Morgunblaðið - 28.05.1981, Page 3

Morgunblaðið - 28.05.1981, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ1981 3 ASÍ og Vinnuveitendur sameinast um faglega rannsókn: Víðtæk könnun á þátt- um vinnumarkaðarins Kjararannsóknanefnd sem starf- ar á vegum vinnuveitenda og ASÍ stendur nú fyrir viðtækri könnun á ýmsum þáttum vinnumarkaðarins sem vakið hafa spurninxar við gerð kjarasamninga. Hér er um að ræða einhverja umfangsmestu könnun sinnar teg- undar, sem farið hefur fram hér á landi, en hún tekur til u.þ.b. 4000 fyrirtækja og einstaklinga í at- vinnurekstri víðs vegar um landið eða allra félagsmanna innan Vinnu- veitendasambands íslands og Vinnumálasambands samvinnufé- laganna. Áætlað er að könnunin „ÞESSAR verðhækkanir á Banda- ríkjamarkaði einar sér hafa ekki áhrif á kaup fólks hér því við- skiptakjörin skipta ekki máli í útreikningi vísitölu, en þetta bætir stöðu þjóðarbúsins og styrkir um leið okkar stöðu varðandi væntan- lega kröfugerð í launamálum," sagði Ásmundur Stefánsson for- seti ASÍ í samtali við Mbl. í gær aðspurður um mat á áhrifum fiskverðshækkana í Bandaríkjun- um á viðskiptakjör á íslandi og kaup almennt. Þorsteinn Pálsson hjá Vinnuveitendasambandi ís- lands sagði af sama tilefni að þessi verðhækkun væri mikil og jákvæð, en það væri spurning hve örugg hún væri. „Hún er þó ekki það mikil að hún breyti stöðunni varðandi næstu kjarasamninga," sagði Þorsteinn, „en þetta hjálpar til að minnka tapið í fiskvinnsl- Nær til um 40 þús. launþega á landinu taki til um 40 þús. launþega í þjónustu þessara aðila. Meginmarkmið þessarar könnun- ar er að eyða óvissu og ágreiningi aðila vinnumarkaðarins um ýmis þau mál sem hvað oftast er fjallað um við gerð kjarasamninga. Þau atriði sem tvímælalaust má telja mikilvægast að afla upplýsinga um, varða vægi einstakra starfa og starfsaldur meðal verkafólks. Spurningar um þessa þætti eru unni þótt það dugi ekki sem grundvöllur að kauphækkun í samningum." „Það er augljóst mál að staða viðskiptakjara er mælikvarði á kaupmátt útflutningsins og það þýðir að þegar verð á okkar útflutningsafurðum hækkar," sagði Ásmundur, „þá getum við borgað fyrir meiri innflutning. Þetta eykur því þjóðartekjur og styrkir efnahaginn. Bæði verð- hækkunin og gengisþróunin hafa verið okkur hagstæðar þar sem innflutningurinn er að mestu leiti frá Evrópu og útflutningurinn á þessu sviði til Bandaríkjanna. I stuttu máli styrkir þetta stöðuna almennt þótt það komi ekki fram í hækkuðu kaupi, en þótt hækkunin styrki kröfugerð okkar styrkir hún fyrst og fremst sjávarútveginn.“ stofn könnunarinnar. Jafnframt er í könnuninni m.a. aflað upplýsinga um eftirfarandi atriði: Tíðni hluta- starfa, kyn, fag- eða sérhæfingu, stéttarfélag, vinnufyrirkomulag, launa- og vaktakerfi og bónusvinnu. Þeir Þorsteinn Pálsson frá Vinnu- veitendasambandi íslands, Ás- mundur Stefánsson frá Alþýðusam- bandi Islands og Júlíus Kr. Valdi- marsson hjá Vinnumálasambandi Samvinnufélaganna sögðu á fundi með blaðamönnum í gær að þessi könnun færi fram í algjörum trún- aði og væri mikilvægt að vinnuveit- endur sem fylla út gögn varðandi hvern starfsmann skiluðu fljótt gögnum sínum svo unnt reyndist að hafa niðurstöður til hliðsjónar í næstu kjarasamningum. Þeir félag- ar kváðu þessa könnun gerða til þess að aðilar samninga fengju betri vitneskju um þau atriði sem semja ætti um og með því móti væri stuðlað að því að leysa ágreinings- mál þeirra, en þessi könnun spannar allan almennan vinnumarkað á Is- landi. Eyðublöð voru send út vegna vinnumarkaðskönnunarinnar um sl. mánaðamót og hafa viðbrögð fyrir- tækja verið góð nú þegar og mikill fjöldi svara hefur borist, en könnun- in er að öllu leyti á vegum Kjara- rannsóknanefndar og sér hún um alla úrvinnslu upplýsinga. Kváðu þeir Þorsteinn, Ásmundur og Júlíus mikilvægt í þessari könnun að allir sem til hefði verið leitað, svöruðu spurningunum. Sektaður fyrir of háa álagningu KVEÐINN hefur verið upp dómur hjá Sakadómi Reykjavíkur i máli stórkaupmanns er verðlagsstofnun kærði fyrir of háa álagningu á úlpur. Var hann dæmdur i 5.000 króna sekt og til upptöku á ólögleg- um ávinningi, rúmlega 106 þúsund krónur. Að sögn Sverris Einarssonar, er kvað upp dóminn, kærði Verðlags- stofnun umræddan kaupmann fyrir að vera með of háa álagningu á kuldaúlpur og var dómur þessi kveðinn upp hinn 18. maí sl. að undangenginni rannsókn. „Hjálpar til að minnka tapið í fiskvinnslunni,“ segir Þorsteinn Pálsson hjá VSI Verðhækkanirnar á Bandarikjamarkaði: „Styrkir stöðu ASÍ í væntanlegri kröfugerð * r segir Asmundur Stefánsson hjá ASI Jens Bing forstjóri Storm P.