Morgunblaðið - 22.05.1981, Side 1
40 SIÐUR MEÐ MYNDASOGUBLAÐI
113. tbl. 68. árg.
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ1981
Prentsmiðja Morgunhlaðsins.
Mótmælasvelti IRA:
Sá fjórði
látinn
liolfast. 21. mai. AP.
FJÓRÐI IRA-fanKÍnn, Patrick
O'IIara, lést f Maze-fanKclsinu i
Bclfast í kvold. Hann hafði þá
vcrið 61 daK í mótmælasvelti.
Fclaííi hans. Raymond McCreesh
lést í Mazc-fangelsinu i nótt en
hann hóf mótmælasvelti um leið
ok McCreesh. Þá var Brendan
McLauKhlin, sem hóf mótmæla-
svelti þann 15. maí siðastliðinn
fluttur úr Maze-fangclsinu i
sjúkrahús vegna innvortis blæð-
inKa. Yfirvöld sögðu. að þrátt
fyrir innvortis blæðinKar, þá
hefði McLautrhlin ekki óskað
eftir læknishjálp.
Um leið og dauði McCreesh
spurðist út í morgun, brutust út
óeirðir. Kaþólikkar í Belfast köst-
uðu eldsprengjum að brezkum
hermönnum og leyniskyttur skutu
að þeim. Hermenn særðu eina
leyniskyttu og höfðu írskir IRA-
skæruliðar hann á brott með sér
áður en hermenn komust á stað-
inn. Óeirðirnar í dag voru þó ekki
eins víðtækar og þegar Sands og
Hughes létust eftir mótmælasvelti
Sinn Fein, hinn stjórnmálalegi
armur írska lýðveldishersins, til-
kynnti í dag, að sjöundi fanginn í
Maze-fangelsinu, Kiernan Doh-
erty, hefði hafið mótmælasvelti.
Kardinálinn yfir írlandi, Tomas
Fiaich, hvatti brezk stjórnvöld til
að láta af „þrjósku sinni". „Ef svo
heldur sem horfir, munu brezk
stjórnvöld standa _yfir moldum
allra kaþólikka á N-Irlandi,“ sagði
kardinálinn í yfirlýsingu í dag.
Jafnframt hvatti hann IRA-fanga
til að láta af mótmælasvelti og
fordæmdi morð og ofbeldi IRA.
Á CHAMPS-ELYSÉE. Francois Mitterrand, hinn nýi forseti Frakklands, veifar til fólksins. Simamynd-AP.
Byssusal-
ar flúnir
Vínarhorg. Romarhorg. 21. maí. AP.
TVEGGJA austurrískra vopna-
sala er nú ákaft leitað. I>eir eru
taldir hafa látið Mehmet Ali
Agca. sem sýndi Jóhanncsi Páli
II páfa banatilra'ði. í té hyssu þá
sem hann notaði þegar hann
skaut á páfa. Lögreglan í Vínar-
borg skýrði frá því í dag. að Ali
Agca hcfði verið í Austurríki í
apríl síðastliðnum.
Byssusalarnir, Otto Tintner og
Horst Gallmayer, hafa horfið
sporlaust. Þeir voru yfirheyrðir
síðastliðinn föstudag. Þeir vildu
þá ekkert kannast við að hafa
látið Agca fá byssuna en í ljós
hefur komið, að Tintner tók
byssuna, sem Agca notaði, úr
tolli. Það var ekki fyrr en nú í
vikunni, að vitneskja þessi kom í
ljós en þegar lögreglan ætlaði að
hafa tal af þeim kumpánum,
voru þeir flognir úr hreiðrum
sínum.
Jóhannes Páll II páfi hlýddi t
dag á messu á sjúkrahúsi og
segja læknar hann á góðum
batavegi.
Mitterrand tekur við
og hvetur til einingar
París. 21. mai. AP.
