Morgunblaðið - 02.04.1981, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981
27
Þingfréttir í stuttu máli
Barnalög samþykkt:
Deilt um orkustefnu
og öldrunarmál
Barnalög samþykkt
Frumvarp að barnalögum, sem
fyrst var flutt vorið 1976 og hefur
fimm sinnum verið endurflutt, var
loks samþykkt sem lög frá Alþingi í
gær — með 22 samhljóða atkvæð-
um í neðri deild Alþingis. Fyrsti
kafli laganna fjallar um gildissvið
þeirra, annar um faðerni skilget-
inna barna, þriðji um faðerni
óskilgetinna barna, fjórði um fram-
færslu barna, fimmti um barnsfar-
arkostnað o.fl., sjötti um greiðslu
framfærslueyris og innheimtuúr-
ræði, sjöundi um lögsögu íslenzkra
dómstóla um faðerni barna, áttundi
um foreldraskyldur, forsjá barna og
umgengnisrétt, níundi um barns-
faðernismál og tíundi um gildistöku
og brottfallin lög.
Deilt um orkustefnu
og öldrunarmál
í efri deild Alþingis var fram-
haldið í gær umræðu um frumvarp
sjálfstæðismanna um þrjú ný orku-
verð á þessum áratug. Frumvarpið
hefur fengið jákvæðar undirtektir
þingmanna ef undanskyldir eru
þingmenn Alþýðubandalags, sem
haldið hafa uppi harðri hríð gegn
efnisatriðum þess.
í neðri deild urðu harðar umræð-
ur um tvö stjórnarfrumvörp: 1)
útflutningsgjald af sjávarafurðum,
2) heilbrigðis- og vistunarþjónustu
fyrir aldraða.
Matthías Bjarnason (S) gagn-
rýndi einkum að frumvarpið um
útflutningsgjöld gengi þvert á
markaða stefnu um eitt og jafnt
útflutningsgjald á sjávarafurðir, en
frumvarpið gerir ráð fyrir því að
mismuna einstökum vinnslugrein-
um í þessu efni. Hann taldi frum-
varpið geta veikt verðjöfnunarsjóð
sjávarútvegsins og gefa varhuga-
verð fordæmi. Máli hans verða gerð
nánari skil á þingsíðu Mbl. fljót-
lega.
Pétur Sigurðsson (S) gagnrýndi
efnisatriði í frumvarpi heilbrigðis-
ráðherra, enda gengju þau á rétt
félagasamtaka og stofnana, sem
lengi hefðu sinnt öldrunarþjónustu
og drægju úr almennu framtaki til
að sinna þessum þýðingarmikla
málaflokki. Nánar verður sagt frá
ræðu Péturs á þingsíðu Mbl. innan
skamms.
Friðjón Þórðarson, dómsmála-
ráðherra, mælti fyrir tveimur
stjórnarfrumvörpum: um meðferð
einkamála í héraði og eftirlit með
skipum. Pétur Sigurðsson (S)
spurði ráðherra, hvort hann hygðist
endurflytja frumvarp um umboðs-
mann Alþingis, sem auðvelda
myndi einstaklingnum í þjóðfélag-
inu að verja og sækja rétt sinn
gagnvart framkvæmdavaldinu
(stjórnvöldum og embættiskerfi).
Ráðherra svaraði því til að svo yrði
ekki á næstunni.
Orkufrumvarp
Alþýðuflokks
Magnús H. Magnússon og fimm
aðrir þingmenn Alþýðuflokks hafa
lagt fram frumvarp um breytingu á
lögum um Landsvirkjun. Frum-
varpið felur annarsvegar í sér
Starfsskilyrði
myndlistarmanna
Tíu þingmenn úr þremur þing-
flokkum (öllum nema Alþýðu-
bandalagi) hafa lagt fram þings-
ályktunartillögu um skipan nefndar
til að kanna starfsskilyrði mynd-
listarmanna. Nefnd, sem þessa
könnun framkvæmir, skal gera til-
lögur um, hvern veg hið opinbera
„geti bezt örvað sjálfstæða listsköp-
un með því að myndlistarmönnum
sé skapaður viðunandi starfs-
grundvöllur. Nefndin skal hafa
samráð við félög myndlistarmanna
og þær stofnanir, sem starfa að
myndlistarmálum". Fyrsti flutn-
ingsmaður er Halldór Blöndal (S)
en aðrir flutningsmenn: Vilmundur
Gylfason (A), Guðmundur G. Þór-
arinsson (F), Birgir ísleifur Gunn-
arsson (S), Ingólfur Guðnason (F),
Jóhanna Sigurðardóttir (A), Jón B.
