Morgunblaðið - 22.05.1981, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1981
31
ímmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Jón Gunnarsson í Val
MARKVÖRÐURINN snjalli. Jón
Gunnarsson. sem leikið hefur
með Fylki siðustu ár. hefur nú í
hyiíJíju að tilkynna félajjaskipti
og jjanjía til liðs við Val. Þá mun
Stefán Gunnarsson er þjálfaði lið
Fylkis síðasta keppnistimabii
j'anj'a aftur yfir í sitt gamla
félají ojí hefja æfinj;ar þar á
nýjan leik.
Sigurður áfram
hjá Leverkusen
í fyrrakvöld var gengið frá því
að Sigurður Gunnarsson mun
leika áfram í Vestur-Þýskalandi
hjá Leverkusen. Sigurður skrifaði
undir samning við félagið í eitt ár
til viðbótar. Sigurður mun vera
búinn að ná sér að fullu eftir þau
slæmu meiðsl sem hann hlaut í
vetur.
Guðmundur í FII
Fyrrum Valsmaður í knatt-
spyrnu, Guðmundur Kjartansson,
hefur tilkynnt félagaskipti yfir í
FH. Guðmundur, sem lék með
meistaraflokki Vals fyrir tveimur
árum hefur dvalið við nám í
Bandaríkjunum en er nú alkominn
heim. FH bætist þarna góður
liðsauki.
- ÞR.
IBK hafði al-
gera yfirburði
ÍBK SÝNDI meistaratakta. er
liðið gersigraði Hauka. 6—1, á
grasvellinum á Hvaleyrinni í
gærkvöldi. Liðin leika sem kunn-
ugt er í 2. deild. Yfirburðir ÍBK
voru algerir á öllum sviðum og
leikmenn liðsins gerðu nánast
það sem þá lysti á vellinum. Allt
heppnaðist og í hálfleik var
staðan 3—0. Sigurinn hefði hæg-
lega getað orðið miklu stærri.
Bailey í hópinn
GARRY Bailey. hinn kornungi
markvörður Manchester Utd..
var í gær valinn í 22 manna
landsliðshóp Englands fyrir kom-
andi HM-leiki gegn Ungverja-
landi og Sviss. Leikirnir fara
fram 30. maí og 6. júní. Bailey
hefur leikið sex sinnum með
landsliði Englands skipuðu leik-
mönnum 21 árs og yngri, einnig
tvo leiki með B-landsliði Eng-
lands.
Leikurinn var ekki gamall, er
Ómar Ingvarsson skoraði fyrsta
markið fyrir IBK og um miðbik
hálfleiksins bætti gamla kempan
Steinar Jóhannsson öðru marki
við. Reyndar hafði hann ekki sagt
sitt síðasta orð, því undir lok fyrri
hálfleiks var hann aftur á ferðinni
með þriðja mark ÍBK.
Mörkin héldu áfram að hlaðast
upp í síðari hálfleik, staðan
breyttist í 5—0 og það er kannski
mest í frásögur færandi, að
markvörður ÍBK, Þorsteinn
Bjarnason, skoraði sjötta markið
úr vítaspyrnu. Lárusi Jónssyni
tókst að minnka muninn undir lok
leiksins, en það var auðvitað fyrir
löngu orðið of seint að ætla að
þrengja að ÍBK.
Lið ÍBK lék þennan leik afar vel
og er greinilegt að liðið verður
sterkt í 2. deildar keppninni í
sumar. 4 stig eru þegar komin í
sarpinn eftir tvær umferðir.— þr.
Aöstaöan best í Kópavogi
FYRIR nokkru útnefndu
Samtök íþróttafréttamanna
vinnuaðstöðuna á grasvell-
inum við Fífuhvammsveg í
Kópavogi þá bestu á land-
inu. Er aðstaðan á Kópa-
vogsvellinum í raun sú eina
sem talist getur fyllilega
boðlcg. Eiga þeir Kópavogs-
húar þakkir skildar fyrir að
gera fréttamönnum kleift að
stunda vinnu sína við eðli-
legar aðstæður. Viðast hvar
á landinu er vinnuaðstaða
íþróttafréttamanna bágbor-
in og sums staðar fyrir
neðan allar hellur, jafnvel
að því marki, að sambæri-
legt þekkist varla nokkurs
staðar I Evrópu.
Þetta er Ben Plucknett, sem setti nýtt og glæsilegt heimsmet i
kringlukasti fyrir skömmu. Þessi símamynd frá AP er tekin einmitt
er hann náði risakasti sinu, 71,18 metra. Mótið sem Plucknett keppti á
fór fram i Modesto i Kaliforniu.
Gunnar Gislason brýst fram hjá Sigurði Péturssyni og Sæbirni Guðmundssyni. Ljosm. Krístján.
