Morgunblaðið - 22.05.1981, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MAÍ1981
Minning:
Trausti Arnason
frá Patreksfirði
fríður Erlendsdóttir er þar
bjuggu. Var Trausti næst elstur 7
systkina.
Það kom fljótt í ljós að Trausti
var góðum gáfum gæddur, og því
var það foreldrum hans kappsmál
að hann fengi meiri menntun en
þá var títt, nema hjá þeim efna-
meiri. Við sem yngri erum eigum
oft erfitt með að gera okkur ljóst
hvert átak það hefur verið hjá
efnalitlum foreldrum með stóran
barnahóp að senda næst elsta
+
Sonur minn og bróöir,
ÞORBERGUR MAGNUSSON,
Þinghólsbraut 20, Kópavogi,
lézt miövikudaginn 20. maí.
Bergþóra Þorbergadóttir
og systkini hins lótna.
+
Maöurinn minn,
SIGURÐUR PÁLSSON,
Álfhólsvegi 151,
andaöist aö heimili sínu miövikudaginn 20. maí.
María Pólmadóttir.
+
Eiginmaöur minn, faöir okkar og tengdasonur,
ÁRNI PETURSSON,
(fæddur Ernest Miclalik)
Sæviðarsundi 30,
lést í Landakotsspítala 20. maí.
Lilja Huld Sævars,
ina Karlotta Árnadóttir,
Svava Kristín Árnadóttir,
Svava Sigurbjörnsdóttir.
+
Maöurinn minn og faöir,
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON,
veröur jarösunginn frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 23. maí kl. 2.
Vilborg Sæmundsdóttir,
Guömundur Jónatan Sigurósson.
+
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
ÞURÍDUR GUÐJÓNSDÓTTIR,
Faxastíg 37, Vestmannaeyjum,
sem lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 17. maí, veröur jarösungin
frá Landakirkju laugardaginn 23. maí kl. 4 eftir hádegi.
Inga Magnúsdóttir, Ragnar Björnsson,
Guöjón Magnússon, Anna Grímsdóttir,
Jóna Óskarsdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum öllum nær og fjær samúö og hlýhug viö andlát og útför
eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
GUDRÍOAR JÓNSDÓTTUR,
Hátúni 10 B.
Halldór Jónsson,
Jón Halldórsson, Margrét Þorsteinsdóttir,
Gumundur Halldórsson, Halldóra Valdimarsdóttir,
Ingibjörg Halldórsdóttir, Elsa Halldórsdóttir.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og jaröarför
GUDLAUGARJÓNSDÓTTUR,
fyrrum húsfreyju aó Galtastööum.
Erlingur Guðmundsson,
Guðmundur Erlingsson, Virginia Erlingsson,
Arndís Erlingsdóttir, Brynjólfur Guómundsson,
Sigurjón Erlingsson, Guölaug Siguróardóttir,
Árni Erlingsson, Sigríöur Sæland
og barnabörn.
Fæddur 13. október 1913.
Dáinn 19. maí 1981.
Mínir vinir íara fjold
fcÍKdin þessa heimtar kold
éK kem eftir. kannski i kvold.
(Bolu-IIjálmar).
í dag fer fram kveðjuathöfn í
Fossvogskirkju um tengdaföður
minn, Trausta Árnason frá Pat-
reksfirði. Hann fæddist 13. októb-
er 1913 að Hnjóti í Örlygshöfn við
Patreksfjörð. Foreldrar hans voru
hjónin Árni Magnússon og Arn-
soninri að heiman til náms og það
á kreppuárunum og árunum þar á
eftir. Til þess að svo mætti verða
hefur bæði þurft fórnfýsi foreldra
og systkina.
Trausti lauk prófi frá Sam-
vinnuskólanum 1933 og strax á
eftir fer hann til Svíþjóðar til
framhaldsnáms og líkur prófi frá
Bar-Lock-Institutet Stokkhólmi
með ágætis vitnisburði. Þegar
Trausti kom heim frá Svíþjóð fær
hann vinnu við verzlunarstörf í
Stykkishólmi sem þá var mikið
uppgangspláss. í Stykkishólmi
kynnist hann sínum lífsförunaut,
Sigríði Olgeirsdóttur, en hún var
dóttir Olgeirs M. Kristjánssonar
skósmiðs og konu hans, Unu
Guðmundsdóttur.
Trausti og Sigga gengu í hjóna-
band 14. des. 1935 og stofnuðu sitt
fyrsta heimili á Hellissandi 1936.
