Morgunblaðið - 22.05.1981, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MAÍ1981
29
Hægt að silkiprenta
eða sauma þessa fána
G.S. skrifar:
„Mig langar til að beina því til
forráðamanna þjóðhátíðar, þó að
snemmt sé, hvort ekki sé hægt að
hætta söiu á þessum litlu bréf-
fánum sem seldir hafa verið hér á
sumardaginn fyrsta og 17. júní.
Það er hreinasta skömm af því
að sjá þessa fána liggjandi rifna
um allar trissur á þessum dögum,
og ekki er það til að ala á virðingu
á meðal barna og unglinga fyrir
þessu sameiningartákni okkar, að
hægt sé að fara með fánann eins
og hvert annað rusl. Ég minnist
þess að hér á dögunum var hægt
að kaupa taufána sem að börnin
báru virðingu fyrir, geymdu allt
árið og notuðu aftur og aftur við
þau tækifæri sem við áttu.
Ekki er ráð nema
í tíma sé tekið
Þó að stefnan í dag sé að gera
aila hluti einfalda og ódýra, þá
eru þeir hlutir til sem gera verður
vissar gæðakröfur til. Ég er viss
um að hægt er að silkiprenta eða
sauma þessa fána þannig að
viðráðanlegt verði fyrir alla að
fjárfesta í þeim. En ekki er ráð
nema í tíma sé tekið og bezt er að
byrja að undirbúa þetta strax.
Komum okkur upp
fánastöng fyrir sumarið
Jafnframt langar mig til að
minnast á fánastengur við
heimahús. Það virðist á seinni
árum hafa dofnað áhuginn fyrir
því að flagga og fagna þannig
sameiginlega þeim dögum sem
fagna ber, það virðist ekki vera
fánastöng við þau hús sem byggð
hafa verið síðustu 20 árin. Væri
ekki ráð, að við kæmum okkur
upp fánastöng fyrir sumarið."
Er þetta svar
Morgunblaðsins?
Þessir hringdu . .
Viltu birta
kvæðið sem
Svavar Gests las
Sif A. Ólafsson hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Miðviku-
daginn 13.5. las Svavar Gests
kvæði í útvarpsþætti þeim er hann
stjórnar og fjallaði það um konur,
hvernig þær væru, eftir því í
hvaða mánuði þær væru fæddar.
Ég er viss um að einhver lesenda
þinna kannast við þetta kvæði og
kann það. Viltu gjöra svo vel að
birta það, mér og öðrum til
fróðleiks og skemmtunar. Ég
sendi Svavari Gests kveðju mína,
hann er frábær útvarpsmaður.
Svavar Gests
Hví ekki hjól-
reiðabrautir?
Gömul kona hringdi og kvaðst
vera eindregið á móti því að leyfa
hjólreiðar á gangstéttum. — Mér
finnst nóg sem er fyrir okkur
gamla fólkið að komast áfram í
umferðinni, þó að þetta eigi nú
ekki líka yfir okkur að ganga. Hví
eru ekki afmarkaðar hjólreiða-
brautir á götunum og nýjar götur
gerðar með tilliti til þessa? Ég
þakka fyrir meðan ég treysti mér
til að stjákla eitthvað um, a.m.k.
það nauðsynlegasta, en mér líst
ekki á blikuna ef misjafnlega
aðgætnir eða glannafengnir hjól-
reiðamenn fá að leika lausum hala
innan um okkur gangandi vegfar-
endur.
K. skrifar:
„Ágæti Velvakandi!
Með örfáum línum vil ég óska
Morgunblaðinu til hamingju með
að það er tekið til við að misnota
leiðaralesturinn í útvarpinu á
morgnana. Það vakti athygli mína
að morgni fimmtudagsins 21. maí,
að þá var lesið úr þremur leiður-
um Morgunblaðsins, þegar aðeins
tveir birtust í blaðinu sjálfu. Er
þetta svar blaðsins við því, að
svokölluð helgarblöð Alþýðublaðs-
ins, Tímans og Þjóðviljans hafa að
geyma tvo leiðara, og er annar
lesinn á laugardegi, þegar blöðin
koma út en hinn á sunnudegi,
þegar ekkert þessara blaða kemur
út? Hvers vegna skrifið þið Morg-
unblaðsmenn ekki tvo leiðara í
sunnudagsblaðið ykkar, svo að þið
komist að í útvarpinu á mánu-
dagsmorgnum?"
S\GGA V/GGA í iiLVtmi
Hef mikið spurt
og leitað
Þegar ég var barn að aldri,
lærði ég sálm af aldraðri konu,
sem fædd var 1879. Hann byrjar
að ég held svona:
Af barnanna munni þii hjónt þúr hrw
ok húiú að lofxjórð hefur.
Þú Drottinn ert...
ok likn þina oss ollum |{efur.
Ég hef mikið spurt og leitað, en
enginn hefur getað hjálpað mér
með framhaldið eða sagt mér hver
er höfundur sálmsins.
BNSTAKT
TÆKIFÆRI
Serlega góöur Körfubíll til sölu
Simon D56 17.07 m vinnuhæö lyftigeta 230 kg.
Stuttur afgreiðslufrestur
Verö 259.634.-. meö söluskatti
Allar nánari upplýsingar hjá
RÁLMASON &VALSSON HF.
KLAPPARSTÍC 16 S. 27745
S40RGUNBLAÐI0M0R
MORGUNBLAÐIÐMOR
MORGUI^LAOIÐMQ!?
MORGUy
MORGl/ £
MOR(
MOW
Moe<
m\
MC\
MO>
MOF\
MORC
MORGM
MORGj)
M«r
M(l
M0
MO
MORfj
MOR,
MOF/ /
MOfM
MO
Mén
MORGUfiá!
MORGUNB!
MORGUNBLA
Blað-
burðar-
fólk
óskast
Úthverfi
Smálönd
MOMORGUNBLAÐlU
QMORGUNBLAÐIÐ
y/-—^SGUNBLAÐIÐ
LNBLADID
JLAÐIO
IBLADID
'ALAOIÐ
-\.AÐIÐ
(ÐIÐ
^XÐID
?DIÐ
SðLAÐIO
\-AÐIO
IlÐIO
)IO
IÐIÐ
)IO
)ID
DIÐ
£ \\OIÐ
OIÐ
Hringiö í síma
35408
MORGUNBLAÐIÐMb^ ÍNBLAÐIÐM(
^iCvOIO
^BLAOIO
^LAOIO
tíbladid
^JNBLAOIO
ZiUNBLAÐIÐ
(gunblaðið
IGUNBLAÐIÐ
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
\l (il.YSINf, \-
SIMINN ER:
22480