Morgunblaðið - 28.05.1981, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ1981
29
Stjómendur óskast!
BANDARÍSKUM stóríyrirtækjum gengur stöðust verr
að manna æðstu stjórnstöður sínar, en samkvæmt
niðurstöðum könnunar, sem framkvæmd var af samtök-
um stjórnenda, þá Kerist það æ oftar, að menn sem hafa
sent inn umsóknir vegna au^lýstra starfa stjórnenda við
stórfyrirtæki, hafna stöðunum, þe«ar þeim er boðin hún.
í niðurstöðunum kemur fram, að um 22% þessara manna hafna
stöðunum þegar á reynir. Hlutfallið er síðan enn verra ef tekin eru
stærstu fyrirtæki landsins, eða 31%.
Nokkrar ástæður eru nefndar þessu til skýringar. Fyrir það
fyrsta greiða stórfyrirtæki yfirleitt lægri laun heldur en þau
smærri. Þá hefur vinnuálagið á yfirmönnum stórfyrirtækja
stóraukizt hin síðari ár og ábyrgð þeirra er stöðugt gerð meiri, auk
þess sem stjórnstöðum stórfyrirtækja hefur stórlega fjölgað hin
síðari ár. Þá segir, að menn vilji mun frekar taka að sér
stjórnstöður í minni fyrirtækjum, sem minni ábyrgð fylgir og
launin eru jafnvel hærri. Þau eru reyndar mun hærri um leið og
mikil ábyrgð fylgir starfinu.
Fréttir frá Sviþjóð
VERÐMÆTI útflutniruís
Svía á síðasta ári óx um
11% ok nam alls um 131
milljarða sænskra króna,
eða sem næst 183 milljörð-
um íslenzkra króna.
Innflutningsverðmæti
óx hins vegar um nærri
15% og nam alls um 141,3
milljörðum sænskra
króna, eða sem næst 198
milljörðum íslenzkra
króna.
Það vekur athygli, að olíu-
innflutningur Svía hefur auk-
izt uni rúmlega 11%, á sama
tíma og innflutningur til
margra landa hefur staðið í
stað eða jafnvel minnkað.
Sala nýrra bíla minnkaði
um liðlega 9% fyrstu fjóra
mánuði þessa árs, en alls voru
seldir tæplega 46.500 bílar
samanborið við 51.200 bíla á
síðasta ári. Mest var selt af
240-línunni af Volvo, eða tæp-
lega 10.500 bílar. Síðan kemur
Saab 900, en af honum voru
seldir tæplega 5.000 bílar.
Atvinnuleysi hefur heldur
farið minnkandi fyrstu fjóra
mánuði ársins í Svíþjóð, en í
apríl var atvinnuleysið um 2%
vinnufærra manna. í mars
voru atvinnulausir um 2,1% og
í febrúar voru þeir um 2,5%
vinnufærra.
Fimm íslenzk fyrir-
tæki á sjávarútvegs-
sýningu í Kanada
FIMM íslenzk fyrirtæki tóku
þátt í sjávarútvegssýningunni i
Yarmouth í Nova Scotia í
Kanada, sem fram fór í lok
síðasta mánaðar. en alls tóku
110 fyrirtæki þátt i sýning-
unni.
íslenzku fyrirtækin, sem þátt
tóku, voru Elektra, J. Hinriks-
son hf., Plasteinangrun hf.,
Tæknibúnaður hf., og Vélsmiðj-
an Oddi hf.
Rúmlega 6000 gestir sóttu
sýninguna, bæði frá Kanada og
Bandaríkjunum. í framhaldi af
þessari sýningu er ætlunin að
halda árlega „Fish Canada",
sem verða til skiptis í Halifax og
Vancouver.
Sýnendur voru mjög ánægðir
með árangur sýningarinnar og
binda vonir um viðskiptasam-
bönd, sem náðust.
Það er nokkuð ljóst, að Kan-
ada mun í náinni framtíð verða
einn mikilvægasti útflutnings-
markaður íslendinga fyrir veið-
arfæri og útbúnað til fisk-
vinnslu. Það er því mjög brýnt,
að halda áfram skipulagðri
markaðsstarfsemi fyrir vörur
okkar þar.
Handavinnu-
sýning og
kaffisala í
Bústaða-
kirkju
■1 j
■if mm
m s IÍP^JÉéé&
Á LIÐNUM vetri hafa miðviku-
dagarnir verið hátíðisdagar
hjá öldruðum í Bústaðasöfnuði.
Þá hefur verið haidið til kirkju,
svo til í hvaða veðri sem var, og
hvorki látið á sig fá. þótt Kári
gnauðaði eða snjór hyldi allt.
Það sem var um að vera og dró
svo sterkt að sér var félags-
starf aldraðra, sem starfrækt
hefur verið síðustu vetur.
Það sem þar fer fram, er á ýmsa
lund, en þó ber hæst alls kyns
handavinnu og föndurstarf, sem
frú Magdalena Sigurþórsdóttir
stýrir með góðri aðstoð listrænna
kvenna. Þá þykir það nú ekki
ónýtt, þegar organisti kirkjunnar,
Guðni Þ. Guðmundsson, birtist til
að leika undir almennum söng eða
aðstoða góða hljómlistarmenn og
söngvara, sem koma til að leyfa
gestum að njóta listar sinnar. Þá
ber einnig ýmsa aðra að garði, eru
þá flutt erindi og sýndar myndir,
auk þess sem heimaskáldin eru
ekkert spör á það að láta vísur
ganga milli borða eða flytja úr
ræðustól. Er þar einna ötulastur
öðlingurinn Ólafur Þorkelsson við
ljóðagerðina og er efnið þá oft sótt
til fundarmanna eða atvika, sem
ailir þekkja úr starfinu. Þá er
ónefndur þáttur sóknarprestsins,
séra Ólafs Skúlasonar, dómpró-
fasts, sem oftast kemur, leiðir
helgistund og ræðir við samkomu-
gestina. Og sízt skyldi gleymast
framlag kvenfélagskvennanna,
sem koma með alls kyns góðgæti
og bera fram, meðan spilafólkið
safnar styrk í næstu atlögu og
nálar og penslar hvílast um hríð.
A uppstigningardag gefst síðan
kostur á því að skoða afrakstur
vetrarins, hvað handavinnuna
snertir, en til viðbótar sýna konur
í Kvenfélagi Bústaðasóknar ýmsa
muni, sem þær hafa unnið á
hinum margvíslegustu námskeið-
um félagsins. Auk þess verður
kaffisala til ágóða fyrir starfið. Og
til enn frekari yndisauka mun
Arnesingakórinn í Reykjavík
syngja á sýningunni undir stjórn
Guðmundar Ómars Óskarssonar.
En sýningin verður opnuð strax að
lokinni guðsþjónustunni, sem
hefst kl. 2 síðdegis á uppstign-
ingardag. Er ekki að efa það, að
fjölmennt verður til guðsþjónust-
unnar og síðan gengið í safnaðar-
salinn til að skoða og njóta. Verið
hjartanlega velkomin.
Áslaug Gísladóttir,
formaður Safnaðarráðs
Bústaðasóknar.