Morgunblaðið - 28.05.1981, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.05.1981, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1981 I>aft or ráðlojíast fyrir þij? að fá þór oinn þrofaldann. eins skot. sé ég. Með morgunkaffinu Hvo maricar snoiðar á ég að rista handa þér? HÖGNI HREKKVISI HÁRÞVOTTUR, NAOLASNyRTIMþ Ofr VILTO FJARLÆ.OJA rUOLABÚRlO " Hvergi betri þjónustu að f á en í FLugleiðavélunum Ana'ifður Flugleiðafarþegi skrifar: „Ágaeti Velvakandi! Þó að lesendabréfadálkar sem þessi virðist aðallega vera vettvangur þeirra, sem telja sig þurfa að kvarta yfir einu eða öðru, langar mig til að fá að þakka Flugleiðum opinber- lega fyrir góða og samt stöð- ugt batnandi þjónustu. Þegar ég kom frá Bandaríkjunum nýlega var ekki einungis boðið upp á bestu veitingar, sem um getur verið að ræða í flugvél, nóg lesefni og þægilegt við- mót, heldur voru farþegum færð heyrnartæki þannig að hver og einn gat hlustað á stereó-tónlist að eigin vali án þess að trufla næsta mann. Styttist löng flugleið þannig til muna. Þótt á múti blási... Hér er um að ræða nýja þjónustu við farþega Flug- leiða, sem eftir því sem ég best veit, kemur óumbeðið frá fé- laginu. Þó að ýmsir vilji agnú- ast út í Flugleiðir held ég að flestir séu sammála um að hvergi sé betri þjónustu að fá en í flugvélum Flugleiða. Tón- listarvæðing Flugleiðavélanna sýnir að fyrirtækið ætlar ekki að láta það bitna á farþegum sínum þótt á móti blási um stund." Þessir hringdu .. . Hvað þurfa þeir mikla hækkun? Pétur Ólafsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Nú er búið að hækka fiskverð í Bandaríkjunum um h.u.b. 13%. Hvað þurfa fisksöluaðilar hér eiginlega mikla hækkun til þess að lifa af? Ég á fjölskyldu úti í Bandaríkjunum sem borðar mikinn fisk og ég veit að þetta "7% hækkun á ' milliónir á áril kemur niður á henni. Einu sinni kostaði pundið af íslenska fisk- inum 98 cent og þótti geipimik- ið. Nú er það komið í 155 cent. Dóttir mín sagði í bréfi til mín, sem ég fékk frá henni í gær, að ef svona héldi áfram, hættu þau að borða íslenskan fisk og keyptu frekar þann kanadíska, ekki síst þar sem hann væri orma- og beinalaus, en það væri ekki hægt að segja um íslenska fiskinn. Yfirgangur og frekja við börnin á Miklatúni Ljótur Oddur A. Sigurjónsson skrifar: „Sunnudagskvöldið 17. þ.m. var sýnt í sjónvarpinu „Þjóðlíf“ undir stjórn Sigrúnar Stefánsdóttur. Sigrún hefur gert margt vel og ágætlega í þessum þáttum undan- farið, þótt stundum hafi dálítið slegið út í. En það er önnur saga. Menn munu hafa haft fyrir satt, að þetta yrði síðasti þátturinn af þessu tagi í bili, og sjálfsagt vænzt þess, að vel yrði til hans vandað í hvívetna. Nafnið var svo scm ekki dónalegt Eflaust hefur það komið fleirum en undirrituðum á óvart, að reynt væri að hafa fólk að fíflum, eins og gert var í fyrsta atriði þessa þáttar. Tosað var fram á skjáinn nýkosnum forseta Bandalags ís- lenzkra listamanna, Þorkatli Sig- urbjörnssyni, til þess að fram- kvæma-líklega-gjörning, sem nú er samheiti fyrir allskonar fárán- leika á vegum s.n. listamanna! Síðan var hann dreginn fram, til þess að „skýra" þessa geðbilun. Nafnið var svo sem ekki dónalegt, því skilja mátti að það ætti að túlka vorið! Meira blóð í kúnni! Nú er það mála sannast, að fátt mun vera þjóð okkar hjartfólgn- ara