Morgunblaðið - 02.04.1981, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981
Fritt Pepsí í fjóra mánuði
ÁGÚST Þorsteinsson úr UMSB
keppti um helfdna í rúmlega 10
STAÐAN í Bikarkeppni
SKÍ 1981, fyrir Skíðamót
íslands.
Alpagreinar kvenna: stÍK
1. Ásdís Alfreðsdóttir R 131
2. Ásta Ásmundsdóttir A 115
3. Nanna Leifsdóttir R 102
4. Hrefna Magnúsdóttir A 94
5. Halldóra Björnsdóttir R 58
6. Guðrún Björnsdóttir R 34
Alpagreinar karla:
1. Árni Þór Árnason R 125
2. Einar Valur Kristjánsson í 87
3. Guðmundur Jóhannsson í 85
4. Björn Víkingsson A 78
5. Elías Bjarnason A 72
Skiðaganga karla:
1. Magnús Eiríksson S 65
2. Haukur Sigurðsson Ó 61
3. Örn Jónsson R 46
4. Ingólfur Jónsson R 40
5. Halldór Matthiasson R 36
6. Þröstur Jóhannesson í 28
kilómetra götuhlaupi i Austin i
Texas, þar sem hann stundar
háskólanám, og varð í öðru sæti
af rúmlega 200 keppendum á
33:20 minútum. Hlaupið var liður
I langhlaupakeðju sem Pepsf-
fyrirtækið styrkir þar vestra á
ýmsan hátt og kennd er við
fyrirtækið. Fyrir frammistöðu
sina i hlaupinu fær Ágúst fritt
Pepsi Cola í fjóra mánuði.
„Það er víst ekkert skorið við
nögl, hann fær eins mikið og hann
getur í sig látið. Við Friðrik Þór
reynum að hjálpa honum við
drykkjuna," sagði Oddur Sigurðs-
son spretthlaupari í spjalli við
Mbl., en hann dvelst á sama skóla
ytra og Ágúst.
Oddur keppti i 100 og 200 metra
hlaupi í McAllen, pálmaborginni í
Texas, um helgina. Hljóp hann 100
m á 10,77 sekúndum og 200 á 21,99
sekúndum.
UMSE í 1. deild
UMSE dvaldi aðeins eitt keppn-
istfmabil i 2. deildarkeppninni i
blaki, en liðið vann um siðustu
helgi aukakeppni fjögurra liða
sem börðust um sæti það sem
UMFL eða Fram skilja cftir sig í
1. deild. UMSE sigraði Þrótt-b og
ÍBV og nægði það til sigurs í
aukakeppni þessari.
Keppni lauk einnig í 1. deild um
síðustu helgi og voru markverð-
ustu úrslitin sigur UMFL gegn
Fram, 3—0, en liðin eru þar með
neðst og jöfn í deildinni með 6 stig
hvort. Þarf því aukaleikur að fara
fram um hvort liðið heldur sæti
sínu.
Keppt
bikarinn
Leiörétting
í FRÁSÖGN Mbl. af Reykjavík-
urmeistaramóti unglinga á skíð-
um féll niður nafn Örnólfs
Valdimarssonar í stórsviginu, en
Örnólfur varð þar í öðru sæti.
Örnólfur varð sigurvegari í alpa-
tvíkeppni drengja 15 til 16 ára.
Ljóma-
í kvöld
Úrslitaleikurinn i Ljómabikar-
keppninni í blaki fer fram i
íþróttahúsi Hagaskólans i kvöld
og hefst hann klukkan 20.00. Um
klukkan 21.30 verður síðan leikið
til úrslita í kvennaflokki.
Það verða íslandsmeistarar
Þróttar og ÍS sem bitast um
Ljómabikarinn að þessu sinni, en í
kvennaflokki eru það ÍS og ís-
landsmeistarar Víkings. ÍS á því
lið bæði i karla og kvennaflokki.
um
Phil Parkes, markvörður West
Ham, átti stórkostlegan leik með
liði sinu í gærkvöldi. Engu að
siður varð hann að sætta sig við
tap.
