Morgunblaðið - 02.04.1981, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981
UndirbúningKnefnd umræðuþinKsins auk rektors Háskóla íslands, Guðmundar Majfnússonar, á fundi
meó blaóamdnnum. Talið frá vinstri: Gunnar Guðmundsson, prófessor, Jón Steffensen, prófessor, Olafur
Bjarnason. prófessor, VíkinKur H. Arnórsson, forseti læknadeildarinnar, Ásmundur Brekkan, dósent,
laira Steinxrímsdóttir, læknanemi og Guómundur Mannússon, háskólarektor. LJóam. Kristján.
Minnast aldarafmælis skipu
lagðrar læknakennslu
Umræðuþing um læknanám í há-
tíðarsal Háskólans 2. og 3. apríl
Læknadeild Háskóla tslands minnist þess um þessar mundir aó
rúm öld er lidin frá þvi Læknaskólinn var stofnaður og skipuleg
læknakennsla hófst hér á landi. Einnig eiga læknadeildin og
Háskóli íslands 70 ára afmæli á þessu árí. Af þvi tilefni m.a. gengst
læknadcildin fyrir umræðuþingi i hátíðarsal háskólans fimmtudag
og föstudag 2. og 3. april nk. Þingið mun standa frá kl. 9 til 17
báða dagana. Fjallað verður um læknanám hérlendis, skipulag
þess og innihald, kennslu og námsaðstöðu, sérmenntun lækna og
ihuga skal hvort breytinga sé þörf og þá hverra.
Margir munu flytja erindi á þinginu. kennarar, nemendur og
starfandi læknar, en auk þess verða almennar umræður. Þrir
gestir koma erlendis frá á vegum Norðurlandasambands um
læknakennslu sem ísland er aðili að, tveir frá Kaupmannahöfn og
einn frá Trömsö i Noregi.
í sambandi við ráðstefnuna verður haldin sýning læknisfræði-
bóka og -timarita á vegum Bóksölu stúdenta og i anddyri
háskólans verða sýndar nokkrar ljósmyndir af gömlum bygging-
um og nýjum er koma við sögu i iæknakennslunni.
Sýning á læknis-
fræðilegum munum
Læknaskólinn var stofnaður
með lögum árið 1876 og fyrstu
læknarnir útskrifuðust tveimur
árum síðar. Þegar Háskóli Is-
lands hóf starfsemi árið 1911 var
læknaskólinn lagður niður sem
sjálfstæð stofnun og læknadeild
tók við hlutverki hans sem ein af
fjórum fyrstu deildum Háskól-
ans. Hugmyndin er að minnast
umræddra áfanga í sögu lækna-
kennslu hér á landi með ýmsum
hætti, einnig síðar á þessu ári.
T.d. mun Ian Maclntyre prófess-
or við Lundúnaháskóla koma í
byrjun júní-mánaðar og flytja
fræðileg erindi á vegum lækna-
deildar. Þá mun og deildin eiga
aðild að sýningu læknisfræði-
legra muna og minja í Þjóð-
minjasafninu um miðjan júlí í
tengslum við norrænt þing sem
hér verður haldið á vegum Fé-
lags áhugamanna um sögu lækn-
isfræðinnar.
Geysileg aðsókn
í læknadeildina
Á blaðamannafundi sem hald-
inn var í tilefni umræðuþingsins
kom það m.a. fram að vegna
síaukins nemendafjölda og vax-
andi umsvifa háskólans hefur
læknadeildin á seinni árum orðið
að þoka æ meira út úr aðalbygg-
ingunni og þá ekki haft að öðru
að hverfa en leiguhúsnæði víðs
vegar um bæinn.
Fyrir um 10 árum var sam-
þykkt áætlun um uppbyggingu
íæknadeildar í nánum tengslum
við Landspítalann. Fyrsti sýni-
legi áfangi uppbyggingarinnar
er bygging sem er að rísa neðan
Hringbrautar og munu þar bæði
læknadeildin og tannlækna-
deildin fá aðstöðu. Er gert ráð
fyrir að tannlæknadeildin geti
flutt inn í lok ársins 1982 en
læknadeildin ári síðar.
