Morgunblaðið - 02.04.1981, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981
Landbúnaðarráðherrar EBE:
Ennþá vantar
samkomulag
BritHwl, 1. aprll. AP.
LÖGREGLA braut upp hóp
bænda er safnast hafði saman
fyrir utan byKKÍnKar Efnahags-
bandalags Evrópu til að mót-
mæla kjorum sínum. en innan-
dyra ræddu landbúnaðarráðherr-
ar EBE-rikja um aðgerðir i land-
búnaðarmáium og verðhækkanir
á landbúnaðarvörum.
Bændurnir köstuðu eggjum,
tómötum og grjóti og var látið til
skarar skríða gegn þeim er þeir
neituðu að verða við óskum um
friðsamleg mótmæli.
Ráðherrarnir hafa enn ekki náð
samkomulagi eftir fundarhöld í
þrjá daga, en fregnir hermdu, að
sjö ráðherrar af tíu hefðu lýst
fylgi við tillögur um 9% meðal-
talsverðhækkun á landbúnaðaraf-
urðum á þessu ári.
Finnland:
Stjórnin heldur velli
Frá Harry (íranberg, fréttaritara Mbl.
I Finnlandi. 1. apríl.
ÖLLUM á óvart tókst forsætis-
ráðherranum Mauno Koivisto að
lengja líf ríkisstjórnar sinnar að
minnsta kosti fram að páskum.
Stjórnin hélt fund sl. þriðjudag
um ágreining þann sem ríkir í
stjórnarherbúðunum um launa-
málastefnuna en engin niðurstaða
fékkst. Agreiningurinn er mestur
milli kommúnista og sósíaldemó-
krata. Folkdemókratar hafa lagt
fram málamiðlunartillögu sem
flokkur forsætisráðherrans getur
ekki sætt sig við.
Stjórnin fær nú tíma til að
reyna að komast að samkomulagi
en tíminn er naumur. Ágreiningur
nær til ýmissa aðgerða sem tengj-
ast launamálastefnunni og þær
þarf að leggja fyrir þingið sem
verður að afgreiða þær í vor.
lands og Kína.
Kínverjar hafa einnig lýst
andstöðu sinni við íhlutun
Sovétmanna í innanríkismál
annarra þjóða.
Carríngton lávarður:
Innrás í Pólland kall-
aði á sterk viðbrögð
Peldng, 1. april. AP.
CARRINGTON lávarður,
utanríkisráðherra Breta sem
er í opinberri heimsókn í
Peking um þessar mundir
sagði í samtali við Huang
Hua utanrikisráðherra Kína
að innrás Sovétmanna í Pól-
land myndi leiða til sterkra
viðbragða í Evrópu, að sögn
útvarpsins í Peking.
Utvarpið skýrði ekki frá
aðdraganda þessarar yfirlýs-
ingar Carringtons en sagði að
ráðherrarnir hefðu rætt um
ýmis alþjóðleg málefni sem
snertu hagsmuni bæði Bret-
Söngvakeppni
Evrópusöngvakeppnin fer að
þessu sinni fram í höfuðborg
Irlands, Dyflinni, og verður hún
háð 4. apríl næstkomandi. Að
þessu sinni senda 20 ríki fulltrúa
til þátttöku í keppninni, sem
sjónvarpað verður beint.
Robert De Niro og Sissy Spacek
hlutu óskarsverðlaun fyrir aðal-
hlutverkin i kvikmyndunum
„Raging Bull“ og „Coal Miner’s
Daughter.“
AP-KÍmamynd.
kvikmyndin og lagið „Fame“ úr
samnefndri kvikmynd var kosið
besta lagið.
Timothy Hutton, sem fékk verð-
launin fyrir aukahlutverk karl-
manns, er aðeins 19 ára gamall.
Hlutverk hans í „Ordinary
People" er frumraun hans á hvíta
tjaldinu. Myndin segir frá því er
auðug fjölskylda tvístrast vegna
fráfalls sonar.
