Morgunblaðið - 02.04.1981, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981
17
Maðurinn og máttarvöldin. Það er ekki heiglum hent að hætta sér i
gegn um brimið á Djúpsundinu eins og meðfyÍKjandi myndir ólafs
Rúnars Þorvarðarsonar bera með sér. Á þeim sést vel hvernig
brotsjórinn hrifur Albert Ólafsson KE 39 með sér, leggur bátinn á
hliðina og hvernig hann nær siðan að rétta sig af.
„Það bjargaði okkur
að lunningin brotnaði44
- sagði Óskar Ingibergsson,
skipstjóri á Albert Ólafssyni
„ÞETTA hefði getað farið verr, við vorum á Djúpsundinu á leið inn
til Grindavikur þegar brotsjórinn kom á okkur og það skipti
engum togum, hann tók bátinn með sér, svo við réðum ekki við
neitt og iagði hann á hliðina. Manni brá auðvitað verulega, en svo
náði báturinn að rétta sig af smátt og smátt svo okkur var borgið,“
sagði Óskar Ingibergsson, skipstjóri á Albert ólafssyni KE 39 frá
Keflavik, er Morgunblaðið ræddi við hann, en bátur hans fékk á
sig brotsjó skammt undan Grindavik á mánudaginn.
„Það hefur sennilega bjargað miklu að sjórinn braut nokkrar
uppistöður í lunningunni svo sjórinn komst fyrr út en ella. Áhöfnin
var aldrei í neinni verulegri hættu og enginn okkar meiddist, sem
betur fer. Talsverður sjór komst í stýrishúsið og skemmdi þar
lóraninn, radar, talstöð og dýptarmæli, en engar skemmdir urðu á
vélarrúmi. Ég býst við, að bráðabirgðaviðgerð verði lokið í dag, svo
við getum hafið róðra að nýju. Ég hef nú verið skipstjóri í 35 ár svo
maður kippir sér ekki upp við svona óhöpp og við munum halda
vertíðinni ótrauðir áfram," sagði Óskar að lokum.
Ameriskur professor:
Telur kjúklinga frá Straumi
hafa drepist af fluoreitrun
í fyrirlestri um fluormengun,
sem Lennard Krook, prófessor
við Corness-háskóla i Bandarikj-
unum, hélt i gær i boði Líffræði-
deildar Háskólans, kom fram, að
hann telur hættumörk af völdum
fluors langtum lægri en almennt
er talið og sett er sem mörk.
Skýrði hann frá og sýndi myndir
úr rannsóknum sínum á beinum
nautgripa í nánd við álverksmiðju
á landamærum Kanada og Banda-
ríkjanna, sem sýndu mjög miklar
skemmdir á tönnum og beinum
nautgripanna. Og jafnframt hafði
hann fengið tvo kjúklinga senda
úr búinu á Straumi skammt frá
íslenzku álverksmiðjunni, þegar
kjúklingadauði var í búinu fyrir
nokkrum árum. Sýndi hann með
slides-myndum skemmdir. af völd-
um fluors í beinunum á þessum 12
vikna gömlu kjúklingum og til
samanburðar bein jafngamalla
heilbrigðra kjúklinga frá heima-
landi hans. Sagði hann að erfitt
væri að greina lömun í dýrum,
sem lifðu svo stutt, eins og í
nautpeningnum eftir vissan tíma
en ekki væri vafi á að kjúklingarn-
ir hefðu dáið af fluoreitrun. Dán-
armeinið væri þá vegna öndunar-
erfiðleika.
Á eftir svaraði prófessorinn
spurningum. Vakti dr. Sturla
Friðriksson athygli á því að hér á
landi hefði mælst miklu meira
magn fluors eftir eldgos en próf-
essorinn teldi óhætt, án þess að
áhrif hefði haft á dýr og eins að
kjúklingar lifa hér eingöngu á
innfluttu fæði. Prófessornum var
kunnugt um það að fæðið til
kjúklinganna hefði á árunum
1975—76 verið frá Danmörku og
með fluormagni undir mörkum, og
að fæðan væri því ekki sökudólg-
urinn eins og hjá nautpeningnum,
en j.að væri ekki sitt að segja
hvernig fluorið hefði komist í
beinin. Talsvert heit orðaskipti
urðu milli hans og vísindamanna
frá álverksmiðjunni. Kvaðst próf-
essorinn ekki hafa ætlað að fara
út í það, en svo ákaft spurður
sagði hann að ef í lofti í álverk-
smiðjunni væri 2,5 F/m rúmm. og
menn ynnu 10 tíma á dag, þá
mundu þeir verða fyrir lömun-
arskaða á 10—15 árum og fullyrti
að fluormagnið hefði farið yfir
það. Er fréttamaður Mbl. spurði
hann á eftir hvort rannsóknir
hefðu verið gerðar á fólki á
athugunarsvæði hans í Ameríku,
þar sem búa Indíánar, en verk-
smiðjan er þar búin að vera í
gangi síðan 1955, sagði hann að nú
væri verið að gera þær, en engar
niðurstöður komnar. En hér væru
gerðar mælingar á þvagi manna,
sem hefðu meira fluorinnihald að
lokinni vinnu en í upphafi. Ál-
verksmiðjumenn létu sjálfir gera
þær. Þeir aftur á móti sýndu
fréttamanni mælingasúlur sínar,
þar sem svo mikið magn virtist
aðeins einu sinni hafa mælst.