Á fundinum kom það einnig
fram að fjölgað hefur ört mennt-
uðum læknum hér á landi. Gamli
læknaskólinn útskrifaði 62
lækna en Iæknadeildin hefur á
árunum frá 1911 til 1980 útskrif-
að 960 lækna. Á árunum 1911 —
1920 útskrifuðust 32 læknar, 56 á
árunum 1921—1930, 84 á árun-
um 1931—1940, 71 á árunum
1941—1950, 158 á árunum
1951-1960, 187 á árunum
1961—1970 og 371 á árunum
1971—1980.
Árið 1960 voru 344 íslendingar
læknismenntaðir, 318 þeirra
voru búsettir á Islandi og voru
þá 800 íbúar á hvern lækni. Á
síðastliðnu ári voru 807 íslend-
ingar læknismenntaðir, 466 voru
búsettir hérlendis og voru færri
en 500 íbúar á hvern lækni. Á
árunum 1970—1980 hafa 31 —
45% þeirra sem innritast hafa í
læknadeildina lokið prófi.
Víkingur H. Arnórsson forseti
læknadeildar Háskólans sagði á
fundinum að á síðustu árum
hefði læknamenntun á íslandi
verið fyllilega sambærileg við
læknamenntun í öðrum löndum.
Þó sagði hann að hann óttaðist
mjög að staðallinn lækkaði
vegna geysilegrar aðsóknar í
deildina. Á árinu 1970 innrituð-
ust 82 nemendur í læknadeildina
en 10 árum síðar innrituðust 168
nemendur. Hann sagði að það
væru takmörk fyrir því hve hægt
væri að veita mörgum iækna-
nemum verklega þjálfun, þá
vantaði einfaldlega sjúklinga.
Munu þegar hafa skapast vand-
ræði vegna þessa. Nú iiggur fyrir
háskólaráði tillaga frá lækna-
deildinni um að hækka lág-
markseinkunnir til inntöku í
læknadeildina og takmörkun
nemendafjölda.
Nesstofa
í lok fundarins var minnst á
Nesstofu sem ríkið hefur nú
eignast að fullu. Stefnt er að því
að komið verði þar upp safni og
rannsóknastofnun á sviði sögu
heilbrigðismála. Félag áhuga-
manna um sögu læknisfræðinn-
ar hefur barist fyrir þessu máli
en formaður þess félags er próf-
essor Jón Steffensen. Víkingur
Arnórsson sagði að læknadeildin
hefði mikinn áhuga á því að
viðgerð og endurbótum á Nes-
stofu lyki sem fyrst.
Patreksfjörður:
Ný hraðfrystistöð tekin i notkun
PatreltAfirAi, 30. marH.
SÍÐASTLIÐINN laugardag var
(ormlega tekin í notkun hér ný
hraðfrystistöð, eign Hraðfrystihúss
Patreksfjarðar hf. Stöðin er um
2.000 fermetrar að flatarmáli og
verður mjög fullkomin og nýtizku-
leg, svo sem búin tölvubúnaði við
fiskvinnslu og fleira.
Byrjað var á byggingunni 1973 og
var þá steypt upp aðalbyggingin, en
síðan lágu byggingarframkvæmdir
niðri til 1978, en síðan hefur verið
unnið samfellt að byggingunni.
Stjórnarformaður er Svavar Jó-
hannsson, bankastjóri, en fram-
kvæmdastjóri er Egill Jón Krist-
jánsson. pá||
Hin nýja hraðfrystistöð Patreksfjarðar
Hestamennska í hættu
stödd nái skipulags-
hugmyndirnar fram
Hestamenn í Reykjavík eru
ákaflega óánægðir með þann hlut,
sem þeim er ætlaður í nýju
skipulagi í Reykjavík, svo sem
fram kom á blaðamannafundi sem
þeir efndu til á mánudag. Kvaðst
skipulagsnefnd þeirra, sem í eru
Valdimar Jóhannesson, formaður,
Kristján Guðmundsson og Gísli B.
