Morgunblaðið - 11.06.1981, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 11.06.1981, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1981 41 fclk í fréttum + Svo sem lesendur kann að reka minni til særðust tvær konur á Péturstorginu er Jóhannesi Páli páfa var sýnt banatilræði á dögunum. Þessi mynd var tekin fyrir fáum dögum í Páfagarði. Þá kom þangað í heimsókn önnur þessara kvenna, frú Ann Odre, sem er frá Bandaríkjunum. Var henni ekið í hjólastól til fundar við Jóhannes Pál páfa. Hún er ekki búin að ná sér að fullu, blessuð konan. Myndin er tekin er páfi tók á móti henni. Með henni til fundar við páfa fór dóttir hennar (í hægra horni). Maðurinn í baksýn er ítalskur læknir, sem stundað hefur amerísku konuna, sem enn er í sjúkrahúsi og undir læknis hendi. Pólitískur flóttamaður + Þetta er Walter Polovchak, 13 ára drengur frá Sovétríkjunum, sem ákvað í fyrrasumar, er hann var í Bandaríkjunum ásamt for- eldrum sínum, að neita að snúa heim aftur. Bað hann þá um hæli þar sem pólitískur flóttamaður. Foreldrar hans voru þessu gjör- samlega mótfallin. Síðan hafa farið orðsendingar milli stjórn- valda í Moskvu og Washington. Síðasta orðsendingin frá sovét- stjórninni var afhent í bandaríska sendiráðinu í Moskvu ekki alls fyrir löngu. Amerísk stjórnvöld hafa ekki enn orðið við kröfum sovétstjórnarinnar um að senda drenginn heim til foreldra sinna. Þetta óvenjulega mál mun koma enn á ný til kasta dómstóla í Bandaríkjunum nú bráðlega. Þessi mynd af sveininum unga var tekin af honum að leik í stórborginni Chicago fyrir skömmu. / E1 Salvador + Þessi fréttamynd var tekin í San Salvador, höfuðborg Mið-Ameríkuríkisins E1 Salvador. Þar hefur ríkt hin mesta skálmöld svo mánuðum skiptir, vegna innanlandsátaka. Maðurinn á miðri myndinni er nýr sendiherra Bandaríkjanna þar, sem heitir Deane R. Hinton, og myndin er tekin daginn sem hann afhenti forseta landsins, Jose Napoleon Duarte, embættisbréf sitt. Við ameríska sendiráðið í San Salvador hefur ekki verið starfandi amerískur sendiherra frá því í janúarmánuði síðastl., er þáverandi sendiherra var kallaöur heim og látinn hætta störfum. Bandaríkjastjórn hefur veitt stjórn Duarte margvíslegan stuðning. Þar er nú t.d. rúmlega 50 manna sendinefnd hernaðarsérfræðinga. Myndin er tekin er sendiherrann kannaði heiðursvörð. En i sambandi við afhendingu embættisskilríkja, kvað hann það von sína að draga myndi úr hernaðaraðstoð Bandaríkjanna. Hinton sendiherra er 58 ára gamall. Áður en hann gekk í utanríkisþjónustuna fyrir mörgum árum, starfaði hann við blaðamennsku. Nýkomið Teryleneblússur kr. 226.-. Peysur, margar geröir frá kr. 74.-. Gallabuxur kr. 145.-. Flauelsbuxur kr. 136.-. Terylenebuxur 148.-, 168.-. Sokkar kr. 8.-. Bolir, skyrtur, nærföt o.fl. ódýrt. Andrés, Skólavörðustíg 22. Juno—-n Komið og kynnið yður kosti JUNO eldavélanna með sjálfhreinsandi blást- ursofni. JUNO eldavélar. Vestur-þýzk- gæöavara. Jón Jóhannesson & Co. sf. Hafnarhúsinu. Símar 15821 og 26988. V________________________I____________^ Kjarakaupatilboð Bókaútgáfunnar Rökkurs fellur úr gildi 1. júlí nk. Bækurnar sex samtals allar í bandi: ÆVINTÝRI ÍSLENDINGS og aðrar sögur eftir AXEL THORSTEINSSON 2. útgáfa. GAMLAR GLÆÐUR, eftir Jack London og sögur frá írlandi og Englandi Astardrykkurinn, eftir Rafael Sabatini og sögur frá ítalíu, Rússlandi, Belgíu, Spáni, Búlgaríu, Frakklandi og Englandi. Paul Busson. Skotið á heiðinni, sögur dulræns efnis. N.J. Crisp. Tveir heimar, hugnæm saga frá Englandi, varö mjög vinsæl eftir lestur í útvarpi. Loziana Prole Ég kem í kvöld, skáldsaga um örlög Napóleons og Jósefínu fyrrv. drottningar. Sagan bregöur upp átakanlegum lýsingum af vináttu þeirra. Bækur sendar gegn póstkröfu, pantandi greiöi póstkröfugjald. Ofangreindar bækur eru samtals 1100 blaösíöur. Kjarabókatilboð útgáfunnar var áöur 5000 gamlar kr. og er því nú 50 nýkr. Nokkrar aðrar bækur ó sérlega hagstæðu verði, skrifið eða hringið, Bókaafgreiðsla Rökkurs kl. 4—7 daglega. Góður kaupbætir. Rökkur, Flókagötu 15, Reykjavík, sími 18768. Skrifstofa Eimskips í Pósthússtræti 2 er nú opin frá kl. 8.30-16.30 allavirkadaga. EIMSKIP SÍMI 27100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.