Morgunblaðið - 22.05.1981, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MAÍ1981
5
Hestamannafélagið Sörli, Hafnarfirði:
Dagur fatlaðra á morgun
f TILEFNI af ári fatlaðra hyjíxst
HcstamannafélaKÍð Sörli í Hafn-
arfirði efna til dags* fatlaðra
laugardaginn 23. mai nk. Þá
munu félagar þess teyma undir
fötluðum á svæði félagsins við
Kaldársselsveg frá kl. 15.
Þeim sem óska eftir að nýta sér
þetta boð er bent á að æskilegt er
að tilkynna þátttöku í síma 53418
og 51990 eða 52658 föstudaginn 22.
maí, en þeim sem ekki eiga þess
kost að tilkynna þátttöku á þeim
tíma er eigi að síður velkomið að
mæta.
Hermann Þórisson
Þrjár hljómsveit-
ir í Hafnarbiói
HUÓMSVEITIRNAR Orghestar,
Tívolí og Jurkar halda í kvöld kl.
20:30 hljómleika í húsnæði Al-
þýðuleikhússins í Hafnarbíói. Tív-
olí kynnir þar lög af væntanlegri
plötu sinni og Orghestar og Jurkar
flytja aðallega frumsamið efni.
Sem fyrr segir eru hljómleikarnir
í Hafnarbíói kl. 20:30 í kvöld.
Doktorsvörn
Miðvikudaginn 27. maí varði
Hermann Þórisson doktorsrit-
gerð við Gautaborgarháskóla.
Ritgerð Hermanns er á sviði
líkindafræði og heitir „The
Coupling oí Regenerative Pro-
cesses*4.1 ritgerðinni beitir hann
nýlegri líkindafræðilegri tækni
við rannsókn á „Regenerative
Processes“, sem er mjög mikil-
væg tegund líkindaferla (stoch-
astic processes).
Niðurstöður Hermanns hafa
hagnýtt gildi, m.a. í „Queuing
Theory", en hún er grundvöllur
ýmissa líkana við rannsóknir og
áætlanir varðandi birgðastreymi,
samgöngur og aðra þjónustu.
Hermann er fæddur 1. október
1952, sonur Bjargar Hermanns-
dóttur og Þóris Bergssonar,
tryggingastærðfræðings. Hann
tók stúdentspróf frá Menntaskól-
anum í Reykjavík vorið 1972, og
fil. cand.-próf frá Gautaborgar-
háskóla 1975. Síðustu árin hefur
hann, samhliða námi og rann-
sóknum, kennt við þann háskóla.
Kona Hermanns er Rannveig
Sigurðardóttir, sem lauk fil.
cand.-prófi í nútímasögu frá
Gautaborgarháskóla nú í vetur.
Bessi
hylltur á
30 ára
afmælinu
BESSI Bjarnason átti 30 ára
leikafmæli á frumsýningu
Gusts í Þjóðleikhúsinu sl.
miðvikudagskvöld. Sveinn
Einarsson þjóðleikhússtjóri
og ýmsir fleiri úr röðum
leikhúsmanna ávörpuðu
Bessa, en á myndinni er einn
úr hópi leikara, Arni
Tryggvason, að tala í tilefni
dagsins. Voru Bessa færðar
blómaskreytingar og heilla-
óskir bárust og Þjóðleikhús-
gestir fögnuðu innilega þess-
um vinsæla leikara.
Siglfirðingafélagið í Reykjavik 20 ára:
Siglfirðingamót á sunnudag
SIGLFIRÐINGAR búsettir á höf-
uðborgarsvæðinu minnast afmæl-
is kaupstaðarréttinda Sigiufjarð-
ar með fjölskyldufagnaði á
sunnudaginn kemur, 24. mai, i
veitingahúsinu Glæsibæ. Slikar
samkomur hafa verið haldnar
árlega á vegum Siglfirðingafé-
lagsins í Reykjavik og nágrenni.
en félagið er 20 ára á þessu ári.
Á fjölskyldufagnaðinum hittast
ungir og aldnir Siglfirðingar og
velunnarar Siglufjarðar syðra.
Fjöldi kvenna innan vébanda fé-
lagsins annast undirbúning,
bakstur og framreiðslu á kaffi og
meðlæti á þessari samkomu milli
klukkan 15 og 18. Verði veitinga
verður mjög í hóf stillt og sem
fyrr munu ellilífeyrisþegar fá
veitingar ókeypis á fjölskyldu-
fagnaðinum.
Siglufjörður hlaut verslunar-
réttindi 20. maí 1818 og kaupstað-
arréttindi 100 árum síðar eða 20.
maí 1918. Þessara tímamóta er
árlega minnst á Siglufirði og
jafnframt hefur sú venja skapast
að Siglfirðingafélagið haldi fjöl-
skyldufagnað sinn á sunnudegi
sem næst 20. maí ár hvert í
Reykjavik. Á félagaskrá Siglfirð-
ingafélagsins eru nú um 1100
manns og tekur unga fólkið ekki
síður þátt í starfseminni en hinir
eldri. Formaður Siglfirðingafé-
lagsins í Reykjavík og nágrenni er
Ólafur Ragnarsson.
ITALIA
LIGNAN0 SABBIADORO
Feröaskrifstofan
Forsjáll^Ferðamaður
velur Útsýnarferð
Austurstræti 17,
símar 20100 og 26611.
Það bezta
,er ódýrt í
Útsýnarferð
Útsýnarferð —
bezta fjárfestingin
BEZTA FERÐATILBOÐ
VORSINS:
Lignano: 29. maí og 12. júní
2 eða 3 vikur.
Útborgun aðeins kr. 500.00
Eftirstöðvar á 6 mánuðum.
Sérstakur barnaafsláttur
NÚ SKÍN SÓLIN GLATT Á GULLNU
STRÖNDINNI OG HITINN ER ÞÆGILEGUR
Blikandi sólskin — blátt haf — dimmgrænn furuskógurinn, sem ilmar
yndislega — iðandi mannlíf — góðar verzlanir — og ítölsk
matargerðarlist — hvað er hægt að hugsa sér betra í sumarleyfinu?
RESIDENCE LUNA 2-3-4
Bjartar og rúmgóðar íbúðir alveg á ströndinni á bezta stað í Lignano.
íbúðirnar eru með 1 eða 2 svefnherbergjum, stofu, baði og eldhúsi.
Góðar svalir. Á jarðhæð er eigin skrifstofa Útsýnar og fjöldi
þjónustufyrirtækja s.s. matsölustaðir, verzlanir, kaffihús, hjólaleiga
o.fl. Sundlaug og garður. Diskótek.
KYNNISFERÐIR:
Lignano er frábærlega vel staðsett með tillitl til áhugaverðra og
fróðlegra kynnisferða til fornfrægra borga og staða í þessu
sögufrægasta landi Evrópu. Möguleikarnir eru óþrjótandi eftir
óskum farþega, s.s. Flórenz, Róm, Verona, Milano, Trieste.
örstutt er til Austurrikis og Júgóslaviu. ógleymanleg ferð
öllum. sem reynt hafa er Feneyjaferðin. Sigling um síkin á
gondól hefur lengi verið talið tákn rómantikur.