Morgunblaðið - 28.05.1981, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.05.1981, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ1981 Stýrimannaskólinn í Reykjavik 90 ára: Jónas Sigurðsson læt- ur af skólast jórn STÝRIMANNASKÓLANUM í Reykjavík var slitiA í 90. sinn föstudaninn 22. maí. Art þessu sinni voru óvenju mariíir (festir viðstaddir skólaslit. í upphafi minntist skólastjóri, Jónas Sík- urósson. þeirra sjómanna er látist höfðu á skólaárinu. Aö þvi loknu Kaf hann yfirlit yfi^ starfsemi skólans á skólaárinu. Alls voru í skólanum 150 nemend- ur þegar flestir voru. Af þeim voru 3 stúlkur. Á ísafirði starfaði 1. stigs deild í tengslum við Iðnskólann þar og sóttu hana 8 nemendur. Utan venjulegrar stundaskrár voru hald- in nokkur námskeið við skólann og auk þess fengu nemendur skólans að fylgjast með aðgerðum á slysadeild Borgarspítalans. Ennfremur fóru nemendur 2. og 3. stigs æfingaferðir með varðskipum ríkisins. Pfofi 1. stigs luku 56 nemendur auk 6 á Isafirði. Prófi 2. stigs luku 49 og 3. stigs 33. Efstur á prófi. 3. stigs var Páll Ægir Pétursson, 9,87, og hlaut hann verðlaunabikar Eimskipafélags Is- lands, farmannabikarinn. Efstur á prófi 2. stigs var Þórður Örn Karlsson, 9,71. Hlaut hann verð- launabikar Öldunnar, Öldubikarinn. Landssamband íslenskra útvegs- manna veitti verðlaun fyrir hæstu einkunn í siglingafræði, fiskimanni á 2. stigi, og hlaut þau Þórður Örn Karlsson, klukku með loftvog. Bókaverðlaun úr Verðlauna- og styrktarsjóði Páls Halldórssonar skólastjóra hlutu eftirtaldir nem- endur. Á 3. stigi: Ágúst A. Ragn- arsson, Jón Elíasson og Páll Ægir Pétursson. Á 2. stigi: Daði Jóhann- esson, Gunnar Júlíusson, Ólafur Haraldsson, Pétur M. Pétursson, Sigurður Ólafsson, Þórður Örn Karlsson og Þorsteinn Jafetsson. Danska sendiráðið veitti bókaverð- laun fyrir góða frammistöðu í Jónas Sigurðsson. dönsku þeim Ágústi Á. Ragnars- syni, Daða Jóhannessyni og Gunn- ari Júlíussyni. Auk þess veitti skól- inn Guðmundi Bárðarsyni, for- manni skólafélagsins, bókaverðlaun fyrir störf í þágu nemenda og skólans. Eftir afhendingu skírteina og verðlauna ávarpaði skólastjóri nem- endur og lagði áherslu á þá ábyrgð og skyldur sem skipstjórnarstarfi fylgja. Auk þess minntist hann 90 ára starfsferils skólans, brautryðj- endanna, skólastjóra skólans og kennara og þeirra tímamóta sem stofnun skólans markaði í þjóðlíf- inu. Ráðuneytisstjóri Menntamála- ráðuneytisins, Birgir Thorlacius, flutti ávarp, minntist 90 ára afmæl- is skólans, flutti kveðjur mennta- málaráðherra og bók að gjöf til Jónasar Sigurðssonar skólastjóra sem nú er að láta af skólastjórn sökum aldurs. Þakkaði hann Jónasi ágætt starf í þágu skólans. Jónas Síðustu sýningar á „Barn í garðinum“ Á fostudagskvöldið sýnir Leikfélag Reykjavíkur handaríska leikritið BARN f GARÐINUM eftir Sam Shepard i næst síðasta sinn á þessu leikári. Fyrir þctta lcikrit fékk höfundurinn Pulitzer-verðlaunin 1979. Leikarar í þessari sýningu L.R. eru: Steindór Hjörleifsson, Margrét Ólafsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson, Sigurður Karlsson, Hjalti Rögn- valdsson, Hanna María Karlsdóttir og Guðmundur Pálsson. Leikstjóri sýningarinnar er Stefán Baldursson. Leiðrétting RANGT var farið með aldur Júlí- usar Everts fyrrum kaupmanns er Mbl. greindi frá andláti hans sl. þriðjudag. En hann var fæddur 27. janúar árið 1896 og var því á 86. aldursári, en ekki 76 ára eins og sagt var í fréttinni. Síðasta sýningin verður svo annan föstudag. Prófprédikanir í háskólanum í VOR verða brautskráðir frá lláskóia íslands átta kandidatar í guðfræði. Á morgun, föstudaginn 29. maí, flytja þeir prófprédikanir sínar í Háskólakapellunni. Hópum verður skipt og hefst fyrri athöfnin kl. 14, og þá prédika Dalla Þórðardóttir, Hreinn Sk. Hákonar- son, Jón Ragnarsson og Oddur Einarsson. Klukkan 15.30 prédika Agnes M. Sigurðardóttir, Hanna María Pétursdóttir, Ólafur Þ. Hall- grímsson og Rúnar Þór . Egilsson. Organisti við athöfnina er Jón Stefánsson. Kapellan er opin al- menningi. Stúdentasamband V.