Morgunblaðið - 28.05.1981, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ1981
41
/-> —
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
0100KL. 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
sörióE»Ö^
fyWR
S0TlTUi0fl6^ÓLfl
r^r s*,iaða f,aíí- (Kb->-
>jor h'«« TOgl'lnnT'h!“ þ" bjÓst
pf. dí,,;; ^e,i ,o^örð
°8 ljós Oíí ],Ln i, 1 'shaPÍir iif
eeislum Jnnr 'ga eleðirós
2. ó skvifhny j tUm vef"'-.
>a °a Þakka’ Okki 1db°lnin >egJa
,lve Wo«M,r þú voíh®en,<l s)íka>
°K h'ómin á jö,ðn p,n bo,njn siná
Uln vJcr Inis J,"ta? >vi sk"l-
hjartað þitt elskuríka V* Um
1 Uósinu Mminsala180l0f&r hjörð
°‘n a Rnenni jörð rjn°g ghtrandi
b,lð og bala Rf grundir og
Mkkargjörð, Já b/að eiSJ Uytti
_ja)a. ’ Ja’ ^ mundu steinar
Já, þá mundu steinar tala
Á föstudag, 22. maí, var fram
borin hér í dálkunum fyrir-
spurn frá Pálínu Gísladóttur
um framhald á sálmi, sem
fyrirspyrjandi hafði lært í
æsku en mundi nú aðeins
upphafið að, svo og var spurt
um höfund sálmsins. Margir
hafa haft samband við Velvak-
anda og leyst úr vanda Pálínu.
Þeirra á meðal eru Áslaug
Ágústsdóttir, R.B., Stefanía
Stefánsdóttir o.fl. í Reykjavík,
Agnes Paulsen í Grindavík,
Jóhann Á. Kristjánsson í Vest-
mannaeyjum og „gömul kona"
á Akranesi. Fram hefur komið
að höfundur sálmsins er Valdi-
mar Briem vígslubiskup að
Stóra-Núpi (f. 1848, d. 1930).
Mun sálmurinn hafa birst í
kveri sem nefnt var „Barna-
sálmarnir" og kom fyrst út
1893. Þá birtist hann í „Söng-
bók fyrir sunnudagaskóla",
sem Sunnudagaskóli KFUM
gaf út árið 1922, í „Söngvabók
fyrir börn og æskulýð," sem
hjálpræðisherinn gaf út 1923
og í sálmabók á vegum Sjöunda
dags aðventista 1925.
Stefanía Stefánsdóttir léði
þættinum eintak af bók sinni,
„Söngbók fyrir sunnudaga-
skóla", og birtist sálmurinn
hér ljósprentaður eftir henni:
Frá föstudagskvöldi til sunnudagsmorgruns:
Lítið um svefn hjá
pillulausu f ólki
Forsíða nýja blaðsins.
Hár er
höfuðprýði
II.H. skrifar:
„Velvakandi!
Ástæða þess að ég sting niður
penna í þetta skipti er sú að mig
langar til að vekja athygli á
útkomu nýs blaðs, „Hár og fegurð".
Til þess að ráðast í útgáfu svo
vandaðs rits hefur þurft bæði
áræði og kunnáttu, og finnast mér
aðstandendur blaðsins verðskulda,
að eftir því sé tekið.
Meðal efnis í þessu töluhlaði er
margvíslegur fróðleikur um með-
höndlun á hári, t.d. hvernig fara
skuli með liti, næringu og þá ekki
síst um hárskurð, en í blaðinu má
sjá myndir af allfrumlegum hug-
dettum frægra meistara í faginu
þar að lútandi.
Þarna ættu þeir sem eiga við
einhver vandamál að stríða í sam-
bandi við hár sitt, eins og t.d.
hárlos, að finna efni við sitt hæfi.
„Hár er höfuðprýði", segir gam-
alt orðtæki. Þegar ég hugsa til þess
hversu almennur áhugi er hér á
landi fyrir hvers konar snyrtingu,
þá undrast ég það, að ekki skuli
fyrr hafa verið ráðist í útgáfu blaðs
eins og „Hár og fegurð".
En hvað sem því líður vil ég nota
þetta tækifæri til að óska útgef-
endunum velfarnaðar í sínu
brautryðjendastarfi og vona að vel
takist til með framhaldið."
Guðrún Jacobsen skrifar:
„Velvakandi góður.
Um leið og ég þakka þér hjartan-
lega fyrir að hafa gegnum árin
komið mínu orði kórrétt til skila —
kannski vegna þess að það er
SKÁLD á Mogganum, bið ég þig
fyrir eftirfarandi nöldur.