Kjúklingamálið frá búinu í
Straumi er nú fyrir rétti hér, en
eigendur héldu því fram að þeir
hefðu drepist vegna fluormengun-
ar. Og hefur próf. Lennard Krook
stanzaði á íslandi á leið sinni til
Evrópu til að bera þar vitni. Þeir
sem draga það í efa og viðstaddir
voru fyrirlesturinn sögðu á móti
að jafn mikið magn hefði mælst í
kjúklingum annars staðar á land-
inu og enginn skýring fengin á því.
Áhugi var sýnilega mikill á
málinu meðal vísindamanna, þótt
áheyrendahópurinn væri ekki
mjög stór. Þar voru læknar, tann-
læknar og efnafræðingar, auk
stúdenta og áhugafólks.
Gísli Blöndal
hagsýslustjóri
að nýju
UNDANFARIN tvö og hálft ár
hefur dr. Gisli Blöndal verið
varafulltrúi Norðurlanda í stjórn
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Á meðan hefur Brynjólfur Sig-
urðsson, dósent gegnt starfi hans
sem hagsýslustjóri ríkisins. Frá 1.
apríl tekur Gísli Blöndal aftur við
starfi sínu sem hagsýslustjóri
ríkisins, en Brynjólfur Sigurðsson
hverfur að fyrri störfum við við-
skiptadeild Háskóla Islands.
(Fréttatilkynning)
Klúbbur 25 ef nir til
hátiðar á Hótel Sögu
NÚ ER ár iiðið frá stofnun hins
nýja ferða- og skemmtiferða-
klúbbs unga fólksins, sem
stofnaður var að tilhlutan Út-
sýnar í fyrra og nefnist Klúbb-
ur 25.
Á siðastliðnu sumri ferðaðist
margt ungt fólk á vegum
klúbbsins bæði i sjálfstæðum
ferðum og í hópferðum Útsýnar
á sérstökum afsláttarkjörum.
Efnt var til nokkurra skemmt-
ana, m.a. á Þingvöllum og nutu
þær mikilla vinsælda. Á síðasta
ári voru skráðir um 500 klúbbfé-
lagar.
Árgjaldið er nú kr. 100.- en
gegn greiðslu þess fá félagar
skírteini, sem veitir margs konar
hlunnindi, auk sérstakra kjara á
ferðalögum.
Markmið klúbbsins er að auð-
velda ungu fólki að skoða heim-
inn á hagkvæman og áhugaverð-
an hátt í góðum félagsskap og
með hagstæðustu kjörum og að
bæta skemmtanalífið.
Á sunnudaginn kemur gefst
gott tækifæri til að kynnast
markmiðum klúbbsins og starf-
semi hans, en þá heldur klúbbur-
inn sína fyrstu árshátíð á Hótel
Sögu. Boðið verður upp á véizlu-
mat fyrir kr. 75.- en skemmtun-
in sjálf er alveg ókeypis, og þar
er boðið upp á óvenju vandaða
skemmtidagskrá.
Gestir verða boðnir velkomnir
með ókeypis fordrykk og ferða-
happdrætti meðan Texas-trióið
leikur fjöruga country-tónlist.
Veizlan sjálf hefst kl. 19.30, og
auk aðalréttarins verða ostar frá
Osta- og smjörsölunni í eftirrétt.
Meðan á veizlunni stendur verð-
ur skemmtileg tónlist og fjörug-
ar hárgreiðslu- og tízkusýningar,
sem Papilla og Módelsamtökin
annast. Dans sýna bæði rokk-
parið Aðalsteinn og Herborg og
sýningarflokkur frá skóla Heið-
ars Ástvaldssonar. Danstónlist-
in verður fjölbreytt, því auk
hljómsveitar hússins leikur hin
vinsæla rokkhljómsveit Start,
Helga Möller syngur og Þorgeir
Ástvaldsson velur nýjustu diskó-
og rokklögin. Húsið verður sér-
staklega skreytt í tilefni hátíðar-
innar og skemmtunin filmuð i
video. Aðalpunt kvöldsins verða
þó fegurðardísirnar 25, sem Út-
sýn kynnir í ljósmyndafyrir-
sætukeppni sinni, og fá þær allar
ferðaverðlaun. Einnig verða val-
in herra og dama kvöldsins. Inn
á milli dansins verður fléttað
fjörugri spurningakeppni og
ferðabingó. Dansað verður til kl.
2 eftir miðnætti.
Forsala aðgöngumiða er hjá
Útsýn á miðvikudag og fimmtu-
dag, en borðapantanir á Hótel
Sögu á fimmtudag.
Ýmsar ferðir eru í undirbún-
ingi hjá Klúbb 25 í sumar m.a.
til Frakklands og Korsíku, en
það er fyrsta hópferð Islendinga
þangað, einnig ferðir til Spánar,
Mallorka og Ítalíu, auk ferðar til
New York, Hollywood og Las
Vegas. Klúbbur 25 útvegar einn-
ig skólavist í málaskólum er-
lendis, t.d. í Englandi, Þýzka-
landi, ítaliu og Spáni og ódýr-
ustu fargjöld, sem í gildi eru.
(Fréttatilkynning.)