Morgunblaðið - 02.04.1981, Síða 48
Síminn á ritstjóm
og skrifstofu:
10100
JVlorjjunblníiil*
FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981
Demantur M
æðstur eðaisteina
#ttll Sc á>tlfttr
Laugavegi 35
Þorlákshafnartogarinn:
Samningurinn
gerður í trássi
við yfirvöld
ÞANN 2. janúar síðastliðinn
sendi I.andshanki íslands Haf-
steini Ásgeirssyni, útgerðar-
manni i Þorlákshöfn, simskeyti
þar sem honum var bent á, að
óheimilt væri að gera samning
um skipakaup erlendis án leyfis
viðskiptaráðuneytis. Segir í bréfi
bankans, að þung viðurlög liggi
við sliku. í byrjun marzmánaðar
fóru fulltrúar frá Skipaskoðun
ríkisins siðan til Bretlands þar
sem þeir skoðuðu brezka skipið
Irvana og var það skráð til
bráðabirgða undir bókstöfunum
Grænlenzkir
sjónvarpsmenn
mynda hér
SJÓNVARPSMENN frá
Grænlandi eru um þessar
mundir staddir í Reykjavík
og eru þeir frá sjónvarps-
stöðinni í Qaqortoq/Juli-
anehaab.
Sjónvarpsmennirnir eru
fjórir og er hiutverk þeirra
hér að taka kvikmynd á
Islandi, um landið og hvers-
dagslífið, en þeir komu
hingað til lands í gær með
flugvél.
ÁR 10 og nafninu Guðfinna
Steinsdóttir, eins og skýrt var frá
í Morgunblaðinu i gær.
Samningur um kaup skipsins
var síðan undirritaður 23. marz
síðastliðinn, samkvæmt upplýs-
ingum, sem Morgunblaðið hefur
aflað sér. Viðskiptaráðuneytið
sendi seljendum skipsins hins
vegar símskeyti 31. marz þar sem
þeim var bent á, að opinberir
aðilar á íslandi hefðu ekki veitt
tilskilin leyfi fyrir skipakaupun-
um. I gær sendi viðskiptaráðu-
neytið kaupanda skipsins síðan
símskeyti til Fleetwood, þar sem
m.a. var minnt á skeyti Lands-
banka íslands. Sjá nánar á siðu 16
/
SIGUFIRÐINGAR fóru ekki var-
* hluta áf snjónum. þegar honum
kyngdi niður á dögunum. Þegar
snjókomunni linnti var hafizt
handa við snjóhreinsun og gáfu
vörubílstjórar í Siglufirði 50%
afslátt af taxta sínum við snjó-
flutningana. Þessa mynd tók
Steingrimur Kristinsson, þegar
unnið var að snjómokstri við
Hvanneyrarbrautina og sem sjá
má biða hestamenn þess með
óþreyju að færðin batni.
Sjá: Krafðist götusambands
við umheiminn eða þá að bærinn
keypti hús hans, bis. 26.
Flugmenn á Boeing 727 og
Fokker í verkfall 10. apríl
FUNDUR stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs Félags islenskra at-
vinnuflugmanna samþykkti á fundi
i gærkvöldi að boða til vinnustöðv-
unar frá og með miðnætti aðfara-
nótt föstudagsins 10. april nk., en
ástæða verkfallsboðunarinnar
segja FÍA-menn vera brot á samn-
Pástur og sími:
Talsímagjöld til út-
landa hækka um 3,5%
SÖLUSKATTUR af simaþjón-
ustu til annarra landa hækkaði i
gær úr 4% upp í 7,5%, sem er
87,5% hækkun söluskattsins, en
simtölin hækka um 3,5%.
Sem dæmi um talsímagjöld má
nefna að í sjálfvirku vali kostar
mínútan til Danmerkur og Bret-
lands 10.00 krónur, 10.60 kostar til
Finnlands, Noregs og Svíþjóðar,
11.60 til Vestur-Þýzkalands og
12.70 til landa, sem liggja að því.
