Morgunblaðið - 02.04.1981, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 02.04.1981, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981 35 Anna María Jóns- dóttir - Minning oft var sjórinn líka illur og grimmur og Kári gamli eftir því — en þetta elskaði Sala allt svo mikið, að hún hefði aldrei getað hugsað sér að fara frá Kirkjubæ. Enda var það óskaplegt áfall, þegar eldgosið byrjaði og hún varð að flýja heimili sitt — og við þessi ósköp sætti hún sig aldrei. Hún átti samt eftir að eignast fallegt heimili aftur og þá í blokk að Hraunbæ 10, en ég held að henni hafi alltaf fundist hún vera hálfgerður gestur þar. Gaman þótti Sölu að koma í Garðinn til gömlu nágrannanna og vinanna að heiman, og oft höfðum við orð á því, að þau hjónin hefðu þurft að lenda hér með okkur. Henni fannst hún vera komin heim í Eyjar, þegar hún var stödd hér, sömu andlitin, sem hún þekkti svo vel og rólegheitin. Hún hélt upp á 75 ára afmælið sitt síðastliðið haust hér hjá okkur, en ekki datt manni þá í hug, að það yrði siðasti afmælisdagurinn hennar. Mikið var alltaf gaman að fá Sölu í heimsókn og hennar verður sárt saknað af okkur, Vestmannaeyingunum, í Garðin- um, sem flest vorum kunningjar hennar. Einnig mun ég sakna að heyra ekki rödd hennar í síma oftar, því að oft hringdum við hvor í aðra. Ég held að Sala hafi verið gæfumanneskja. Hún átti góðan mann og góða dóttur og hennar fjölskyldu. Alla tíð var hún hraust á sál og líkama, nema síðustu mánuði, en hélt lengst af heil- brigðri hugsun. Oskráðar eru allar þær rausnar- legu gjafir, sem hún gaf okkur og börnum okkar við ýmis tækifæri. Síðast, þegar ég heimsótti hana á sjúkrahúsið, átti ég að skila góðri kveðju og mjög góðu þakklæti til hennar frá dóttur minni fyrir sængurgjöf og afmælisgjöf, sem hún sendi henni út til Þýzkalands. Þá sagði Sala veikum rómi: „Það er ekkert að þakka, mér finnst ég eiga ykkur öll“. Enda var það svo, að þessar fjölskyldur voru mjög samrýndar, og aldrei neinn fagn- aður svo í báðum fjölskyldum, að ekki reyndu allir að hittast, sem tök höfðu á. Fyrir þetta viljum við Pétur og börnin okkar þaka Sölu af heilum hug og alla tryggð og vináttu alla þessa löngu samleið — ég í yfir 40 ár og Pétur, síðan þau voru börn. Við viljum svo votta Gunnýju og Einari og fjölskyldu innilega sam- úð við fráfall hennar. „Far þú í firði. Friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt.“ Lilja og Pétur frá Kirkjubæ. Fædd 5. ágúst 1905. Dáin 25. mars 1981. Hinn 25. þ.m. andaðist hér í borg Anna María Jónsdóttir, hús- freyja. Hún var fædd í Borgarfirði eystra hinn 5. ágúst, 1905. For- eldrar hennar voru Jón Guð- mundsson og Margrét Elíasdóttir, er síðar fluttust að Skálum á Langanesi. Ólst Anna þar upp já foreldrum sínum í stórum systk- inahópi, systurnar voru fimm og bræðurnir fjórir. Ég kynntist Önnu fyrir rúmum þrem tugum ára, þá búandi nál- ægt mínu heimili. Siðan er mér ljúft að minnast hennar, og nú að jarðneskum leiðarlokum, með nokkrum orðum. Anna ólst upp á myndarlegu og fjölmennu heimili. Faðir hennar rak útgerð og verslun á Skálum. Fór orð af höfðingsskap á því heimili og var þar oft mannmargt og mikil um- svif, þegar útgerð var í stórum stíl, bæði af heimafólki og að- komufólki. Anna bar þess ljosan vott, að hún ólst upp við heilbrigt og athafnasamt heimilislíf. Kunni hún því vel til allra verka á heimili og við ástríkt uppeldi barna sinna. Anna var fríð koma, sem sam- svaraði sér vel. Geislaði af henni góðvild og hjartahlýja, gestrisnin var einstök og liðu aldrei margar mínútur uns ilm lagði frá kaffi- könnunni, ásamt tilheyrandi góð- gerðum á þeim þrem