Morgunblaðið - 22.05.1981, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1981
Heilbrigðis- og trygginganefnd:
Frumvarp um fram-
kvæmdasjóð aldraðra
Frumvarp félagsmálaráðherra fari í endur-
skoðun ásamt frumvarpi Péturs Sigurðssonar
Heilbrijíðis- og trygginganefnd neðri deildar Alþingis hefur
einróma lagt til, að frumvarp félagsmálaráðherra „um
heilbrigðis- og vistunarþjónustu fyrir aldraða“, sem fjölmarg-
ar breytingartillögur hafa komið fram við, verði ekki afgreitt
á þessu þingi. Hinsvegar hefur nefndin ákveðið að bera fram
frumvarp til laga um framkvæmdasjóð aldraðra, þar sem
mikilvægt sé að afla fjár til húsnæðis- og sjúkrastofnana fyrir
aldrað fólk. t»á leggur nefndin til, að kjörin verði sérstök
nefnd tii að endurskoða stjórnarfrumvarp um heilbrigðis- og
vistunarþjónustu fyrir aldraða, framkomnar breytingartillög-
ur við það, sem og frumvarp Péturs Sigurðssonar (S) o.fl. um
sama efni.
í frumvarpi nefndarinnar er
lagt til að stofna sérstakan sjóð til
að stuðla að byggingu húsnæðis og
dvalarstofnana fyrir aldraða.
Sjóðurinn beri heitið Fram-
kvæmdasjóður aldraðra.
Leggja skal 100 krónur á hvern
skattskyldan einstakling í fyrsta
sinn 1981. Nýta má ónýttan per-
sónuafslátt samkvæmt ákvæðum
laga um tekjuskatt til greiðslu
þessa gjalds. Auk þessa gjalds
gangi til sjóðsins beint framlag
ríkissjóðs, samkvæmt fjárlögum
hverju sinni, inneign í Bygg-
ingarsjóði aldraðs fólks, frjáls
framlög o.fl. Sjóðurinn skal vera í
vörzlu Tryggingastofnunar ríkis-
ins, en viðkomandi ráðherra skip-
ar þriggja manna sjóðsstjórn til
fjögurra ára í senn.
Dvalarstofnanir aldraðra, skv.
frumvarpinu, eru skilgreindar svo:
hjúkrunarheimili til langdvalar,
sjúkradeildir með aðstöðu fyrir
öldrunarlækningar og göngudeild-
ir hannaðar á hliðstæðan hátt,
íbúðir, sérhannaðar fyrir þarfir
aldraðra, byggðar á félagslegum
grundvelli og dvalarheimili aldr-
aðra með íbúðarherbergjum og
aðstöðu fyrir tómstunda- og fé-
lagsstarf.
Hlutverk sjóðsins er:
1. að fjármagna byggingar ríkis-
ins vegna stofnana fyrir al-
draða, sbr. 3. gr. stafliði a) og
b).
2. að veita sveitarfélögum og öð-
rum framlög til að kaupa eða
byggja húsnæði fyrir aldraða,
skv. 3. gr. stafliðum c) og d).
Ráðherra setur nánari ákvæði
um sjóðinn í reglugerð. Ráðherra
gerir í samráði við fjárveitinga-
nefnd og stjórn sjóðsins áætlun til
5 ára í senn um framkvæmdir,
skv. 1. gr.
Um framkvæmdir samkv. þess-
ari grein fer skv. lögum nr.
63/1979 um skipan opinberra
framkvæmda, eftir því sem við á.
Þingdeildir deila um orðmyndir:
„Landakaup44 eða „landkaup44
Fyrir Alþingi liggur stjórnarfrumvarp um myndun
sjóðs, sem hafi það hlutverk að veita kaupstöðum og
kauptúnum lán til kaupa á landi innan marka þeirra.
Ekki hefur verið ágreiningur um efnisatriði þessa
frumvarps, en harðar deilur um heiti þess, þ.e. um
málfræðileg atriði eða málsmekk.
