Morgunblaðið - 22.05.1981, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MAÍ1981
Borgarstjórn:
Björgvin ráðinn
BorKarstjórn Reykjavíkur
samþvkkti á fundi sínum í
gær með níu samhljóða at-
kvæðum að ráða Björgvin
Guðmundsson, borgarfull-
trúa Alþýðuflokksins, í starf
framkvæmdastjóra Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur.
Hlaut Björgvin atkvæði
borgarfulltrúa Alþýðubanda-
lagsins, Sigurjóns Pétursson-
ar, Guðrúnar Ágústsdóttur,
Guðmundar Þ. Jónssonar,
Öddu Báru Sigfúsdóttur og
Álfheiðar Ingadóttur, fulltrúa
Framsóknarflokksins, Krist-
jáns Benediktssonar, fulltrúa
Alþýðuflokksins, Sigurðar E.
Guðmundssonar og Sjafnar
Sigurbjörnsdóttur, svo og at-
kvæði Alberts Guðmundsson-
ar.
Áburður til sölu
á ný eftir hækkun
SALA á áhurði frá Aburðar-
verksmiðju ríkisins hófst á ný í
gær eftir að ríkisstjórnin hcimii-
aði 74% hækkun áburðarverðs,
en áhurður hefur ekki verið til
sölu í nokkurn tima.
Hækkunin nemur 74% að með-
altali og skv. upplýsingum frá
Hjálmari Finnssyni, forstjóra
Fiskverðiö:
Fyrsti fund-
ur yfirnef nd-
ar í gær
YFIRNEFND Verðlagsráðs
sjávarútvegsins kom í gær sam-
an til fyrsta fundar um nýtt
fiskverð. Fulltrúar ræddu stöð-
una og fóru yfir útreikninga.
sem fyrir liggja.
í yfirnefnd eiga sæti Ólafur
Davíðsson, sem er oddamaður,
Ingólfur Ingólfsson og Ágúst Ein-
arsson fyrir seljendur og Eyjólf-
ur ísfeld Eyjólfsson og Árni
Benediktsson fyrir kaupendur.
Ágúst situr í nefndinni fyrir
Kristján Ragnarsson, sem nú er
erlendis.
Áburðarverksmiðjunnar, eru
hækkanir á eftirtöldum áburð-
artegundum þessar (miðað er við
verð á einu tonni á bíl í Gufu-
nesi):
Kjarni kostar nú 2.025 kr. en
kostaði 1.100 kr, Magni I 1.000 kr.
áður 917 kr., Magni II 1.400 kr.
áður 799 kr., Græðir I 2.340 áður
1.349 kr., Græðir Ia 2.300 kr. áður
1.326 kr., Græðir II 2.200 kr. áður
1.259 kr., Græðir III 2.220 kr.
áður 1.280 kr., Græðir IV 2.300 kr.
áður 1.314 kr., Græðir IVa 2.340
kr. áður 1.349 kr., Græðir V 2.260
kr., áður 1.301 kr., þrífosfat 1.980
kr. áður 1.132 kr., kalidklóríð
1.380 kr. áður 791 kr.
Bifröstin farin
M/S Bifröst hefur verið seld til Sameinuðu furstadæmanna, eins og skýrt hefur verið frá
Bifröstin sigldi frá íslandi i gær í siðasta sinn undir íslenzku flaggi og notaði Sigurgeir
ljósmyndari Mbl. í Vestmannaeyjum þá tækifærið og smellti þessari mynd af.
í Mbl. -
Jónasson,
Samband ungra sjálístæðismanna:
Ríkisstjórnin mótar enga heildar-
stefnu í atvinnu- og efnahagsmálum
„UNGIR sjálfstæðismenn hafa
ítrekað bent á, að víðtækar og
samræmdar aðgerðir þurfi til að
ráða niðurlögum verðÍMtlgunnar
og sporna við yfirvofandi at-
Hæstiréttur staðfesti
úrskurð sakadóms
UNGI maðurinn, sem var valdur
að dauða Sigurðar Sævars Jóns-
sonar í húsi við Ferjubakka í
Reykjavík i apríl sl„ er nú laus
úr gæzluvarðhaldi.
