Morgunblaðið - 28.05.1981, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ1981
5
Leikrit vikunnar kl. 20.30:
„Lifandi og dauðir44
— eftir Helge Krog
Á dagskrá hljóðvarps kl. 20.30 í
kvöld verður flutt leikritið „Lif-
andi og dauðir" eftir Helge Krog í
þýðingu Þorsteins Ö. Stephensen.
Leikstjóri er Sveinn Einarsson og
flytur hann einnig formálsorð um
höfundinn og verk hans. Með
stærstu hlutverk fara Gísli Hall-
dórsson, Helgi Skúlason og Herdís
Þorvaldsdóttir. Leikritið var áður
flutt 1975 og er 80 mínútna langt.
Tveir taugaveikisjúklingar,
Jensen og Fletting, liggja á sömu
stofu og eru á batavegi. Annar
þeirra ímyndar sér að hann eigi
von á stórri fjárfúlgu og er að
bollaleggja um eitt og annað sem
hann ætli að gera. En lífið og
tilveran er ekki eintóm ánægja,
það hafa þeir félagar fengið að
reyna og þeim verður það enn
betur ljóst áður en lýkur.
Útvarpið hefur áður- flutt eftir:
talin verk Krogs: „Afritið" 1937, „í
leysingu" 1938, „Móti sól“ 1956,
„Hugsanaleikurinn" 1957 og „Kom
inn“ 1960.
Sjónvarp föstudag kl. 21.20:
Dagar í Póllandi
Á dagskrá sjónvarps kl. 21.20 er
ný sænsk heimildamynd, Dagar í
Póllandi, og fjallar um daglegt líf
almennings í Póllandi. Þýðandi Jón
Gunnarsson.
Fréttir sem við heyrum snúast
flestar um taugastríð verkalýðsfé-
laga og stjórnvalda og baráttu
þeirra beggja við að halda voldug-
um nágranna í austri rólegum, svo
að hann fari ekki að „stilla til
friðar“. En mitt í öllu þessu lifir og
hrærist þjóð með langa og litríka
sögu og sjálfstæða menningu.
Myndin fjallar um líf þessa fólks.
Föstudagsmyndin kl. 22.20:
Auga f yrir auga
Á dagskrá sjónvarps kl. 22.20 er bandarísk sjónvarpsmynd, Auga fyrir auga
(Banyon), frá árinu 1971. Leikstjóri Robert Day. Aðalhlutverk Robert Forster, José
Ferrer, Darren McGavin og Herb Edelman. Þýðandi er Dóra Hafsteinsdóttir.
Myndin gerist árið 1937. Miles Banyon er einkalögreglumaður sem búið var að
reka úr lögreglunni vegna afskipta stjórnmálamanna. Þeir beittu áhrifum sínum
til þess að losna við hann eftir að hann kom Victor Pappas í fangelsi með hjálp
Irine Postolla, afgreiðslustúlku í veitingahúsi, og Lee jennings, sem starfar við
fréttaskýringar í útvarpi.
Robert Forster I hlutverki Banyons.
Athugasemd
frá Flug-
leiðum
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi athugasemd frá
Flugleiðum:
í frétt í Morgunblaðinu í dag um
hugsanleg kaup starfsmannafélags
Arnarflugs á hlutabréfum Flug-
leiða hf. í Arnarflugi hf., er því
jafnframt haldið fram, að Flugleið-
ir hafi gert þá kröfu að starfsmenn-
irnir kaupi þann varahlutalager,
sem Flugleiðir hafa keypt vegna
þarfa Arnarflugsflugvéla. Þetta er
á misskilningi byggt.
