Morgunblaðið - 22.05.1981, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1981
9
Arnþór Jensen,
Eskifirði 75 ára
Arnþór Jensen, einn helzti
máttarstólpi Eskfirsks athafnalífs
í hálfa öld, er 75 ára í dag. Hann
fæddist 22. maí 1906 að Siglunesi
við Manitobavatn í Kanada en
fluttist sex mánaða gamall til
íslands, með foreldrum sínum og
þriggja ára til Eskifjarðar, þar
sem hann hefur búið æ síðan.
Faðir Arnþórs var Pétur Vil-
helm Jensen frá Eskifirði og fyrri
kona hans, Þórunn Magnúsdóttir,
frá Stafafelli í Lóni. Þau skildu
þegar Arnþór var á 9. ári, en það
var áfram náið samneyti með
þeim feðgum þótt Arnþór fylgdi
móður sinni við skilnaðinn. Arn-
þór gekk í barnaskóla á Eskifirði
en fór síðan í tilsögn einn vetur
hjá Ríkarð Breck, síðar prófessor.
Þaðan hélt hann í Gagnfræðaskól-
ann á Akureyri, sem Sigurður
Guðmundsson skólameistari,
hafði þá nýtekið við, og lauk þaðan
gagnfræðaprófi 1923. Þar með var
formlegri skólagöngu lokið. Hann
sótti þó síðar fáeina tíma í bók-
haldskunnáttu hjá Gísla Sigur-
björnssyni á Grund, en að öðru
leyti hefur hann numið í skóla
lífsins. Fyrst að námi loknu vann
Arnþór í verzlun föður síns en
siðan m.a. hjá ýmsum athafna-
mönnum á Eskifirði við verzlun-
arstörf, verkstjórn í fiskverkun og
útgerð og við fiskverkun í félagi
við aðra um árabil.
í heimskreppunni hafði Arþór
forgöngu um að stofnað var Pönt-
unarfélag Eskfirðinga og hefur
leitt það fyrirtæki af myndarskap
og dugnaði. Fyrir það og störf
hans í þágu Pöntunarfélagsins
verður hans lengi minnst á Eski-
firði. Frá aðdraganda stofnunar-
innar segir í bók eftir Einar Braga
Sigurðsson, 40 ára afmælisriti
Pöntunarfélags Eskfirðinga. Þar
segir svo:
„í næstu byggð fyrir norðan
hafði verið stofnað Pöntunarfélag
alþýðu, Neskaupstað. Það fór vel á
stað og var strax áberandi verzl-
unaraðili í kauptúninu. Þó Esk-
firðingar hafi löngum verið tregir
til að viðurkenna að nokkuð gott
kæmi frá Norðfirði, hvað þá Reyð-
arfirði vakti þetta nú engu að
síður athygli á Eskifirði og ýtti
undir að sambærileg tilraun yrði
gerð þar. Þegar kom fram á árið
1933 fóru nokkrir menn í þorpinu
að bera saman bækur sínar um
þetta efni. Á því er enginn vafi að
Arnþór Jensen hreyfði þessu máli
fyrstur. Kristján í Skuld sagði við
mig í vor er leið: Við Arnþór
hittumst á götu eitt kvöld sem
oftar og fór hann þá að minnast á
hvort við ættum ekki einhverjir að
reyna að stofna félag um að panta
okkur vörur. Jú, okkur kom saman
um að það gæti verið gagnlegt."
Það reyndust orð að sönnu og hér
á við, að mjór er mikils vísir.
Pöntunarfélagið var stofnað 6.
des. 1933. Þar tóku menn höndum
saman um félagslegt átak til að
lækka vöruverð í dýrtíðinni.
T.veimur vikum síðar var Arnþór
ráðinn pöntunarstjóri félagsins
frá næstu áramótum.
Pöntunarfélagið byrjaði smátt.
Framkvæmdastjórinn safnaði
saman listum frá félagsmönnum
og pantaði eftir þeim. En félagið
óx og dafnaði undir stjórn Arn-
þórs og strax á fyrsta ári flutti
það inn kol auk ýmissa matfanga
og hreinlætisvara og flutti út
dálítið af fiski. Framan af hafði
félagið ekki eigið húsnæði en strax
1935 réðst Arnþór í það sjálfur að
kaupa hús sem Kaupfélag Eskfirð-
inga hafði starfað í og leigja
Pöntunarfélaginu aðstöðu í því.