Hannibalsson (A), Saiome Þorkels-
dóttir (S), Sigurlaug Bjarnadóttir
(S) og Páll Pétursson (F).
heimild til Landsvirkjunar til að
byggja og reka orkuver utan núver-
andi orkuveitusvæða fyrirtækisins.
Hinsvegar heimilar það Lands-
virkjun að stækka Búrfellsvirkjun
úr 210 MW í 315 MW, Hrauneyja-
fossvirkjun úr 170 í 210 MW,
rýmkaðar eru heimildir til að veita
ám ofan Þórisvatns í vatnið, Lands-
virkjun er heimilað að virkja við
Sultartanga, virkja við Blöndu og
virkja í Fljótsdal. Frumvarp þetta
gengur mjög í svipaða átt og
frumvarp sjálfstæðismanna en
stækkun Búrfellsvirkjunar er þó
nýmæli.
AukiÖ lýðræði í
samvinnuhreyfingunni
Tveir þingmenn Alþýðuflokks,
Vilmundur Gylfason og ArnfGunn-
arsson, hafa flutt frumvarp til laga
um breytingu á samvinnulögum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir því að
„sambandsstjórn skuli kosin beinni,
leynilegri kosningu, sem fer fram
samtímis í öllum aðildarfélögum í
samvinnusambandinu. Kosninga-
rétt og kjörgengi eigi allir félags-
menn“. Frumvarpið kveður og á um
boðun fulltrúafunda og önnur verk-
efni sambandsstjórnar.
Latrnintr sjálfvirks síma
Fram hefur verið lagt stjórnar-
frumvarp um lagningu sjálfvirks
síma, sem felur í sér gerð 5 ára
áætlunar um lagningu sjálfvirks
símkerfis, en um 3200 heimili búa
enn við handvirkt símasamband um
innansveitarlínur, þar sem ekki er
unnt að tala þannig að tryggt sé að
óviðkomandi aðilar geti ekki hlýtt
á, auk þess sem þetta símasamband
er ekki til staðar nema stuttan tíma
sólarhrings víða, og óvirkt sem
öryggistæki þess utan.
Útsala
Verzlunin Lampinn, Laugavegi 87 auglýsir útsölu, þar
sem verzlunin hættir rekstri á næstunni.
Allflestar vörur seljast meö verulegum afslætti.
Lampinn,
Laugavegi 87.
Sími 18066.
Söfnunarsjóður
íslands
er fluttur á Skólavöröustíg 11, 3ju hæö. Afgreiösl-
an er opin eins og áöur, mánudaga og fimmtudaga
kl. 17—18.
HVETJANDI
LAUNAKERFI
Stjórnunarfélag íslanda efnir til nómakeids um Hvetjandi
launakerfi í fyrirlestrasal félagsins aó Síóumúla 23 dagana
7.—10. apríl kl. 14.30—18.30.
Kynntar veróa helstu tegundir launa-
kerfa, kostir þeirra og gallar. Leiðbeint
um val launakerfa meó tilliti til mismun-
andi aöstæóna í fyrirtækjum. Unnið aó
verkefni, þar sem þátttakendur fá í
hendur reynslutölur frá framleiöslufyrir-
tæki og byggja sjélfir upp launakerfi
ásamt tilheyrandi eyóublöóum fyrir
skráningar og útreikninga vegna launa-
kerfisins.
Námskeiöió er ætlað tæknifræóingum,
vióskiptafræðingum og öðrum þeim
starfsmönnum sem annast hagræöingar-
og launamál fyrirtækja. Æskilegt er, aö
þátttakendur, sem ekki hafa tækni- eða
viöskiptamenntun, hafi sótt námskeiö
SFÍ um framleiósluhagræðingu og fram-
leiðslustýringu.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins
í síma 82930.
SXlðRNUNARFÉUG fSUNDS
SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930
Letöbeineodur
Ágúst H. Elíasson
tasknifraöingur
Benedikt Gunnarsson
tæknifræöingur
Samræmd stóriðjustefna:
Atviimuöryggi - bætt lífskjör
FULLTRÚAR Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks i allsherjarnofnd
Sameinaðs þings hafa samræmt þær tvær tillogur um aukningu
orkufreks iðnaðar, sem þingflokkarnir höfðu flutt á Alþingi og
nefndin hafði haft til meðferðar. Leggja fulltrúarnir fram
sameiginlega tillogu, svohljóðandi, en þeir eru Jóhanna Sigurðar-
dóttir (A), Birgir Isleifur Gunnarsson (S), Ilaildór Blöndal (S) og
Steinþór Gestsson (S):
Alþingi ályktar að kjósa nefnd
sjö þingmanna til að fjalla um
aukningu á orkufrekum iðnaði
næstu ár til að nýta í ríkara mæli
en nú er gert hinar miklu óbeisl-
uðu orkulindir vatnsfalla og jarð-
hita, bæta lífskjör og auka trausta
atvinnu, framleiðslu og útflutning
þjóðarinnar.