Dýrkeypt mark færði
KA sinn fyrsta sigur
KA VANN sinn fyrsta sigur á 1.
deildar vertiðinni i knattspyrnu í
gærkvöldi. er liðið lagði KR að
velli á Melavellinum. Lokatölur
urðu 1—0 fyrir KA og skoraði
Hinrik Þórhallsson sigurmarkið
5 minútum fyrir leikslok. Markið
var dýrkeypt. því Hinrik hljóp
um leið i slæmt samstuð við
úthlaupandi markvörð KR-inga,
sem freistaði þess að bjarga með
afar glannalegu úthlaupi. hljóp á
Hinrik vel fyrir utan vitateig
EINKUNNAGJÖFIN
Lið KR:
Stefán Jóhannsson 6
Jósteinn Einarsson 4
Sigurður Pétursson 6
Börkur Ingvarsson 5
Sigurður Björnsson 4
Birgir Guðjónsson 4
Atli Þór Héðinsson 3
Sæbjörn Guðmundsson 5
Davið Skúlason 3
Óskar Ingimundarson 4
Hálfdán örlygsson 3
Snorri Gissurarson vm. 4
Sigurður Indriðason vm. 4
Lið KA:
Aðalsteinn Jóhannsson 6
Sigurður Þórarinsson 6
Guðjón Guðjónsson 6
Haraldur Ilaraldsson 6
Erlingur Kristjánsson 6
Gunnar Gíslason 7
Eyjólfur Ágústsson 5
Pálmar Örlygsson 4
Ásbjörn Björnsson 7
Hinrik Þórhallsson 5
Friðfinnur Hermannsson 4
Fer Robson til
Manch. Utd?
BOBBY Robson. hinn kunni
framkvæmdastjóri knattspyrnu-
liðsins Ipswich Town, gerir um
þessar mundir upp hug sinn
hvort hann eigi að endurnýja
samning sinn við félagið, sem
hann er nýbúinn að stýra til
sigurs i UEFA-keppninni. eða að
freista gæfunnar annars staðar.
Forráðamenn Ipswich hafa lagt
hart að hunum að endurnýja
samning sinn. en Robson gengur
einnig með góð tilboð i vasanum
frá Manchester Utd. og Sunder-
land.
KR-KA 0-1
sinn. Var Hinrik borinn af leik-
velli og gat því ekki glaðst sem
skyldi yfir afreki sinu.
Enginn skyldi halda að KA hafi
unnið þarna heppnissigur og
benda á um leið hve skammt var
til leiksloka er markið leit dagsins
ljós. Sannleikurinn var nefnilega
sá, að markið hefði fyrir löngu átt
að vera komið, svo miklu sterkari
voru KA-menn í leiknum. Þeir
léku stórkarlalega knattspyrnu,
enda stórir og sterkir. KR-ingar
voru hins vegar að „dúlla“ með
knöttinn oftast nær á eigin vallar-
helmingi. Ætlunin hefur líklega
verið að ná nettum og beittum
sóknarleik sem byggðist á stuttum
sendingum. Utkoman var hins
vegar allt önnur og undirritaður
sá KR-inga aldrei leika knatt-
spyrnu í leiknum. Þrjar-fjórar
sendingar samherja á milli var
það mesta sem liðið kreisti út úr
aðgerðum sínum. KA-menn slógu
KR-inga gersamlega út af laginu
með krafti sínum og ákveðni, þeir
ALBERT Guðmundsson og félag-
ar hans hjá kanadíska knatt-
spyrnufélaginu Edmonton Drill-
ers, fengu slæman skell. er liðið
ma'tti Seattle Sounders í amer-
ísku knattspyrnunni. Seattle
sigraði 7—0 og áttu borkarlarnir
ekkert svar. Fyrri hálfleikur var
markalaus (!) og það var ekki
fyrr en á 56. rninútu. að Seattle
hraut ísinn með marki Mark
I’eterson. Hann skoraði alls tvö
mörk í leiknum. Shaun Elliott
(Sunderland) skoraði einnig tvi-
voru fljótari í alla bolta og í
návígum höfðu þeir undantekn-
ingalitið knöttinn með sér.
En knattspyrnan var ekki upp á
marga fiska, mest kýlingar út í
allar áttir, ekki síst út fyrir
hliðarlínurnar. Voru aðdáendur
KR orðnir svo hvekktir á sínum
mönnum áður en yfir lauk, að
óprenthæft er margt af því sem
slengt var fram. Tækifæri til að
skora voru ekki mörg, KA-menn
fengu þrjú fyrir utan það sem þeir
skoruðu mark sitt úr. Tvívegis
bjargaði Stefán markvörður
meistaralega frá Ásbirni Björns-
syni og einu sinni þrumuskoti frá
Gunnari Gíslasyni. KR-ingar
fengu tvö færi þrátt fyrir doðann,
Óskar eitt í lok fyrri hálfleiks og
Sæbjörn annað á 75. mínútu.
Aðalsteinn markvörður afgreiddi
Sæbjörn, en Óskar var hlynntari
sjálfsafgreiðslu, brenndi af.
Gunnar Gíslason og Ásbjörn
Björnsson voru bestu menn KA,
en enginn brást og vörnin öll var
mjög sterk. Hinrik átti einnig
góða spretti og sýndi fórnfýsi er á
reyndi. KR-liðið er fljótafgreitt,
aðeins Stefán markvörður og Sig-
urður Pétursson stóðu eitthvað
upp úr svo að heitið gat. —gg.
vegis og þeir Jeff Bourne (áður
Derby). Stan Cummins (Sunder-
land) og Kevin Bond (Norwich)
komust einnig á blað.
Aðalfundur
knattspyrnu-
þjálfara
AÐALFUNDUR knattspyrnu-
þjálfarafélagsins verður haldinn
í kvöld kl. 20.30 að nótel Esju.
Mætið allir. Stjórnin.
Þjálfari óskast
til 3ju deildar liðs Reynis Sandgerði í handknatt-
leik. Æskilegt aö hann sé einnig leikmaður.
Upplýsingar veita Heimir Morthens, sími 92-7600
og Grétar Mar Jónsson, sími 92-7473.
Edmonton fékk slæma útreið