stöðum, sem hún réð húsum eftir að ég kynntist henni. Árið 1931, hinn 10. október, gengu þau í hjónaband, Stefán Jóhannesson frá Skálum, lög- reglumaður og síðar lögregluvarð- stjóri hér í borg. Stefán var einn 17 systkina af þróttmiklu myndar- fólki, ættuðu af Langanesi. Stefán andaðist hér í borg 20. des., 1977. Var hann maður mikillar gerðar og gat gustað af honum á stundum en í hjónabandi sínu og á heimili var jafnræði með þeim hjónum. Anna var glaðlynd og með ein- dæmum umtalsfróm, heyrði ég hana aldrei hallmæla neinum, en ávalt var hún reiðubúin til þess að færa allt til betri vegar fyrir alla, einstök gæðakona. Hjónaband Önnu og Stefáns var farsælt. Ekki er hægt að minnast Önnu án þess að geta þess þáttar í lífi hennar, sem allir muna, er henni kynntust. Það var sá meðfæddi tónlistarhæfileiki, sem hún bjó yfir. Hún lék ágætlega á píanó. Eiga margir ógleymanlegar ánægjustundir frá þessu glaðværa heimili. Anna lék á hljóðfærið og söng, en börnin þrjú tóku undir — öll hljómelsk. Það voru fagrar raddir og mildir tónar, sem fylltu stofuna þeirra Önnu og Stefáns, gleðistundir, sem ég og margir heimilisvinir eiga bjartar minn- ingar um. Anna minntist oft með þakklæti og virðingu, að hún varð þess aðnjótandi að öðlast fyrstu tilsögn í hljóðfæraleik hjá hinu ástsæla tónskáldi okkar íslend- inga, Inga T. Lárussyni. Hún fór því mjúkum höndum um píanóið sitt, er hún lék lögin hans. Þá ATIIYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði. að berast i siðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Ilandrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Amerísku Fieldcrest handklæðin komin íglæsilegu úrvali sérlega vönduð og falleg og fást aðeins í Vörumarkaðinum. iOpið til kl. 8 föstudag og laugardag kl. 9—12. Vörumarkaðurinn hf. Ármúla 1A, Vefnaöarvörudeild sími 86113 þurfti engar nótur. Anna var í eðli sínu hlédræg, en vitað er að hugljúf verk samdi hún sjálf, en flíkaði þeim eigi. Hin síðari ár átti Anna við langvarandi sjúkdóm að stríða og varð því að dvelja á sjúkrahúsum langtímum saman. I veikindum sínum dvaldi hún þó lengst á heimili dóttur sinnar og tengda- sonar austur við Sog. Naut hún þar frábærrar umönnunar og um- hyggju. Börn Önnu og Stefáns eru Mar- grét, maki Óli Haukur Sveinsson vélstjóri við raforkuverið við Sog. Jóhann, verslunarmaður, maki Oddný Ásmundsdóttir, Jón verk- stjóri hjá SVR, maki Jónína Sig- urðardóttir. Barnabörn þeirra eru 6. Nú þegar ég að leiðarlokum kveð þessa góðu konu, er ég þakklátur fyrir að hafa verið henni samferða sökum mannkosta hennar. Anna trúði á sigur hins góða í lífinu og var sannfærð um mátt bænarinnar og um endur- fundi við þá, sem voru henni kærir. Ég óska Önnu góðrar heim- komu handan við móðuna miklu. Börnum, tengdabörnum, barna- börnum og öðrum aðstandendum votta ég innilega samúð og bið Önnu Maríu Guðs blessunar. Björgvin Frederiksen WMmmmMttMMHMmwMXtíUMHMMKmmxMaimMummnnnmaMmnKnMUWMMMMmuMMMWKmmumuumumm Jektorar _0^lvff2LÍ i ■ | I * M Fyrlr lenslngu I bátum og fiskvinnslustöðvum. ðíliuiDllawuigKUjir Æ iTÍSiSKsíl “Q <§t ESTABLISHED 1*1» — TELEX: >0»7 ITUILA • tS — TELEPHONE - HLJÓMTÆKJADEILD tygi\KARNABÆR I Al KTAVFfll fifi SÍMI 96' LAUGAVEGI 66 SIMI 25999 Utsolustaðir Karnabær Laugavegi 66 — Karnabær Glæsibæ — Fataval Keflavik Portið Akranesi — Epliö Isafirði — Álfholl Siglufirði — Cesar Akureyri — Hornabær Hornafiröi —M M h . f Selfossi - Eyiabær Vestmannaeyium , Vinsælu (jogging) sportskórnir komnir Hvítir og bláir, drapp og brúnir Einnig ítölsku trimm skórnir vinsælu VERZLUNIN QEísiP" No. 24—41

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.