Morgunblaðið - 02.04.1981, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981
5
Skólastjóri skipaður að
bændaskólanum á Hólum
Landbúnaðarráðherra skipaði
sl. föstudag Jón Bjarnason frá
Bjarnarhöfn skólastjóra bænda-
skólans að Hólum i Hjaltadal.
Jón er stúdent frá Menntaskól-
anum í Reykjavík. Hann lauk
búfræðiprófi frá Hvanneyri 1967
og kandidatsprófi frá Landbúnað-
arháskólanum í Ási í Noregi 1970.
Jón starfaði sem kennari við
Bændaskólann á Hvanneyri
1970—1974. Hann hefur jafnframt
rekið búskap í Bjarnarhöfn í
Helgafellssveit frá 1970.
Jón hefur sinnt margvíslegum
trúnaðarstörfum fyrir félagssam-
tök bænda og heimabyggð sína,
Helgafellssveit, þar sem hann er
oddviti.
Jón er giftur Ingibjörgu Sólveigu
Kolka Bergsteinsdóttur og eiga þau
4 börn.
Fundur Félags hagfræðinga og
viðskiptafræðinga í kvöld:
Fjallað um tölvur og
hagnýtingu þeirra
FÉLAG hagfræðinga og við-
skiptafræðinga efnir i kvöld til
fundar um tölvur og hagnýtingu
þeirra. Ragnar Pálsson forstöðu-
maður tölvudeildar ÍSAL ræðir á
fundinum um ýmis atriði, sem
koma til álita þegar taka þarf
afstöðu til hvort fjárfesta beri i
tölvu eða ekki.
Ragnar Pálsson mun fjalla um
hvaða verkefni henta tölvu-
vinnslu, hvaða forrit komi helst til
greina og hagkvæmni þess fyrir
fyrirtæki að reka eigin tölvu eða
láta vinna tölvuverkefni annars
staðar. Að loknu erindi Ragnars
verða panelumræður með þátt-
töku Páls Braga Kristjónssonar og
Odds Einarssonar auk Ragnars.
Fundurinn verður í Lögbergi, húsi
lagadeildar Háskólans og hefst
hann kl. 20.
Hafnarpósturinn
hættir að koma út
HAFNARPÓSTUR, 1. tbl. 2. árg.,
blað tslendingafélagsins i Kaup-
mannahöfn, kom út fyrir skömmu.
hafnarpósiw
NL%» ISI »
I KAU*HA\\\l»iH\
I lÚttMAB í (KIAV.IH
Útgáfustarfsemin hefur fallið í
góðan jarðveg meðal félagsmanna
og vinsældir Hafnarpósts hafa
stóraukizt með hverju tölublaði, en
samt sem áður sjá aðstandendur
blaðsins sér ekki fært að halda
útgáfunni áfram að sinni segir í
frétt frá útgáfustjórninni. Veldur
þar mestu bágur fjárhagur íslend-
ingafélagsins, svo og annríki rit-
stjórnar.
Blaðið er 28 síður og efnið af
ýmsu tagi. Nefna má greinar um
starfsemina í Húsi Jóns Sigurðs-
sonar, Sigurður Richter og Andrés
Guðjónsson skrifa „í fræðimanns-
íbúð“, spjallað er við danska um
Island, sagt frá íslenzka skólanum í
Kaupmannahöfn o.fl. Ritstjórn
skipa Eiríkur Valsson, Gísli Þórð-
arson og Óttar Ottósson (ábm.).
9>er ósvnam
GÆÐINGUR
DBS TOURING er fyrsta reiðhjólið á markaðinum, sem sameinar
alla helstu kosti kappreiðahjóla og öryggisútbúnað sígildra
reiðhjóla.
Svo sem; - Skálahemla að framan og aftan - 10 gíra - breiðari hjól-
barða en á venjulegum kappreiðahjólum - aurbretti úr ryðfríu stáli
- bæði karla og kvenna reiðhjól fyrirliggjandi.
DBS TOURING eru lang vinsælustu reiðhjólin á norðurlöndunum
um þessar mundir.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Mikiö úrval af
Komið við
í Karnabæ
flauols- ojf jíalla-
huxum.
Vorfötin
eru komin í barnadeildina
Ný sending
af kjólum
stærðir 4—8
og
trimm gallasett
stærðir 4—14
Barna- og unglingadeild,
íLfiiswivfjaa
Austurstraeti 22, sími 85055