Fyrir símtöl, sem afgreidd eru
með aðstoð símavarðar er minnsta
gjald fyrir 3 mínútur, en hver
minúta kostar 13.00 til Danmerk-
ur og Bretlands, 13.70 til Finn-
lands, Noregs og Svíþjóðar, 14.50
til Vestur-Þýzkalands og 15.50
fyrir lönd, sem liggja að Vestur-
Þýzkalandi. Fyrir kvaðningu er
gjaldið, sem samsvarar einni mín-
útu.
„Leitað eftir öðrum
ef íslenskir flug
menn fást ekki
í erlend verkefni44
ingum og starfsaldursreglum í
samhandi við stöðutilfærslur. Vilja
þeir knýja fram kjarasamning sem
hefur verið laus síðan 1980. í
verkfallsboðuninni eru undanskilin
störf að samningsbundnum erlend-
um verkefnum. Flugleiðir hófu i
gær námskeið til þjálfunar LL-flug-
manna á Fokker og FÍA-manna á
Boeing 727. Allir LL-flugmennirnir
mættu en aöeins 1 af 10 FÍA-
mönnum. Verður námskeiðunum
haldið áfram að sögn talsmanna
Flugleiða og ef flugmennirnir
mæta ekki á boðuð námskeið fyrir
vinnu sem þeir hafa sótt um lítur
flugfélagið svo á að þeir hafi ekki
áhuga á starfinu.
„Mergurinn málsins er sá að okkur
hefur tekist að afla viðbótarverkefna
fyrir flugvélar Flugleiða þannig að
við getum ekki aðeins tryggt starf-
andi flugmönnum vinnu áfram held-
ur þurfum við að bæta flugmönnum
við, en einmitt vegna þessarar já-
kvæðu þróunar er nú uppi sú kyn-
lega deila flugmanna sem við eigum
við að glíma," sagði Leifur Magnús-
son, framkvæmdastjóri flugrekstr-
ardeildar Flugleiða, í samtali við
Mbl. í gær.
Námskeið Flugleiða vegna þjálf-
unar flugmanna á Bóeing 727 og
Fokker hófust í gær. „Allir flug-
mennirnir 8 úr Félagi Loftleiðaflug-
manna sem verða þjálfaðir upp á
Fokkera mættu," sagði Leifur, „en á
Boeing 727-námskeiðið, þar sem 10
flugmenn í FÍA áttu að mæta, kom
aðeins einn flugstjóri. Fjórir flug-
stjórar mættu ekki og 5 flugmenn,
en námskeiðinu verður haldið áfram.
Það er verið að þjálfa þessa menn
vegna verkefna erlendis og ef ís-
lenskir flugmenn fást ekki til þess að
sinna þessum störfum verður að fá
aðra til þess.“
Aðspurður sagði Leifur að Flug-
leiðum hefði borist hótanabréf frá
FÍA þar sem segir að FÍA líti á það
sem gróft samningsbrot og ögrun ef
umrædd námskeið verða haldin og
slíkt kalli á hörðustu aðgerðir.
„Flugleiðir treysta því,“ sagði Leifur,
„að þessar hótanir verði teknar til
endurskoðunar með hagsmuni flug-
manna og annarra starfsmanna í
huga.“
Lyfjafræðingar ósam-
mála ráðherranum
Athugun á rekstri olíuhreinsistöðvar á Islandi:
Niðurstöður jákvæðar mið-
að við litla olíuhreinsistöð
RANNSÓKNIR Jónasar Elí-
assonar prófessors, Valdimars
K. Jónssonar prófessors og
Ólafs Eiríkssonar tæknifræð-
ings í samvinnu við finnska
oliufélagið Neste Oy benda til
þess að unnt sé að spara um lh
milljón dollara, 3 V\ milljón
króna, á ári með því að setja
upp litla oliuhreinsunarstöð
hérlendis, sem framleitt gæti
gasolíu og þunga svartoliu.