Rannsóknarlögregla ríkisins
krafðist þess að gæzluvarðhald
unga mannsins yrði framlengt en
sakadómur Reykjavíkur kvað upp
þann úrskurð að honum skyldi
sleppt. Ríkissaksóknari kærði úr-
skurðinn til Hæstaréttar, sem
staðfesti hann nú í vikunni á
þeirri forsendu að rannsóknar-
nauðsynjar krefðust þess ekki að
maðurinn sæti í gæzluvarðhaldi.
Hins vegar hefur manninum verið
gert að halda sig innan lögsagnar-
umdæmis Reykjavíkur og enn-
fremur hefur honum verið gert að
sæta geðrannsókn.
vinnuleysi og landflótta. Til þess
að það takist, þurfa ábyrg lýð-
ræðisöfl að taka höndum saman í
nýrri ríkisstjórn án atbeina aít-
urhaldsflokksins í íslenskum
stjórnmálum, Alþýðubandalags-
ins,“ segir í ályktun SUS.
Sú ríkisstjórn, sem nú situr,
mótar enga heildarstefnu í at-
vinnu- og efnahagsmálum. Síðasta
kákfrumvarp orkumálaráðherra
ber þess glöggt vitni, svo og
síðasta útspil ríkisstjórnarinnar í
efnahagsmálum, sem sýnir ber-
lega, að ríkisstjórnin hefur enga
fastmótaða efnahagsstefnu, en
miðar við það eitt að stjórna frá
degi til dags. Þrátt fyrir yfirlýstan
vilja ríkisstjórnarinnar um auk-
inn kaupmátt launa, hefur hún
seilst æ dýpra í vasa launafólks og
þess vegna er hætta á að mikil
átök séu framundan á vinnumark-
aðnum.
vera spegilmynd af vilja þjóðar-
innar. Það er einn mikilvægasti
hornsteinn lýðræðisins og þess
vegna er nauðsynlegt að breyta
kosningafyrirkomulaginu og
stjórnarskrárákvæðum um störf
Alþingis á þá lund, að þessi
markmið náist.
Vandamál íslensks þjóðfélags
eru fyrst og fremst vegna lélegrar
stjórnunar og ofstjórnar fram-
kvæmdavaldsins. Ungir sjálfstæð-
ismenn ítreka því kröfu sína um
minni ríkisafskipti, aukna vald-
dreifingu og réttláta kjördæma-
skipan.
Jón Gauti fram-
kvæmdastjóri Nátt-
úruverndarráðs
Afkoma togara-
útgerðar mjög
slæm árið 1980
20% hækkun
auglýsinga
í útvarpi
Samþykkt á ríkis-
stjórnarfundi í gær
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum í gær 20% hækkun
á auglýsingagjaldi Ríkisút-
varpsins. Þá samþykkti ríkis-
stjórnin einnig 21% hækkun á
leikskólagjöldum og 18%
hækkun á dagheimilagjöldum.
Þá var einnig samþykkt 42%
hækkun á húsaleigu.
Valgeir
ráðinn
BORGARSTJÓRN Reykjavík
ur samþykkti á fundi sínum i
gær. að ráða Valgeir Guðjóns-
son í stöðu forstöðumanns fé-
lagsmiðstöðvarinnar i Árbæ.
Félagsmiðstöðinni hefur verið
gefið nafnið Ársel.
Við atkvæðagreiðslu hlaut
Valgeir Guðjónsson tólf at-
kvæði og Guðmundur E. Páls-
son þrjú atkvæði, en aðrir
umsækjendur ekkert. Alls bár-
ust 11 umsóknir um stöðu for-
stöðumanns félagsmiðstöðvar-
innar.
— segir^hagfræð-
ingur LÍÚ
„AFKOMA togaraútgerðarinnar
var mjög slæm í fyrra og ástand-
ið hefur farið versnandi á þessu
ári.“ sagði Ágúst Einarsson, hag-
fra'ðingur LIÚ, i samtali við Mbl.
