Morgunblaðið - 22.05.1981, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MAÍ1981
Endurbætur á
ullarfranileiðslu
Loftræstiviftur, blöndunarviftur og
steypujárnsgrindur settar í fjárhúsin
NÝLEGA var haldinn blaða-
mannafundur á vcjíum Rann-
sóknastofu landbúnaðarins þar
sem kynntar voru endurbætur á
ullarframlciðslu. Nú er islenskur
ullarvarninKur fluttur tii
margra landa ojf telst seldur á
Koðu vcrði. SI. ár var alls fluttur
út ullarvarninKur fyrir 15,3
milljarða kr.
Ullariðnaðurinn er sú grein
iðnaðar sem að gengur næst
álframleiðslu að verðmætasköp-
un. Þrátt fyrir þetta hafa bændur
oft litið á ullina sem aukaafurð og
meðhöndlað hana sem slíka. Það
leiðir af sér að gæði hennar eru
mikið lakari en þau gætu verið.
Þeir gallar sem eru hvað mest
áberandi, eru að hvíta ullin hefur
verið of blökk á litinn, þá skemmd
af rauðgulum illhærum og stækju
í húsunum auk þess sem að
heyrusl er oft áberandi í henni.
Stundum hefur erlendri ull ver-
ið blandað saman við og flíkin
tapað áferð sinni og mýkt en
fengið á sig hvítari lit.
Rannsóknastofnunin hefur
unnið að því að framleiða hvíta
ull og framleiða flíkur úr henni í
tilraunskyni. Þessu verkefni var
valinn staður á Reykhólum í
Austur-Barðastrandarsýslu og á
Skriðuklaustri í Fljótsdal í
Norður-Múlasýslu. Fór svo að
verkefnið tafðist á Skriðuklaustri,
en niðurstöður liggja ljósar fyrir
á Reykhólum. Þær umbætur sem
voru gerðar á fjárhúsunum voru
aðallega að loftræstiviftur voru
settar til að draga loft út úr
húsunum og blöndunarviftur voru
settar sem blönduðu útilofti sam-
an við hlýja loftið í fjárhúsunum.
Grindur úr steypujárnsteinum
voru settar í allar jöturnar í
fjárhúsunum. Þær grindur lokuðu
jötunum á meðan verið var að
gefa, en voru síðan látnar leggjast
yfir heyið og át féð þá í gegnum
grindurnar.
Að lokum eftir að ullin frá
Reykhólum var komin var hún
borin saman við venjulega ís-
lenska ull, sem var blanda af
úrvalsull og 80% fyrsta flokks ull.
Framleiddar voru flíkur úr báð-
um sýnishornum og dómarar frá
verzlunarfyrirtækjum dæmdu
flíkurnar án þess að fá að vita úr
hvorri ullargerð hver flíkin var.
Niðurstöður sýndu að Reykhóla-
ullin kom mikið betur út, hún
Á myndinni má sjá ullina frá
Reykhólum, skjannahvíta.
hafði meira slitþol og voru betri
flíkur framleiddar úr henni. í
eftirfarandi töflu sést einkunn
Reykhólaullarinnar og saman-
burðarullarinnar:
Ljóst er að mikið má bæta
Atriði Reykhólaull Samanhurðarull. (5 best.
einkunn einkunn 1 verst)
Ilvítleiki 4.0 2,1
Dökk hár 4,4 2.7
Mor 3,8 3,5
Áferð 3.2 2,4
Gljái 3,0 2,0
Mýkt 3,1 2,5
Meðaleinkunn 3,6 2,5
Hlutföll 143 100 •
Stefán Aðalsteinsson t.v. sem stýrði rannsókninni og Björn
Sigurbjörnsson forstjóri Rannsóknarstofu landbúnaðarins.
Þessi ull myndi varla fara í úrvalsflokk, en hún vill oft verða svona
skemmd af bleytu í fjárhúsi og heyrusli og slæmri stækju i húsum.
gæðin á útflutningsvarningi úr
íslenskri ull með því að rækta fé
með alhvíta ull og halda fjárhús-
unum þurrum og hreinum.
Ef að uliin telst þriðja flokks
fær bóndinn 433 krónur á kílóið,
en ef ullin er dæmd í úrvalsflokk
fær hann 2390 fyrir kílóið.
