Morgunblaðið - 02.04.1981, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981
21
holræsadeild í Þjóðviljatalinu. En
þar segir Sigurður m.a.:
— „I einum af uppsláttum
Morgunblaðsins vegna þessarar
skipulagstillögu er bent á bréf
gatna- og holræsadeildar þar sem
segir m.a. að aukakostnaður vegna
byggðar á Rauðavatnssvæðinu sé
8—10 milljarðar gamalla króna og
að þessi deild og Borgarskipulag
séu á öndverðum meiri um kostn-
að við byggingu svæðisins.
Ég hefði nú ekki talið ástæðu
fyrir minnihlutann til þess að
vera að flíka þessu frumhlaupi
gatna- og holræsadeildar á þenn-
an hátt, en fyrst það hefur verið
gert á opinberum vettvangi er rétt
að það komi fram, að meirihluti
skipulagsnefndar telur bréf
gatna- og holræsadeildar ekki
þess virði að koma til skoðunar
varðandi ákvarðanatöku í þessu
máli.
Þar er slegið fram tölum eins og
8—10 miiljörðum án þess að
nokkur grein sé gerð fyrir því um
hvaða kostnað er að ræða og
fjallað um alla mögulega og
ómögulega hluti sem gatna- og
holræsadeild er enginn umsagnað-
araðili um.“
Og síðar:
„Forsaga þessa máls er að i
janúar 1980 var gatna- og hol-
ræsadeild á sama hátt og aðrar
veitustofnanir borgarinnar beðin
um umsögn og kostnaðarútreikn-
inga vegna svæðisins við Rauða-
vatn og mat á þeim valkostum
sem þá voru til skoðunar. Öll
vinna Borgarskipulags hefur síðan
byggst á þeim upplýsingum sem
deildin þá gaf. I millitíðinni hafa
orðið nokkrar breytingar frá upp-
haflegum hugmyndum og því var í
ágústmánuði sl. á ný beðið um
umsögn á kostnaðarúreikningum
Borgarskipulags hjá gatna- og
holræsadeild. Svæðið við Rauða-
vatn var þá nokkuð stærra en það
er í þeirri tillögu sem nú hefur
verið lögð fram en engin athuga-
semd barst frá deildinni við þessa
útreikninga.“
Já, miklir menn erum við Hrólf-
ur minn! Sigurður talar um frum-
hlaup og að meirihluti skipulags-
nefndar telji bráðabirgða greina-
gerð gatna- og holræsadeildar frá
11.3. ’81, ekki þess virði að koma
til skoðunar varðandi ákvarðana-
töku málsins. Byggir meirihlutinn
afstöðu sína væntanlega á grein-
argerð borgarskipulags frá 16.
marz, sem afhent var skipulags-
nefnd þann sama dag og á að vera
svar við greinargerð gatna- og
holræsadeildar, en þessa greinar-
gerð tel ég borgarskípulagi til
lítils sóma.
Sannleikur þessa máls er sá, að
þann 2. marz er fyrirsjáanlegt
var, að meirihluti skipulagsnefnd-
ar ætlaði að keyra skipulagið
áfram án frekari athugana. Þá
gerðum við sjálfstæðismenn sér-
staka athugasemd við kostnaðar-
útreikninga borgarskipulags og
fórum fram á að fenginn yrði á
fundinn Ólafur Guðmundsson yf-
irverkfræðingur gatna- og hol-
ræsadeildar en fulltrúar borgar-
skipulags sögðu að þeirra útreikn-
ingar byggðust á tölum deildar-
innar. Kom þá í ljós, að deildin
hafði aldrei fengið í hendur frá því
hún sendi frá sér tölur á fyrri-
hluta árs 1980, fullnægjandi upp-
lýsingar um hið breytta skipulag,
sem berlega kemur í ljós í bréfi
frá deildinni til borgarskipulags
ritað þann 1. sept 1980, en ég birti
það hér með:
„Reykjavík, 1. sept. 1980.
Varðandi bréf yðar dags, 18.
ágúst sl. um útreikninga á nokkr-
um valkostum á svonefndum
Austursvæðum, viljum vér taka
fram eftirfarandi:
Upplýsingar þær, sem vér höf-
um fengið eru mjög ófullkomnar
og ógerningur að segja til um
nákvæmni útreikninga á meðan
vantar t.d. röð framkvæmda, stað-
setningu tengibrauta o.fl. atriði,
sem miklu rnáli skipta.
Einnig virðist vera hægt að
setja upp valkosti, sem eru greini-
lega ódýrari en þeir, sem nefndir
eru í bréfi yðar.
Virfðingarfyllst,
Ólafur Guðmundsson.“
Má þá ljóslega sjá ósannindi
Sigurðar um það, að engin athuga-
semd hafi borist frá gatna- og
holræsadeild við bréfi Borgar-
skipulags frá því í ágúst.
Er þetta var ljóst gerðum við
sjálfstæðismenn í skipulagsnefnd
þá kröfu að reikningar yrðu
endurskoðaðir og gatna- og hol-
ræsadeild fengi tóm til að leggja
fram tölur á grundvelli hins
breytta skipulags. Það var nú allt
frumhlaup deildarinnar, að skila
undir tímapressu umbeðinni
bráðabirgðagreinargerð á kostn-
aði við byggðasvæðin við Rauða-
vatn. En í þessarri greinargerð
koma berlega í ljós reiknings-
skekkjur Borgarskipulags. Að lok-
um segir Sigurður:
„Hver tilgangurinn er með þess-
um vinnubrögðum, skal ég ekki
fullyrða neitt um á þessu stigi, en
ekki eru þau traustvekjandi.
