Morgunblaðið - 28.05.1981, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 28.05.1981, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1981 Mannús Bertís, Borussia Dortmund, skoraði mark islenska liðsins með góðum skalla, o(? minnkaði muninn niður i eitt mark. Eitt stærsta tap okkar í knatt- spyrnulandsleik - markatalan 11—1 í síðustu 2 ieikjum TAP íslands i HM-keppninni >re(fn Tékkum i (tærkvoldi var eitt stærsta tap íslands i landsleik fyrr og síðar. Aðeins sex sinnum áður hefur ísland fengið á sig 6 mörk eða meira. Með fáeinna daga millibili i júní 1957 tapaði ísland 0—8 fyrir Belgum og 3—8 fyrir Frökkum. Síðar um sumarið sama ár fékk Island 2—6 skell i Reykjavik gegn Dönum. Siðan fékk fsland ekki skell af líku tagi íyrr en 7. september 1963, er England lagði ísland að velli í Reykjavík. Lokatölur 0—6. Varla þarf að minna íslendinga á stærsta tapið, 2—14-þrum- una gegn Dönum 1967. 1973 fékk fsland mjög slæman skell gegn Hollandi. 1—8 (og reyndar 0—5 í sömu ferð). Og svo þessi nýjustu urslit. 1—6 fyrir Tékkum. Og markataia ísiands í tveimur siðustu landsleikjunum er 1 — 11, en landinn tapaði 0—5 fyrir Rússum ytra í fyrra haust. — gg. Norska knattspyrnan: Rosenborg skaust fram úr Vaalerengen VAALERENGEN tapaði stigi í norsku knattspyrnunni i fyrr- akvöld. er liðið mætti Haugar á heimavelli sinum. Vaalerengen er þó enn án taps eftir fimm umferð- ir. Hins vegar notaði Rosenborg Lerby áfram hjá Ajax DANSKI knattspyrnulandsliðs- maðurinn Sören Lerby, sem leik- ið hefur með hollenska Iiðinu Ajax síðustu árin. hefur endur- nýjað samning sinn við félagið til tveggja ára. Hinir Danirnir tveir sem leikið hafa með Ajax, Frank Arnesen og Henning Jensen, eru hins vegar á förum frá félaginu. Arnesen til Valencia á Spáni, en Jensen einfaldlega heim. tækifærið og skaust upp fyrir Vaalerengen með g(>ðum sigri gegn Bryne á heimavelli. Úrslit leikja urðu sem hér segir: Brann — Frederikstad 1—1 Moss — Lilleström 2—0 Rosenborg — Bryne 3—1 Start — Lyn 0—0 Viking — Hamkam 2—0 Vaalerengen — Haugar 2—2 Leikmenn Haugar byrjuðu af miklum krafti gegn bikarmeistur- um Vaalerengen og eftir 30 mínút- ur var staðan orðin 2—0 fyrir Haugar. Með Paal Jakobsen í broddi fylkingar tókst Vaalereng- en þó að jafna metin áður en yfir lauk. Sem fyrr segir er fimm umferð- um lokið og hefur Rosenborg forystuna með 9 stig. Vaalerengen hefur 8 stig og Moss 7 stig. Viking hefur 6 stig, þannig að staðan er enn mjög óljós. r! íslenska landsliðið mátti þola stórt tap gegn Tékktmi - Tékkar skoruðu fjögur mörk síðustu 18 mínútur leiksins og sigruðu 6—1 „ÞETTA var alltof stórt tap, og kom eins og reiðarslag. Tékkneska liðið var greinilega mun betra en við og ég hefði sætt mig við 3—1 tap, en 6—1 var mjög slæmt,“ sagði Guðni Kjartansson landsliðsþjálfari er Mbl. ræddi við hann i gærkvöldi að loknum leik Tékka og Islendinga sem fram fór í Bratislava. Tékkar sigruðu 6—1, eftir að staðan í háifleik var 2—0. Mark islenska liðsins skoraði Magnús Bergs eftir hornspyrnu á 55. mínútu leiksins. Gekk vel framan af leiknum Islensku leikmönnunum gekk vel framan af í leiknum. Liðið náði vel saman og vörnin var vel leikin. Það var ekki fyrr en á 36. minútu leiksins sem Tékkum tókst að skora fyrsta mark leiksins. Það var Vizek sem skoraði af frekar stuttu færi eftir fallega sókn. Á 42. mínútu fyrri hálfleiksins, var dæmd vítaspyrna á íslenska liðið. Að sögn Guðna Kjartansson- ar var þetta algjör gjöf til Tékka. Einn leikmanna þeirra lét sig falla inn í vítateignum. Og var um greinilegan leikaraskap að ræða. Engu að síður dæmdi dómarinn, sem var Grikki, vítaspyrnu. ís- lensku leikmennirnir mótmæltu þessum dómi mjög en allt kom fyrir ekki. Markaskorarinn mikli Panenka sem leikur fyrir Rapid Vín í Austurriki skoraði af miklu öryggi úr spyrnunni, og staðan í hálfleik var 2—0. Að sögn Guðna var leikur íslenska liðsins góður í fyrri hálfleiknum og menn börð- ust vel. íslenska liðið náði sér vel á strik í byrjun síðari hálfleiksins náði íslenska liðið sér