Björnsson, ekki hafa heyrt neina
rödd úr þeirra hópi, sem ekki væri
sammála um að þessar hugmyndir
séu glapræði og rothögg á hesta-
mennskuna í borginni. En áætlað
er að 7—10 þúsund manns tengist
hestamennsku. Nú eru um 1100
félagar í Fáki, sem er að verða 60
ára. Um 5000 hross eru á vetrar-
fóðrum, þar af um 3000 í borginni
sjálfri, og komið hefur í ljós í
könnun að fimmti hver unglingur
í borginni stundar hestamennsku
reglubundið. Um skipulagshug-
myndirnar nýju, hafði skipulags-
nefndin og stjórn Fáks þetta að
segja:
„Hestamennskan í Reykjavík
eins og hún hefur verið stunduð
undanfarna áratugi er nú í mikilli
hættu stödd. Útreiðar út í frjáls-
ræðið, sem hefur verið helzta
einkenni íslenzkrar hestamennsku
hingað til verður trauðlega stund-
uð mikið lengur, ef hugmyndir
þær í aðalskipulagi Reykjavíkur
fyrir árið 1981—1998, sem nú hafa
verið kynntar ná fram að ganga.
Samkvæmt skipulaginu stendur
til að upp rísi í Selásnum 850
íbúða byggð til viðbótar þeirri
byggð, sem þar er nú að rísa og
atvinnustarfsemi, sem á að nýta
um 20% landsins. Þessi byggð
ásamt með tengdum umferðar-
mannvirkjum og umferðarmann-
virkjum, sem koma munu í óbein-
um tengslum við byggðina eins og
hinn mikli fyrirhugaði ofan-
byggðavegur, mun að dómi allra
reykvískra hestamanna, sem hafa
tjáð sig um málið, stóreyðileggja
svæði það, sem kallað hefur verið
framtíðarsvæði reykvískra hesta-
manna utan í Selásnum, þar sem
heitir á Víðivöllum og í Víðidal.
Á aðalfundi Fáks síðastliðinn
fimmtudag var samþykkt á tæp-
lega 200 manna fundi einróma
ályktun, þar sem þessum hug-
myndum var mótmælt. Fundurinn
taldi, að þessar tillögur sýndu
algjört skilningsleysi á högum og
þörfum hestamanna í höfuðborg-
inni.
Hestamenn áttu alls ekki von á
þeirri miklu breytingu á byggða-
stefnu borgarinnar. Allt tal um að
auka byggð hefur gengið í aðra átt
hingað til. Elliðaáasvæðið hefur
alltaf verið talið friðheilagt og
helzta útivistarsvæði borgarinnar
í tengingu við önnur útivistar-
svæði eins og Heiðmörk, Elliða-
vatnssvæðið og Hólsheiði var ein-
mitt forsenda fyrir því að hesta-
mönnum var valið framtíðarsvæð-
ið utan í Selásnum, en þessu svæði
var úthlutað Fáki árið 1%6 eftir
að hestamenn höfðu tvisvar sinn-
um flæmzt undan borginni á
minna en tveimur áratugum, fyrst
úr Laugadalnum og svo að hluta
af því svæði sem Fákur hefur
ennþá, við horn Bústaðavegar og
Breiðholtsbrautar.
