Morgunblaðið - 11.06.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.06.1981, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981 Flugkeppnin yfir Atlantshafið Flugkeppnin yfir Atlantshafið Flugkeppnin yfir Atlantshafið Flugkeppnin yf Síðustu vélarn- ar á austurleið í keppninni kennir margra grasa Um hádoRÍsbilið í gær voru síðustu fluRvélarnar í Transat-flugkeppninni að leggja upp frá Banda- ríkjunum austur yfir Atl- antshaf til Parísar, en búist er við að síðustu vélarnar komi til Parísar á föstudaR. Hafði kcppnin KenRÍð tiItöluleRa vel fyrir sír, ef undan er skilið að ein fluRvél lenti í hafinu skammt frá Skotlandi á austurleið. Um borð í fluRvélinni, sem var eins hreyfils ojí af Rerðinni Piper Comanche, var þotu- flugstjóri með 20 þúsund flujítíma að baki, or þaul- vanur fluRkennari honum til aðstoðar. Þeir lentu á Reykjavíkurflugvelli á vesturleið, en ætluðu að fljúga í einum áfanga það- Flug Texti: Ágúst xisgeirsson Myndir: Kristján Einarsson Um hádegi á þriðjudag höfðu rúmlega 40 flugvélar náð til Bridgeport-flugvallar í Stratford í Connecticut, þar sem snúið var við. Fimmtán flugvélar voru þá á leiðinni austur um, en sú kvöð hvíldi á flugmönnum, að þeir tækju sér 24 klukkustunda hvíld vestra. Margar flugvélanna ætluðu að freista þess að ná i einum áfanga frá Bandaríkjunum til Parísar og hafa því færri viðkomu hér á austurleiðinni. um að fjöldaframleiða flugvélina, og takist honum að sigra i keppn- inni verður það ekki svo lítil auglýsing. Fyrsta flugvélin, sem lenti á Islandi á austurleið, kom til Reykjavíkur rúmlega sjö á þriðju- dagsmorgun og stanzaði í innan við 30 mínútur til að taka elds- neyti, en hún var af gerðinni Mooney 201 og ætlaði í einum áfanga til Parísar. Flugmennirnir eru bandarískir. Von er á flestum flugvélanna að vestan í dag. Misjafnlega búnir Flugmennirnir sem hér höfðu viðkomu voru misjafnlega búnir. Langflestir þeirra voru í sérstök- um klæðnaði, sem gerir þeim kleift að velkjast um í hafi í jafnvel margar vikur. En innan um voru flugmenn sem voru ein- ungis í gallabuxum og stutterma- skyrtu. Um borð í flugvélunum öllum u fUlMG CLUtí Lou Miller, flugmaður bandarísku flugvélarinnar er fór hér fyrst um á leiðinni til baka til Parísar. Pil.,k;r flugmenn á italskri einshreyfilsflugvél af gerðinni Sia Marchetti 2G0 borga benzináfyllingu eftir 8'/2 klst. flug frá París með millilendingu i Prestwick. an. Flugkeppnin er haldin í tengsl- um við flugsýningu sem nú stend- ur yfir í París, og haldin er annað hvert ár. Keppnin er haldin til að minnast þess, að rösk hálf öld er liðin frá því að frönsku flugmenn- irnir Costes og Bellonte flugu fyrstir manna vestur um Atlants- haf, frá Evrópu til Bandaríkjanna, en það gerðu þeir 1930, er þeir flugu 4100 mílna vegalengd á 37 klukkustundum rúmum. Þremur árum áður flaug Lindbergh hið fræga einflug sitt austur yfir Atlantshaf. Þátttökuflugvélunum er skipt upp í flokka eftir fjölda hreyfla og þyngd. í öllum flokkum er keppt annars vegar um hver er fljótast- ur að fljúga fram og aftur um hafið og hins vegar er flugvélun- um veitt forgjöf sem ákvarðast af uppgefnum flughraða við ákveðna aflsetningu hreyfilsins. Fyrstu verðlaun í hverjum flokki eru jafnvirði tíu þúsund dollara. „Við fengjum fyrir benzínkostnaðinum ef við sigruðum, en lítið meira," sagði aðstoðarmaður tveggja kvenkeppenda í spjalli við Mbl. um helgina. Hann sagði kostnað við þátttöku í keppninni mikinn, en í flestum tilfellum hefðu hin ýmsu fyrirtæki hlaupið undir bagga og staðið straum af kostn- aði. Af þessum sökum voru flug- vélarnar skreyttar nöfnum og merkjum fyrirtækja í bak og fyrir. Árla á þriðjudag kom fyrsta flugvélin aftur til Parísar og var hún af gerðinni Cessna Centurion, eins hreyfils flugvél frá Luxem- borg, og var hún 24 klukkustund- um á undan upphaflegri áætlun. Á leiðinni vestur um haf stönz- uðu flugmennirnir í 31 mínútu í Reykjavík til að taka eldsneyti, en annars höfðu þeir ekki aðra við- komu á leiðinni, og voru 22 klst. og 42 mínútur vestur um haf. Þeir flugu austur um í einum áfanga frá Bridgeport-flugvelli, þar sem byr reyndist hagstæður og voru 17 klst. og 52 mínútur á leiðinni, eða 40 klst. og 34 mínútur báðar leiðir. Vélin flýgur á um 180 hnúta hraða. Á hádegi í gær höfðu 64 flugvél- ar lagt af stað frá París. Ein hætti í Manchester