Frumvarpið, eins og ríkisstjórn-
in lagði það fram, hét „frumvarp
til laga um landakaupasjóð vegna
kaupstaða og kauptúna". Efri
deild Alþingis, hvar frumvarpið
var lagt fram, breytti orðinu
landakaupasjóði i landkaupasjóð,
felldi niður eitt a. Stóð félags-
málanefnd deildarinnar einhuga
að þessari breytingu, sem staðfest
var af þingdeildinni. Síðan gekk
frumvarpið til neðri deildar, sem
samþykkti það með einni breyt-
ingu, þ.e.a.s. orðinu landkaupa-
sjóður var aftur breytt í landa-
kaupasjóð. Meirihluti félagsmála-
nefndar neðri deildar (Alexander
Stefánsson, Jóhann Einvarðsson,
Guðmundur J. Guðmundsson,
Eggert Haukdal og Jóhanna Sig-
urðardóttir), lagði til þessa breyt-
ingu, sem deildin samþykkti.
Málið gekk þvi aftur til efri
deildar. Þar var heiti frumvarps
enn breytt og landakaupasjóði
breytt í landkaupasjóð. Málið
þarf því enn til neðri deildar.
í efri deild var lesin upp umsögn
prófessors Halldórs Halldórsson-
ar, svohljóðandi:
„Orðin landkaup og landakaup
koma bæði fyrir í fornu máli, sbr.
orðabækur Johans Fritzners og
Guðbrandar Vigfússonar. Bæði
orðin merkja „kaup á landi", þó
getur landakaup einnig merkt
„skipti á landi“, sbr. hnífakaup.
Alkunnugt dæmi um landkaup er í
Laxdælu: „Bolli hafði landkaup í
Tungu að ráði Ólafs", sbr. íslenzk
fornrit V, 159.
Bæði orðin eru rétt mynduð
samkvæmt orðmyndunarreglum
ísl. tungu. Vera má, að andstaða
við orðið landkaup stafi af því, að
fólki finnist, að stofn orðs í
samsetningu geti aðeins átt við
eintölu. Ef menn leiða hugann að
orðum eins og fiskbúð kemur í
ljós, að það táknar ekki búð, þar
sem seldur er einn fiskur heldur
margir fiskar og meira að segja
margar fisktegundir.
Með orðinu kaup er hægt að
nota stofn sem fyrri lið í samsettu
orði, t.d. fiskkaup, ef. et., t.d.
fjárkaup, ef. flt., t.d. hrossakaup
og auk þess lýsingarorð, t.d. lausa-
kaup.
Til gamans mætti benda á, að
orðið landakaup mætti misskilja
sem „kaup á heimabrugguðu
áfengi".
Þá má og geta þess, að landsala
kemur fyrir í fommáli, en landa-
sala ekki, að því er séð verður af
orðabókum."
Nú er eftir að vita hvort ágrein-
ingur milli þingdeilda um orðin
landakaup og landkaup veldur
því, að þetta stjórnarfrumvarp
verður úti á ferðalagi milli þing-
deilda.
Opinber gjöld:
Innheimtuþóknun
til atvinnurekenda
Frumvarp um endurgjald fyrir
þjónustu við opinbera aðila
„Hvarvetna, þar sem atvinnu-
rekendum er með lagaboði gert
skylt að innheimta opinber
gjöld eða aðrar greiðslur hjá
starfsfólki sinu eða kaupendum
vóru þeirra eða þjónustu, skal
greiða þeim þóknun fyrir inn-
heimtuna er nemi 3% — þremur
af hundraði — af upphæð inn-
heimtra gjalda. Þóknunin
greiðist um leið og innheimtu-
fénu er skilað til réttra aðila,
enda sc það gert innan þeirra
tímatakmarka sem lögboðin
eru.“ Þannig hljoðar frumvarp
sem Friðrik Sophusson (S) hef-
ur flutt á Alþingi.
Hliðstætt frumvarp var flutt á
88. löggjafarþinginu af Skúla
heitnum Guðmundssyni, sem þá
var þingmaður Framsóknar-
flokks. Frumvarpinu var vísað
til ríkisstjórnar 16. apríl 1968, en
ekkert hefur gerzt í málinu
síðan. Helztu gjöld, sem atvinnu-
rekendur innheimta fyrir opin-
bera aðila, eru: útsvör launþega,
tekjuskattur launþega, sölu-
skattur, launaskattur, iðnað-
argjald, iðnlánasjóðsgjaid,
slysatryggingagjald, atvinnu-
leysistryggingagjald, lífeyris-
gjöld, sjúkrasjóðsgjöld og orlofs-
fé.