Hér er ekki aðstaða til að rekja þá
miklu og umbrotasömu sögu sem
Pöntunarfélagið og Arnþor hafa
átt sameiginlega. En það er óhætt
að segja að saga Arnþórs og saga
Pöntunarfélagsins séu svo sam-
ofnar að þær verði ekki sagðar sitt
í hvoru lagi. Og vöxtur og viðgang-
ur Pöntunarfélagsins er til marks
um dugnað og ósérplægni og
útsjónarsemi Arnþórs.
laðibörn sem koma þjóðfélaginu arsamur um að aldrei vantaði
að litlu gagni. neitt.
Arnþór hefur ávallt verið mikill Ég veit að það munu mér færari
dugnaðarforkur. Þegar hann var menn skrifa um þau hjón Guðnýju
60 ára byggði hann síldarplan. og Arnþór Jensen á þessum merku
Hann hefur starfað mikið að tímamótum í ævi þeirra. En Guð-
félagsmálum. Var lengi í hrepps- nývarð 70 ára 8. marsl sl.
nefnd Eskifjaðar og kom þar Ég óska ykkur hjónum og niðj-
mörgu góðu til leiðar eins og um ykkar allra heilla í nútíð og
raunar allstaðar þar sem hann framtíð. Einnig þakka ég ykkur
hefur haft hönd í bagga. Þátt fyrir fyrir góða viðkynningu sl. 19 ár.
75 ár að. baki vinnur Arnþór Og það er svo lærdómsríkt að ^
ennþá. Hann er umboðsmaður spjalla við ykkur yfir kaffibolla í
Olís, Esso og auk þess afgreiðslu hinu gamla og vel við haldna húsi
Ríkisskipa. ykkar.
Forseti íslands sæmdi Arnþór Lifið heil og lengi.
riddarakrossinum árið 1979 fyrir Regína Thorarensen.
vel unnin verslunar- og félags- Eskifirði.
málastörf. Tel ég hann vel að þeim
sóma kominn.
Arnþór stýrði Pöntunarfélagi í
gegnum heimskreppuna, stríðsár-
in, síldarævintýrin, innflutnings-
haftatímabil, góðæri og illæri af
myndarskap, framsýni og dugn-
aði.
Önnur verzlunarfyrirtæki börð-
ust í bökkum og gáfust upp þar á
meðal kaupfélagið Björk, sem var
meðlimur í Sambandi ísl. sam-
vinnufélaga og óskaði það reyndar
eftir því að sameinast Pöntunarfé-
laginu. Því var hafnað, en síðan
samþykkt að yfirtaka rekstur þess
og gekk þá Pöntunarfélagið í
Samband ísl. samvinnufélaga.
Þetta var árið 1969. Óhætt er að
segja, að þegar blaðað er í gegnum
sögu Pöntunarfélagsins að ævin-
lega voru atburðir að gerast,
hugmyndir að fæðast og fram-
takssemin birtist hvarvetna, jafn-
vel á mestu erfiðleikatímum.
Arnþór gekk að eiga Guðnýju
Pétursdóttur árið 1931. Þau eign-
uðust fjögur börn, Gauta yfir-
lækni á Akureyri, Val, kaupfélags-
stjóra á Akureyri, Hlíf, sem búsett
er í Danmörku, og Guðnýju Önnu,
sem búsett er í Reykjavík.
Arnþór Jensen hefur alla tíð
verið mikill félagshyggjumaður og
áhugasamur jafnaðarmaður.
Hann hefur verið einn af burðar-
ásum Alþýðuflokksins á Eskifirði
og Austurlandi um áratuga skeið.
Ævinlega er gott að leita til
Arnþórs og bera saman við hann
bækur, um hvaðeina sem efst er á
baugi hverju sinni.
Arnþóri er félagshyggjan og
jafnaðarstefnan í blóð borin.
Hann vildi og vill sjá árangur
hennar í framkvæmd. Það hefur
líka tekizt, hann hefur með nær
fimm áratuga starfi sínu í Pönt-
unarfélaginu reist minnisvarða
um stefnuna í framkvæmd.
