Morgunblaðið - 02.04.1981, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.04.1981, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981 Þes8Í Econoline-sendiferðabíll brann til kaldra kola utan vegar skammt frá Kúagerði i gær eftir að ökumaður hans hafði misst stjórn á honum og billinn farið tvær veltur. ökumanninn, sem er hermaður af Keflavikurflugvelli, sakaði ekki. Hann fékk far með öðrum bíl til að ná i aðstoð, en þegar hann kom að bílnum aftur var hann allur brunninn. Talið er að einhversstaðar hafi neistað i bilnum og eldur komizt i benzin. Bilinn hafði ökumaðurinn i láni hjá kunningja sínum. Ljónni. Mbi. Arnór. Óverjandi að afgreiða ekki hækkunarbeiðni okkar - segir Kristinn Sveinsson formaður Svinaræktarfélags íslands _I>Af) er stöðugt prédikað af ráðamönnum að svína- og ali- fuglarækt eigi að vera aukabú- greinar, en með stöðugum ofsóknum rikisvaldsins á þessar búgreinar stefnir allt i það að allir þeir smærri detti út og þeir stóru verði einir eftir, “ sagði Kristinn Sveinsson, formaður Svinaræktarfélags íslands, er Morgunblaðið ræddi við hann. en eins og kunnugt er hefur nú i rúman mánuð legið hjá verðlags- yfirvöldum umsókn um 25% verð- hækkun á svinakjöti, án þess að hún hafi verið afgreidd. Verð- VERKFALL stundakennara við Háskola tslands skall á gær. Menn eru ekki á einu máli um hversu víðtækt verkfallið er, en þess gætir sama og ekkert f sumum deildum háskólans. eins og til dæmis verk- fræði- og raunvísindadeild, en aft- ur meira i öðrum. Nokkur brögð eru að því að nemendur mæti ekki í kennslustundir til stuðnings stundakennurum, og stúdentaráð gaf út dreifimiða i gær þar sem stúdentar eru hvattir til að sýna stundakennurum nsamstöðu“, eins og það var orðað. Mun vera á döfinni allsherjar„verkfall“ nem- enda i einn dag til stuðnings stundakennurum og hefur 7di apr- il verið nefndur i þvi sambandi. Á dreifimiða Stúdentaráðs segir m.a. svo: „Með þessu verkfalli er ekki aðeins tekist á um réttlátar kröfur stundakennara, heldur ekki síður um stöðu og framtíð háskólans sem kennslu- og rannsóknarstofn- unar. Sú þróun sem verið hefur, að leysa kennsluþörf skólans með ráðn- ingu stundakennara hefur leitt til þess að minni áhersla hefur verið lögð á rannsóknir og hætt er við að gæðum kennslu fari hrakandi." Mbl. leitaði umsagnar háskóla- rektors, Guðmundar Magnússonar, á þessum orðum. „Þessi mál hafa nú ekki verið rædd með formlegum hætti í há- skólaráði", sagði Guðmundur, „en við viljum auðvitað að allir starfs- menn háskólans hafi góð kjör, og stundakennarar eru ábyggilega ekki ofhaldnir fremur en fastráðnir kennarar. En ákvörðun stundakenn- ara um verkfall á miðju vormisseri er samningsrof og samningsrof get- um við ekki stutt. Við unum því að vonum illa, að stundakennarar hafi svo truflandi áhrif á starfsemi skólans, því það eru fastráðnu kennararnir sem bera lagsráð taldi sig ekki eiga að fjalla um beiðnina og visaði henni til stjórnvalda og þar liggur hún enn. „Ég hef nú gengið manna á milli í rúman mánuð án þess að það hafi borið nokkurn árangur," sagði Kristinn,„ og nú er mælirinn að verða fullur. Við svínabændur höfum stillt verði okkar mjög í hóf og þessi 25% hækkun er aðeins til að dekka hækkun á fóðurkostnaði frá 1. desember sem er um 1.000 krónur á tonnið. Tonnið kostar nú um 3.260 krónur, en kostaði 