökin ETA. Flugvélar flughersins stunda nú eftirlitsflug meðfram strönd Norð- vestur-Spánar og sjö herskip eru á verði á Biscaya-flóa. Juan Roson innanríkisráðherra sagði á þingi, að á tímabilinu 1. des. 1980 til 24. marz sl. hefðu handtök- ur hryðjuverkamanna tvöfaldazt og morðum ETA fækkað um helming.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.