Arnþór hefur, eins og áður
segir, verið einn af helztu mátt-
arstólpum Alþýðuflokksins á
Austurlandi. Hann var um árabil
fulltrúi Alþýðuflokksins í sveitar-
stjórn og tvisvar var hann í
framboði fyrir Alþýðuflokkinn til
Alþingis og vegnaði vel í þeim
kosningum og styrkti stöðu
flokksins í kjördæminu.
Á þessum tímamótum flyt ég
Arnþóri og fjölskyldu hans beztu
heillaóskir og þakklæti okkar Al-
þýðuflokksmanna fyrir ágætt og
ánægjulegt samstarf.
Kjartan Jóhannsson
Arnþór er fæddur að Siglunesi
við Manitobavatn í Kanada, 22.
maí 1906. Foreldrar hans voru
Pétur W. Jensen og Þórunn Mark-
úsdóttir. Er Arnþór kominn af
góðum og traustum ættum og
dugmiklu heiðursfólki, sem drifu
sig áfram á heiðarlegan hátt og
urðu traustir athafnamenn hver á
sínu sviði. Arnþór hefur ekki orðið
neinn eftirbátur forfeðra sinna,
nema síður skyldi.
Á unglingsárunum vann Arnþór
við verslun föður síns. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Akureyri á 2
vetrum árið 1923 (3ja ára nám þá)
þá 17 ára. Hann vann hjá Friðgeir
Hallgrímssyni og fleiri athafna-
mönnum og allstaðar líkaði vel við
hann. Þá var hann verkstjóri hjá
útgerðarfélaginu Andra, sem var
stórt fyrirtæki á þeim tíma. Sem
marka má af því að 300 skipspund
af saltfiski komust í einu á
fiskireitinn og voru um 100 manns
i vinnu.
Árið 1933 var stofnað á Eski-
firði Pöntunarfélag. Var Arnþór
Jensen kosinn framkvæmdastjóri
þess og gegndi hann því starfi í
samfellt 43 ár við góðan orðstír.
Arnþór giftist fallegri og mikil-
hæfri konu, Guðnýju Pétursdóttur
og áttu þau 4 börn. Gauti, yfir-
læknir á Akureyri, fæddur 1933,
Valur forstjóri á Akureyri, fædd-
ur 1935, Hlíf. búsetta í Danmörku,
fædd 1940 og Guðný Anna fædd
1951, búsett í Reykjavík. Öll hafa
börn Guðnýjar og Arnþórs verið
ábyrg og mikilhæf þjóðfélags-
þegnar, enda urtnið fyrir sinni
skólagöngu sjálf. Ég tel að það séu
bestu þjóðfélagsþegnarnir, sem
þurfa að vinna fyrir sinni skóla-
göngu sjálf. En ekki að foreldrar
segi börnum sínum að þau eigi að
læra þetta og hitt og skaffa
börnum sínum ótakmarkaðan
pening til náms, eins og algengt er
í nútímaþjóðfélagi. Enda þegar
þetta blessaða fólk á að standa á
eigin fótum, eru þetta bara súkku-
Eins og áður segir, er Arnþór
gagnfræðingur að mennt. Ein
kona, sem vann hér í pöntó undir
stjórn Arnþórs í 2 sumur sagði
mér að hún hefði mikið lært af
honum þrátt fyrir mikla reynslu
sína í verslunarmálum í Reykja-
vík, þar sem hún rak verslun sjálf.
Þessi kona dásamaði Jensen fyrir
stjórnsemi og góða umgengni i
versluninni. Ennfremur sagði hún
að það hefði oft verið langur
vinnutími hjá Arnþóri, því hann
hefði rekið Pöntunarfélagið af iífi
og sál, og alltaf verið svo hugsun-
Hús til sölu í Stykkishólmi
Einbýlishús, hæö, ris og bílskúr til sölu. Upplýsingar í
síma 93-8308.
Safamýri
Höfum í einkasölu 2ja herb. 95 fm. íbúö á jaröhæö í
fjölbýlishúsi. Mjög góö íbúö á góöum staö.
28444
HÚSEIGNIR
&SKIP
VELTUSUNDn
Verkstæðishús
í Hafnarfirði
á besta stað við Reykjavíkurveg til sölu.
Húsiö er steinsteypt um 200 ferm. Heimild til
stækkunar. 3000 ferm. lóö fylgir. Laust 1. júlí.
Árni Gunnlaugsson hrl.
Austurgötu 10, Hafnarfiröi, sími 50764.