ÍR sigraði
Handknattleikslið ÍR sigraði
Tý Vestmannaeyjum í gærkvöldi
með 21 marki gegn 18, og á nú
góða möguleika að komast upp í
1. deild. Takist ÍR að sigra i
siðasta leik sinum i mótinu verða
þeir jafnir KA að stigum i 2.
deild, fá 18 stig i mótinu. Leikur
liðanna i gærkvöldi sem fram fór
í Vestmannaeyjum var vel leik-
inn af hálfu beggja liða og
spennandi þrátt fyrir að ÍR-ingar
hefðu ávallt frumkvæðið í leikn-
um. Staðan i hálfleik var 9—8
fyrir ÍR. { siðari hálfleiknum
voru iR-ingar mjög ákveðnir og
sigruðu verðskuldað. Besti mað-
ur ÍR var Bjarni Bessason sem
var óstöðvandi og skoraði 10
mörk. Þá áttu þeir Sigurður
Svavarsson og Brynjólfur Mark-
ússon góðan leik og skoruðu
fjögur mörk hvor. Hjá Tý var
Sigurlás bestur, skoraði 6 mörk.
Magnús og Ölafur áttu góðan
leik og skoruðu þrjú mörk hvor.
—þr—hkj.
HanflKnatneiKur)
Liverpool sigraði
2—1 og hlaut
deildarbikarinn
LIVERPOOL sigraði West Ham,
2—1, i stórkostlega spennandi
úrslitaleik enska deildarbikars-
ins i knattspyrnu á Villa Park i
gærkvöldi. 40.000 áhorfendur sáu
stórgóða knattspyrnu og æsi-
spennandi augnahlik. Þetta er i
fyreta skipti sem Liverpool sigr-
ar i deildarbikarnum. Þetta var
annar úrslitaleikur liðanna á
keppnistimabilinu. Fyrir aðeins
18 dögum skildu liðin jöfn á
Wembley, 1 — 1, eftir framlengd-
an leik. Nú hefur Liverpool-liðið
unnið sér rétt til að keppa í
UEFA-keppninni á næsta keppn-
istimabili.
Það voru aðeins liðnar 10 mín-
útur af leiknum er Paul Goddard
skoraði glæsilegt skallamark fyrir
West Ham. Liverpool sótti án
árangurs og heppnin var þeim
ekki hliðholl því að liðið átti tvö
hörku stangarskot á upphafsmín-
útum leiksins. Það var svo Kenny
Dalglish sem jafnaði metin, 1—1,
á 26. mínútu leiksins. Aðeins
þremur mínútum síðar skoraði svo
Alan Hansen og kom Liverpool
yfir, 2—1. Reyndist mark hans svo
vera sigurmarkið í leiknum því
fleiri mörk voru ekki skoruð.
Mikill hraði var í leiknum hjá
báðum liðum. Það var Jimmy
Neighbour sem átti heiðurinn af
fyrsta markinu, hann lék á Alan
Hansen, brunaði upp kantinn og
gaf vel fyrir markið á Goddard
sem skallaði í netið. Leikmenn
Liverpool léku vel. Sammy Lee
I Knattspyrna)
átti mjög góðan leik og var
upphafsmaður margra sóknarlota
Liverpool. Hinn 19 ára gamli Ian
Rush átti þrumuskot í stöng og
skömmu síðar átti Ray Kennedy
hörkuskalla í þverslána. Terry
McDermott gaf gullfallega send-
ingu upp miðjuna á Dalglish sem
afgreiddi boltann snyrtilega í net-
ið. Og þremur mínútum síðar kom
sigurmarkið. Þrátt fyrir hetjulega
baráttu West Ham í síðari hálf-
leiknum tókst þeim ekki að jafna
metin. Liverpool átti betri mark-
tækifæri í síðari hálfleiknum. Á
57. mínútu bjargaði Phil Parkes
tvívegis stórkostlega, fyrst frá
Phil Neal og síðan frá Dalglish.
Eftir leikinn sagði markvörður
Liverpool, Ray Clemence: „Þetta
er besti leikur sem Liverpool hefur
leikið í tvö til þrjú keppnistíma-
bil.“
Feyenoord
kaupir
sóknarmann
HOLLENSKA knattspyrnuliðið
Feyenoord. sem Pétur Pétursson
hefur gert garðinn frægan hjá,
hefur fest kaup á nýjum sókn-
armanni. Er það búlgarski lands-
liðsmaðurinn Andrei Jeliazkov,
28 ára gamall leikmaður Slavía
Sofia. Jeliazkov byrjar að leika
með Feyenoord næsta haust.
