Morgunblaðið - 28.05.1981, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 28.05.1981, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1981 21 Fyrstu hljómleikar nýjasta útlaKans úr sovézkri listamanna- stétt. Maxim Sjosta- kovitsj, á Vesturlönd- um fóru fram við handaríska þinKhúsið i Washington á mánu- daK-skvöldið, en þá var „Memorial Day“ þar í landi. Þann dajf er minnzt þeirra Banda- rikjamanna, sem fall- ið hafa í styr jöldum, og var fyrsta verkið á tón- leikunum þjóðsönKur Handaríkjanna. Því næst kom verk eftir föður hljómsveitarstjór- ans. Dmitri Sjosta- kovitsj, þá Rhapsody in Blue eftir Gershwin, ok loks Fimmta sin- fónia Tsjaikovskys. Maxim Sjostakovitsj flæmdist frá Sovétríkj- unum ásamt syni sinum i siðasta mánuði. Hafa feðffarnir fengið hæli i Bandarikjunum. AP-símamynd. Pólsk kvikmynd sigraði í Cannes Samsæri um morð á konungi Spánar Barcelona. 27. mai. AP. GÖNG hafa fundizt í verkstæði José Maria Cuevas, eina hryðju- verkamannsins sem var drepinn i bankaárásinni i Barcelona um helgina. ok nota átti göngin til að koma Juan Carlosi konunifi fyrir kattarnef að sögn yfirvalda i da«. Göngin liggja að leiðinni sem konungur fer um þegar hann kannar heiðursvörð 15.000 manna í lok viku hátiðahalda til heiðurs heraflanum. Upp komst um göngin við yfir- heyrslur níu hryðjuverkamanna, sem voru handteknir eftir björgun gíslanna í bankanum. Uppgötvunin er talin skýrasta sönnunin um að taka bankans hafi ekki verið verk ótíndra glæpa- manna eins og lögreglan sagði í fyrstu heldur liður í víðtæku samsæri gegn ungu lýðræði Spán- ar, þremur mánuðum eftir mis- heppnaða byltingartilraun hægri- manna í hernum. Fyrirliði hryðjuverkamann- anna, José Juan Martinez Gomez, fyrrverandi stjórnleysingi að sögn lögreglu, segir að Spánverji, sem hann hitti tvisvar sinnum í marz í Perpignan í Frakklandi og hafi aðeins kallað sig hægriöfgamann, hafi fengið sig til að gera árásina á bankann. Martinez játaði að sögn lögreglu að hafa þegið 1,5 milljónir peseta fyrir bankaárásina, einn þriðja heildarupphæðar er hann hefði átt að fá að fullu greidda að verki loknu. Hann sagði að hinir hryðju- verkamennirnir hefðu þegið svip- aðar greiðslur. Leopoldo Calvo Sotelo forsætis- ráðherra sagði á þingi í gærkvöldi að hann gæti ekki enn svarað því fyllilega hver hefði staðið straum af kostnaði við bankaárásina þar sem nægar sannanir lægju ekki fyrir. En hann kvað ljóst að árásin væri af pólitískum toga og lofaði að einskis yrði látið ófreistað til að komast til botns í málinu. Hann gaf í skyn að samband væri milli bankaárásarinnar og bylt- ingartilraunarinnar. Cannes, 27. maí. AP. PÓLSK kvikmynd um verkfall verkamanna i skipasmíðastöðv- um i Gdansk í fyrra, „Járnmað- urinn“. hlaut „Gullpálmann" — fyrstu verðlaun — á kvikmynda- hátíöinni i Cannes í ár. Leikstjóri er Andrzej Wajda. Það kom á óvart að kvikmyndin var lögð fram þar sem talið var að ríkjandi stjórnmálaástand í Pól- landi kæmi í veg fyrir að hún yrði leyfð til útflutnings og sýningar á henni yrðu leyfðar í Póllandi. Cannes-hátíðin er talin mikil- vægasta kvikmyndahátíð heims- ins og „Gullni pálminn" örugg trygging fyrir vinsældum í Evr- ópu, þótt Óskars-verðlaunin þyki fínni. Wajda leikstjóri sagði á blaðamannafundi á sunnudaginn að kvikmyndin hefði ekki verið sýnd fyrr en á Cannes-hátíðinni og hann mundi stytta tveggja klukkustunda sýningartíma henn- ar fyrir pólska áhorfendur. Kvik- myndin hefur greinilega verið unnin í miklum flýti. í Varsjá sagði Roman Boniecki, forstöðumaður kvikmyndadreif- ingar pólska ríkisins, að „Járn- maðurinn" yrði hugsanlega tekinn til sýninga seint í júní eða snemma í júli ef nógu mörg eintök yrðu fáanleg þá. Kvikmyndin fékk mikið hól í Varsjá þegar skýrt hafði verið frá verðlaunaveitingunni. „Pólsk kvikmyndalist hefur unnið mesta sigurinn í sögu sinni,“ sagði kvöld- blað í Varsjá í forsíðufrétt. Formaður dómnefndarinnar í Cannes í ár var franski leikstjór- inn Jácques Deroy og í fyrsta skipti átti kona sæti í nefndinni — bandaríska leikkonan Ellen Burst- yn. Kvikmynd svissneska leikstjór- ans Alain Tanner, „Ljósárin", fékk sérstök verðlaun. ítalinn Ugo Tognazzi hlaut verðlaun fyrir beztan leik í karlhlutverki í kvik- myndinni „Harmleikur fáránlegs manns" og franska kvikmynda- stjarnan Isabelle Adjani í kven- hlutverki í tveimur kvikmyndum — „Kvartett" eftir Jaes Ivory og „Eign“ eftir Andrzej Zulawski. Þrjú ár eru síðan bandarisk kvikmynd hefur ekki hlotið „Gullpálmann". Kleif hæsta turn heims og fór í fangelsi ChicaKo. 