Ágúst sagði að undanfarið
hefðu LIÚ borizt reikningar
margra útgerðarfyrirtækja fyrir
árið 1980 og fleiri reikningar væru
væntanlegir. „Við erum að yfir-
fára reikningana og útkoman er
vægast sagt hörmuleg. Jafnvel
sum af aflahæstu skipunum koma
herfilega út. Það er aðallega
óhemju vaxtabyrði og gengismun-
ur, sem valda þessari slæmu
stöðu, hækkun lána í erlendum
gjaldeyri var ofsaleg í fyrra. Það
er alveg ljóst að fiskverð þarf að
hækka verulega ef leysa á vand-
ann,“ sagði Ágúst.
Á því þingi, sem nú er að ljúka
störfum, hefur það sýnt sig, að
skipulag og starfshættir Alþingis
eru þinginu til skammar og síst til
þess fallin að auka virðingu þess.
Við þinglok eru afgreidd fjölmörg
lög á færibandi, umræðulítið eða
umræðulaust. Valdaframsal Al-
þingis til framkvæmdavaldshafa
er þó mun alvarlegra og leiðir til
minnkandi áhrifa Alþingis og rýr-
ir virðingu þess.
Alþingi þarf að vera og á að
HALLDÓR Blöndal, alþingis-
maður, gagnrýndi ríkisstjórn-
armeirihlutann á Alþingi mjög
harðlega í fyrrakvöld fyrir að
koma í veg fyrir, að ýmis mál
JÓN GAUTI Jónsson var í gær
valinn úr hópi 18 umsækjenda
um stöðu framkvæmdastjóra
Náttúruverndarráðs.
Á fundi ráðsins í gær hlaut Jón
Gauti 5 atkvæði ráðsmanna, Stef-
án Thors arkitekt 1 atkvæði og
einn sat hjá.
Jón Gauti Jónsson er landfræð-
ingur að mennt. Hann vann hjá
Náttúruverndarráði um 3ja ára
skeið, en hefur kennt undanfarin
1—2 ár á Akureyri.
flutt af einstökum þingmönnum
stjórnarandstöðunnar, fengju
eðlilega umfjöllun i þingdeildum.
Nefndi Halldór í þessu sam-
bandi sérstaklega afgreiðslu
frumvarps um dýralækna, sem
Halldór sagði hafa fengið af-
greiðslu þingnefndar, en fékk ekki
umfjöllun í neðri deild í fyrra-
kvöld, þrátt fyrir að málið væri á
prentaðri dagskrá deildarinnar og
hann hefði gert ítrekaða kröfu um
að málið yrði tekið upp.
Enn í lífshættu
LlÐAN drengsins sem stórslasað-
ist sl. þriðjudag er hann varð fyrir
fólksbifreið á gamla Hafnarfjarð-
arveginum nokkru fyrir ofan
Nesti var óbreytt í gær. Hann
hlaut alvarleg höfuðmeiðsl og var
talinn í lífshættu. Hann liggur á
gjörgæzludeild Borgarspítalans.
Heilbrigðisráðherra á
eftir að taka ákvörðun
Ileilbrigðisráðherra á eftir
að taka ákvörðun um hver
verður ráðinn forstjóri Bruna-
botafélagsins, en það er rétt að
mér hefur borist bréf frá
framkvæmdastjórninni þar
sem farið er fram á að ég
starfi áfram sem forstjóri,
sagði Ásgeir Ólafsson forstjóri
Brunabotafélags íslands í
samtali við Morgunblaðið í
gær.
I Morgunblaðinu var í gær
haft eftir Magnúsi H. Magnús-
syni, formanni framkvæmda-
stjórnar Brunabótafélagsins,
að hún hefði farið fram á það
við Ásgeir að hann gegndi
starfinu áfram og hefði hann
samþykkt það fyrir sitt leyti.
Ásgeir Ólafsson sagði að Svav-
ar Gestsson heilbrigðisráð-
herra myndi taka ákvörðun um
ráðningu forstjóra og vildi
hann að öðru leyti ekki tjá sig
um málið í gær.
Hindra eðlilega meðferð mála
stjórnarandstæðinga í deildum