FRANCOIS Mitterrand varð fyrsti
forseti sósialista i Frakklandi i dag
og hvatti til þjóðareiningar og
réttlætis i heiminum. Hann lýsti
Sakharov heiðurs-
borgari New York
Npw York. 21. mai. AP.
ANDREI Sakharov, sovéski and-
ófsmaðurinn og Nóbelsverð-
launahafinn, varð sextugur í dag.
í tilefni afmælisins var hann
gerður að heiðursborgara New
York. Edward Koch, borgarstjóri
Ncw York, afhenti í dag Tatyönu
Yankelevich, stjúpdóttur Sakh-
arovs, „lykil að New York“. „Ég
vildi gjarna sjá þennan lykil I
höndum þess manns, sem ekki
einu sinni á lykil að eigin heim-
ili.“ sagði Tatanyna eftir að hafa
tekið við lyklinum úr hönd
Kochs.
Ronald Reagan, forseti Banda-
ríkjanna minntist afmælis Sakh-
arovs og sagði, að hann væri hetja;
maður sem væri reiðubúinn til að
fórna öllu fyrir sannleikann,
mannréttindi og frelsi.
Yelena Bonner, eiginkona Sakh-
arovs, dvaldi hjá manni sínum í
dag í borginni Gorky, þar sem
hann nú dvelst í útiegð. Hún er
eini gesturinn, sem reglulega fær
að heimsækja Sakharov. Andófs-
menn i Moskvu minntust afmælis
Sakharovs með því að dreifa
myndum af honum. Sakharov hef-
ur nú verið í sextán mánuði í
útlegð í Gorky og þrátt fyrir
mikinn þrýsting erlendis frá, virð-
ist ekki fyrirsjáanlegt, að hann
losni úr prísundinni. Heilsu hans
hefur mjög hrakað síðustu mánuði
og oftsinnis hefur hann mátt sæta
misþyrmingu sovéskra lögreglu-
þvi yfir að verkamenn Frakklands,
meirihluti þjóðarinnar. væru í
fyrsta sinn orðnir ráðandi afl i
stjórnmálum landsins.
Hann lagði rauðar rósir að minn-
isvarða óþekkta hermannsins undir
Sigurboganum og fagnaði kunnum
leiðtogum Alþjóðasambands jafnað-
armanna, þar á meðal Willy Brandt,
sem mættu til að samgleðjast hon-
um. Arthur Miller og Melina Mer-
couri voru meðal gesta í kvöldverð-
arboði í forsetahöllinni eftir athöfn-
ina við Sigurbogann.
Pierre Mauroy, borgarstjóri í
Lille, tók við starfi forsætisráðherra
og setti á strangt gjaldeyriseftirlit í
kvöld til að stemma stigu við falli
frankans, sem í dag var skráður
Gjaldeyris-
eftirlit
sett á
lægra verði en nokkru sinni fyrr
gagnvart dollar. Hann leggur fram
ráðherralista sinn á morgun. Þá
verður þing einnig rofið.
Kommúnistaleiðtoginn Georges
Marchais tók ekki þátt í hátíðar-
höldum dagsins og það vakti at-
hygli. Stuðningsmenn hans vildu
lítið gera úr því og sögðu að hann
gegndi engu embætti.
Sýrlendingar flytja
fallbyssur í Bekaa<Ial
Bcirút. 21. m»i. AP.
EFTIR AÐ skyggja tók í kvöld
fluttu Sýrlendingar að minnsta
kosti 18 langdrægar fallbyssur I
Bekaa-dalinn í Líbanon. Her-
flutningahílarnir voru án ljósa
og mikil leynd hvíldi yfir flutn-
ingunum en að sögn ibúa á
svæðinu, fóru að minnsta kosti
54 herflutningabilar um þjóðveg-
inn frá Damaskus til Bekaa-
dalsins.
Skömmu eftir að herflutn-
ingabílarnir með fallbyssurnar
höfðu farið um, komu aðrir í
kjölfarið með skotfæri. Ekki er
nákvæmlega vitað hvar hinum
langdrægu fallbyssum var komið
fyrir en Sýrlendingar hafa þegar
komið fyrir eldflaugapöllum í
dalnum og skotið niður ísraelska
flugvél.
