Morgunblaðið - 11.06.1981, Síða 10

Morgunblaðið - 11.06.1981, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981 Hvað er yoga? Innrásin mikla Bókaklúbbur AB gefur út 9. bindi styrjaldarsögunnar BÓKAKLÚBBUR Almenna bóka félaK-sins hefur sent frá sér þann hluta styrjaldarsogu sinnar sem fjallar um innrásina í Normandí 1943. Er þetta 9. bindi styrjaldar- sOKunnar. Hofundur er brezki saKnfræðinKurinn DouKÍas Hort- inK ok þýðandi Bjorn Jónsson. Þessi innrás var gífurlegum erfiðleikum bundin, svo að oft er að sjá eins og tilviljunin ein hafi ráðið að hún fór ekki út um þúfur. Bandamönnum heppnaðist inn- rásin og ef svo hefði ekki verið hefði heimurinn sennilega litið öðruvísi út en hann gerir nú. Bókin er 208 bls. að stærð og með fjöldamörgum myndum eins og aðrar bækur þessa bókaflokks. Hún er sett í Prentstofu G. Benediktssonar og prentuð á Spáni. (Frá BAB) Hátíðasjóður Sænsk-ís- lenska félagsins stofnaður eftir Sigvalda Hjálmarsson Vegna ítrekaðra fyrirspurna um yoga, leyfi ég mér að taka eftirfar- andi fram: Yoga byggist á mystískri reynslu: að upplifa það að vera til á miklu stórkostlegri hátt en vanalega, finna allt í sér og sig í öllu, upplifa háa návist — sem sumir leyfa sér að kalla guðdóm. Yoga er sú iðkun sem á að auðvelda slíka reynslu og stefnir að því að það „sálarástand" sem kemur í mystískum glampa reyn- ist viðvarandi. Það kallast hugljómun (sanskrt: sahaja sam- adhi). Orðið yoga þýðir beinlínis sameining (við guð) og er það orð sem í Austurlöndum notast yfir það sem Vesturlandabúar kalla mystík. I Yoga er ætíð andleg iðkuií. Þótt beinagrind iðkunarinnar sé lík- amlegar stellingar (sbr. hatha yoga) þá skiptir sálarástandið eitt máli. Ailt annað telst einungis til hjálpar. Þannig er öll yoga-iðkun í rauninni hugleiðing. Hvernig er yoga iðkað? Hvað sem aðferðin heitir, hvaða svokallaða yoga-grein sem um skal ræða, hefst iðkunin alltaf á því að leitast við að ná valdi yfir athyglinni: „yoga’s citta-vrtti- nirodhah", að hindra hræringar hugans, eða ná valdi yfir myndun hugsananna í huganum. Þá byrjar maðurinn að verða var við sjálfan sig eins og hann er. Þetta kallast upphaf þess að þekkja sjálfan sig. Þegar iðkandinn hefur náð valdi yfir myndun hugsananna í hugan- um, ræður við hugsunarhæfileik- ann einsog hann ræður við hand- legginn á sér, og getur jafnvel verið í glaðvakandi alkyrrðar- ástandi þótt hugsunarhæfileikinn sé í gangi, óháður sínum eigin svörunum — þá er komið þetta sem kallast dhyana sem í rauninni þýðir hugleiðing, en má vel kalla hljMan huga á íslensku. Að afreka þetta er fyrsta stig yoga, hið hugræna stig. Þegar iðkandinn hefur svo öðl- ast þá færni að geta verið hljóður hugur að einhverju marki kemur annað stigið sem nefnist máttar- stig. Það er leynilegt og hefur varla fundist umrætt í bókum á vestrænum málum fyrren á síð- asta áratug (t.d. Siva Sutra), en laya-yoga og kúndlíní-yoga, einsog fólk þekkir þær greinar, má kalla ófullkomnar slitrur úr byrjunar- iðkunum þess stigs. Þótt talað sé um mátt, ber ekki svo að skilja að „Þá byrjar maðurinn að verða var við sjálf- an sig eins og hann er. Þetta kallast upphaf þess að þekkja sjálfan * 44 Slg. átt sé við mátt í vanalegum skilningi, heldur óskilgreinanlegt vald yíir því sem þú sjálfur ert, og því er samfara mikill kærleik- ur. Tekið skal fram að á þessu stigi eru æfingarnar einvörðungu hugræns eðtis. Hæsta stigið og hið