Er Hutton tók við Óskarsverð-
laununum í gær var hann mjög
hrærður. Hann minntist látins
föður síns, Jim Huttons, sem
einnig var leikari og þakkaði
samleikurum sínum. Mestu þakk-
irnar vildi hann færa „hinum
dásamlega leikstjóra, Robert Red-
ford“. Hann horfði lengi á Redford
„Ordin^ry People“ hlaut
fern Oskarsverðlaun
Hollywood, 1. april. AP.
KVIKMYNDIN „Ordinary
People“ hlaut fern óskarsverð-
laun í gær er verðlaununum var
úthlutað i Hollywood í 53. skipt-
ið. Kvikmyndaakademian hafði
kosið hana bestu kvikmynd árs-
ins, Robert Redford hlaut verð-
laun fyrir leikstjórnina, Timothy
Hutton fyrir aukahlutverk og
Alvin Sargent fékk verðlaun
fyrir handritið. Framleiðandi
myndarinnar er Ronald L. Sah-
wary.
Robert De Niro var kosinn besti
karlkyns aðalleikarinn fyrir leik
sinni í kvikmyndinni „Raging
Robert Redford
kosinn besti
leikstjórinn
Bull“ og Sissy Spacek besti kven-
leikarinn fyrir leik sinn í mynd-
inni „Coal Miner’s Daughter".
Óskarsverðlaunin fyrir auka-
hlutverk kvenmanns hlaut Mary
Steenburgen fyrir leik sinn í
kvikmyndinni „Melvin and How-
ard“. Rússneska kvikmyndin
„Moscow Does Not Belive in.
Tears“ var kosin besta erlenda
sem sat meðal áhorfenda og sagði,
„Ég elska þig.“
Heiðursverðlaunin að þessu
sinni hlaut leikarinn Henry
Fonda. Fonda sem er 75 ára
gamall hefur unnið að kvikmynda-
gerð í 46 ár.
„Árin 46 hafa verið mér góð og
þetta hlýtur að vera toppurinn. Ég
er mjög þakklátur og stoltur yfir
þeim heiðri sem mér er hér
sýndur," sagði hann er hann tók
við verðlaununum úr hendi Rob-
erts Redfords.
Þjóínaður?
Um stund leit svo út að einhver
Evrópsk blöð spá Reagan
vegsemdarauka eftir árás
_? _ !11a — 1 L - X - X. I, .. X X) nn/inml/in o n o irQPnon/li n,,Ai1n/vnl 1 n1/Afna,Xnm*i, f1 I
London. Washlngton, Lubbock,
Plains, 1. apríl. AP.
BLÖÐ og aðrir fjölmiðlar í Evr-
ópu gerðu enn i dag mikið úr
skotárásinni á Ronaid Reagan og
vöngum var velt yfir því hvað
hún kynni að hafa í för með sér.
Lýstu blöðin aðdáun á frammi-
stöðu Reagans og raunar ann-
arra bandariskra ráðherra og
embættismanna siðustu daga i
Ijósi hinna voveiflegu atburða.
Sögðu sum blaðanna, að fátt
væri svo illt, að ekki boðaði það
eitthvað gott, og lýstu því, að
vegsemd Reagans ætti eftir að
aukast eftir morðtilraunina.
Hins vegar bar mikið á gagn-
rýni og hneykslun á byssulögum í
Bandaríkjunum. „Byssan ræður í
Bandaríkjunum," sagði t.d. blað í
Belgíu og brezkt blað spurði
hversu marga Bandaríkjaforseta
þyrfti að ráða af dögunum áður en
hugarfarsbreyting yrði meðal
Aprílgabb brezkra blaða:
Bretar geta stýrt
veðurfari að vild
London. 1. apríl. AP.
BREZK blöð reyndu á ýmsan
hátt að villa um fyrir lesendum i
tilefni dagsins, en það er mál
manna, að The Guardian hafi
tekist einna best upp.
Guardian skýrði frá því að
brezkir vísindamenn hefðu brotið
blað í veðurfarsstjórnum. Hefði
sveit vísindamanna unnið að
rannsóknum sínum á vegum
varnarmálaráðuneytisins og
brezku veðurstofunnar með mik-
illi leynd síðustu 13 árin og hefðu
þeir nú fundið upp leiðir til að
stjórna veðurfarinu. Var skýrt
frá uppfinningunum í forsíðu-
frétt og 13 greinum inni í blaði.