Yrði um talsverða verðlækkun
að ræða á þessum oliuafurðum
við þessa framkvæmd, en enn
er þó eftir að kanna betur
fjármagnskostnað, sem bygg-
ing olíuhreinsunarstöðvar hef-
ur í för með sér.
Þetta kom fram í samtali,
sem Morgunblaðið átti við Jón-
as Elíasson, prófessor. Hann
sagði að rannsóknir þær, sem
gerðar hefðu verið, hefðu beinzt
að tvenns konar stærð olíu-
hreinsunarstöðva, 30 þúsund
tonna verksmiðju og 100 þúsund
tonna verksmiðju. Unnt yrði að
framleiða úr rússneskri svart-
olíu gasolíu annars vegar og
þyngri svartolíu hins vegar,
sem mjög vel myndi henta fyrir
loðnubræðslur og t.d. Sements-
verksmiðjuna. Sá sparnaður,
sem Jónas nefnir, er á ári um lh
milljón dollara og er þá miðað
við BNOC-verð 30 þús. tonna
verksmiðju.
Jónas Elíasson sagði, að þeir
félagar hefðu kynnt ýmsum
aðilum þessar rannsóknir fyrr í
vetur. Þeir hefðu fengið styrk
til þeirra frá Fiskimálasjóði, en
komi ekkert annað til, þ.e.a.s. að
einhverjir aðilar hér innan-
lands hafi áhuga á að halda
þessu máli áfram, kvaðst hann
búast við að málinu lyki frá
þeirra hendi með því að gefa
Fiskimálasjóði skýrslu um mál-
ið.
FÉLAGSFUNDUR í Lyfjafræð-
ingafélagi íslands, sem nýlega
var haldinn, lýsti sig eindregið
ósammála túlkun heilbrigðisráð-
herra á lyfsölulögum frá 1963
vegna veitingar lyfsöluleyfis á
Dalvík, en túlkun ráðherra kem-
ur fram í greinargerð hans, sem
send var fjölmiðlum.
Félagsfundur LFÍ lýsir því yfir
að túlkun ráðherra sé í ósamræmi
við ákvæði um starfsleyfi í lögun-
um, en þar segir, að til þess að
öðlast starfsleyfi þurfi lyfjafræð-
ingur að „hafa unnið að minnsta
kosti eitt ár við framleiðslu lyfja,
undirbúning, merkingu og af-
greiðslu, eða önnur lyfjafræðistörf
hér á landi“,
Túlkun heilbrigðisráðherra á
ákvæði laganna um þá for-
gangskröfu, að lyfjafræðingur
þyrfti að hafa unnið a.m.k. í 12
mánuði, var sá, að þeim mun
lengur, sem hann hefði starfað,
þeim mun sterkari yrði réttur
hans til starfans.
Nefnd til stuðn-
ings Kortsnoj
STOFNFUNDUR íslandsdeildar
stuðningsnefndar fjölskyldu Viktor
Kortsnojs verður haldinn að Hótel
Borg næstkomandi laugardag og
mun meginmarkmið hennar að
stuðla að þvi að fjölskyida Korts-
nojs komist úr landi.
Að sögn Haralds Blöndal, sem er
einn af stofnendum nefndarinnar,
verður þetta samskonar nefnd og
þær, sem hafa verið stofnaðar víða
um hinn vestræna heim til stuðnings
Kortsnojs. Hann sagði ennfremur að
nefndin væri stofnuð með vitund
Friðriks Ólafssonar, forseta FIDE,
þó hann væri ekki einn af stofnend-
um hennar og væri eitt af markmið-
um nefndarinnar að styðja við bakið
á Friðrik og FIDE í baráttunni fyrir
að fá fjölskyldu Kortsnojs frá Sov-
étríkjunum.