Morgunblaðið - 28.05.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ1981
25
SkaKfirðin)?akórinn að æfa undir tónleikana á laugardaginn og Kanadaferðina i sumar
Til Kanada á 10 ára afmælinu
SkaKÍirðinKakórinn fer til Kanada í sumar ok syngur þar vítt
ok breitt um borgir ok byKKðir í þrjár vikur i júnimánuði. Ileldur
með því hátíðleKt tiu ára afmæli sitt. En áður en laKt er upp,
heldur kórinn sína árleKU hljómleika. sem verða i Austurba'jarbiói
á lauKardaKÍnn kl. 3. Við litum inn á æfinKU i SkaKfirðinKaheimil-
inu á mánudaKskvöld, en þar hefur kórfólkið komið 3svar sinnum
í viku ok oftar þegar nálgast hljómleika ok æft i hálfan þriðja
tíma.
Kórinn, sem í eru 60 manns, var
að syngja „Erla, góða Erla“ undir
stjórn Snæbjargar Snæbjarnar-
dóttur og við undirleik Ólafs Vignis
Albertssonar þegar okkur bar að og
lét sér ekki bregða þótt ljósmynd-
arinn smellti af. Helst að tenórnum
Einari Gunnarssyni brygði svolítið
við að fá svoleiðis smelli. En auk
hans syngja einsöng með kórnum
bæði í Kanadaferðinni og á tónleik-
unum á laugardag Halla Jónasdótt-
ir, sem var að hlaupa á æfingu hjá
kennaranum sínum, Demetz, og
Snorri Þórðarson. Snæbjörgu helst
á karlmönnunum, því báðir eru
þeir í söngnámi hjá henni sjálfri.
Kórinn tekur sér alltaf kaffihlé,
eftir að einhver hefur brugðið sér í
eldhúsið og kveikt undir könnunni.
I hléinu grípa menn í spil, og konur
taka í prjónana sína. Það er
greinilega góður félagsandi á
staðnum. Kórstjórinn Rögnvaldur
Haraldsson og stjórnandinn Snæ-
björg Snæbjarnardóttir rabba við
okkur um Kanadaferðina, þar sem
þau verða að verulegu leyti með
sömu söngskrá og í Austurbæjar-
bíói á laugardaginn. Kórinn mun
syngja ýmis íslenzk lög, þar á
meðal þjóðlög í útsetningu Jóns
Ásgeirssonar. En einnig bæta þau
inn í verkum eftir vestur-íslenzk
tónskáld og skáld eins og Stephan
G. Stephansson. Farið verður 3.
júní með flugvél Arnarflugs til
Toronto. Dvalið verður í viku í
Winnepeg og haldnir nokkrir tón-
leikar þar, einnig í Calgary í viku
og í Toronto í bakaleiðinni í viku og
verða nokkrir tónleikar á hvorum
stað. Auk þess heimsækir kórinn
ísiendingabyggðir, þar sem hann
hefur verið beðinn um að syngja á
sumarskemmtunum. Líður ekki sú
vika, að ekki sé hringt einhvers
staðar frá og spurt hvort hann geti
nú ekki komið við og sungið, eftir
að frá ferðinni var sagt í Morgun-
blaðinu og Lögbergi-Heimskringlu.
Og hvað segið þið? var spurt. —
Við segjum helst ekki nei, Skagfirð-
ingar eru svo söngglaðir, svaraði
Snæbjörg að bragði.
Frá því í fyrrasumar hefur kór-
inn verið að búa sig undir ferðina,
sem er dýr, kostar um 9 þúsund kr.
á mann. 50 kórfélagar fara og
makar sumra, alls um 80 manns.
Fararstjóri er Jón Ásgeirsson.
Fjáröflun hefur verið í gangi allan
veturinn með tónleikum og bösur-
um, sem konurnar hafa unnið muni
á. Karlmennirnir, sem margir eru
iðnaðarmenn, hafa tekið að sér það
verkefni að smíða hurðir til ágóða
fyrir ferðina, auk þess sem Skag-
firðingakórinn söng inn á tvær
breiðskífur, sem hafa selst vel.
Skagfirðingakórinn var stofn-
aður 1970. Uppistaðan í honum eru
Skagfirðingar eða makar Skagfirð-
inga. Starfsaðstaða breyttist mjög
til batnaðar, þegar félögin þrjú,
Skagfirðingafélagið, Kvennadeildin
og Skagfirðingakórinn, keyptu hæð
fyrir félagsheimili, sem er í stöð-
ugri notkun. Sé það leigt út kvöld
og kvöld í fjáröflunarskyni, þá
vinna konurnar þar gjarnan í
sjálfboðavinnu. Þegar maður veltir
fyrir sér hvaða áhrif svona mikil
félagsstarfsemi, æfing 3 kvöld í
viku og fjáröflun að auki, hafi á
heimilislífið, kemur í ljós að í
kórnum.eru 10 hjón, og á jólatón-
leikunum söng kór barna kórfélag-
anna. Svo allir eru sýnilega með.
