Morgunblaðið - 11.06.1981, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.06.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981 11 Aðild íslands að sameiginlegum vinnumarkaði Norðurlanda í athugun Til vinstri er dr. David Woods með dulcimer sem er handariskt alþýðuhljóðfæri. til hæ«ri er Njáll Sinurðsson með íslenskt langspil. Mynd tekin í Þjóðminjasafni (Egill Sigurðsson ljósm.). til tónlistarkennslu DAGANA 26. og 27. maí sl. hélt Norræna vinnu- markaðsnefndin (NAUT) íund sinn í Reykjavík, en nefndin heldur reglulega fundi tvisvar á ári, til skiptist í aðildarlöndun- um. í frétt frá félagsmálaráðuneyt- inu segir, að helsta mál fundarins að þessu sinni hafi verið tillaga um endurskoðun á samningi frá árinu 1954 um sameiginlegan vinnumarkað á norðurlöndum, sem öll löndin eru aðilar að, að íslandi undanteknu. A fundinum var gerð grein fyrir þeim viðræðum sem félagsmála- ráðuneytið hefur átt við aðila vinnumarkaðarins í því skyni að kanna með hvaða hætti ísland geti gerst aðili að samningnum. í þeim samningsdrögum, sem nú liggja fyrir, er gengið út frá því að viðhalda rétti til frjálsra flutn- inga milli norðurlanda og réttin- um til að ráða sig í vinnu í hverju landanna sem er, samkvæmt nán- ari ákvæðum í samningnum. Á þeim 25 árum, sem samningurinn hefur verið í gildi, hefur um ein milljón manna hagnýtt sér þenn- an rétt. Norræna vinnumarkaðsnefndin samþykkti að senda tillöguna til umsagnar aðila í hverju landi um sig og er stefnt að því að haust- fundur vinnumálaráðherranna, sem áformað er að halda í Reykja- vík um mánaðamótin nóvember/ uesember 1981, geti fjallað um tillöguna og umsagnirnar og lagt endanlegar tillögur fyrir þing Norðurlandaráðs í Finnlandi 1982. Af íslands hálfu sátu fundinn: Hallgrímur Dalberg ráðuneytis- stjóri, Óskar Hallgrímsson, deild- arstjóri og Jón S. Ólafsson, skrifstofustjóri. Langspil Hér á landi hefur dvalið banda- riskur tónlistarmaður, dr. David Woods, prófessor og deildarstjóri við tónlistarkennaradeild háskól- ans í Ames í Iowa. Hann hefur hlotið styrk frá Fulbright-stofn- uninni til að vinna hér á landi um tveggja mánaða skeið að athugun- um á íslenska langspilinu. Markmiðið með þessu rann- sóknarverkefni er að smíða eftir- líkingu af íslenska langspilinu og nota slík hljóðfæri síðan við tón- listarkennslu. Undirbúningur hófst með því að dr. Woods kynnti sér helstu heimildarrit um lang- spilið, sögu þess og uppruna. Nú fyrir skömmu hóf hann athuganir á þeim hljóðfærum sem tiltæk eru í söfnum og hjá einstaklingum víðs vegar um land. Athugun á hverju hljóðfæri felst m.a. í ná- kvæmri mælingu á stærð þess og lögun, útlitsteikningu og ljós- myndun, greiningu viðartegunda, svo og upplýsingum um aldur hljóðfærisins, sögu þess og upp- runa. Einnig eru gerðar segul- bandsupptökur til að bera saman tónstiga og tónblæ hljóðfæranna. Á grundvelli þessara rannsókna verður gerð eftirlíking sem smíðuð verður í nokkrum eintökum nú í sumar. Ætlunin er að hafa þessa eftirlíkingu nógu einfalda til þess að síðar megi kaupa efnið í hljóðfærið tilsniðið og setja það saman samkvæmt teikningu og vinnulýsingu. Geta tónlistarnem- endur þá sjálfir smíðað sín eigin langspil og leikið á þau líkt og sambærileg skólahljóðfæri sem eiga uppruna sinn að rekja til ýmissa alþýðuhljóðfæra. Einnig er ætlunin að leita til tónskálda um að semja tónverk sem hentað gætu til notkunar við nám og kennslu. Þeir sem aðstoða dr. Woods við rannsóknir hans hér á landi eru m.a. Njáll Sigurðsson, Stefán Edelstein, Jón Hlöðver Áskelsson, Auðunn H. Einarsson og Hreinn Steingrímsson. Langspil eru víða til á landinu og tilmælum er beint til allra eigenda slíkra hljóðfæra, bæði stofnana og einstaklinga, að hafa samband sem allra fyrst við Njál Sigurðsson í menntamálaráðu- neytinu, en hann hefur hug á að taka saman heildarskrá um ís- lensk langspil. (Fréttatilky nning) Einn eigenda Parma hf., Hilmar Friðriksson. ásamt Ingibjörgu Kristjánsdóttur i hinni nýju verslun. Parma hf. í nýtt húsnæði VERSLUNIN Parma hf., sem áður var til húsa að Ileliisgötu 16, Ilafnarfirði. hefur nú flutt starfsemi sína í ný og glæsileg húsakynni að Reykjavíkurvegi 64. Verslunin sem hefur að sérgrein sinni sölu gólfteppa frá einum stærsta teppaframleiðanda Bandaríkjanna, World Carpets, og mun jafnframt því að auka þar úrvalið bæta við t.d. þýskum alullarteppum. Baðherbergið verður önnur að- alsérgrein verslunarinnar með söluumboð í Hafnarfirði fyrir hin þekktu GROHE-blöndunar- og hitastýritæki og sænsku hreinlæt- istækin frá IFÖ. Á hinum nýja stað mun öll aðstaða verslunarinnar batna mjög, enda húsrými meira. (Fréttatilkynning) Sædýrasafnið: Óvissa um framhaldið SÆDÝRASAFNIÐ í Hafnar- firði hefur nú vcrið lukað frá því i byrjun febrúar sl. og kvaðst Jón Gunnarsson for- stöðumaður safnsins ekki vita gjörla hvenær búast mætti við að það opnaði á ný og taldi það alls óvíst. Sagði hann útilokað að opna að óbreyttu ástandi og kvað hann fjármálin þar vega þyngst, sífclldan rekstrar- fjárskort. Jón kvaðst þó hafa haldið öllum dýrastofni og ef rekstrargrundvöllur fengist yrði sótt um áfram- haldandi starfsleyfi fyrir safnið. aaaa 127 hefur svo sannarlega sannaö ágæti sitt á íslandi, enda hefur hann veriö einn vinsælasti smábíll hér á landi síðan 1972. aaaalZl hefur eitt hæsta endursöluverð notaöra bíla. aanalZl eyðir u.þ.b. 5—6 lítrum á hverja 100 km. I FlAT EINKAUMBOÐÁ ISLANDI DAVÍÐ SIGURÐSSON hf. SMIDJUVEGI4, KÓPAVOGI. 8|MI 77200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.