Morgunblaðið - 02.04.1981, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.04.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981 11 Háskóli íslands: stúdentum í hag.“ e6ða 08Vandamál vegna tölvanna Á fundinum var einnig sam- þykkt einróma tillaga þess efnis að stúdentar í íslensku mættu ekki í kennslustundir hjá föstum kennurum til að þrýsta á yfirvöld til að koma til móts við kröfur stundakennara. Kréttatllkynnlng LÖGFRÆÐILEG vandamál varðandi tölvunotkun verður umræðuefnið á fundi í Lögfræðingafélaginu á fimmtu- dagskvöldið kl. 8.30. I kjölfar vaxandi tölvunotkunar hafa komið upp mörg ný vandamál í þjóðfél- aginu, m.a. það hvernig koma á í veg fyrir dreifingu á upplýsingum um einkahagi manna og önnur trúnaðar- mál. Við sum af þessum vandamálum er unnt að ráða með löggjöf og kemur þar reynsla nágrannaþjóðanna að góð- um notum. Málshefjendur á þessum fundi verða þeir dr. Ármann Snævarr hæstaréttar- dómari og Helgi V. Jónsson hæstarétt- arlögmaður. Fundurinn er haldinn í stofu 101 í Lögbergi. André Isoir heldur organ- tónleika FRANSKI organistinn André Is- oir er væntanlegur hingað til lands. Hann er fæddur 1935. Hann starfar í heimalandi sínu, þar sem hann er einkum þekktur sem frábær túlkandi fornrar franskrar tónlistar, en erlendis er hann allt eins kunnur fyrir túlkun sína á Bach og á síðari tíma tónskáldum, eins og t.d. César Franck, segir í frétt frá Félagi íslenzkra organ- leikara. Isoir hefur farið í tónleikaferðir til ýmissa Evrópulanda, til Asíu og Ameríku og nú í aprílbyrjun heldur hann tónleika hér á landi. Auk fastra starfa sinna víð kirkjuna í Saint-Germain des Prés í París og tónleika viða um lönd, hefur André Isoir leikið aragrúa verka inn á hljómplötur og hlotið margháttaða viðurkenningu fyrir. í Frakklandi, þar sem hann hefur leikið inn á meira en 30 plötur, hefur hann sjö sinnum unnið til Grand Prix du Disque- verðlaunanna og auk þess forseta- verðlaunanna svonefndu (Grand Prix du Président de la Ré- publique). í Hollandi hefur hann þrjú ár í röð borið sigur úr býtum í alþjóðlegri keppni um impróvísa- sjón, sem efnt er til í Haarlem árlega. Nú hefur hann færst í fang það þrekvirki að leika inn á plötur öll verk meistara Bachs. André Isoir kemur til íslands 2. apríl og dvelur hér til 11. apríl. Hann heldur a.m.k. þrenna tón- leika: í Fíladelfíukirkju 4. apríl kl. 17.00, í Skálholtskirkju 5. apríl kl. 16.00 og í Landakotskirkju 8. apríl kl. 20.30. Ennfremur mun hann halda tvo fyrirlestra í námskeiðs- formi i Fíladelfíukirkjunni. Föstu- daginn 3. apríl kl. 18.00 talar hann um gamla franska tónlist, og fimmtudaginn 9. apríl kl. 17.00 verður fyrirlestur um César Franck. Isoir hefur leikið öll orgelverk Francks á hljómplötur. Leiðrétting í Mbl. í gær, þar sem rætt var við sendifulltrúa íslenska sendiráðs- ins í Washington, var ranglega farið með nafn hans, Sverrir Gunnarsson var hann sagður en réttu nafni heitir hann Sverrir Haukur Gunnlaugsson. Mbl. biðst velvirðingar á þessum mistökum. íslenzkunemar styðja verkfall stundakennara Því miður hafa ófáir reist sér hurðarás um öxl við að eignast eigið húsnæði. Til að forðast slíkt er um að gera að athuga mjög vel sinn gang áður en hafist er handa. Kynna sér alla valkosti og meta þá rétt. Lestu hér um nokkur atriði sem máli skipta. EINKENNI ELDRA KERFIS: Útborgun oftast um 75% heildarverðs og greiðslubyrði því þung i upphafi. Eftirstöðvar söluverðsins til 4 eða 5 ára á 18-20% vöxtum, þótt verðbólgan æði áfram 50-60% á ári. Rýrnun eftirstöðvanna veldur hinni háu út- borgun. Þetta gerir íbúðarkaup oft óviðráðan- leg fyrir ungt fólk. Og veldur óöryggi hjá eldra fólki, sem vill minnka við sig. Leitið nánari upplysinga um verðtryggingu í fasteignaviðskiptum. — Sanngjarna leið, sem auðveldar fólki jafnt kaup sem sölu. NYR VALKOSTUR: Fasteignamarkaður Fjárfestingarfélagsins Fjölbreytilegir og sveigjanlegir skilmálar. Verðtryggðar eftirstöðvar sem rýrna ekki. Þannig opnast möguleikar á lægri útborgun. Þetta auðveldar t. d. ungu fólki íbúðarkaup eða skipti og skapar seljanda vissu um fjár- hagslega stöðu sína í framtíðinni. SKÓLAVÖRÐUSTÍG 11 101 REYKJAVlK SÍMI 28466 (HÚS SPARISJÓÐS REYKJAVlKUR) Fasteignamarkaður FjáiYestingarfélagsins hf Lögfræðingur: Pétur Þór Sigurðsson Á ALMENNUM fundi í Mími, félagi stúdenta i islenskum fræð- um, var eftirfarandi tillaga sam- þykkt einróma: „Almennur fundur í Mími, fé- lagi stúdenta í íslenskum fræðum, haldinn 30. mars 1981, lýsir yfir einhuga stuðningi við kjarabar- áttu stundakennara í Háskóla íslands og skorar á yfirvöld að láta þegar í stað undan hóflegum og sanngjörnum kröfum þeirra. Fundurinn minnir á að ekki eru nema fjórar vikur til prófa og mun það koma stúdentum afar illa ef stundakennarar yrðu neyddir til verkfallsaðgerða. Einnig lýsir fundurinn yfir furðu sinni á því að rúmur helm- ingur kennslu við Háskóla Islands skuli vera í höndum stundakenn- ara sem ekki hafa neina aðstöðu til rannsókna né til undirbúnings fyrir kennslu. Bætt kjör stundakennara koma Háskóla íslands sem vísinda- og Al'lil.VSINCASÍMINN KR: 22410 J«*rounbt«í>it)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.