Skipulagsnefnd hefur óskað eftir
því að deildin reikni nú enn á ný
fyrirhugaðan kostnað við bygg-
ingu svæðisins samkvæmt gefnum
forsendum en ekki einhverju út í
loftið og ef hún er ekki fær um það
verður að leita annað.“
Nú spyr ég, hver er tilgangur
Sigurðar Harðarsonar með slíkum
málflutningi. Fer nú ekki flesta að
gruna, að reynt sé með því að
kasta rýrð á vinnubrögð vamm-
lausra embættismanna við emb-
ætti Borgarverkfræðings að fela
mistök meirihluta skipulags-
nefndar og Borgarskipulags, við
gerð skipulagsins.
Enn eitt atriði hefur komið í
ljós, en er þó óviðkomandi þessu
Þjóðviljaviðtali, en það eru viðvar-
anir Jóns Jónssonar jarðfræðings
varðandi sprungusvæðið við
Rauðavatn. En á tímum aukinnar
jarðskjálftavirkni í landinu og
með hliðsjón af þeirri reynslu,
sem nú er að fást er það skylda
skipuleggjenda að gefa þessu at-
riði sérstakan gaum. Má minna á
afleiðingar jarðskjálftanna á
Kópaskeri í þessu tilviki.
í Þjóðviljanum á föstudag er
leiðarinn moðsuða uppúr þessu
viðtali við Sigurð Harðarson sem
ég hef gert hér að umræðuefni. I
•lokaorðum leiðarans segir m.a.:
„Einstök atriði í hinni nýju
skipulagstiilögu kunna að verða
mjög umdeild. í heild hefur hún
það þó framyfir gamla skipulag-
ið að vcra allt i senn skynsamlcg.
hagkvæm og raunhæf.“
Skyldi ekki vera að koma í ljós
að á þessu mætti gera nokkra
bragarbót og segja um hið nýja
skipulag að það er allt í senn
óskynsamlegt, óhagkvæmt og
óraunhæft.
29. marz 1981.
□ Trust — Repression
Þessi franska þungarokkhljóm-
sveit er ein sú vinsælasta í
Evrópu. Þessi plata hefur selst í
1.000.000 eintaka í Evrópu tii
þessa og er ennþá í góðri sölu.
□ Doc Holliday — Doc Holliday
Þessi suðurríkjahljómsveit hef-
ur starfað mikið með Bob Sieger,
enda ekki ósvipuð tónlist sem
þeir flytja. Þessi plata er dæmi-
gerð Suðurríkja-rokkskífa.
□ Nine Below Zero —
Don't Point Your Finger
Þessir blús-rokkarar flytja ekta
ryþma-blús af miklum krafti.
Þessi plata hefur fengið fádæma
góðar viðtökur í heimalandi
þeirra, Bretlandi.
Rokkkynning hófst í gær 1. apríl í öllum betri plötubúðum landsins,
en við þorðum ekki að auglýsa hana í gær, því við reiknuðum með
að þú héldir, að þetta væri gabb, svo ótrúlegt er tilboöiö sem þér er
gert með rokkkynningunni.
Viö kynnum 6 þrumugóðar rokkhljómsveitir og ef þú kaupir þér 1 af
þessum 6 plötum, færð þú 10% afslátt. Ef þú kaupir 2 af þessum
6 plötum, færð þú 15% afslátt. Og ef þú kaupir þér 3 eða fleiri,
færðu 20% afslátt.
Já, þetta er ótrúlegt, en satt engu að síður. Þetta er tilboð sem ekki
er hægt að hafna.
□ Loverboy — Loverboy
Þetta er ein vinsælasta hljóm-
sveit Kanadamanna núna og
nýtur hún ört vaxandi vinsælda í
Bandaríkjunum. Lagið „Turn Me
Loose" af þessari plötu nýtur
hvarvetna mikilla vinsælda.
□ Russ Ballard — Into the Fire
Russ Ballard er breskur gítar-
leikari og lagasmiður, sem samið
hefur fjölda vinsælla laga fyrir
ýmsa listamenn. Þetta er mjög
góð sólóplata og kemur sérstaða
hans sem lagasmiðs vel í ljós á
plötunni.
□ Judas Priest —
Point of Entry
Þessi breska hljómsveit er ein
vinsælasta þungarokkhljómsveit
Breta í dag og er þetta mjög góð
plata sem á erindi til allra
unnenda kraftmikillar rokktón-
listar.
KYNNING
1. apríl - 30. apríl
Heildsöludreifing
fUÍAorhf
Símar 85742 og 85055.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
Þl AIGLYSIR L’M ALLT LAND ÞEGAR
Þl ALGLYSIR I MORGUNBLAÐINL'
Samkvæmt Aftenposten hefur
aldrei staðið til reka Sovétmenn
út úr lögsögunni umhverfis Jan
Mayen. Þeir veiða þar einkum
kolmunna og á síðasta ári nam
heildarafli þeirra innan og utan
lögsögunnar 761 þúsund lestum.
Af ýmsum er því haldið fram, að
með þeirri skipan, sem um hefur
verið samið, jiafi Norðmenn
gengið of langt til móts við óskir
Sovétmanna og geti það valdið
margvíslegum erfiðleikum, einn-
ig á öðrum vettvangi. Kom þetta
meðal annars fram í viðtölum
Mbl. við forvígismenn í norskri
útgerð.
jshk
Merkin
sem viðmælum með
Gólfteppin sem duga.
Við mælum, sníðum og
leggjum.
Friórik Bertelsen h.f. Teppaverslun
Ármúla 7. Sími 86266