Morgunblaðið - 02.04.1981, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.04.1981, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981 31 Menningarvaka í Hafnarfirði MENNINGARVIKA verður haldin í Ilafnarfirði dagana 4.—11. apríl nk. Vaka þessi er haldin að tilstuðlan bæjarstjórnar Ilafn- arfjarðar en undirbúnings- nefndina skipa þeir Sigurður Ilallur Stefánsson, formaður, Berent Sveinbjörnsson og Árni Ibsen. Þetta er í fyrsta skipti sem slík vaka er haldin en Einar I. Halldórsson bæjar- stjóri sagði að gert væri ráð fyrir að menningarvaka yrði árviss viðburður i Hafnarfirði ef vel tækist til í þetta skiptið. dóttir, Ingveldur Hjaltested og Sigurður Björnsson syngja við undirleik Ólafs Vignis Alberts- sonar, Jónínu Gísladóttur og Agnesar Löve. Sunnudaginn 5. apríl kl. 17 verður fimleikasýning í íþróttahúsinu við Strandgötu og á mánudag kl. 21 sýnir leikfélag Flensborgarskóla „Jakob eða agaspursmálið" í Bæjarbíói. Þriðjudaginn 7. apríl verða kammertónleikar í Hafnar- fjarðarkirkju og miðvikudag- inn 8. apríl verður leiksýning Undirbúningsnefnd menningarvökunnar ásamt bæjarstjóra Ilafnarfjarðar Einari I. Halldórssyni. Talið frá vinstri: Sigurður Hallur Stefánsson, Árni Ibsen, Einar I. Halldórsson og Berent Sveinbjörnsson. Ljósm. Lmilía. Alls koma um 200 manns fram á menningarvökunni, langflestir þeirra eru Hafnfirð- ingar. „Tilgangurinn með vökunni er m.a. sá að vekja athygli á því hve margir góðir listamenn búa hér,“ sagði Árni Ibsen á blaðamannafundinum. Á menningarvökunni verða kraftar þeirra sameinaðir." Menningarvakan hefst laug- ardaginn 4. apríl kl. 14 með því að opnuð verður málverkasýn- ing að Reykjavíkurvegi 66. Þar verða sýnd verk eftir Eirík Árna Sigtryggsson sem nú er búsettur í Svíþjóð. Þann sama dag kl. 16 verður opnuð sýning á verkum eftir Gunnlaug Stefán Gíslason í húsi Bjarna riddara. Kl. 17 verða einsöngstónleikar í Bæjarbíói. Inga María Eyjólfs- Eitt þeirra verka Eiríks Árna Sig- tryggssonar sem verða á sýningunni að Reykjavíkur- vegi 66. Verkið heitir Bom. Flensborgarskóla endurtekin í Bæjarbíói. Fimmtudaginn 9. apríl kl. 20.30 hefst dagskrá um skáldið Örn Arnarson á Hrafnistu og kl. 19 og 21 verður kvikmyndin „Punktur punktur komma strik" sýnd í Bæjarbíói. Er það frumsýning utan Reykjavíkur. Á föstudaginn kl. 21 verður dansleikur í Flensborgarskóla. Lúðrasveit Hafnarfjarðar leik- ur fyrir dansi. Síðasta dag menningarvikunnar, laugar- daginn 11. apríl, verður kvik- myndin „Þú hýri Hafnarfjörð- ur“ sýnd í Bæjarbíói kl. 14 og kl. 17 verða tónleikar í Hafnar- fjarðarkirkju. Guðni Þ. Guð- mundsson leikur orgelverk eft- ir Hallgrím Helgason og E. Stark og sónötu fyrir flautu og orgel eftir A. Corelli ásamt Gunnari Gunnarssyni flautu- leikara. Þá syngur Kór Öldu- túnsskóla undir stjórn Egils Friðleifssonar. Kórinn frum- flytur þar m.a. verk eftir Jón Ásgeirsson. Eru það 4 lög við ljóð eftir Guðnýju Þórðardótt- ur sem mun hafa látist ung stúlka. Dagskrá menningarvökunn- ar verður dreift í öll hús í Hafnarfirði auk þess sem hún verður nánar auglýst á spjöld- um sem hengd verða upp víðs vegar um bæinn. Á blaðamann- afundinum kom það fram að þótt búist væri við því að Hafnfirðingar kæmu aðallega til með að sækja dag- skráratriði menningarvökunn- ar væru þangað velkomnir allir af „stór-Hafnarfjarðarsvæð- inu“, eins og þeir orðuðu það. HÓTEL LOFTLEIÐIR Osta-og smjörsalan stendur fyrir sér- stakri kynningu í samvinnu við Hótel Loftleiðir dagana 2.-5. apríl. Kynnt verður fjölbreytt úrval af nýjum og vinsælum ostum, kjöt og fisk- réttum með ostaívafi. í hádegi: Ostahlaðborð í Blómasal Ostakynning í Veitingabúð Við kvöldverð: Kjöt og fiskréttir með ostaívafi Ostaréttir Ostakynning i Veitingabúð Allar tegundir af íslenskum osti m.a. 26% Gouda, Króksostur, Kotasæla, Rjómaostur með kryddi o.m.fl. Einstakt tækifæri fyrir þá, sem kunna að meta góðan ost! Jéi l I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.