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi frá Raunvisinda-
stofnun Iláskóla íslands:
„Síðastliðinn þriðjudag varð
fólk í Mosfellssveit og á Kjalar-
nesi vart við stóra flugvélar
Orion-gerð sem flaug fram og
Segulmæling-
ar úr lofti
aftur yfir sveitinni í alllangan
tíma. Hér var á ferðinni flugvél
frá Sjómælingastofnun banda-
ríska flotans, en sú stofnun annast
m.a. segulkortagerð og gerð sjó-
korta af hafsvæðum víða um
heim. Flugvélin var búin sérstök-
um tækjum til segulmælinga og
var verkefni hennar að kanna
segulsviðið yfir segulmælingastöð
Raunvísindastofnunar Háskólans
í Leirvogi í Mosfellssveit. Vélin
kom hingað til lands frá Noregi í
þessum tilgangi og fer aftur til
Noregs á föstudag til að halda
áfram hliðstæðum mælingum þar.
Á miðvikudagsmorgun var ís-
lenskum vísindamönnum boðið að
skoða flugvélina, sem búin er
tregðuleiðsögukerfi af nýrri og
mjög fullkominni gerð og getur
framkvæmt mælingar á stefnu og
styrkleika segulsviðs með ná-
kvæmni sem nálgast þá sem kraf-
ist er við mælingar á jörðu niðri.
Síðdegis á miðvikudag heim-
sóttu leiðangursmenn segulmæl-
ingastöðina í Leirvogi og kynntu
sér tækjabúnað þar, en stöðin er
sú eina hér á landi og er legu
sinnar vegna ein hin mikilvægasta
sinnar tegundar í heiminum. í
segulmælingastöðvum er fylgst
með breytingum sem verða á
styrkleika og stefnu segulsviðs
jarðar, bæði skammtímabreyting-
um sem stafa af rafstraumum í
háloftunum og fylgja truflunum
frá sólu, og einnig hægfara breyt-
ingum sem eiga upptök sín í
kjarna jarðarinnar. Mælingar á
þessum breytingum eru m.a. not-
aðar til að leiðrétta misvísun á
kortum sem notuð eru við flug og
siglingar, og skýrir það með öðru
áhuga sjómælingastofnana á slík-
um mælingum.
Á Raunvísindastofnun Háskól-
ans hefur á undanförnum árum
verið unnið að gerð segulkorts af
íslandi með mælingum úr flugvél
og hefur segulstyrkleikinn verið
skráður mjög nákvæmlega, en
búnaður til stefnumælinga hefur
ekki verið fyrir hendi. Mælingar
hinnar bandarísku sjómælinga-
stofnunar að þessu sinni munu
væntanlega bæta mikiivægum
upplýsingum við þær sem fyrir
voru, og að beiðni Raunvísinda-
stofnunar hafa leiðangursmenn
fallist á að gera viðbótarmælingar
á leið sinni að og frá landinu, sem
komið gætu að gagni við kortagerð
hérlendis."
Sambandsstjórn Málm- og skipasmiðasambands Islands:
íslenskum skipasmíðastöðvum
verði falin smíði fiskiskipa
BORIST hefur eftirfarandi álykt-
un sem fundur i sambandsstjórn
Málm- og skipasmiðasambands
íslands samþykkti:
Undanfarið hefur verið og er
enn veruleg óvissa varðandi ný-
smíðaverkefni innlendra skipa-
smíðastöðva.
Ástæða þessa óvissuástands er,
hvernig staðið hefur verið að
fjármögnun innlendra skipasmíða
og sú tilhneiging stjórnenda Fisk-
veiðasjóðs að lána til kaupa á
fiskiskipum erlendis frá. Þau skip
eru í mörgum tilfellum notuð eða
ætluð til annarra veiða en stund-
aðar eru hér við land og þurfa því
oft breytinga og endurbóta við.
Þótt gerðir hafi verið margir
smíðasamningar milli útgerðar-
fyrirtækja og innlendra skipa-
smíðastöðva, hafa aðeins fáir
samninganna verið samþykktir af
lánastofnunum og fyrirkomulag á
afgreiðslu fjármagns hefur tafið
og jafnvel stöðvað um tíma smíði
skipa.