-safnsins og Ann Sandelin forstöðu- maður Norræna hússins. Ljósmynd Mbi. Ói.K.M. Sýning á skopmynda- teikningum Storm P. hefst í Norræna húsinu á laugardaginn LAUGARDAGINN 30. maí verð- ur opnuð sýning í Norræna hús- inu á skopmyndateikningum danska skopteiknarans Storm P. og mun sýningin verða til 21. júni og opin daglega frá kl. 14 — 19. Sýningin skiptist í tvo hluta: Uppfinningar Storm P. en það eru Ein af teikningum Storm P. Það er erfiðara og erfiðara að skrifa draugasogur sem fá hár- in til að rísa. Þessi mekanismi hjálpar til við að ná fram hrolli hjá lesandanum. ískaka niður hálsmálið ætti að ná fram þeim áhrifum. ailskonar tækniundur gerð til að losa manninn við jafnvel hin minnstu vandamál og svo Börn og dýr en það eru teiknimyndasög- urnar, barnabókaskreytingarnar og vatnslitamyndir í hinum barnalega stíl Storm P. Storm P.-safnið á Friðriksbergi við Kaupmannahöfn var svo vin- samlegt að lána þessa sýningu hingað. Jens Bing forstjóri safns- ins, kom með sýninguna til íslands og setti hana upp. Storm P. eða Robert Storm Pet'ersen fæddist í úthverfi Kaup- mannahafnar árið 1882 eða fyrir næstum 100 árum síðan. Faðir hans var slátrari og eins og gekk og gerðist á þeim tíma vildi faðirinn að sonurinn tæki við fyrirtækinu eftir sinn dag. En slátraraiðnin átti ekki við hinn unga Storm, hann vildi verða listamaður. Skömmu eftir aldaótin hóf hann störf sem leikari og blaðateiknari. Hann kom víða við á listaferli sínum, lék m.a. í fyrstu þöglu kvikmyndum Dana, skrifaði smá- sögur, málaði o.fl. Hann var þó einkum þekktur sem teiknari. Þekktustu teiknisögur hans eru „De 3 smá mænd“ og „Nummer- 4nanden“ frá 1913, „Peter og Ping“ frá 1923 en sú teiknisaga gekk í 27 ár, næstum á hverjum degi í BT Storm P. afkastaði miklu um ævina og er hann lést árið 1949 lágu eftir hann u.þ.b. 70.000 teikn- ingar. Á sýningunni í Norræna húsinu eru teikningar frá þessum dagblaðsdálkum. Sunnudaginn 31. maí kl. 16 verður dagskrá um Storm P. í fundarsal Norræna hússins. Danski leikarinn Lars Knutzon flytur eintöl eftir Storm P. og Jens Bing, forstjóri safnsíns, segir frá listamanninum og skopteikning- um hans og sýnir litskyggnur. Dagskráin er öllum opin og að- gangur er ókeypis. Sértu að hugsa um sólarfrí.... __þá skaltu panta strax því ferðirnar fyllast nú óðum! Sumarhús í Danmörku Júní: 5, 12, 19, 26 - biðlistar Júlí: 3, 10, 17, 24, 31 - biðlistar Ágúst: 7, 14 - biðlistar 21. ágúst - örfá sæti taus i 2ja vikna ferö Toronto 3. júni - biðlisti 24. júní - 11 sæti laus 15. júli - laus sæti 5 ágúst - laus sæti (vikuferð) 12. ágúst - biðlisti Winnipeg 28. júli - 3ja vikna ferð á fslendingaslóðir í Kanada. örfá sæti laus írland 14. júní - biðlisti 20. júli - laus sæti (11 daga ferð til Dublin auk þriggja stórskemmtilegra rútuferða um írland) 30. júli - laus sæti (5 daga ferð til Dublin) Rútuferðir 8 - landa sýn 24. júli - biðlisti (3 vikur) Kanada - Bandaríkin 24. júni - 7 sæti laus (3 vikur) Kanada 15. júli - 3 sæti laus (3 vikur) Noregur, SvíÞjóð, Finnland 18. júli - laus sæti (2 vikur) Samvinnuferdir-Landsýn AUSTURSTRÆETI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 Rimini Fyrsta brottför 31. maí - örfá sæti laus 10. júni - biðlisti 21. júní - 4 sæti laus 1. júli - örfá sæti laus 12. júli - laus sæti 22. júll - laus sæti 2. ágúst - örfá sæti laus 12. ágúst - biðlisti 23. ágúst - örfá sæti laus 2. sept. - laus sæti Portoroz Næsta brottför 31. maí - örfá sæti laus Munið framlengdan frest til greiöslu staöfestingargjalds. 3. jum 10. júni - biðlisti 21. júni - 9 sæti laus 1. júli - laus sæti 12. júlf - örfá sæti laus 22. júli - laus sæti 2. ágúst - 9 sæti laus 12. ágúst - biðlisti 23. ágúst - 2 sæti laus 2. sept. - örfá sæti laus Aöildarfélagar sem staðfesta fyrir fá fullan aölldarfélagsafslátt fyrir alla fjölskylduna. Aðildarf élagsafsláttur og barnaafsláttur getur sparað fjögurra manna fjölskyldu allt að tæplega 5.000 krónuml

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.