1.460 hita og þunga af stjórn háskólans og bera á honum ábyrgð. Ég á von á því ef fram heldur sem horfir, að menn verði á varðbergi varðandi það að veita stundakennurum meiri ítök í skólanum og aukið fé til rannsókna. Stundakennarar eru sundurleitur hópur — allt í allt eru þeir 7—800 talsins en um 30 þeirra hafa kennslu í háskólanum að aðalstarfi. Það hefur verið svo um mörg ár, að okkur hefur gengið illa að fá leyfi fyrir þeim föstu kennarastöðum sem við teljum okkur þurfa, en þó losnaöi aðeins um þau mál í haust, og við munum ýta frekar á kröfur okkar um fleiri fastar kennarastöð- ur við háskólann, því stundakennsla er orðin óhóflega mikil. Meira held ég að sé ekki rétt að segja á þessu stigi málsins. Það er fjármálaráðuneytið sem er viðsemj- andi stundakennara, en Háskólaráð mun að sjálfsögðu fjalla um málið á fundum sínum, ef þetta verkfall dregst á langinn. En það er af og frá, að við munum lýsa yfir stuðn- ingi við samningsrof", sagði Guð- mundur Magnússon, háskólarektor. krónur síðastliðið sumar, þegar fóðurbætisskatturinn var settur á. Árið 1975 var svínakjöt um 80% dýara en lambakjöt, en nú er það aöeins 3% dýrara og þá er rétt að geta þess, að fjögur kíló af lamba- kjöti úr læri samsvara tveimur kílóum af svínakjöti. Á meðan ríkið er svo að reyna að ganga af okkur dauðum hækk- ar það stöðugt niðurgreiðslur á hefðbundnu landbúnaðarvörunum og skattleggur okkur til þess að borga með útflutningi umfram- framleiðslunnar. Ríkið hækkar sitt eins og því sýnist og þar sem fóðurbætisskatturinn er ákveðinn hundraðshluti af kaupverði leggur það enga áherzlu á að hagkvæm innkaup séu gerð. Ábyrgðarleysi stjórnvalda í þessum málum er alveg forkastanlegt og það er algjörlega óverjandi að halda þessari hækkunarbeiðni svona lengi. Nú þegar hafa mjög margir af smærri svínabændunum hringt í mig og hafa sagst ekki sjá fram á annað en niðurskurð," sagði Krist- inn að lokum. Gallonsflaska af Smirnoff hækkaði um 44% EINS og fram kom i Morgunblaft- inu í gær hækkafti áfengi að meftaltali um 6%. hækkunin á einstökum áfengistegundum er þó mjög mismunandi og mun þar skipta máli styrkleiki tegund- anna og verðhækkanir á þeim erlendis. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér mun gallonsflaska af Smirnoff vodka, sem er 50% til dæmis hafa hækkað um 44%, eða úr 388 krónum í 560. Ekki mun mikið um þetta miklar hækkanir og sumar tegundir hafa ekkert hækkað. Fulltrúar nemenda i bókmenntafræðum við heimspekideild Háskóla íslands afhentu Guftmundi Magnússyni, háskólarektor, yfirlýsingu í gær þar sem lýst er yfir stuftningi við stundakennara. Háskólarektor bárust fleiri þvílík bréf í gærdag. Ljósm. Kristján. Stúdentar í „sam- úðarverkfair? Verkfallið er samningsrof, segir háskólarektor Yíttu meirihluta borgarráðs, ekki borgarstjórnar í FRÉTT Mbl. í gær var sagt, að aðalfundur Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur hefði samþykkt vít- ur á meirihluta borgarstjórnar. Hið rétta er að fundurinn sam- þykki vitur á meirihluta borgar- ráðs, sem hafnaði tilmælum um viðræður við Starfsstúlknafélag- ið Sókn um kjaramál. í borgarráði sátu er mál þetta var afgreitt þau Björgvin Guð- mundsson, Kristján Benediktsson og Adda Bára Sigfúsdóttir fyrir hönd meirihlutans. „Vísa til svara minna á Alþingi“ - segir Gunnar Thoroddsen vegna