Morgunblaðið - 02.04.1981, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.04.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981 15 samkomulag varð þó um að hægt væri að nota tímann vel þrátt fyrir þetta, enda hefur það sýnt sig, því fundir eru frá morgni til kvölds. Til dæmis er mikið verk að fara yfir tillögur textanefndar um ýmsar orðalagsbreytingar og samræmingu á textum, þannig að farið er yfir hverja grein fyrir sig. Eins er ráðgert að nota tímann til að vinna að þeim verkefnum, sem enn hafði ekki unnizt tími til að leysa og þessum fundi var beinlínis ætlað að fjalla um. Til dæmis reglur um undir- búningsnefnd, sem ætlað er að starfa þar til sáttmálinn tekur gildi og reglur um aðild að samningum og um afmörkun svæða á milli landa, sem enn hefur ekki náðst endanlegt sam- komulag um. Menn þurfa því ekki að sitja í aðgerðaleysi. Auk hinna venjulegu starfa ráðgast menn stöðugt bak við tjöldin um það, hvernig beri að leysa hnútinn." Utanríkisráðherra sagði á al- þingi, að viðræður myndu fara fram hér við Breta, íra og Dani um Rockall-svæðið, eru þær byrj- aðar? „Ég mun hitta formenn sendi- nefnda þessara þjóða nú í vikunni og þá mun væntanlega skýrast hvernig framhaldið verður. Hér er auðvitað um að ræða fram- kvæmd á reglu um afmörkun svæða með hliðsjón af ályktun alþingis frá því í fyrra," sagði Hans G. Andersen að lokum, „og fyrsta skrefið þar er að ná samkomulagi um það, hvernig umræðum skuli hagað.“ Fjárhags- áætlun Húsavíkur HÚHavik, 27. marz. Fjárhagsáætlun Húsavík- urkaupstaðar fyrir árið 1981 var afgreidd í bæjarstjórn Húsavíkur í gær. Heildar- tekjur bæjarsjóðs eru áætl- aðar 15 milljónir og er það um 56% hækkun frá fyrra ári. Hæsti tekjuliðurinn eru áætluð útsvör, 8,2 milljónir og er miðað við að fullnýta útsvarsálagningarheimild, sem er 12,1%. Rekstrar- kostnaður er áætlaður 11,8 milljónir og stærstu út- gjaldaliðirnir eru til al- mannatrygginga og félags- hjálpar, 2,6 milljónir, fræðslumála 1,8 og yfir- stjórnar kaupstaðarins 1,4 milljónir. Til fjárfestinga eru áætlaðar 11 milljónir króna og eru helztu fram- kvæmdaliðirnir götu- og holræsagerð, 3,6 milljónir, bygging leigusöluíbúða 1,7 milljónir og til nýbyggingar íþróttahúss 1,2 milljónir, til byggingar dráttarbrautar 1,2 og til togarakaupa 1,1 milljón og til byggingar dvalarheimilis aldraðra 600 þúsund krónur. Fréttaritari Fyrirlestur um frönsku forsetakosningarnar FRIÐRIK Páll Jónsson, frétta- maður, heldur fyrirlestur um frönsku forsetakosningarnar á vegum Alliance Francaise í franska bókasafninu, Laufás- vegi 12, í kvöld kl. 20.30. (2. apríl). Forsetakosningar verða í Frakklandi dagana 26. apríl og 10. maí. Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum eru aðal- keppinautarnir Valéry Giscard d’Estaing og Francois Mitter- and með svipað fylgi en þeir skildu nær jafnir í forsetakosn- ingunum 1974. í kosningum und- anfarin ár hefur franska þjóðin skipst í tvær nær jafnstórar fylkingar, vinstri fylkingu og hægri fylkingu, og hefur vinstri fylkingin unnið á en þó hvorki náð meirihluta á þingi né komið frambjóðenda sínum á forseta- stól. Einu sinni enn velta menn því fyrir sér hvort svo kunni að fara í þessum kosningum að fulltrúi vinstri manna verði forseti en þingið verði áfram undir stjórn mið og hægri manna. Þá kæmi upp mjög óvanaleg staða sem kynni að leiða til árekstra milli forseta og þings. Fyrirlesturinn er á íslensku og öllum opinn en að honum loknum fara fram almennar umræður. (Stjórn Alliance Francaise.) EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENU Pantló nýja FREEMANS vörulistann strax . . og veljið vandaöan sumarfatnað frá stærstu póstverslun i London fyrir ykkur og fjöískylduna í rólegheitum heima. Skrifið eða hringið strax í dag eftir nýja pöntunarlistanum. Verð kr. 49.00. Póstburðargjald kr. 16.60. Vinsamlega sendið mér nýja FREEMANS pöntunarlistann í póstkröfu. Nafn: heimili: staður: Sendist til FREEMANS OF LONDON c/o BALCO h/f, Reykjavíkurvegi 66, 220 Hafnarfirði, sími 53900. of London Þar scm tískan byrjar m>í VERKSMIÐJUSALA Opið frá kl. 9-6 Buxur á alla fjölskylduna á verksmiðjuverði Fatagerdin BÓT, Skipholti 3, 2. hæö.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.