Þannig framkallast nýja Polaroid-litfilman sjálf á einni minútu —
og útkoman verður glögg mynd.
Ný litfilma frá Polaroid:
Myndin tilbúin
á einni mínútu
Augnabliksmyndatökur með
Polaroid-myndavélum vinna stöð-
ugt á vegna þess hversu skemmti-
legar þær eru. Um langt skeið
hefur verið unnið að endurbótum
á þeirri tækni sem bak við þessar
myndir liggur — bæði á mynda-
vélum og filmum — hjá Polaroid-
fyrirtækinu. og miklum fjármun-
um varið til rannsókna i þvi
skyni.
Á blaðamannafundi er Ljós-
myndaþjónustan sf., Laugavegi
178, efndi til fyrir skömmu var
kynnt nýjung frá Polaroid — hin
nýja Polaroid-litfilma „Supercol-
our time zero SX - 70“. Gafst
blaðamönnum kostur á að prófa
myndatökur með þessari nýju
filmu. „Supercolour time zero“-
litfilman er mjög nákvæm filma
sem framkallast á aðeins einni
mínútu — oger myndin hreinni og
skarpari með þessari nýju filmu
en áður hefur náðst í augna-
bliksmyndum. Neytendarannsókn-
ir bæði vestan hafs og austan sýna
að Polaroid-litmyndir hafa mjög
góða endingu.
Á blaðamannafundinum var
bent á að hægt er að láta gera
aukamyndir af Polaroid-litmynd-
um og er slík þjónusta hjá Ljós-
myndaþjónustunni sf. Þar fást
einnig albúm sem framleidd eru
sérstaklega fyrir Polaroid-lit-
myndir.
Þá var bent á að þótt margir litu
eflaust á Polaroid-litmyndatökur
sem beztu aðferðina til að skrá
sögu fjölskyldunnar þá bjóði þessi
Ijósmyndatækni uppá fjölmarga
aðra möguleika. Polaroid-myndin
sýnir t.d. glögg verksummerki:
Það er verið að gera skýrslu um
framvindu verks en vantar stað-
festingu. Það bilar eitthvað —
hversu mikið þarf að panta af
varahlutum? Bílar lenda í árekstri
— hversu mikið er tjónið?
Góð mynd segir oft meira en
mörg orð og því sparar Polaroid
bæði tíma og fyrirhöfn — ekki síst
vegna þess að í flestum tilvikum
tekur góð mynd af öll tvímæli.
Nú fást Poiaroid-myndavélar í
'X
Mats Wibe Lund ljósmyndari
sýnir blaðamönnum eina af
nýjustu Polaroid-myndavélun-
um. Þessi er með sjálfvirkri
fjarlægðarstillingu. innbyggð-
um sjálfvirkum Ijósmæli og
eilífðarflassi.
Ljósm. Kmilia.
mörgum verðflokkum — allt frá
ódýrum einföldum vélum upp í
nettustu „snobbvélar" sem brjóta
má saman og ekki taka meira
pláss en lítill vindlapakki. Er verð
á myndavélum frá 387 kr. til 2.317
kr. en á filmum frá kr. 80. Á
dýrari vélunum frá Polaroid er
sjálfvirk fjarlægðarstilling með
sónar — þ.e. hljóðbylgjuútbúnaði
er nær út fyrir tíðnissvið heyrnar
okkar. Þeim fylgir eilífðarflass og
í þeim er sjálfvirkur innbyggður
ljósmælir.
Ferðamannaþjónusta í Steinsstaðaskóla
ÁKVEÐIÐ hefur verið að hafa ferðamannaþjónustu í Steinsstaðaskóla i
Skagafirði 2 mánuði af þessu sumri. Er þar um að ræða svefnpokagistingu
og eldhúsafnot eða kaup á veitingum. Sundlaug hefur verið sett upp við
Ásgarð ásamt setlaug en baðklefar eru i félagsheimilinu. Tjaldstæði eru
fyrir hendi.