Í.: Sveinn Jónsson endur- kjörinn til formennsku STÚDENTASAMBAND Verzlun- arskóla íslands hélt aðalfund mánudaginn 18. maí i skólahúsinu við Grundarstíg. Sveinn Jónsson endurskoðandi var endurkjörinn formaður fyrir næsta starfsár og meðstjórnendur Valdimar Her- geirsson. Ævar Guðmundsson, Örn Marinósson og Andrés R. Krist- jánsson. Þá voru Gunnar Zoéga og Helgi Magnússon kjörnir endurskoðendur. Á fundinum var ákveðið að stofna *v>!nn<mr*nwniÁA I1IW ^ *• TAr» ílíolö OAn fyrrverandi skólastjóra í virðingu og þakklætisskyni fyrir ómetanlegt starf hans í þágu Verzlunarskóla Islands. Er sjóðnum ætlað að hlynna að hugvísindagreinum í skólanum m.a. með styrkjum og verðlaunaveitingum. Stúdentasambandið mun að venju halda fagnað í tilefni af brautskrán- ingu stúdenta frá skólanum. Stúd- entafagnaðurinn fer að þessu sinni fram laugardaginn 30. maí að Hótel Sögu (Lækjarhvammi) og hefst með KnrAVioM! Irl 1 O QO svaraði og þakkaði ágætt samstarf við ráðuneytið á liðnum árum og sérstaklega þátt ráðuneytisstjóra við að efla tækjakost skólans. Frú Þóra Havsteen færði skólan- um uppstoppaðan fálka sem sonur hennar, Júlíus B. Havsteen, hafði átt. Júlíus lauk farmannaprófi frá skólanum 1968 en lést 18. maí 1977, þá 34 ára. Söngferð Skaftfell- inga og Rangæinga Ari Jónsson hafði orð fyrir 40 ára próftökum sem gáfu skólanum stækkað skólaspjald af nemendum skólans og kennurum frá 1941. 25 ára próftakar færðu skólanum málverk eftir Jónas Guðmundsson sem var einn af þeim félögum. Orð fyrir þeim hafði Sigurður Hall- grímsson. Próftakar, farmenn frá 1968 gáfu skólanum mynd af Jónasi Sigurðs- syni skólastjóra, málaða af Örlygi Sigurðssyni. Var hún gefin í tilefni af sjötugsafmæli Jónasar og 90 ára afmæli skólans. Til minningar um bekkjarbróður sinn, Sæmund Helgason, gáfu 10 ára nemendur úr 2B fjárhæð í styrkt- arsjóð nemenda og 10 ára farmenn gáfu fjárhæð í Tækjasjóð skólans. Bekkjarbræður Gunnars Val- geirssonar frá árunum 1977—’80 gáfu skólanum til minningar um hann loftvog, rakamæli og klukku auk fjárhæðar. Gunnar lauk far- mannaprófi á síðastliðnu vori en fórst í bílslysi skömmu síðar. Har- aldur Jónasson hafði orð fyrir þeim. Jónas Guðmundsson stýrimaður, rithöfundur og málari færði skóla- stjóra málverk eftir sig að gjöf frá sér og skólafélögum sínum. Mál- verkið kallar Jónas Verklok og hlýtur skólastjóri það í tilefni af sjötugsafmæli sínu og verklokum sem skólastjóri. Þorgeir Pálsson formaður skóla- nefndar, Andrés Guðjónsson skóla- stjóri Vélskóla Islands og Helgi J. Halldórsson stýrimannaskólakenn- ari þökkuðu Jónasi Sigurðssyni skólastjora ágæta samvinnu á liðn- um árum og árnuðu honum allra heilla í framtíðinni. Markús Þorgeirsson skipstjóri þakkaði skólastjóra og elstu kenn- urum skólans, lífs og liðnum, góða handleiðslu á námsárum sínum og árnaði skólanum heilla. Blóm bárust frtKvenfélagi Öld- unnar og fulltrúaráði Sjómanna- dagsins í Reykjavík í tilefni af 90 ára afmæli skólans. Að lokum þakkaði skólastjóri kennurum og öðru starfsfólki ágætt samstarf á liðnum árum. Sérstak- lega minntist hann Hafsteins Berg- þórssonar sem allra manna lengst var prófdómari við skólann, eða 46 ár. Hann færði skólanefndinni þakkir fyrir samvinnu og áhuga sýndan málef/ium skólans. Nemend- um öllum þakkaði hann ánægjuleg kynni á starfsferli sínum, óskaði væntanlegum eftirmanni sínum velfarnaðar og skólanum allra heilla á ókomnum árum. Gestum þakkaði hann komuna og ágætar gjafir og sagði skólanum slitið. Eftir