en einmitt vorið, og fáum getur geðfallið að hafa það í öðrum eins fíflskaparmálum og raun var á hér. Það þarf meiri hugkvæmni en almenningi er gef- in, til þess að geta sett ísabrot vorsins í samband við vatnssull í glasi, sem svo er brotið með hamri, sennilega til að tákna þegar vatnsföll — stærri og smærri — fletta af sér klakabönd- unum! Ekki var kastað höndunum til undirleiks, þar til voru kallaðar ágætar listakonur úr Sinfóníu- hljómsveitinni, til þess að fram- kvæma eitthvert óskiljanlegt garg á streneiahlióðfæri! En betta taldi leikur nú höfundurinn „allt í lagi“. Þetta voru nefnilega „effektar", sem þær slógu! (Ekki skortir nú nafngift- irnar). Já, „mitt er að yrkja, ykkar er að skilja,“ var haft eftir Grön- dal gamla forðum. Ætla hefði mátt að sæmilega vitiborið fólk eins og stjórnandi þáttar þessa verður að teljast, leyfði sér ekki að reyna að hafa fólk að fíflum. En það er meira blóð í kúnni! í mínum uppvexti þótti það ákaflega ósæmilegt að draga opin- berlega dár að andlegum vesaling- um, enda þótt þeir skildu ekki á neinn hátt vanmátt sinn og þætt- ust af því að með þá væri spilað. Ég hefði viljað trúa því, að ennþá væri enginn svo djúpt sokkinn, að hafa aumingjaskap meðbræðra eða systra að leik opinberlega. Það er ljótur leikur, og engum samboð- inn.“ Þrifu í hentu Gyða skrifar: „Um síðustu helgi ætlaði ég að bregða mér í Hollywood eins og svo margir aðrir. Þegar ég kom að húsinu var allmargt fólk fyrir utan dyrnar. Eftir að hafa hringsnúist í troðningnum dá- góða stund, sem helst má líkja við það þegar kindur þyrpast út úr rétt, opnuðust dyrnar og ég kastaðist inn ásamt nokkrum öðrum gestum sem lentu ofaná mér. Mér líkaði þetta ekki nógu vel og eftir að hafa staulast á lappir lét ég í reiði minni falla nokkur vel valin og kurteisleg orð um dyraverðina. Það skipti engum togum að þeir þrifu í mig ncr hpntn mér nt með SVO miklum Illíðabúi hringdi og sagði: — Á Miklatúni er sparkvöllur sem er vinsæll meðal yngri kynslóð- arinnar hérna í Hlíðunum. Á skilti við völlinn stendur að hann sé ætlaður „reykvískum ungmennum 16 ára og yngri". En því er ekki að heilsa að „reykvísku ungmennin" fái að vera í friði með sinn völl. Það gerist nefnilega dögum oftar að á staðinn storma flokkar full- orðinna manna og reka stráka- guttana burt. Og þeir koma grátandi heim til sín, því að við ofurefli er að etja. Mér finnst að lögregluyfirvöld ættu að hyggja að því að koma þessum sam- borgurum sínum til aðstoðar og fylgjast með því að ofríkismenn boli þeim ekki burt af þeim svæðum sem þeim eru ætluð. Að öðrum kosti hefur það enga þýðingu að vera að úthluta þessum aldurshópi svæðum til afnota fyrir sig. migog mér út ruddaskap og fantabrögðum að á mér sér. I öllum látunum missti ég af mér úr sem sennilega hefur fljótlega farið í mask á tröppun- um. Þessi saga er sennilega ekkert einsdæmi. Ég held að flestir gestir Hollywood séu sammála um það að troðningurinn og lætin fyrir utan staðinn á föstu- dags- og laugardagskvöldum sé ekki mönnum bjóðandi og tel ég það eingöngu vera vegna aula- háttar dyravarðanna að þeir geta ekki haldið uppi aga við dyrnar og skipað fólki í röð eins og gert er á öðrum skemmtistöðum borg- arinnar, til hagræðis bæði fyrir eesti oe starfsfólk."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.