mjög vel á strik og sótti þá nokkuð. Náði oft góðum samleik, hélt boltanum vel og lék af skynsemi. Þetta bar góðan árangur og nokkrum sinnum komst mark Tékka í hættu. Á 55. mínútu skorar svo Magnús Bergs fallegt mark. Arnór tók horn- spyrnu, gaf mjög vel fyrir markið og Magnús Bergs skoraði með föstum skalla sem markvörður Tékka réði ekkert við. Við þetta mark efldist íslenska liðið og átti í fullu tré við tékkneska liðið. Þeir 30.000 áhorfendur sem á leikinn horfðu voru farnir að púa á leikmenn sína. Algjört hrun síðustu mínútur leiksins Þegar aðeins 18 mínútur voru til leiksloka var staðan í leiknum 2—1. Eftir fallegan undirbúning Panenka skoraði Nehoda þriðja mark Tékka. Þetta mark sem kom á 72. mínútu leiksins opnaði flóð- gáttir. Leikur íslenska liðsins hrundi algjörlega. Ekki stóð steinn yfir steini í varnarleiknum og Tékkar höfðu algjöra yfirburði á vellinum. Á 75. mínútu skorar Janecka fjórða markið og síðustu tvö mörkin skoraði Kozak. Að sögn Guðna komu öll þessi mörk eftir að tékknesku leikmennirnir höfðu sundurspilað íslensku vörnina. Leikmenn Tékka léku alveg inn í markteiginn og eftir það var eftirleikurinn auðveldur. Sem sagt síðustu 18 mínútur leiksins fékk íslenska liðið á sig fjögur mörk. Liðin íslenska landsliðið var skipað þessum leikmönnum: Þorsteinn Bjarnason markvörður. Þorgrím- ur Þráinsson og Trausti Haralds- son voru bakverðir. Janus Guð- laugsson lék sem aftasti maður, en Sigurður Halldórsson fyrir fram- an hann. Á miðjunni léku Atli Eðvaldsson, Magnús Bergs, Ásgeir Sigurvinsson og Árni Sveinsson. Framliggjandi voru þeir Pétur Pétursson og Arnór Guðjohnssen. Þetta lið lék allan leikinn án skiptinga. Nýliðinn í islenska liðinu, Þor- grímur Þráinsson Val, kom vel frá sinum fyrsta landsleik. Að sögn Guðna lék allt liðið lengst af vel. Góð barátta var í leikmönnum, og leikið sem liðs- heild. En eftir að Tékkar skoruðu þriðja markið var ekki heil brú í leik liðsins. Þá var eingöngu um einstaklingsframtak að ræða. Þá vantaði að reyna að róa leikinn niður og halda boltanum betur. Þorsteinn Bjarnason verður ekki sakaður um mörkin. Hann lék vel, og þá sérstaklega í fyrri hálfleiknum. Ásgeir Sigurvinsson átti mjög góðan leik. Þá kom Þorgrímur Þráinsson mjög vel frá sínum fyrsta landsleik. Lið Tékka lék mjög vel. Sam- leikur þeirra var mjög hraður. Þeir notuðu mikið stuttar send- ingar og voru leikmenn þeirra mjög fljótir. Bestu leikmenn þeirra voru Panenka og Nehoda. - ÞR. Mikið um að vera hjá kylfingum - m.a. eitt stærsta mótiö - Johnny Walker mótið TALSVERT verður um að vera í islenska golfheiminum um helg- ina og I dag. í dag, nánar tiltekið klukkan 9.00 árdegis, verður byrjað að ræsa út keppendur á Grafarholtsvellinum, en þar verð- ur keppt um Arneson-skjöldinn. Leikinn verður 18 holu höggleik- ur með forgjöf. Um helgina fer stærsta mótið hins vegar fram á Nesvellinum, er það Johnny Walker-mótið. Er það aðeins fyrir meistaraflokksmenn og gefur það stig til landsliðs. Leiknar verða 72 holur, 36 á laugardaginn og hefst keppni þá klukkan 9.00. Á sunnudeginum hefst keppni einnig klukkan 9.00 og verða þá einnig leiknar 36 holur. Sem fyrr segir gefur keppn- in stig til landsliðs, 50 grunnstig og síðan 5 stig fyrir hvern leik- mann. Er þetta eitt umfangsmesta mót sumarsins. Það verður ekki setið auðum höndum á Grafarholtinu, þar fer fram annað „Videomót", en þeir Grafarhoitsmenn eru að skrapa saman fyrir slíku tæki um þessar mundir. Mótið fer fram á laugar- daginn, en á sunnudaginn fara fram opin unglinga- og kvenna- mót. Bandarískt körfuknatt- leikslið í heimsókn HINGAÐ til lands er væntanlegt úrvalslið Bandaríkjamanna i körfuknattleik, en leikmenn liðs- ins ferðast um i því skyni að sýna sig. Bókstaflega. Liðið, sem heitir McDonalds, er skipað leik- mönnum sem eru að leita fyrir sér með lið i Evrópu. McDonalds mætir úrvalsliði sem Jón Sigurðs- son velur i íþróttahúsi Hagaskól- ans á laugardaginn og hefst leikurinn klukkan 14.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.