Morgunblaðið - 02.04.1981, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981
45
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FOSTUDAGS
UJUk
hindra að annar eins fíflagangur
skuli hafður í frammi á erlendri
grund og nafn íslands dregið
niður og inn í þetta..Að styrkja
svona fíflagang af almannafé, er
móðgun við heilbrigða menn,
menn sem meta list eins og vera
ber, en hafa skömm á fíflagangi.
Þessi „hljómsveit" hefði vel get-
að orðið til í húsi inni við sundin,
þar ætti hún kannski best heima
og ég legg til að þar verði henni
skaffaður æfingastaður, svo við
hin megum vera í friði."
Kjölfestan
er ónóg
Ársæll Jónsson skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Enn hefur sorgin heimsótt sjó-
mannaheimilin, nú siðast þegar
fiskibáturinn „Þerna" rúllaði á
hliðina og fór á hvolf rétt fyrir
utan landsteinana. Tveir menn
lenda beint í sjóinn, þegar bátnum
hvolfir, og drukkna. Einn báts-
verja kemst með snarræði á kjöl
bátsins (sem nú snýr upp) og
heldur sér þar föstum, þrátt fyrir
harða ágjöf og kulda (gegnum-
blautur), og er bjargað þaðan
lifandi.
Slík sorgarsaga sem þessi hefur
gerzt hér við land ár eftir ár í
mörg undanfarin ár. Eftir sitja
ekkjurnar og fjöldi föðurlausra
barna.
Þetta gerist: vel byggður bátur
með röskum ungum athafnamönn-
um siglir úr höfn til fiskveiða.
Kjölfesta bátsins er ónóg; bátur-
inn fer á hliðina og sekkur. Sorgin
er skollin yfir og allt sem henni
fylgir.
Skip, sem ekki hefur nægjan-
lega kjölfestu, er ekki sjófært og á
ekki að fá haffæriskírteini. Það
verður að stöðva þessa ógnun við
sjómannafjölskyldurnar í land-
inu.“
Annað
væri
glapræði
Þorsteinn Jónsson skrifar:
„Ég álít að þess sé mikil þörf að
minna kjaftaska á það hvernig
koma á fram fyrir almenning í
landinu. Ragnhildur Helgadóttir,
sem talaði hinn 23. þ.m. í útvarps-
þættinum Um daginn og veginn á
miklar þakkir skilið fyrir allan
sinn málflutning. Þar talaði hún í
stuttu erindi af mikilli þekkingu
og skarpskyggni um málaflokka
sem nú eru ofarlega á baugi.
Verða að halda
vöku sinni
Ég tek undir það með þessari
frábæru konu, að þörf er frekari
varna á norðurslóðum meðan Sov-
éteinræðið ríður gjörðum og
grindum um öll heimsins höf með
flota sinn og drápsvélar. Ég tel að
Atlantshafsbandalagið eigi að efla
varnir sínar í aðildarríkjunum
með kjarnorkuvopnum, svo lengi
sem Sovétríkin beina þangað
kjarnorkuskeytum sínum. Meðan
Sigurður Jónsson skrifar:
„Velvakandi.
Oft er næsta torskilið, hvernig
dagblöðin velja sér fasta dálka-
höfunda. Hér verður minnzt á
einn slíkan.
Sá maður, Bragi Kristjónsson
að nafni, lætur ljós sitt skína á
síðum Morgunblaðsins um helg-
ar. Þarna birtast hinar furðu-
legustu ritsmíðar, bæði hvað efni
og orðfæri varðar. Efnismeðferð
mannsins er með hreinum ólík-
indum, og hefi ég í hyggju að
Ragnhildur Helgadóttir
vítisvélar úr austri eru albúnar til
árásar eins og nú, má ekki sofna á
verðinum, heldur verða lýðræðis-
þjóðirnar að halda vöku sinni. Það
eitt getur fullvissað gjörræðisliðið
um að það muni ekki borga sig
fyrir það að láta til skarar skríða.
Ég tel það alveg óhjákvæmilegt,
að Norðurlönd tryggi sér þær
öflugustu varnir, sem völ er á,
ekki síst með tilliti til nálægðar
þessarar skelfilegu ógnar. Annað
væri glapræði."
ræða þann þátt síðar. — En hér
koma nokkur dæmi um orðavalið:
„dingaling", “oggupirró" „skipti-
mynd“ „þjóðdjúp" og „snjáldur".
Þá talar höf. og um að „gæða efni
áhuga“(???).