26. mai. AP. DANIEL Göodwin situr i fang- elsi eftir að hafa fyrstur manna klifið hæstu byggingu heims. Sears-turninn i Chi- cago, klæddur eins og teikni- söguhetjan Spiderman. Það tók Goodwin sjö og hálfa klukkustund að klífa turninn að utanverðu, en hann er 110 hæðir. Eigendur fyrirtækisins Sears, Roebuck & Co, sem á turninn, segja að engar skemmdir hafi orðið á bygging- unni og ætla ekki í mál við Goodwin, sem er loftfimleika- maður að atvinnu. Hins vegar var Goodwin ákærður fyrir ósæmilegt athæfi og óreglu á almannafæri. Einvígi Karpovs og Timmans á ffiM-mótinu Amstcrdam. 27. mai. AP. Stórmeistararnir Jan Timman, Ilollandi, og Anatoly Karpov heyja nú mikið einvigi um sigur á IBM-skákmótinu i Amsterdam. ar, að tvísýnt væri nálans. um líf kardi- Meza ætlar frá La Paz. Búliviu. 27. maí. AP. LUIS GARCIA Meza, leiðtogi herforingjastjórnarinnar í Bóli- víu, tilkynnti í gær að hann hygðist fara frá völdum þann 6. ágúst næstkomandi. Hann hefur beðið herinn um að útnefna eftir- mann sinn fyrir 17. júlí. Síðasta hálfa mánuðinn hefur tvívegis verið reynt að koma Meza frá völdum en í bæði skiptin runnu byltingatilraunirnar út í sandinn. Saarinen kjörinn formaður finnskra kommúista Frá Harry (iranberg. frcttaritara Mbl. i Helsinki. 27. mai. AANE Saarinen var um helgina kjörinn formaður finnska komm- únistaflokksins, en þá fór 19. þing kommúnistaflokksins fram. Taisto Sinisalu, sem er helsti leiðtogi stalínista innan flokksins, var kjörinn varaformaður. Þingið var mjög stormasamt og í kosningum til miðstjórnar flokksins voru 25 nýir menn kjörnir, en 50 manns eiga sæti í miðstjórn finnska kommúnistaflokksins. Er jafnvel búist við, að á næsta þingi komm- únistaflokksins verði að nýju skipt um leiðtoga; slíkar voru deilurnar. Kjamorkudeilan í Japan magnast Tokyo. 27. mai. AP Kjarnorkuvopnadeilan á Japan magnaðist í dag þegar leiðtogar kommúnista kröfð- ust þess að bandaríska flug- vélamóðurskipinu Midway yrði meinað að sigla til heimahafnar sinnar skammt frá Tokyo og bæjarstjórinn kailaði heimkomu skipsins eftir 2l/2 mánaðar siglingu „óviðeigandi“ eins og á stæði. Japanski kommúnistaflokk- urinn vill koma í veg fyrir að skipið komi til hafnar í Japan þar til úr því fáist skorið hvort nokkur kjarnorkuvopn séu um borð. Flokkurinn hefur haldið því fram í marga mánuði að slík vopn séu um borð í bandarískum herskipum og í herstöðvum í Japan. Kanzuo Yokoyama, borgar- stjóri í Yokosuka, er liggur að flotastöð 7. bandaríska flot- ans, sagði á fundi að hann gæti ekki neitað Midway að leggjast að bryggju, en það væri „við hæfi að bandaríski heraflinn sýndi tillitssemi vegna uggs borgarbúa út af kjarnorkumálinu." Borgarstjórinn sagði í við- tali að hann hefði ekki áhyggjur af því í sjálfu sér hvort kjarnorkuvopn væru í skipinu, heldur hinu að deilan gæti spillt sambandi Banda- ríkjamanna og borgarbúa. Jan Timman vann biðskák sína gegn sovéska stórmeistaranum Lev Polugaevsky úr 8. umferð og náði þar með vinnings forustu en gerði síðan jafntefli við Lajos Portisch, Ungverjalandi. í 9. um- ferð. Karpov greip þá tækifærið og minnkaði muninn í hálfan vinning þegar hann vann Hollendinginn Kick Langeweg, sem hafði betri stöðu framan af en heimsmeistar- anum tókst að ná frumkvæðinu og sigra í 41 leik. Jan Timman hefur nú 6 xk vinning og Karpov 6 vinninga. Næstir koma Vlastimil Hort, Tékkóslóvakíu, Lajos Port- isch, Ungverjalandi, og Vassili Smyslov, Sovétríkjunum, með 5'k vinning. Hort og Polugaevsky gerðu jafntefli í mikilli baráttuskák þar sem báðir fórnuðu mönnum. Smyslov gerði jafntefli við Banda- ríkjamanninn Lubosh Kavalek. Önnur úrslit urðu: Tony Miles, Bretlandi, vann Jan-Hein Donnar, Hollandi, Lubomir Ljubojevic, Júgóslavíu, og Hans Ree sömdu um jafntefli eftir 20 leiki. Hagstætt verð/góð greiðslukjör v Timburverzlunin Völundur hf. KLAPPARSTÍG 1 S. 18430

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.