130 börn kepptu
á Lionsmótinu
Fyrstu verðlaunahafar í eldri aldurshópnum I svigi ásamt yfirmótsstjóra, óla M. Lúðvikssyni, og
mót«Htióra svivmótsins. Gunnlaucri Einarssyni.
Iwftröi. 30. mars.
LIONSMÓTIÐ sem er skíðamót
barna og unglinga 12 ára og
yngri var haldið i þriðja sinn nú
um helgina. Keppendur voru 130,
107 í svigi og 23 í göngu. Keppt
var i þrem aldursflokkum pilta
qk stúlkna. Mikill snjór er nú á
Seljalandsdál, Jj2.r sem mótið var
haldið og veður var gott mest
allan timann.
Úrslit urðu sem hér segir:
Svig: Stúlkur 8 ára og yngri:
Valborg Konráðsdóttir samanl.
tími 57,60, Hanna M. Ólafsd. 58,17,
Sara Halldórsd. 61,18. Piltar 8 ára
og yngri: Sigurður H. Jóhannsson
53,43, Kristján Bergmannsson
54,64, Jóhann B. Gunnarsson
55,55. Stúlkur 9—10 ára: Ágústa
Jónsdóttir 85,50. Margrét Rúnars-
dóttir 85,80, Þórunn Pálsdóttir
86,33. Piltar 9—10 ára: Ólafur
Sigurðsson 72,70, Arnór Gunn-
arsson 79,14, Kristján Flosason
80,38. Stúlkur 11—12 ára: Katrín
Þorláksd. 86,01, Sigrún Sigurðar-
dóttir 86,33, Erla K. Birgisdóttir
88,40. Piltar 11—12 ára: Kristinir
D. Grétarsson 75,94, Ólafur M.
Birgisson 79,91, Veigar Þ. Guð-
björnsson 80,70.
Ganga: 8 ára og yngri, piltar og
stúlkur: Guðmundur Sigurðsson 4
mín. 25 sek., Vagn Leví Sigurðsson
4,28, Valborg Konráðsd. 5,20. Pilt-
ar 9—10 ára: Ólafur Sigurðsson 6
mín. 29 sek., Sigurður Oddsson
6,42, Óskar Jakobsson 8,04. Stúlk-
•jr 11—12 ára: Freygerður ólafs-
dóttir 6 min. 55 Guðrún
Valgeirsd. 7,50, Sigrún Þorleifs-
dóttir 7,56. Piltar 11—12 ára:
Heimir Hauksson 10 mín. 05 sek.,
Þórir Jakobsson 10,09, Hlynur
Hreinsson 10,53. Vinningshafi í
hverjum flokki hlaut bikar til
eignar, önnur verðlaun voru fal-
legur silfurpeningur og þriðju
verðlaun fallegur bronspeningur.
Allir þátttakendur fengu áritað
þátttökuskjal frá Lionsklúbbi ís-
afjarðar. Milli 20 og 30 félagar úr
klúbbnum sáu um allan undirbún-
ing og framkvæmd mótsins, en
yfirstjórnandi var Óli M. Lúð-
víksson.
Úlfar
Lyftingar
Við seljum um þessar mundir
auglýsingaskilti á Kópavogsvöll
Leigutimi er 1. mai til 1. október
Stærö spjalda er 2.44 m á breidd og 1 m á hæð.
Viö heitum á alla velunnara, tökum aö sjálfsögðu aö
okkur hönnun og málun skiltanna og veitum allar
nánari upplýsingar í síma 82021.
Hafíð samband sem fyrst - stöndum
saman í baráttunni! yx
BREIÐABLIK
íslandsmeistaramót I lyfting-
um verður haldið I Laugardals-
höll dagana 11.—12. apríl nk.
Keppt verður á sviði hallarinn-
ar og hefst keppnin kl. 14 báða
dagana. Keppt verður í öllum
þyngdarflokkum. Þátttöku þarf
að tilkynna til ritara LSÍ Hall-
grims Marinóssonar eða til vara-
formanns LSÍ Hauks Guðmunds-
sonar eða bréflega á skrifstofu
LSÍ í siðasta lagi 7 dögum fyrir
keppni. Þátttökugjald greiðist
fyrir vigtun.