Grundvöllur samkeppnisað-
stöðu innlendra skipasmíðastöðva,
bæði hvað varðar verð og smíða-
tíma, er að stöðvarnar hafi stöðug
verkefni, sem skipulögð eru fram í
tímann.
Nú hefur Fiskveiðasjóður til-
kynnt, að ekki verði frekari lán-
veitingar til innlendra skipasmíða
á þessu ári og að frestað verði
raðsmíði fiskibáta til næsta árs, á
sama tíma er verkefnaaðstaða
innlendra skipasmíðastöðva þann-
'g'
Ein skipasmíðastöð, á Seyðis-
firði, hefur ekkert nýsmíðaverk-
efni. Tvær stöðvar, Stálvík hf.,
Garðabæ, og Þorgeir og Ellert,
Akranesi, hafa mjög takmörkuð
og ótrygg nýsmíðaverkefni. Þetta
ástand getur leitt til atvinnuleysis
hjá starfsmönnum þessara fyrir-
tækja síðari hluta ársins. Komi til
atvinnuleysis hjá starfsmönnum
skipasmíðastöðva, er það innflutt
atvinnuleysi.
Með innfluttum skipum er keypt
vinna, sem íslenskir skipasmiðir
eru hæfir og reiðubúnir að fram-
kvæma, fái þeir tækifæri til.
Sambandsstjórn Málm- og
skipasmiðasambands Islands átel-
ur, hvernig staðið hefur verið að
fjármögnun innlendra skipa-
smíða, allt frá upphafi stálskipa-
smíða hérlendis og mótmælir
harðlega, að svo virðist sem lán-
veitingar til skipakaupa erlendis
í NÝLEGU fréttabréfi Upplýs-
ingaþjónustu landbúnaðarins
kemur m.a. fram að fyrstu tvo
mánuði þessa árs var innvegin
mjólk hjá mjólkursamlögunum
14,7% minni en sömu mánuði og
1980. í mars i ár tóku mjólkur-
samlögin á móti tæplega 6,7
milljónum lítra, en það var 8,6%
minna en í mars í fyrra. Af stærri
samlögunum var samdrátturinn
mestur hjá mjólkursamlaginu i
Borgarnesi eða rúm 14%, en
tiltöíulega minnstur hjá mjóíkur-
samlaginu á Akureyri eða 3,2%.
Hjá mjólkursamlögunum á
Blönduósi og Sauðárkróki varð
smávegis aukning á innveginni
mjólk í apríl miðað við sama
mánuð í fyrra.
Hjá Mjólkursamlagi KEA á
Akureyri var mjólkin aðeins 0,8%
minni en í fyrra og hjá Mjólkurbúi
hafi forgang fram yfir innlenda
skipasmíði.
Jafnframt mótmælir sambands-
stjórn Málm- og skipasmiðasam-
bands ísiands sérstaklega ákvörð-
un stjórnenda Fiskveiðasjóðs, um
að fresta raðsmíði fiskibáta inn-
anlands.
Sambandsstjórn Málm- og
skipasmiðasambands íslands
beinir því til iðnaðarráðherra og
sjávarútvegsráðherra, að íslensk-
um skipasmíðastöðvum verði falin
smíði fiskiskipa, í samræmi við
endurnýjunarþörf fiskiskipaflot-
ans, samkvæmt sérstakri áætlun
þar um.
Flóamanna var samdrátturinn
4,0%. Aftur á móti var mjólkin
11,5% minni hjá mjólkursamlag-
inu í Borgarnesi. Fyrstu fjóra
mánuði þessa árs hefur verið tekið
á móti 27,3 milljónum lítra af
mjólk en það var rúmlega 3
milljónum minna en sömu mánuði
í fyrra eða 10%.
I Fréttabréfinu kemur einnig
fram að samdrátturinn í mjólkur-
framleiðslunni sé að minnka, að
hún sé nú að nálgast þarfir
landsmanna.
i
Leiðrétting
NAFN Ásgeirs Einarssonar dýra-
læknis, misritaðist í blaðinu sl.
miðvikudag, stóð þar Ágúst. Er
hann beðinn velvirðingar á þeim
mistökum.
Minni mjólkurfram-
leiðsla í ár en í fyrra