Morgunblaðið - 11.06.1981, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.06.1981, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1981 Önundur Ásgeirsson í ræðustól. Til hægri á myndinni má sjá alþingismennina Þorvald Garðar Kristjánsson og Pál Pétursson. Orkuþing í gær: Átta fangar í Belfast flýja Kelfast. 10. júná. AP. ÁTTA hryðjuverkamönnum írska lýðveldishersins tókst að brjóta sér leið út úr Grumlin Road fangelsinu í Belfast í dag. Hryðju- verkamennirnir biðu þess að rétt- arhöld í máli þeirra hæfust, en þeir eru sakaðir um að hafa ráðið lögregluþjón af dögum. Ljóst þykir að flóttinn hafi verið skipulagður og undirbúinn utan fangelsismúranna, því bifreiðar biðu þess fyrir utan fangelsið að flytja fangana á brott. Var föngun- um ekið á miklum hraða til hverfa kaþólskra í vesturhluta Belfast. Til skotbardaga kom við flótt- ann, og særðust tveir fangaverðir. Lögregluþjónn er reyndi að veita föngunum eftirför, varð frá að hverfa vegna skothríðar. Vitni herma, að „til mikils skot- bardaga" hafi komið innan fangels- ismúranna meðan á flóttatilraun- inni stóð. I einni óstaðfestri fregn hermdi, að sveit vopnaðra manna hafi ráðist inn í fangelsið til þess að frelsa fangana. Strauss biðlar aftur til FDP Tuttugu og tvö erindi TUTTUGU og tvö erindi vóru flutt á Orkuþingi i gær, á öðrum degi þess. Árdegis starfaði þignið í tveimur deildum. I hinni fyrri stýrði Guðmundur Einarsson störfum. Þar fjallaði Baldur Líndal um not af jarðhita, Ágúst Valfells um not af raforku. Bragi Árnason um eldsneytisfram- leiðslu, Magnús Magnússon um háhitaefnavinnslu með rafmagni, Jónas Elíasson um upphitun húsa, Sigurður Briem um hag- kva-mni raforkusölu til stóriðju og Pétur Reimarsson flutti erindi Jónasar Bjarnasonar um hugs- anleg not innlendra orkulinda til að knýja fiskiskipaflotann. í annarri deild var Tryggvi Sigurbjörnsson við fundarstjórn. Þar talaöi Björn Friðfinnsson um orkusparnað, Davíð Egilsson um undirbúningsrannsóknir fyrir vatnsaflavirkjanir, Helgi Björns- son um jöklarannsóknir í þágu vatnsaflsvirkjana, Valgarður Stefánsson um skipulag jarðhita- rannsókna, Sigurjón Rist um langæislínur, Kristján Sæmunds- son um framtíðarhorfur í nýtingu jarðhita og Björn Kristinsson um útboð í orkuiðnaði og innlenda framleiðslu. Eftir hádegið stýrði Ragnar Halldórsson sameiginlegum fundi um orkufrekan iðnað, gildi og áhrif. Þar fjallaði Finnbogi Jóns- son um samkeppnisstöðu Islands, Ólafur Davíðsson um þjóðhagslegt gildi og efnahagsleg áhrif, Sveinn Valfells um frjálsan sparnað og fjármögnun, Jón Steingrímsson um samstarf við erlenda aðila, Vilhjálmur Lúðvíksson flutti er- indi Gylfa Þ. Gíslasonar um áhrif á fjárhag, sjálfstæði og menningu, Tryggvi Gíslason um áhrif á lífsviðhorf og menningu, Árni Reynisson um áhrif á umhverfi og Þorsteinn Vilhjálmsson um stað- arval orkufreks iðnaðar og gildi hans fyrir byggðaþróun. Á morgun hefst Orkuþing kl. 9 árdegis. Þá fjallar Jakob Björns- son um grundvallaratrið í stefnu- mótun í orkumálum og Tryggvi Sigurbjarnarson um hlutverk orkustefnunefndar. Þá er dag- skráratriði sem nefnist: þjóðfé- lagsleg markmið í orkumálum en þar verða kynnt viðhorf íslenzkra stjórnmálaflokka. Síðan verða pallborðsumræður. Þinginu lýkur svo með yfirliti Vilhjálms