skólaslit veitti skólinn kaffi sem Kvenfélag Öldunnar annaðist. LAUGARDAGINN 30. maí íara Söngfélag Skaftfellinga og Kór Rangæingafélagsins í Reykjavík saman í söngferð austur í Skafta- fellssýslu. Sungið verður á tveimur stöðum, fyrst í Vík í Mýrdal kl. 14.00 og síðan á Kirkjubæjar- klaustri á laugardagskvöldið kl. 21.00. SKÓLASLIT Söngskólans I Reykjavík verða laugardaginn 30. mai n.k. kl. 17.00 i Tónleika- sal Söngskólans, að Ilverfisgötu 44. í vetur stunduðu 110 nemendur nám við skólann, þar af 15 í og erlend lög. Koma kórarnir fram til skiptis í byrjun tónleikanna en í lokin syngja þeir saman nokkur lög, þar á meðal héraðssöngva Skaftfellinga og Rangæinga. Þetta er í annað sinn sem kórarnir fara saman í söngferð og taka þátt í henni um 90 kórfélag- ar. Söngstjórar í förinni eru Þor- valdur Björnsson, Þóra Guð- mundsdóttir og Njáll Sigurðsson. framhaldsdeild (kennara- og ein- söngsdeild). Stigpróf voru tekin tvisvar í vetur. I desember og maí. í des. tóku 15 nemendur próf á milli stiga og 4 nemendur lokapróf frá skólanum, einn í einsöng og 3 í einsöngskennslu. Þessir nemendur hafa allir haldið sína lokatónleika. Prófdómari var Philiph R. Pfaff. I prófunum nú í mái tóku 62 próf á milli stiga og stóðust 52. 7 nemendur tóku lokapróf, þ.e. ein- söngs eða kennarapróf og stóðust 4. Prófdómari að þessu sinni var Raymond Thorpe. Nemendur úr einsöngsdeild og kennaradeild munu á næstunni halda sína lokatónleika. Styrktartónleikar vetrarins, og jafnframt lokatónleikar þessa skólaárs, verða í Gamla bíói laug- ardaginn 30. maí nk. kl. 14.00. Þar koma fram nemendur allt frá byrjendum til einsöngsdeildar og flytja fjölbreytta söngskrá. Styrktarfélögum hafa þegar verið sendir aðgöngumiðar, en auk þess verður miðasala við innganginn. Skólaárinu lýkur síðan með lista- og lukkukvöldi í Söngskólan- um kl. 20.30 sama kvöld., þ.e. laugard.kv. 30. maí. Áður hafði komið fram í bréfi til styrktarfé- laga að lokakvöldið yrði á Hótel Sögu sunnudagskvöldið 31., en það verður í skólanum að venju. Kvöldið verður „írskt kvöld" og skemmtiatriði og „stemming“ í þeim anda. Á þessu lista- og lukkukvöldi verður dregið í lukku- leik skólans, ýmis skemmtiatriði verða og fjöldasöngur. (Fréttatilkynning) Píanótónleikar Á efnisskránni eru ýmis innlend Skólaslit Söngskólans í Reykjavik: Lokatónleikar og listakvöld Orgeltónleikar i Landakotskirkju ÞANN 28. maí, uppstigningardag, kl. 9 síðdegis verða orgeltónieikar í Landakotskirkju. Organisti Háteigskirkju Orthuif Prunner mun leika verk eftir Johann Sebastian Bach, Nicolas de Grigny, César Franck og Olivier Messiaen. Á efnisskránni eru verk eftir: Johann Sebastian Bach (1685—1750), Nicolas de Grigny (1671—1703), César Franck (1822—1890) og Olivier Messiaen (1908—). á Kjarvalsstöðum MANUDAGINN 1. júní kl. 21.00 heldur Selma Guðmundsdóttir pí- anótónleika að Kjarvalsstöðum. Á efnisskránni eru verk eftir Chopin, Schumann og Beethoven. Selma Guðmundsdóttir hóf nám í píanóleik við Tónlistarskólann á ísafirði. Árið 1963 varð hún nem- andi við Tónlistarskólann í Reykjavík. Fyrst var hún nemandi Ásgeirs Beinteinssonar, en síðan stundaði hún nám undir leiðsögn Árna Kristjánssonar um margra ára skeið. Selma lauk einleikara- prófi frá skólanum árið 1972. Á árunum 1973—76 stundaði hún framhaldsnám hjá prófessor Hans Leygraf í Salzburg og Hannover. Ennfremur hefur hún sótt nám- skeið í píanóleik hjá Frantisek Rauch í Prag og Pierre Sancan í Nice. Selma hefur áður haldið ein- leikstónleika í Reykjavík og víðar á Islandi, m.a. á vegum Tónlistar- félap'sins í Revkiavík 1977. Auk Selma Guðmundsdóttir þess hefur hún haldið einleiks- tónleika í Svíþjóð þar sem hún hefur verið búsett undanfarin ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.