þriðja má kalla hið guðlega stig. Framangreind skilgreining á yoga (í mjög stuttu máli) samrým- ist þeirri fræðslu sem veitt er á vegum helstu yoga-iðkenda, og má þartil nefna þekkta menn einsog Ramana Maharsi, Aurobindo, Paramahamsa Yogananda, Ram- akrsna og marga fleiri. Áherslu- munur finnst nokkur eftir kerfum, en aðalatriðin reynast hin sömu. Þörf gerist ennfremur að greina frá eftirfarandi: • 1. Æfingar úr yoga má iðka sér til heilsubótar (hatha-yoga o.fl.) og til almennrar lagfæringar á sjálfum sér (hugrækt: að ná valdi yfir athyglinni). Ekkert mælir því gegn að það sé þannig notað, og þarf hinn hái tilgangur ekki að falla úr augsýn fyrir því. • 2. Á fyrsta og öðru stigi iðkun- arinnar er möntrum oftlega beitt (man: hugur, hugarástand: tra: sem leysir, sbr. Jaideva Singh), en mestöll orð í ósviknum möntrum innihalda ekki hugtak, þær eru ekkert nema ómur i huganum, annars geta þær varla talist möntrur. (Um hversu mantra- iðkun verkar, sjá grein í Ganglera 1980,2. hl. bls. 72, HuKarstarf sem leysir, eftir Sigvalda Hjálmars- son.) • 3. í Austurlöndum ríkir minni tepruskapur um kynlíf en hér á Vesturlöndum. Og í sumum tilfell- um eru tákn um háan andlegan árangur tekin úr samlífi karls og konu (esóterísk tákn völdust yfir- leitt fyrir langalöngu úr hvers- dagslegu lífi). Þetta notast af sumum Vesturlandabúum til að afflytja yoga, enda hægt um vik, því jafnvel á Indlandi hafa menn, sem alls ekki geta talist yogar, þótt þeir skreyti sig með yoga- heiti, valið þessi tákn til að afsaka hæpnar athafnir sem ekkert eiga skylt við yoga, og þarf ekki austur í lönd til að finna dæmi um að góð málefni hljóti að þola þá hremm- ingu að vera saurguð fyrir atbeina óhlutvandra manna. • 4. Hæpið reynist að fara eftir bókum einvörðungu þegar leitað er þekkingar á yoga. Sá einn veit sem reynir. Fæstir textar yoga- bókmenntanna, kannski engir, voru upprunalega samdir til að skýra yoga fyrir ókunnugum. Þeir flokkast undir kennslurit, gagn- orðar leiðbeiningar, oft í táknum, og með styttingum sem iðkendur einir skilja, enda þeim einum ætlaðar, og aðalfræðslan falin munnlegri geymd. • 5. Fjarri fer því að yoga tengist Indlandi einu og því síður sér- staklega hindúatrú. Það hefur um aldaraðir, raunar í þúsundir ára, verið stundað um Asíu þvera og endilanga, frá Japan allt vestur til Afganistan (og Persíu um tíma). Margir yogar teljast meirasegja múhameðstrúar, þrátt fyrir strangleika hins íslamska rétt- trúnaðar, fyrir utan allan þann mikla fjölda sem aðhyllist búddhadóm, shinto, tao eða aðrar trúargreinir — ellegar kannski enga. Að lokum skal þess getið að yogar eða mystíkerar deila yfir- leitt ekki um stefnur í andlegum málum, bera naumast hönd fyrir höfuð sér þótt að þeim sé sneitt og láta nægja að kynna viðhorf sín fyrir þeim sem til þeirra ieita í einlægni... Stokkhólmi. frá GuMinnu RaKnarsdóttur. fréttaritara Mbl. í SAMBANDI við opinbera heim- sókn Gunnars Thoroddsens forsæt- isráðherra til Sviþjóðar nýlega var stofnaður hátiðarsjóður Sænsk- íslenska félagsins i Stokkhólmi. (Samfundet Sverige-Island.) Sænsk-islenska félagið varð 50 ára á síóastliðnu ári. Sjóðspeningunum á að verja til að efla á alla lund samskiptin milli tslands og Svíþj<>ð- ar. Það var fyrrverandi sendiherra Svía á Islandi, Olof Kaijser, sem gekkst fyrir stofnun sjóðsins, en í sjóðinn, sem er 50.000 sænskar kr. gáfu m.a. sænsku fyrirtækin Alfa