Trausti og Sigga eignuðust 8 börn
og eru sjö þeirra á lífi. Auk þess
ólu þau upp fósturson. Börn
Trausta og Siggu eru: Una búsett í
Reykjavík, gift Gesti Guðjónssyni
kaupmanni, Fríða búsett í Kefla-
vík, gift Jóhannesi Helgasyni út-
varpsvirkja, Borghildur búsett í
Hveragerði, gift Sigurði Magnús-
syni vélvirkja, Svanhildur búsett í
Reykjavík, gift undirrituðum,
María Olga búsett á Selfossi, gift
Bjarna Þórhallssyni skósmið,
Charlotta búsett á Skagaströnd,
gift Magnúsi Sigurðssyni vél-
stjóra, Árni, tæknifræðingur, bú-
settur á Isafirði, kvæntur Kristínu
Gísladóttur og Unnar Geir, raf-
virki, búsettur í Reykjavík, heit-
bundinn Sveinborgu Ólsen.
Trausti og Sigga bjuggu lengst
af á Patreksfirði eða í 29 ár. Kynni
mín af þeim hjónum hófust 1957
er ég réðist loftskeytamaður á b/v
Ólaf Jóhannesson frá Patreksfirði.
Fyrirtækið Verzlun Ólafs Jóhann-
essonar gerði þá út tvo togara,
Ólaf Jóhannesson og Gylfa, og var
Trausti bókari hjá fyrirtækinu. Á
þeim 24 árum sem síðan eru liðin
er margs að piinnast. Á heimili
tengdaforeldra minna var gott að
koma, því kærleikar miklir ríktu
þar og þar var ávallt glatt á
hjalla. Þau hjónin sóttust ekki
eftir þeim gæðum sem dauðir
hlutir veita og allt virðist snúast
um nú til dags. Þau voru ánægð að
geta séð fyrir barnahópnum sín-
um og skaffað honum gott heimili.
Ég minnist þess ekki að hafa
nokkurn tíma hvatt þeirra heimiii,
án þess að vera í betra skapi þegar
ég fór en þegar ég kom. Trausti
átti viðburðaríka ævi, sem meðal
annars var fólgin í þeim marg-
brotnu störfum sem hann tók að
sér um æfina. Hann var verka-
maður, togarasjómaður, verzlun-
armaður, kaupfélagsstjóri, bókari,
kennari, og síðustu 6 árin á
Patreksfirði var hann fulltrúi
sýslumanns. Einnig vann hann
mörg önnur störf sem hann var
Minning: ^
Ragnar Ásgeirs-
son héraðslœknir
Á kveðjustund kærs vinar, ber
hæst minningin um hjartahlýja
lækninn, er aldrei brást skjólstæð-
ingum sínum, og var þá glaðastur
ef vel tókst til um lækningu,
jafnframt því sem hann tók nærri
sér ef ekki var hægt að hjálpa.
Hann var fæddur með líknar
hendur, og alla starfsævina færðu
farsæl læknisstörf hans honum
ótal vini þakklátra sjúklinga, sem
dáðu hann að verðleikum.
Ragnar Ásgeirsson var fæddur
á Sólbakka við Önundarfjörð 14.
des. 1911. Faðir hans var Ásgeir
Tcyfason skipstjóri og síðar verk-
smiðjustjóri að Sólbakka, f. 13.
des. 1877, d. 1. maí 1955. Móðir
hans Ragnheiður Eiríksdóttir
fylgir nú syni sínum til grafar í
dag á nítíu ára afmælisdegi sín-
um. Hjónin Ragnheiður og Ásgeir
bjuggu allan sinn búskap að Sól-
bakka. Sólbakkaheimiiið var róm-
að um allar nærsveitir, ekki fyrir
að þar væri auður í garði, heldur
fyrir hjartahlýju og gestrisni ein-
staklega samhentra hjóna. Ragn-
ar hefir mótast af anda þessa
menningarheimilis, reyndar
braust hann til mennta af litlum
veraldlegum efnum, en því meiri
kjarki og dugnaði. Hann lauk
stúdentsprófi frá MA í júní 1933
og læknaprófi frá Háskóla íslands
1940. Héraðslæknir fReykjafjarð-
arhéraði til 1943. Héraðslæknir á
Flateyri 1943 til 1950. Héraðs-
læknir á ísafirði frá 1950 til 1977.
Eftir að Ragnar kom til Flat-
eyrar, sem héraðslæknir, tók hann
virkan þátt í sveitarstjórnarmál-
um, og var oddviti hreppsnefndar
1946 til 1950. Hann átti einnig
sæti í stjórn Kaupfélags Önfirð-
inga og stjórn Kaupfélags ísfirð-
inga eftir að hann flutti til
Isafjarðar.
Sem að líkum lætur átti Ragnar
stóran hlut að framfaramálum á
Flateyri, svo sem byggingu hafn-
armannvirkis, rafmagnsveitu og
sjúkraskýlis, auk þess sem hann
stpddi menningar og menntun-
armál af miklum dugnaði. Kom
þar bersýnilega í ljós velviljinn til
samferðamannanna og byggðar-
lagsins, er hann lagði á sig lítt eða
ólaunuö störf í þágu sveitarfélags-
ins, til viðbótar erilsömu læknis-
starfi.