Herflutningarnir til Líbanon
hófust eftir að Hafez Assad,
forseti Sýrlands, hafnaði kröfu
Menachem Begins, forsætisráð-
herra ísraels, um, að Sýrlend-
ingar ekki aðeins flyttu allar
eldflaugar í Bekaa-dalnum á brott
heldur einnig eldflaugar, sem
staðsettar eru í Sýrlandi skammt
frá líbönsku landamærunum.
„Begin krefst afvopnunar Sýr-
lands. Þessi krafa hans er fárán-
leg,“ sagði Assad.
Viðsjár hafa mjög aukist í
kjölfar þessara vopnaflutninga og
virðist aðeins tímaspursmá) hve-
nær skerst í odda með Sýrlend-
ingum og ísraelum. Arabískir
diplómatar í Damaskus sögðu í
kvöld, að utanríkisráðherrar Ar-
abaríkja, sem koma munu saman
til fundar á morgun í Túnis, muni
samþykkja eindregna stuðnings-
yfirlýsingu við málstað Sýrlend-
inga í eldflaugadeilunni.
Harðir bardagar geisuðu í dag
milli sýrlenskra hermanna og
kristinna hægri manna í hafnar-
borg Beirút. Sýrlenskir hermenn
beittu stórskotaliði. Menachem
Begin átti í dag viðræður við
Philip Habib, sérlegan sendimann
Ronald Reagans, forseta Banda-
ríkjanna. Búist er við, að Habib
muni halda til Damaskus um
helgina.
Hátíðarhöldin náðu hámarki í
Pantheon þar sem franskar hetjur
eru grafnar og þar vottaði Mitterr-
and sósíalista-frumherjanum Jean
Jaurés og andspyrnuhetjunni Jean
Moulin virðingu sína. Áður bauð
Jacques Chirac, borgarstjóri gaull-
ista í París, Mitterrand velkominn
til ráðhússins.
Mitterrand gekk síðasta spölinn
til Pantheon í Latínuhverfinu á
vinstri bakka Signu og á eftir
honum starfsmenn og leiðtogar
sósialistaflokksins. Mitterrand er
21. forseti Frakklands og fjórði
forseti Fimmta lýðveldisins.
Embættistakan hófst með 15 mín-
útna fundi Mitterrands og Valéry
Giscard d’Estaing, fyrrverandi for-
seta, í Elysée-höll þar sem 500
kunnir gestir voru saman komnir og
hlýddu á lestur formlegrar yfirlýs-
ingar um kosningasigurinn. Að
fundinum loknum gekk Giscard
d’Estaing út og þar með lauk
forsetaferli hans. Hundruð manna
hrópuðu „Mitterrand, Mitterrand“
þegar Giscard d’Estaing gekk hjá.
Mitterrand skipaði Pierre Bere-
govoy starfsmannastjóra sinn og
valdi yngsta fjögurra stjörnu hers-
höfðingja Frakka, Jean Saulnier úr
flughernum, helzta hernaðarráðu-
naut sinn. Kjarnorkuherliðið heyrir
undir Saulnier og skipun hans þykir
sýna þá þýðingu er Mitterrand telur
það hafa.
í embættistökuræðunni kvað
Mitterrand skyldu Frakka að koma
á „nýju bandalagi sósíalisma og
frelsis". Öryggi gæti ekki ríkt þar
sem óréttlæti réði og skortur á
umburðarlyndi. Raunverulegt
þjóðasamfélag væri ekki til, þegar
tveir þriðju hlutar mannkyns yrðu
að þola hungur og fyrirlitningu.
Réttlátt og sameinað Frakkland, er
lifði í friði við alla, gæti létt
mannkyninu sporin.
SJú svipmynd »1 Picrrc Mauroy. hinum nýja
(orsirtisrúAhorra Frakklands. á bls. 15.