AUSTURSTRÆTI
FASTEIGNASALA
AUSTURSTRÆTI 9 SÍMI 15920 — 17266.
Huseign að Þjórsárgötu 9
er til sölu
Mjög hentugt lager- eöa iönaðarhúsnæði. Jaröhæö um
400 ferm. Stendur á rúmlega 1000 fm. eignarlóö.
Vöruafgreiösla skipafélags á næstu grösum. Laus
strax. Frekari uppl. á skrifstofunni.
Gunnar Guðmundsson hdlT
Hafnarfjörður
Nýkomið til sölu
Kaldakinn
3ja herb. íbúð í 1. flokks ástandi
á neðri hæð í tvíbýlishúsi.
Bílgeymsla úr timbri fylgir.
Ólduslóð
2ja—3já herb. íbúð í góðu
ástandi á neðri hæð í tvíbýlis-
húsi á fallegri hornlóð.
Norðurbraut
3ja herb. falleg íbúð á neðri
hæð í tvíbýlishúsi.
Iðnaðarhúsnæði
við Reykjavíkurveg
um 200 ferm. á efri hæð á
góðum stað. Fullfrágengiö að
utan. Sér inngangur.
Árnl Gunnlaugsson. nri.
Austurgotu 10.
Hafnarfirdi. sími 50764
Við Álftamýri
3ja herb. 96 fm. góö íbúö á 1. hæö
Bílskúrsplata Utb. 370 þ.
í smíðum Skerjafirði
150 fm. fokheld neöri sérhæö í tvíbýlis-
húsi. Afh. fokheld í júní nk. Teikn. á
skrifstofunni.
Raðhús við Fljótasel
280 fm. vandaó raóhús m. 2ja herb. sér
íbúó í kjallara Skipti hugsanlega á
4ra—5 herb. góóri blokkaríbúó í Heim-
um, Laugarnesi eöa Fossvogi.
Lítið steinhús
við Nýlendugötu
55 fm. snoturt steinhús. Nióri er rúm-
gott eldhús meó nýlegri innrótttingu,
baóherb. og geymsla. Uppi er góó
stofa. Veró 270 þús.
Hæð við Holtagerði
4ra herb. 127 fm. neöri sórhæö í
tvíbýlishúsi. Laus fljótlega Utb. 430
þús.
Við Bólstaðarlíð
4ra til 5 herb. 120 fm. góó íbúó á 3ju
hæó Utb. 430 þús.
Við Álfheima
4ra herb. 117 fm. vönduö íbúö á 1.
hæö Utb. 430 þús.
Við Sléttahraun Hf.
4ra herb. 107 fm. góó íbúó á 1. hæö
Þvottaaóstaóa á hæóinni. Bílskúrsrétt-
ur Utb. 330 þús.
Við Hraunbæ
4ra herb. 110 fm. góö íbúó á 1. hæö.
Utb. 380 þús.
Viö Kóngsbakka
4ra herb. 108 fm. góö íbúó á 2 hæó.
Þvottaherb. innaf eldhúsi Utb. 370 þús.
Viö Móabarð Hf.
3ja herb. íbúó á 1. hæö í fjölbýlishúsi.
Suóursvalir. Laus fljótlega. Utb. 280 til
300 þús.
Við Hraunbæ
3ja herb 96 fm. íbúó á 1. hæó. 2 svalir
Laus fljótlega. Utb. 300 þús.
I Norðurmýri
3ja herb. 90 fm. vönduó kjallaraíbúó.
Sér inng og sér hiti Utb. 300 þús.
Við Engjasei
3ja herb. 88 fm. góó íbúó á 1 hæö
Bílastæói í bílhýsi fylgir. Utb. 350 þús.
Við Furugrund
3ja herb. 85 fm. góó ibúó á 2. hæó
Herb. i kjailara fylgir Utb. 360 þús.
Viö Dvergabakka
3ja herb 86 fm. góö endaíbúó á 3ju
hæó (efstu). 2 svalir. Laus fljótlega. Utb.
300 þús.
Byggingarlóðir
Höfum til sölu byggingalóóir undir
einbýlishús í Skerjafirói, Mosfellssveit
og á Álftanesi.
EiGnftmioLunin
ÞINGHOLTSSTRÆTI 3
SÍMI 27711
Sölustjóri Sverrir Kristinsson
Unnsteinn Beck hrl. Simi 12320