Þótt ekki sé lengra um liðin en
rúm 30 ár, þá var um margt
erfiðara en í dag um störf héraðs-
lækna úti á landsbyggðinni. Auk
Flateyrarhéraðs, þjónaði Ragnar
Súgandafirði, og voru þær margar
ferðimar, sem hann fór fótgang-
andi yfir Klofningsheiði.oft í
ófærð og byl. Kom þá fyrir að
botnlangaskurður á eldhúsborði
beið göngumóðs læknisins eða
álíka aðgerðir, sem með aðstoð
ljósmóður eða handlaginna hús-
+
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og úttör sonar okkar,
fööur, bróöur og mágs,
RAGNARS S. RAGNARSSONAR
vélstjóra,
Otrateigi 20.
Sigríöur E. Jónadóttir, Ragnar B. Henrysson,
Sandra Björk Ragnarsdóttir,
Páll Ragnarsson,
Jón Ingi Ragnarsson, Ingibjörg Torfadóttir,
Arnheióur Ragnarsdóttir.
settur í, svo sem fasteignamat og
endurmat fasteigna. Hann var
fréttaritari Morgunblaðsins í
fjölda ára enda mikill sjálfstæðis-
maður og vann vel fyrir sinn
málstað.
Eitt sinn spurði Trausti mig að
því hvort ég ætlaði ekki að fara að
hætta til sjós. Ég svaraði því til í
gríni að það hefði alltaf þótt
dyggð að tolla lengi á sama stað og
yrði ég trúlega ellidauður á tog-
ara. Hann hló og sagði: Það má vel
vera að það sé dyggð, en ég hef
alltaf haft yndi af því að takast á
við ný og ný verkefni, og alltaf
slegið til ef það hefur ekki þurft að
koma niður á fjölskyldunni.
Trausti átti við vanheilsu að
stríða síðustu 4 árin, en var nú
búinn að ná sér, og þá var ekki að
sökum að spyrja, hann dreif sig út
á sjó sem háseti á síðutogara.
Trausti var alsæll er hann kom úr
fyrsta túrnum og sagði þá við mig
hreykinn: Nú er gamli maðurinn
kominn aftur út á vinnumarkað-
inn. Nokkrum dögum seinna varð
hann fyrir því slysi í umferðinni,
sem dró hann til dauða. Trausti
missti konu sína 27. sept. 1978.
Hún var jarðsett í kirkjugarðinum
á æskustöðvunum í Stykkishólmi
og þar verður Trausti jarðsettur
við hlið konu sinnar, laugardaginn
23. maí.
Afkomendur þessara heiðurs-
hjóna eru nú orðnir 43. Guð blessi
börnin þeirra, barnabörnin, og
barnabarnabörnin, og styrki þau í
sorg þeirra. En minningin lifir,
far þú í friði, friður guðs þig
blessi, hafðu hjartans þökk fyrir
allt.
-Aí eilífðarljósi bjarma ber.
sem brautina þunKU Kreióir.
Vort líf sem svo stutt ok stopult er.
það stefnir á æóri leiðir
ok upphiminn feKri en auKa sér
mót óllum oss faAminn breidir.**
(E. Ben.)
Ósvald Gunnarsson
mæðra tókst að framkvæma. Eins
sóttu bæði innlendir og erlendir
togarar mikið til Flateyrar með
slasaða menn, og varð þá oft að
framkvæma erfiðar aðgerðir við
léleg skilyrði. Þá rcyndi á farsæl-
ar líknarhendur Ragnars, sem
leystu hverja raun.
Ragnar kvæntist Laufey
Maríasdóttur 4. júní 1938. Börn
þeirra eru: Ragnheiður Ása gift
W. Anderson arkitekt í Bandaríkj-
unum. María sjúkraþjálfari. Ei-
ríkur félagsráðgjafi kvæntur Reg-
inu Höskuldsdóttur, Þórir Sturla
læknir, kvæntur Sigríði Hjalta-
dóttur meinatækni.
Árið 1977 lamaðist Ragnar af
völdum heilablæðingar, og hefir
verið rúmliggjandi sjúklingur á
sjúkrahúsum þar til hann lést 16.
maí sl. Laufey flutti hingað til
Reykjavíkur, er Ragnar veiktist,
og hefur annast hann af sérstakri
umhyggju, eins hafa börn hans öll,
sem eru hér búsett, og tengdadæt-
ur verið Ragnari afar umhyggju-
söm í veikindum hans.
Þakka ber læknaliði og sjúkra-
hússtarfsfólki Landspítalans og
Vífilstaða sérstaka umönnum og
velvild við Ragnar á langri sjúkra-
legu.
Það er gæfa að hafa kynnst og
verið samtíða öðlingi, sem Ragn-
ari Ásgeirssyni, hugljúf minning
um góðan dreng, sem í engu mátti
vamm sitt vita, geymist okkur sem
eftir lifum.
Aldraðri móður, eiginkonu,
börnum og systkinum færi ég
innilegustu samúðarkveðjur.
Magnús Konráðsson