yfirlýs- inga Svavars Gestssonar um skriflegt sam- komulag um neitunarvald ráðherra „ÉG HEF svarað þessari fyrir- spurn á Alþingi og vísa eingöngu til þess“ sagði Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra i viðtali við Mbl. í gær, en hann var spurður álits á fullyrðingum Svavars Gestssonar í fréttabréfi Alþýðubandalagsins um að skriflegt samkomulag sé i milli stjórnarflokkanna um. að ef ágreiningsmál komi upp i rikis- stjórninni hafi hver stjórnaraðili þar neitunarvald. Aðspurður sagðist Gunnar hafa gefið yfirlýsingu á Alþingi, þegar Geir Hallgrímsson bar þar fram fyrirspurn um þetta mál og sagðist hann eingöngu vísa til þess svars, sem birtst hefði þá í Mbl. — Viltu ekkert frekar tjá þig vegna þessara nýframkomnu yfir- lýsinga samráðherra? „Nei.“ Korchnoi efstur ÚRSLIT hjá islensku þátttakend- unum á hinu fjölmenna alþjóða- skákmóti i Lone Pine i Kaliforniu uröu i þriðju umferð þau að Jón L. Árnason vann Thinnsen frá Bandarikjunum örugglega. Guð- mundur Sigurjónsson tefldi við israelska stórmeistarann Grunfeld með hvitu og lauk þeirri skák með jafntefli, eftir að Guðmundur hafði átt betra tafl eftir byrjunina. Grúnfeld tókst að jafna taflið og virtist á timabili halla á Guðmund, Tómas í Norræna húsinu 1 TILEFNI af áttræðisafmæli Tómasar Guðmundssonar 6. janú- ar siðastliðinn efnir Norræna fé- lagið i Reykjavik til samkomu i Norræna húsinu næstkomandi sunnudag kl. 3 síðdegis, en Tómas Guðmundsson hefur sem kunnugt er ort fögur Ijóð um Reykjavík og verift nefndur Reykjavikurskáld. Nemendur í 3. bekk Leiklistar- skóla íslands munu þar flytja dagskrá, sem þeir nefna „Tómas og við“, undir stjórn skólastjórans, Péturs Einarssonar. Munu leikara- efnin sumpart flytja og sumpart syngja ljóð eftir Tómas Guð- mundsson, sem þau hafa valið sjálf. Fjóla Ólafsdóttir æfði söngv- ana, en undirleik annast Inga Huld Markan. Það er athyglisvert, hvaða ljóð Tómasar Guðmundssonar þessi unga kynslóð leikaraefna telur eiga brýnast erindi til sín og annarra. Tómas Guðmundsson verður viðstaddur samkomuna. öllum er heimill aðgangur. en hann varðist vel og tókst að halda jafntefli. Jóhann Hjartarson tefldi við annan ísraelskan stór- meistara Liberzon og hafði svart og tapaði. Framan af leit staða Jóhanns vel út, en með skipta- munsfóm tókst Liberzon að snúa taflinu sér i vil og sigra. Viktor Korchnoi, sem í sumar mun tefla einvígi um heimsmeist- aratitilinn við Karpov er einn í efsta sæti eftir þrjár umferðir. Hann hafði þá unnið allar skákir sínar. Að biðskákum ótefldum var það aðeins danski stórmeistarinn Bent Larsen sem átti möguleika á að ná Korchnoi að vinningum, en hann átti biðskák við bandaríska 8tórmeistarann Larry Christiansen. Jón L. Árnason hefur nú tvo vinninga, Guðmundur Sigurjónsson einn og hálfan og Jóhann Hjartar- son einn vinning. Útsýnarblað fylgir Morgunblað- inu í dag MORGUNBLAÐINU í dag fylg- ir 16 síðna Útsýnarblað með upplýsingum um ferðir á vegum ferðaskrifstofunnar Útsýnar og það, sem hún hefur upp á að bjóða í þeim efnum. Á baksíðu blaðsins er getraun, sem lesend- um gefst kostur á að taka þátt í. Úr réttum lausnum verða dregnir út 50 ferðavinningar að verðmæti 1.000 krónur hver og ókeypis ferð að verðmæti 5.000 krónur verður veitt fyrir beztu svörin. júnujuubiaöit)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.