I niðurlagi einnar greinar sinn-
ar spyr höf., hvaðan tilteknir
aðilar „grafi upp alla þessa lazar-
usa til flutnings, skilningsvana
armæðumenni með þjóðfélags-
lega minnimáttarkennd“(???).
Já, það er von, að maðurinn
spyrji.
Með hreinum ólíkindum
Þessir hringdu . . .
F asteignaskattar
mættu falla niður
EllHifeyrisþegi á Húsavik
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja:
— Ég er nú 75 ára gömul
ekkja og ellilífeyrisþegi og bý
ein. Mér mislíkar það að ríkið
skuli sífellt vera að taka úr
einum vasanum hjá okkur og
setja í annan. Mér finnst til
dæmis, að ellilaun eigi að vera
jöfn fyrir alla, burtséð frá tekj-
um. Ég vil að það sé ekki lagt á
ellilaun, heldur aðeins á at-
vinnutekjur fólks ef einhverjar
eru. Eins finnst mér skömm að
því að vera að leggja á barna-
bætur og yfirleitt þessar opin-
beru bætur, eins og t.d. ein-
stæðra foreldra og annað slíkt.
Ég fæ núna í bætur eftir síðustu
hækkun 2524 kr. Ég fæ ekki fulla
tekjutryggingu, af því að ég vinn
fjóra tima á dag. Af þessari
upphæð taka bær og ríki 700
krónur. Svo þarf ég að borga
útvarps- og sjónvarpsgjald, af
húskofanum mínum borga ég
fasteignagjöld og hvað það nú
heitir allt saman, og það tekst af
þessum bótum og þvi lítilræði
sem ég hef í tekjur. Ég hef unnið
í fiski í 26 ár. Heilsuleysi
mannsins mín varaði í 20 ár
áðuren hann dó, svo að maður
safnaði ekki neinum auði, þó að
maður ynni úti ailan daginn.
Mér finnst ekkert athugavert við
að leggja á atvinnutekjur, en
fasteignaskattar eru að mínum
dómi fyir neðán allar hellur,
þarna er um að ræða fé, sem er
margskattlagt, fé sem fólk er
búið að spara saman til þess að
koma þaki yfir höfuðið. Þessir
skattar mættu að mínum dómi
falla niður með öllu.
Eina hugmynd langar mig til
að koma með í sambandi við
barnatímana í útvarpi og sjón-
varpi. Geta stjórnendur þessara
þátta ekki heimsótt skólana og
tekið upp efni hjá krökkunum,
t.d. frá árshátíðum og öðrum
skemmtunum á þeim bæjum, og
gefið börnunum þannig tækifæri
til að afla sér svolítilla peninga í
ferðasjóði sína eða eitthvað
slíkt. Hefðu börnin ekki bara
meira gaman af því að láta börn
skemmta sér?
Fótaaðgerðir
Hef opnað fótaaðgerðastofu að Álftamýri 3.
Annast allar fótaaðgerðir.
Ath.: Sérstakar meðhöndlanir við niöurgrónum
nöglum. Tímapantanir í síma 31580 eða 43986.
Kristín Gunnarsdóttir.
Fótasérfræöingur.
Álftamýri 3.
Sími 31580 eóa 43986.
Buxur á alla, - alltaf
Karlmanna- barna- og kvenbuxur,
plls o.fl.
Komið, gerið góð kaup.
Verksm.-salan.
Skeifan 13. SuÖurdyr.
Kvennatímar í badminton
6 vikna námskeið aö hefjast. Einkum fyrir heimavinn-
andi húsmæður. Holl og góö hreyfing. Morguntímar,
dagtímar. Leiöbeinandi Garöar Alfonsson,
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur,
Gnoðarvogi 1.
HEBA heldur
við heilsunni
Nýtt námskeið aö hefjast.
Dag- og kvöldtímar tvisvar eða fjórum
sinnum í vik'J.
ívíegrunarkúrar — Nuddkúrar
Leikfimi — Músikleikfimi — Ljós — Megrun —
Nudd — Hvfld — Kaffi — o.fl.
Konur athugið: Nú geta allir orðið brúnir í Hebu.
Innritun í síma 42360 — 40935 —
41569.
Heilsuræktin Heba,
Auðbrekku 53, Kópavogi.
HEL0 SAUNA
Höfum ávallt fyrirliggjandi saunaofna og klefa á mjög
hagstæöu verði.
Benco,
Bolholti 4, sími 21945