Dýr mannvirki þegar risin
Á þessu svokallaða framtíðar-
svæði reykvískra hestamanna hef-
ur nú risið upp myndarleg byggð,
sem rúmar um 2000 hesta, en alls
Þorsteinn Þorsteinsson,
bæjarstjóri, Sauðárkróki:
15 þúsund tonna verk-
smiðja óarðbært og
áhættusamt fyrirtæki
Steinullarfélagið hf„ sem
Sauðkrækingar hafa stofnað til
rekstrar steinullarverksmiðju á
Sauðárkróki hefur látið fara fram
könnun á innlendum og erlendum
mörkuðum fyrir slika verksmiðju
og eru niðurstöður hennar þær
helztar, að útflutningur á steinull
frá íslandi verði ekki arðbært og
mjög áhættusamt fyrirtæki. Því
séu hugmyndir, sem uppi hafa
verið um 15 þúsund tonna verk-
smiðju óraunhæfar með öllu. Því
stefna Sauðkrækingar að 3 þús-
und tonna framleiðslugetu á ári,
en möguleikum á stækkun, þann-
ig að verksmiðjan geti framleitt 5
til 6 þúsund tonn á næstu 10
árum.
í samtali, sem Morgunblaðið átti
við Þorstein Þorsteinsson, bæjar-
stjóra á Sauðárkróki, kvað hann nú
unnið að viðskiptalegum og fjár-
hagslegum undirbúningi málsins á
Sauðárkróki. Niðurstaðan væri
augljós, ekki væri um arðbæra
fjárfestingu á stórri verksmiðju til
útflutnings að ræða til lengri tíma
og fyrirtækið væri mjög áhættu-
samt. Hann sagði að á árunum 1978
og 1979 hafi markaður fyrir ein-
angrun úr steinull verið mjög
góður og allt fram á árið 1980.
Síðan hafi kreppan skollið yfir í
Evrópu og valdið samdrætti og
væri markaður nú mjög tregur.
Væru margar steinullar- og gler-
ullarverksmiðjur nú aðeins reknar
á hálfum afköstum. Á bjartsýnis-
árunum hafi margar verksmiðjur
verið stofnsettar og væru þær nú
að koma inn í framleiðsluna.
Þorsteinn kvað Sauðkrækinga
því hafa stefnt að minni verk-
smiðju, sem aðeins framleiddi fyrir
innanlandsmarkað, en gæti þó flutt
eitthvað magn út í viðlögum. Inn-
lendi markaðurinn er um 3 þúsund
tonn og getur stækkað í allt að 6
þúsund tonn á næstu árum, en
eldvarnayfirvöld mæla mjög með
slíkri einangrun, sem af þeim
sökum sækir mjög á á markaðin-
um. Innflutningur á steinull og
glerull samsvarar nú um 2.200
tonnum af steinull, sem er nokkuö
þyngri en glerullin.
Kostnað við byggingu steinullar-
verksmiðju af áðurnefndri stærð
kvað Þorsteinn vera um 20 milljón-
ir króna, 2 milljarðar gkróna, og
kvað hann Sauðkrækinga stefna að
því að fá ríkið inn sem eignaraðila
— í minnihluta þó. Byrjunarafköst
verksmiðjunnar myndu verða um 5
þúsund tonn á ári, með stækkun-
armöguleikum. Líftími slíkrar
verksmiðju er um 20 ár og myndu
þeir stefna að því að gera 3ja til 4ra
ára spár um markað og stækka
verksmiðjuna smám saman eftir
þörfum innlenda markaðarins.
Hann kvað tiltölulega lítinn kostn-
að vera samfara stækkun verk-
smiðjunnar.
Þorsteinn Þorsteinsson bæjar-
stjóri sagði að sér virtist sem þeir
Sunnlendingar, sem reisa vildu
steinullarverksmiðju í Þorlákshöfn
og vildu byggja á útflutningi með
árlega afkastagetu upp á 15 þúsund
tonn, hefðu alls ekki gert sér grein
fyrir markaðsmálum í þessu sam-
bandi. Kvað hann þá vera um eitt
ár á eftir þeim Sauðkrækingum í
rannsóknum og undirbúningi á
þessu máli. Þorsteinn kvaðst vænta
ákvörðunar stjórnvalda um bygg-
ingu steinullarverksmiðju innan
mjög skamms tíma.