Laval, ASEA, Cementgjuteriet, LM Ericsson, NOHAB-Tampella, SE- banken og Volvo. — Það er mér mikil ánægja að þessi sjóður skuli hafa komist á laggirnar, segir Olof Kaisjer. Félag- ið hefur haft lítil peningaráð að undanförnu og það hefur háð starf- seminni. Nú vonumst við til að starfsemin komist í fullan gang aftur, það eru mörg og mikilvæg verkefni sem bíða félagsins. Sænsk-islenska félagið hefur aðal- lega látið til sín taka á sviði menningarmála og hefur gefið út ýmsar bækur um Island, m.a. „En fárd till Island 1857“ eftir Nils Olson Gadd. Auk þess hefur félagið boðið bæði íslenskum og sænskum menn- ingarfrömuðum til fyrirlestrarhaids um ísland og íslensk málefni. Formaður sænsk-íslenska félags- ins er Olov Isaksson, safnforstjóri, en hann er mikill íslandsvinur og hefur m.a. gefið út bækurnar „Is och eld — en bok om Island" og „Island — förr och nu“. Norræn öldrunarfræðiráðstefna Efla ber heima- og stofnanaþjónustu RÁÐSTEFNA um öldrunaríræði stóð yfir dagana 30. maí til 2. iúní í Reykjavík. Að ráðstefnunni stóðu ÖldrunarfræðafélaK Islands, í samvinnu við samtök öldrunarfræðafélaga á Norðurlöndum sem nefna sig „Nordisk Gerontologisk fören- inK“. Þetta er fimmta norræna öldrunarráðstefnan sem haldin er. Öldrunarfræðin nær yfir þær breytingar sem verða á lífi einstaklinK.sins þegar ellin færist yfir þ.e.a.s. likamlegar, sálrænar og félaKsíegar svo og viðhröKÖ einstaklinjfsins og þjóðfélagsins við þessum breytingum. Á ráðstefnunni voru flutt 56 erindi og fjölluðu þau um ýmsa málaflokka aldraðra s.s. endur- hæfingu, geðræn vandamál, öldr- unarþjónustu bæði á heimilum og stofnunum. Einnig var fjallað um aldursbreytingar á beinum og vöðvum og efnahagsleg aðstaða fólksins rædd. Á blaðamannafundi sem að- standendur ráðstefnunnar héldu kom fram að sú skoðun var ríkjandi á ráðstefnunni að efla bæri verulega alla heimaþjónustu þ.e.a.s. svo fólk gæti verið sem lengst heima og breyta þyrfti einnig stofnanafyrirkomulaginu eins og elliheimilum, þannig að fólkið gæti verið meira virkt í störfum. T.d. gæti það fengið að taka þátt í almennum heimilis- störfum svo því fyndist það vera á heimili en ekki á hóteli sem væn „biðsalur dauðans". Mikið af fólki vildi endilega fá að dunda sér eitthvað. Mönnum þótti einnig Á myndinni eru, taldir frá vinstri, Þór Halldórsson ritari, Alvar Svanborg formaður „Nordisk Gerontologisk förening“, Andrus Viidik ritari og ólafur ólafsson landlæknir. óeðlilegt að ellilífeyrisaldur væri bundinn við fastákveðinn aldur þar sem fólk eldist misjafnlega. Fólk ætti að fá að velja hvenær það vill hætta störfum. Menn álitu að þetta væri pólitísk ákvörðun og gagnrýni kom fram á að 65 og 67 ára aldurinn væri úreit fyrir- brigði. Á blaðamannaflundinum gat Alvar Svanborg, sem er formaður „Nordisk Gerontologisk förening" þess hvernig hægt væri að þjálfa taugaviðbrögð verulega upp og hvernig hægt væri að bæta við- brögð tauga og vöðva aldraðra. Að síðustu kom fram að enginn vafi væri á því að þeir eltust verr sem nota alkahól og tóbak. Samanburður var gerður á að- búnaði gamals fólks hérlendis og í Skandinavíu og kom fram að vinnutími væri mun lengri hjá okkur en nágrannaþjóðum okkar og að meðalaldur væri heldur hærri. Húsnæðið sem aldrað fólk býr í er síst verra á íslandi en á hinum Norðurlöndunum. Formaður Öldrunarfræðafélags íslands er Alfreð Gíslason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.