Sagði blaðið að vísindamenn-
irnir gætu t.d. tryggt að yndislegt
veður yrði 29. júlí næstkomandi
er Karl prins gengur að eiga lafði
Díönu Spencer.
Þeir gætu einnig séð til þess að
skýfall yrði yfir Kilburnhverfinu
í Lundúnum meðan hjónavígslan
færi fram í Pálskirkjunni, en í
því hverfi ríkir lítil ánægja með
konungsfjölskylduna, enda búa
þar aðfuttir írar og fólk frá
fyrrverandi nýlendum Breta í
Karíbahafi. Einnig yrði hægt að
kalla fram stórfenglegan regn-
boga yfir leið brúðhjónanna til og
frá kirkjunni.
Þá sagði Guardian að Jafnað-
armannaflokkurinn nýstofnaði
gæti með þessum nýju uppgötv-
unum tryggt gott veður á úti-
fundum sem flokkurinn hyggst
standa fyrir í sumar.
Aprílgabb annarra fjölmiðla
var á ýmsa vegu, en einkum bar á
fregnum um útsölur á ýmsum
varningi, bæði í fatnaði og mat,
sem líkur þóttu á að margir
girntust, og fóru fregnir af því að
margir Bretar hefðu látið gabb-
ast og hlaupið 1. apríl.
Bandaríkjamanna varðandi
vopnaburð.
Carter fyrrum forseti sagði í
dag, að háttsettir menn og leiðtog-
ar þar í landi yrðu ávallt í
lífshættu vegna ofbeldis er fylgdi
þeim við hvert fótmál. Hvatti
hann bandaríska embættismenn
til þess að draga sig ekki í hlé
þrátt fyrir síðustu atburði.
Lýsti Carter andúð sinni á
árásinni á Reagan, og hrósaði
viðbrögðum ráðamanna. Sagði
hann viðbrögð og yfirlýsingar
Haigs utanríkisráðherra skömmu
eftir árásina eðlilegar og skyn-
samlegar i ljósi ástandsins.
Fjölskylda Reagans safnaðist
saman við sjúkrabeð hans í
Georgs Washington-sjúkrahúsinu
í Washington í gærkvöldi. Forset-
inn sló á létta strengi og kvartaði
m.a. um að jakkafötin hans hefðu
eyðilagst í skotárásinni. Gerðu
formælendur sjúkrahússins mikið
úr því hve bráðhress forsetinn
væri og sögðu hann reyta af sér
brandara. Því er spáð að forsetinn
losni fyrr af sjúkrahúsi en í fyrstu
var talið.
Formælendur Hvíta hússins
sögðu að James S. Brady gæti séð
og talað, en hann næði sér senni-
lega aldrei að fullu.
Skýrt var frá því í Hvíta húsinu
í dag, að fyrstu 24 klukkustund-
irnar eftir skotárásina hefðu 80
þjóðarleiðtogar sent samúðar-
skeyti og símskeyti hefðu borist
frá 5.000 Bandaríkjamönnum, þar
sem árásin var fordæmd og lýst
vonum um skjótan bata forsetans.
Jafnframt tóku starfsmenn húss-
ins á móti 2.000 símhringingum af
sama tilefni og þúsundir blóm-
sendinga bárust.
Belgía:
Reynt að forða falli
stjórnarinnar
BrUHHcl. 1. apríl. AP.
BALDVIN Belgiukonungur hóf i
dag viðræður við 19 stjórnmála-
ieiðtoga verkalýðsleiðtoga og at-
vinnurekenda i þvi augnamiöi að
forða stjórn Wilfrieds Martens frá
falli.
Formælandi hirðarinnar skýrði
frá því að konungur hefði rætt
einslega við flesta fulltrúanna, en
markmið hans með viðræðunum
væri að reyna að eyða ágreiningi
innan stjórnarflokkanna, sem
sprottinn er út af tillögum um að
allar launahækkanir verði frystar
fram á næsta ár.
Stjórnin bauðst til að segja af sér
á þriðjudag er jafnaðarmenn í
stjórninni höfnuðu launafrysting-
unni og kristilegir demókratar
höfnuðu gagntilboðum þeirra.