Á það er minnt, að með bréfi
samgönguráðherra til Flugleiða,
dags. 8. nóv. 1980, eru félaginu sett
7 skilyrði fyrir því að fá ríkis-
ábyrgð, sem félagið fór fram á 15.
sept. 1980. Skilyrði þessi voru
ákveðin á sameiginlegum fundi
ráðherranefndar og fjárhags- og
viðskiptanefndar efri deildar Al-
þingis 6. nóv. 1980. Eitt þeirra var
eftirfarandi:
„Starfsmannafélagi Arnarflugs
verði gefinn kostur á að kaupa hlut
Flugleiða í Arnarflugi."
Stjórn Flugleiða tók formlega
afstöðu til skilyrðanna á fundi
sínum 11. nóv. 1980 og tilkynnti
hana samgönguráðherra samdæg-
urs. Fallist var á að seija starfs-
mönnum Arnarflugs hlutabréfin á
matsverði, enda fari samtimis
fram viðræður milli stjórnenda
Flugleiða hf. og stjórnenda Arnar-
flugs hf. um innlausn Arnarflugs
hf. á þeim varahlutum. sem Flug-
leiðir hafa keypt eingöngu vegna
viðhalds flugvéla Arnarflugs, svo
og endurgreiðslu þeirrar fjárfest-
ingar. sem Flugleiðir hafa lagt i
vegna hreyfla umræddra flugvéla.
Fyrra samkomulag milli Flugleiða
og Arnarflugs á þessu sviði var gert
í skjóli meirihlutaeignar Flugleiða
hf. í Arnarflugi hf.
Með bréfi viðræðunefndar Flug-
leiða til starfsmannafélags Arnar-
flugs, dags. 7. maí sl., eru hlutabréf-
in boðin til kaups á 5,3 földu verði,
þ.e. kr. 3.657.000, sem er í samræmi
við niðurstöðu sérstakrar mats-
nefndar, sem aðilar urðu sammála
um. Þá er jafnframt tekið fram, að
endanleg sala bréfa sé háð sam-
þykki stjórnar Flugleiða og mun
ekki verða fyrr en samkomulag
hefur náðst milli Arnarflugs og
Flugleiða um uppgjör á hreyfiltím-
um og kaup eða ábyrgð Arnarflugs
á varahlutalager Flugleiða vegna
flugvéla Arnarflugs.
Flugleiðir hafa ekki fengið svar
við þessu bréfi.
Þá hefur viðræðunefnd Flugleiða
með bréfi til framkvæmdastjóra
Arnarflugs, dags. 11. maí sl., lagt
fram formlega tillögu um uppgjöf
framangreindra mála varðandi
hreyfiltíma og varahluti, og eru þau
atriði enn á umræðustigi milli
félaganna.
Við kynnum þér
Kenwood SigmaDrive,
turbo hlaðm Hi-Fi.
Það sem er turbo fyrir bíla,
er Sigma Drive fynr Hi-Fi hljómburð.
Þetta er ný einstök Kenwood aðferð við að láta magnarann
annast eftirlit með, og stjóma tónblæ hátalaranna. Aðferðin er í
því fólgin, að á sama andartaki og magnarinn sendir frá sér
rafboð til hátalaranna, nemur Sigma Drive hvemig þau birtast í
þeim, gerir samanburð og knýr fram leiðréttingu til samræmis
við upprunalega gerð þeirra. Þess vegna tengjast
4 leiðarar í hvem hátalara. ®KEIMWOQD
T MIFl STEREO
DRIVE
NEWHISPEED
KENWOOD SIGMA DRIVE
er algjör stökkbreyting í gerð hljómtækja
FREOUENCY CHARACTEAISTIC AT SREAKER INPUT
FRfOUCNCY |Mí|
Distortion characteristic between 51 and normal drive.
Simplified biock diagram of Drive.
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670
fKENWOOO
T
i
U. 1 ... ...... ■■
11 T IDao! I I
Cl El 0 r
fio
KA-1000: Sigma Drive syslem "hi speed '-100 walts per channel-distortion—0 005°/a—Non magnetic construction—DC coupted—dualpower
supply—Zero switching