Og það er svo gaman að syngja
saman, segja þau.
— E.Pá.
Einsöngvararnir Einar Gunnarsson, Halla Jónasdóttir og Snorri Þórðarson.
Snæbjörg mátar á Einar íslenzkt ullarvesti. Prjónastoí- ólafur Vignir Albertsson leikur undir, eins og
an Tinna í Kópavogi hefur gefið hlý vesti á allan venjulega og Snæbjörg Snæbjarnardóttir
kórinn. til að nota í Kanadaferðinni. stjórnar.
Ráðstefna um Elliðaárdalinn
Nk. laugardag. þann 30. maí,
verður haldinn á vegum Framfara-
félags Scláss- og Arbæjarhverfis
ráðstefna um Elliðaárdalinn, sem
náttúrufyrirbæris i horginni og
hlutverk hans fyrir nærlÍKgjandi
hyggðir. svo og þá starfsemi. sem
þegar er tengd sjálfum Elliðaár-
dainum. Elliðaánum og Elliðavatni
ásamt Ileiðmörk.
Ráðstefnan verður haldinn í Fé-
lagsheimili Rafveitunnar við Elliða-
ár og hefst kl. 9.15 um morguninn og
stendur til kL 17.30 e.h., j)ó með
matarhléi I hádeginu og stuttum
hreyfiWéum á ktukkutímafresti.
Einfaldar veitingar verða falar á
staðnum.
Ráðstefnan er haldinn að frum-
kvæði og undir stjórn FSÁ, en til
samstarfs hafa komið 10 félög og
stofnanir, sem tengjast umræðuefn-
inu á einhvern hátt. Ráðstefnunni
verður skipt í tvo hluta. Fyrir hádegi
verða flutt stutt erindi, þessir flytja:
Vilhjálmur Sigtryggsson um skóg-
ræktina í dalnum. Sigríður Einars-
dóttir flytur hugleiðingar Kópavogs-
búa. Elías Ólafsson um tengsl Ell-
iðaárdals og Breiðholtsbyggðarinn-
ar. Elín Pálmadóttir talar um Ell-
iðaárdalinn og umhverfismál. Nanna
Hermannsson lýsir Árbæjarsafni.
Kristján Guðmundsson skýrir frá
hestamönnum í dalnum. Eyþór Ein-
arsson segir frá gróðrinum í dalnum.
Árni Hjartarson útskýrir jarðfræði
Elliðaársvæðisins. Árni Reynisson
skilgreinir fólkvang. Árni Waage
lýsir fuglalífi í dalnum. Garðar
Þórhallsson segir frá laxveiði og
umhverfismálum. Aðalsteinn Guð-
johnsen lýsir virkjuninni í dalnum.
Steinn Halldórsson talar um
íþróttamenn í dalnum.
Eftir hádegi flytja þessir yfirlita-
erindi: Páll Líndal um Árbæjar-
svæðið, landareign og lagaþrætur.
Reynir Vilhjálmsson talar um efniö
Elliðaárdalurinn í þágu mannlífsins.
Að lokum verða pallborðsumræð-
ur þar sem valinn 6—8 manna hópur
lítur til framtíðar i ljósi þess, sem
fram hefur komið á ráðstefnunni.
Meginspurningar: Hvað er hættu-
legast dalnum? Samskipti mismun-
andi hópa á svæðinu. Til hvers og
hvernig á að varðveita dalinn? Hvað
næst? „Vel skal að hyggja, ef hér á
að byggja."
Ráðstefnan er öllum frjáls meðan
húsrými leyfir. Ráðstefnustjórar
verða Þorvaldur S. Þorvaldsson,
arkitekt, og Þórir Einarson, prófess-
or, en formaður FSÁ er Ásmundur J.
Jóhannsson, tæknifræðingur.
Ferming í
Skarðskirkju
Sunnudaginn 31. maí
næstkomandi verður
ferming í Skarðskirkju á
Landi. Sóknarprestur-
inn, sr. Hannes Guð-
mundsson, fermir þá við
fermingarguðsþjónustu
sem hefst kl. 14 þau:
Kristínu lijarnadóttur.
Leirubakka og GunnlauK
Svein ólafsson. Húsa-
Karði.