Vildi til að ég
var byssulaus
Ég er útivinnandi manneskja líkt
og nágrannar mínir. Frá föstu-
dagskvöldi til sunnudagsmorguns
er lítið um svefn hjá pillulausu
fólki. Við búum kringum eða á móti
einu skikkanlegasta hóteli Reykja-
víkur, Hótel Holti. Samt sem áður
langar mig til að gera nokkrar
athugasemdir. lívar sem ég hef
gist í heiminum eru reglur fyrir
hótelgesti, vilji þeir fá inni. Til
dæmis að nota næturbjölluna, en
berja ekki utan hótelskrokkinn
með tilheyrandi öskrum og for-
mælingum. Síðastliðna laugar-
dagsnótt rauk ég út. Það vildi til að
ég var byssulaus.
Ja, svei
Það allra versta í þessu sam-
bandi er að hlusta á sunnudags-
hugvekju eða morgunbæn sumra
presta sem fullyrða, að eigi megi
maðurinn reiðast. Ég held að slíkir
guðsmenn séu að skríða fyrir
fjöldann. Þeir ættu að standa í
víglínunni sjálfir. Fá aldrei nætur-
hvíld um helgar, að ég minnist ekki
á þjáningar fólks í austri og vestri,
eða svipuhögg Frelsarans í muster-
inu forðum. Ja svei!
Réttlát reiði er fyllilega réttlæt-
anleg. Verði ég, fulltrúi þeirra sem
aldrei á ævi sinni hefur gjört illt
verk af ásettu ráði, fyrir ónæði
eina helgi í viðbót, fer ég að skjóta.
Ungmenni, sem gera skyssu,
kannski vegna umhverfis síns, eru
dregnir upp á rassgatinu til að
sitja af sér dóm, þegar þeir eru
orðnir að mönnum.
Persónulega hlakka ég til að
sitja af mér alla dóma í ellinni."
Hefur framleiðsl-
unni verið hætt?
B.G. skrifar:
„Mikið er nú flutt til landsins af
alls kyns niðursuðuvörum og fjöl-
breytnin hér nálgast nú það sem
gerist í nágrannalöndum okkar.
Þó hafa margir saknað ágætrar
vöru, er fékkst til skamms tíma og
var íslenskur iðnaður úr innlendu
hráefni, en þar er átt við niður-
soðnar gulrófur, rauðrófur, gul-
rætur o.fl. framleitt hjá H.B. og
Co. á Akranesi. Þessar tegundir
hafa ekki sést í verslunum á
Reykjavíkursvæðinu mjög lengi.
Enginn vafi er á, að frjáls
innflutningur iðnaðarvara stuðlar
að aukinni vandvirkni íslensks
iðnaðar og gerir hann samkeppn-
ishæfan og niðursuðuvörur frá
Akranesi voru fyrir löngu búnar
að sanna ágæti sitt og fullkomlega
samkeppnishæfar við erlenda
framleiðslu.
Því er spurt: Hefur þessari
framleiðslu verið hætt?“
Tilboö óskast í nærfatnaö o.fl. til notkunar á
sjúkrahúsum.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Borgartúni
7, Reykjavík.
Tilboð veröa opnuö á sama staö föstudaginn 19. júní
nk. kl. 11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Viö opnun Combi Camp tjaldvagninn pá lýkst upp
nýr möguleiki til feröalaga. Combi Camp er sérstak-
lega sérhæföur fyrir ísienzka staöhætti bæöi fyrir
lélega vegi og kalda veöráttu. Hann er því bæöi hlýr
og traustur.
Einnig er gott geymslurými fyrir allan viölegubúnaö
5—8 manna fjölskyldu.
Hagstætt verö og greiðsluskilmálar.
BENCO,
Bolholti 4, sími 21945.
Iðnskólinn í Reykjavík
Innritun fer fram í Miðbæjarskólanum í Reykjavík 1.
og 2. júní kl. 9.00—18.00 og í Iðnskólanum á
Skólavöröuholti dagana 3.—5. júní kl. 13.00—18.00.
Póstlagöar umsóknir sendist í síöasta lagi 5. júní.
Umsóknum fylgi prófskírteini.
1. Samningsbundiö iðnnám
Nemendur sýni námssamning
2. Verknámsdeildir 1. og 2. bekkur Framhaldsdeildir
Bókiönadeild Offsetiönir
Fataiönadeild Prentiönir Bókband Kjólasaumur
Hársnyrtideild Klæöskuröur Hárgreiösla
Málmiönadeild Hárskurður Bifvélavirkjun
Rafiönadeild Bifreiöasmíði Rennismíöi Vélvirkjun Rafvélavirkjun
Tréiönadeild Rafvirkjun Útvarpsvirkjun Skrifvélavirkjun Húsasmíöi
3. Tækniteiknun Húsgagnasmíði
4. Meistaranám byggingarmanna
Húsasmíöi, múrun og pípulögn
5. Fornám
Endurtökupróf og námskeið til undir-
búnings þeim veröa haldin í júní.
Innritun og upplýsingar á skrifstofu
skólans.