vegna vélarbilunar og ein sneri við í Reykjavík í gær. Nokkrar flugvélar sneru til Reykjavíkur á sunnudag og mánu- dag vegna bilana og vegna ísingar og veðurs við Græniand. Þær héldu þó allar áfram. Flugmenn elztu ílugvélarinnar afklæðast sérlegum klæðnaði er gerir mönnum kleift að lifa af margra daga volk á hafi úti. Franskir flugmenn á Mooney 201-fIugvéI setja benzin á aukatank er komið var fyrir i farþegaklefanum. Allar flugvélarnar voru með aukatanka til að auka drægni vélanna. Tilraunavél í forystu Sú flugvél sem hafði forystu í keppninni í gær átti að leggja af stað síðdegis frá Bridgeport, eins- hreyfilsflugvél af gerðinni Win- decker Eagle. Flugmennirnir ætl- uðu í einum áfanga til Parísar, um 16 klukkustunda flug, þar sem vélin flýgur á 180 hnúta hraða. Vélin er ein örfárra af .þessari gerð, en það er bandarískur maður að nafni Leo Windecker sem hannað hefur flugvélina, en fram- leiðandinn, Gerald Dietrich, flýg- ur henni. Hefur hann uppi áform voru hins vegar björgunarbátar. Og allar voru þær vel búnar leiðsögutækjum, af fullkomnustu gerð, en í viðtölum við flugmenn- ina kom fram, að þau voru flest fengin að láni hjá framleiðendum. Finnsk flugkona Eins og fram kemur annars staðar komu tvær franskar stúlk- ur fyrstar til Reykjavíkur á vest- urleið. Áhöfn annarrar flugvélar var skipuð konum eingöngu, tveimur fullorðnum finnskum konum, og hafa íslendingar áður heyrt annarrar þeirra getið, Orvokku Kuortti, en hún nauð- lenti einshreyfils vatnaflugvél undan Reykjanesi 1976, eins og skýrt var frá á sínum tíma. Þá var bandarísk kona við stjórnvölinn á einni flugvél, en hún heitir Sigfried Sikorsky og býr í Stratford í Connecticut, þar sem flugvélarnar sneru við í keppninni. Sigfried er flugkennari að atvinnu, en hún er jafnframt tengdadóttir frumkvöðuls á sviði þyrluflugsins, Igor I. Sikorsky, er hannaði og smíðaði fyrstu not- hæfu þyrluna. Þá flaug það fyrir, að flugstjóri á Concorde-þotu væri aðstoðar- flugmaður á einni einshreyfils- flugvélinni, en við nánari eftir- grennslan blm. Mbl. kom í ljós, að svo var ekki, heldur var þar á ferðinni alnafni hans. Annars var það eftirtektarvert, þegar rennt var yfir þátttakenda- listann, að í langflestum flugvél- anna voru atvinnuflugmenn, meira að segja flugmenn sem fljúga jafnan stórum farþegaþot- um milli heimsálfanna. Inn á milli voru hins vegar menn er stunda hin margvíslegustu og ólíklegustu störf, en allir hafa mikla reynslu í flugi, og allir urðu að uppfylla margvísleg og ströng skilyrði um hæfni og þjálfun vegna þátttök- unnar. / 180 sinnum yfir hafið Nefna má, að einn flugmann- anna er Mbl. spjallaði við á Reykjavíkurflugvelli reyndist vera ferjuflugmaður og hefur hann ferjað 180 litlar flugvélar yfir hafið um dagana. Þá tóku mjög margir þátttak- endur keppnina það alvarlega, að þeir höfðu farið margar ferðir fram og aftur yfir hafið í æf- ingaskyni síðustu vikurnar fyrir keppnina. Misjöfn áherzla óhætt er að segja, að þátttakendurnir í flug- keppninni hafi tekið þátt af misjafnlega mikilli alvöru. og marg- ir þeirra voru einvörð- ungu með ánægjunnar vegna og til að réttlæta skemmtilegan „flug- túr“. Þannig voru sumir flugmennirnir með að- stoðarmenn bæði i Reykjavik og vestur á Labrador og i Bridge- port. Þessir menn sáu um öll mál, útbjuggu flugáætlanir, sáu um benzinkaup, settu smuroliu á hreyflana. gengu frá tollskjölum, grandskoðuðu veður- kort o.þ.h. meðan þátt- takendurnir rétt skut- ust inn á salernin eða teygðu úr sér. Áf þessum sökum höíðu flugvélarnar mis- jafnlega langa viðkomu hér, en aðrir gerðu allt sjálfir og án þess að flýta sér við hlutina. Sú vél er stóð hér styzt við var farin i loftið 14 mínútum eftir að hún lenti. Og keppendur voru misjafnlega skapi farn- ir þegar þeir Ientu á Reykjavikurflugvelli. Flestir voru hressir og létu smávægileg vanda- mál litið á sig fá, en brezki blaðamaðurinn John Hutchinson var þar undantekning. Hann lenti rétt fyrir klukkan 15 á sunnudag og steig bálvondur út úr vél sinni: „Þær bregðast alltaf þessar veðurspár, sama gamla sagan. Við feng- um hullandi ísingu er við fórum frá Skotlandi og töpuðum talsverðum tima vegna mótvinds, sem ekki var i spánni,“ sagði hann og blússaði inn til Flugþjónustunn- ar til að athuga með áframhaldið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.