Skal nefndin kosin hlutfalls-
kosningu á Alþingi að loknum
hverjum alþingiskosningum. —
Nefndin kýs sér formann og skipt-
ir að öðru leyti með sér verkum.
Verkefni nefndarinnar eru:
1. Að kanna hagkvæmni fram-
leiðslugreina, sem til álita
koma á sviði orkufreks iðnaðar,
með tilliti til orkuverðs, flutn-
ingskostnaðar, fjölda atvinnu-
tækifæra og markaðsmögu-
leika.
2. Að kanna hugsanlega mögu-
leika á samvinnu við erlenda
aðila, m.a. á sviði tækni og
markaðsmála.
3. Að gera tillögur um stóriðju-
framkvæmdir sem hagkvæmt
þykir að stofna til. Skal þar
kveða á um eignaraðild fyrir-
tækja, fjármögnun, orkuöflun
og orkuverð, önnur rekstrar-
skilyrði — gerð, stærð og stað-
setningu iðjuvera.
Nefndin skal hafa samráð við
yfirvöld orkumála og umhverfis-
verndar. Heimilt er nefndinni að
leita samstarfs við hvern þann
aðila, sem hefur sérþekkingu á
málum er varða störf hennar.
Opinberum aðilum er skylt að
veita nefndinni hverjar þær upp-
lýsingar sem hún óskar.
Nefndin skal skila Alþingi og
ríkisstjórn skýrslum um störf sín
eftir því sem þeim miðar áfram.
Kostnaður af störfum nefndar-
innar greiðist úr ríkissjóði,
Greinargerð
Tillaga þessi er flutt af meiri
hluta allsherjarnefndar S.þ., Jó-
hönnu Sigurðardóttur, Birgi ísl.
Gunnarssyni, Halldóri Blöndal og
Steinþóri Gestssyni. Á öndverðu
þessu þingi voru fluttar tvær
tillögur um aukningu orkufreks
iðnaðar (8. mál), og 19 þingmenn
Sjálfstæðisflokksins fluttu tillögu
um stefnumótun í stóriðjumálum
(31. mál). Tillögur þessar voru
mjög líkar að efni. Allsherjar-
nefnd S.þ. fékk báðar þessar
tillögur til meðferðar og hefur
rætt þær sameigintega Meiri hluti
nefndarinnar hefur í samráði við
flutningsmenn beggja tillagnanna
komist að samkomulagi um nýja
tillögu, sem hér er flutt, og komi
þessi tillaga í staðinn fyrir hinar
tvær. Óþarfi er að hún fari til
nefndarinnar að nýju eftir um-
ræðu í S.þ. þar sem hún hefur
þegar fengið ítarlega umfjöllun í
nefndinni.
1x2
29. leikvika — leikir 21. marz 1981
Vinningsröö: 1 1 2-2 X 1 — 1 X 2 — X 1 0
1. vinningur: 11 réttir — kr. 43.400.-
951 31808(11/11,4/10)
2. VINNINGUR: 10 réttir — kr. 448.-
2 6026 10559 17474 26321 36931 40854*
941 6149 11121 17676+ 27888 37356+ 40933
1823 6589 11430 18450 28153* 37424+ 42069
2602 7288 11482+ 19373 29916+ 37477 43531**
2892 7437 12324 20163 29952+ 37982+ 45078+
2893 7517 12560 21290 31656 38703 45079+
3234 7592 12750 21359 31807 38908 45391*
3661 8696 12799 21382 31810 38912 59170
4200 9619 14731 12686 34241* 38944
5408 9698 15034 12756 34295 38948
6026 9770 17349 22192+ 34354 39269
* (2/10) ** (3/10)
Kærufrestur er til 20. apríl 1981 kl. 12 á hádegi.
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá
umboðsmönnum og á aöalskrifstofunni í Reykjavík
Vinningsupphæöir geta lækkað, ef kærur verða
teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa
stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um
nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR - íþróttamidstöðinni - REYKJAVÍK