Lúð- víkssonar um markverð atriði á Orkuþingi og lokaorðum Páls Flygenrings, ráðuneytisstjóra. Notkunarsvið jarðvarmans MIÐAÐ við aðstæður á íslandi spannar notkunarsvið jarðhita húshitun. ísvarnir (hitun gatna og gangstétta), sund- og baðstaði, groðurhús, fiskrækt (eldi göngu- seiða og ræktun matfiska). vinnslu búvöru (sútun, niðursuða o.fl.), frystingu matvæla (notkun jarðhita við ís og frystingu), vinnslu sjávarafurða (fiskimjöls- þurrkun. soðkjarnavinnslu o.fl.), vinnsla jarðefna (kísilgúr. salt, súrál, brennisteinn), efna og iðn- aðarframleiðsla (þurrkað þang, pappir, etanól, magnesiumklórið o.fl.) og loks raforkuvinnslu. Þetta kom fram í erindi Baldurs Líndals á Orkuþingi um not af jarðhita og nýt tækifæri. í sambandi við nýiðnaðarmögu- leika drap hann einnig á eftir farandi notkunarmöguleika: 1. í þungavatnsvinnslu er jarð- gufan notuð til hitunar á vatni, sem er hitað og kælt á víxl. Gufu með 150°C þéttihitastigi má nota. 2. í sykurvinnslu er jarðgufan notuð til eimingar og til þurrkunar á vinnslu sykurúr- gangs. Hitastig þarf að nema um 135°C. 3. í súrálsvinnslu er gufan bæði notuð til eimingar og til hitun- ar. Hitastig þarf að vera 180°C. 4. í saltvinnslu og í vinnslu aukaefna þeirra, sem því fylgja þarf allt fra 100°C og upp í 200°C. Gufan er nær einvörðungu notuð til eim- ingar. 5. Vítissódavinnsla krefst gufu til eimingar. Hiti þarf að nema 160°C eða meira. 6. Sódavinnsla krefst gufu til hitunar, þurrkunar og splundrunar bikarbónatsins. Hiti þarf að nema 200°C. 7. Magnesíumklórið-vinnsla krefst gufu til eimingar og til þurrkunar. Því hærra hitastig því betra. 8. Blaðapappírsvinnsla þarf gufu til þurrkunar. Hiti þarf að nema 120°C til 140°C. 9. Móþurrkun kemur til greina með heitu vatni, en gufa myndi betri að öðru jöfnu. 10. Etanólvinnsla úr trjákenndum efnum getur notfært lágþrýsta gufu til eimingar, en þarf venjulega 180°C gufu að auki til forvinnslu. 11. Brennisteinssýruhreinsun myndi þarfnast all heitrar gufu til eimingar á brenni- steinssýru þótt með undir- þrýstingi væri unnið. Bonn. 10. júni. AP. KANZLARAEFNI Kristilega demókrataflokksins (CDU) í kosningunum í október i fyrra, Franz-Josef Strauss, hefur á ný biðlað til Frjálsa demókrataflokksins (FDP), samstarfsflokks Sósíaldemó- kratafiokks (SPD) Helmut Schmidts kanzlara i rikis- stjórn. Strauss sagði í viðtali við kaup- sýslutíðindin „Wirtschaftswoche" að kristilegir demókratar væru ennþá reiðubúnir til samstarfs með FDP í ríkisstjórn, sem hefði meirihluta á þingi. Hann sagði að CDU gæti sætt sig við stefnu FDP undir forystu formanns flokksins, Hans-Diet- rich Genschers. „CDU og CSU (bræðraflokkurinn í Bæjaralandi) eru án nokkurs vafa tilbúnir til samstarfs með FDP í samsteypu- stjórn," sagði Strauss. Ummæli Strauss eru síðasta tilraun CDU/CSU til að fá liðsinni FDP, sem hefur 53 þingsæti og tryggir stjórn Schmidts þing- meirihluta. Hingað til hefur Genscher hafnað öllum tilboðum um að slíta 12 ára gömlu stjórnar- samstarfi flokksins við SPD á þeirri forsendu að það yrðu svik við vestur-þýzka kjósendur. En síðan í kosningunum í októ- ber hefur komið upp ágreiningur milli stjórnarflokkanna í varn- armálum og gjaldeyrismálum og við það hafa komizt á kreik sögusagnir um að samstarfinu verði hugsanlega slitið. ERLENT Forlani gaf st upp RómahorK. 10. júní. AP. ARNALDO Forlani, sem gegnir starfi forsætisráð- herra á Ítalíu. gafst í dag upp á stjórnarmyndunartilraun sinni. Sandro Pertini forseti hefur ákveðið að biðja Gio- vanni Spadolini ritara Lýð- vcldisflokksins. um að taka upp þráðinn þar sem Forlani varð frá að hverfa. Forlani gafst upp er jafnað- armenn og lýðveldissinnar lýstu því yfir, að þeir væru ófúsir til stjórnarsamstarfs fyrr en meiri upplýsingar um frímúrarahneykslið, er leiddi til falls stjórnarinnar, lægju fyrir. ísraelar hljóta stuðning bandarískra þingmanna Trl Aviv. 10. júní. — AP. ÍSRAELAR sendu í dag öllum fulltrúum í Öryggisráðinu útskýr- ingar sínar á árásinni á kjarn- orkuverið í írak. þar sem því var haldið fram að árásin hefði verið gerð í sjálfsvörn og verið full- komnlega lögmæt. Öryggisráðið mun ra'ða málið á föstudag. í bréfi til fulltrúanna voru þau sjónarmið sctt frcm, að ísraelar hefðu í fimm ár reynt árangurs- laust eftir diplómatiskum leiðum. að fá Frakka ofan af þvi að selja írökum Osirak kjarnakljúfinn. Þar kom fram, að handariskir diplómatar hefðu lagt tsraelum lið. við þessar tilraunir. ísraelsk blöð sögðu í fréttum frá Washington, að þótt Bandaríkja- menn myndu endurskoða vopna- sölusamninga sína við Israela, muni þeir ekki hætta vopnasölu til þeirra. Samkvæmt bandarískum lögum er hægt að taka fyrir vopna- sölu til rikja sem ekki takmarka notkun bandaríska vopna við sjáfs- varnaraðgerðir. Franskir tæknimenn er störfuðu að byggingu kjarnorkuversins sögðu að árásin hefði verið mjög hnitmiðuð og mestur hluti stöðvar- innar verið lagður í rúst. Efri hluti kjarnakljúfsins hefði stórlaskast og neðri hlutinn gjöreyðilagst. Einn tæknimaðurinn sagði vonlaust að fara að verinu um sinn, þar sem ein sprengjan, sem varpað hefði verið, hefði ekki sprungið. Menachem Begin forsætisráð- herra Israels réðist harðlega að Frökkum og ítölum fyrir að aðstoða Hussein, er hann kallaði „blóð- þyrstan erkióvin", við að gera kjarnorkudraum sinn að veruleika. Sagði Begin, að hann mundi kalla frönsku og ítölsku sendiherrana á sinn fund, þar sem þeim yrði veitt „lexía í alþjóðasiðfræði". Shimon Peres leiðtogi Verka- mannaflokksins gagnrýndi í dag árásina á kjarnorkuverið og sakaði Begin um atkvæðaveiðar. Sendiherra ísraels í Alexandríu afhenti Anwar Sadat Egyptafor- seta bréf stjórnarinnar í Tel Aviv þar sem árásin var réttlætt. Sadat hefur gagnrýnt árásina. Howard Baker leiðtogi repúblik- ana í Öidungadeild Bandaríkja- þings hvatti þingmenn í dag til að hlaupa ekki upp til handa og fóta og dæma ísraela of hart og ýmsir þingmenn urðu til að hrósa ísrael- um fyrir hugrekki. Enn voru ísraelar hart dæmdir í ríkjum Araba, og þess krafist að Bandaríkjamenn létu þeim ekki í té fleiri orrustuþotur af gerðinni F-16. Khaled konungur Saudi Arabíu veittist harðlega að ísraelum í dag en hann er nú í heimsókn í Lundúnum. ísraelar flugu um loft- helgi Saudi Arabíu er þeir fóru til árásarinnar. Blaðið Wall Street Journal í New York, er flytur frengir úr fjármála- heiminum, sagði í dag í leiðara, „að það væri gott til þess að vita, að ein þjóð a.m.k. lifði í raunveruleikan- um,“ er blaöið lýsti aðdáun sinni á árásinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.